Skip to Main Content (Press Enter)
*Hleðsla úr 10% í 80% tekur um það bil 30 mínútur með 150 kW DC hraðhleðslu, við góðar aðstæður.“

**Þessi drægni á við um Toyota C-HR+ Active útfærslu með 77 kWh rafhlöðu og 18'' felgum. Um er að ræða áætlaða samræmda WLTP drægni sem bíður endanlegrar staðfestingar (samræmingarvottunar). 77 kWh rafhlaðan vísar til heildarrýmdar (gross capacity).
Sjálfstraust á rafmagni
Rafmögnuð afköst
Toyota C-HR+ er spennandi rafbíll með allt að 600 km akstursdrægni*. Með straumlínulagaðri hönnun og val um tvær rafhlöðustærðir, 57,7 kWh og 77 kWh, svo þú getur valið drægni sem hentar þínum lífsstíl.
*Þessi drægni á við um Toyota C-HR+ Active útfærslu með 77 kWh rafhlöðu og 18'' felgum. Um er að ræða áætlaða samræmda WLTP drægni sem bíður staðfestingar (samræmingarvottunar) áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir. 77 kWh rafhlaðan vísar til heildarrýmdar (gross capacity).

Hraðari hleðsla

Nýr Toyota C-HR+ býður upp á forhitun rafhlöðu og AC hleðslu með 11 kW og 22 kW.* Hann styður einnig DC hraðhleðslu allt að 150 kW, sem gerir þér kleift að hlaða úr 10–80% á aðeins 30 mínútum**.

*Misjafnt eftir útfærslu

**Hleðsla úr 10% í 80% tekur um það bil 30 mínútur með 150 kW DC hraðhleðslu, við góðar aðstæður.

Hleðslulausnir Toyota

  • Rafmagnað sjálfstraust

    Upplifðu öryggi með hleðslukerfi Toyota. Kerfið er samþætt MyToyota appinu og tryggir þægilegar og áhyggjulausar ferðir. Hvort sem þú hleður heima með Toyota Heimahleðslustöð eða á ferðinni á almenningshleðslustöð.

  • Toyota Heimahleðsla er beintengd við MyToyota appið og tryggir samfellda og þægilega upplifun við heimahleðslu.

  • Hleðslustöðvaleiðsögn í margmiðlunarkerfinu sýnir þér allar hleðslustöðvar á leiðinni, sem auðveldar þér að hlaða bílinn á ferðinni.

  • Auðveldaðu þér lífið með tengdum þjónustum í MyToyota appinu. Þú getur tímasett hleðslu eða fylgst með hleðslustöðu, drægni, fjarstýrt hitun og loftkælingu bílsins og margt fleira. 

Hugarró á ferðinni

EV leiðsögn sem er innbyggð í leiðsögukerfi Toyota C-HR+ leggur til hleðslustopp á sem hagkvæmastri leið miðað við hleðslustöðu rafhlöðunnar.

Hönnun
Toyota C-HR+ þróaður fyrir rafmagn
Ómögulegt að líta framhjá, hinn óhræddi og frumlegi Toyota C-HR+ sameinar framúrskarandi sparneytni og áberandi stíl. Kraftmikill og einstakur, allt frá einkennandi „hammerhead“ framhlutanum til sportlegs „fastback“ afturhluta, er þessi glæsilegi sportjeppi sannkallað augnayndi á veginum.

Stíll og rými

Það besta frá báðum heimum – nýr Toyota C-HR+ sameinar tilfinningaríka sportbílahönnun og fjölhæft innra rými jeppa.

Kraftmikil hönnun

Toyota C-HR+ vekur athygli með dramatískum hlutföllum og sléttum, tilfinningaríkum línum. Öflugir jeppaeiginleikar og 20" álfelgur auka á sportlegt og kraftmikið yfirbragð.

Innrétting
Gerðu hverja ferð enn betri
Nýr Toyota C-HR+ býður upp á rúmgott innanrými með 416 lítra farangursrými í glæsilegri og nettri yfirbyggingu. Með rausnarlegu höfuð- og fótaplássi sameinar innréttingin samþætta tækni við nútímalegan stíl.

Stjórnborð næstu kynslóðar

Þú ert alltaf með stjórnina í nýjum Toyota C-HR+ með háþróuðum fjölnota ökumannsskjá. Ökumannsrýmið er einnig búið 14" margmiðlunarskjá með þráðlausri snjallsímasamþættingu, tveimur þráðlausum hleðslum fyrir síma og stafrænu lykilkerfi.

Leyfðu birtunni að flæða inn

Panoramaglerþakið eykur upplifunina í þessu fágaða og flotta innanrými, baðar það í ljósi og rammar inn síbreytilegt útsýni, hvort sem það er heiður himinn eða háhýsi borgarinnar.

Þægindi fyrir alla

Nýr Toyota C-HR+ býður upp á farþegarými með fótaplássi sem er í sérflokki. Farþegar í aftursætum njóta einnig loftstýringar, tveggja 60W USB hleðslutengja og snjallrar geymslu fyrir persónulega hluti.

Í takt við lífsstílinn þinn

Rúmgóður og fjölhæfur. Nýr Toyota C-HR+ er alltaf tilbúinn í næsta ævintýri. Farangursrýmið, 416 lítrar, rúmar innkaupapokana eða ferðatöskurnar.

Fjórhjóladrif
Spennandi akstur
Njóttu hvers augnabliks með Toyota C-HR+ og kraftmiklum fjórhjóladrifnum akstri. Með 343 hestöfl og fjórhjóladrif nær hann hröðun úr 0 í 100 km/klst á aðeins 5,2 sekúndum*. Toyota C-HR+ er einstaklega hljóðlátur og þægilegur í akstri og tryggir kraftmikla akstursánægju.
* Tölur um hestöfl og hröðun eru óstaðfestar og bíða staðfestingar áður en endanlegar niðurstöður liggja fyrir.

Láttu ekkert stoppa þig.

Njóttu spennandi afls með alvöru fjórhjóladrifi sem eykur öryggi og stjórn í akstri.

Klár í allt

Snjall og fjölhæfur – aðlagar sig að öllum akstursaðstæðum Nýr Toyota C-HR+ bregst við hverju akstursumhverfi. Með einum hnapp ýtir þú á „Snjó“ stillingu sem fínstillir aflrásina fyrir vetraraðstæður.

Hugarró
Af hverju Toyota?
Toyota er þekkt fyrir áreiðanleika, framúrskarandi gæði og góða endingu. Sama hvers konar rafbíl þú ert að spá í er nýjasta kynslóð okkar af rafbílum – sem eru smíðaðir af einstakri nákvæmni og gerðir til að endast – alltaf svarið.

Heimahleðsla

Nýttu þér kosti þægilegrar, samtengdrar heimahleðslu með Toyota heimahleðslustöðinni og MyToyota appinu.

Þægindi

Rafbílarnir frá Toyota eru sparneytnir og knúnir með framúrskarandi rafhlöðutækni, geta ekið hundruð kílómetra á einni hleðslu.

Hugarró

Framlengda viðhaldsáætlunin okkar ábyrgist að rafhlaðan í Toyota-bílnum þínum haldi 70% af upprunalegri hleðslugetu sinni fyrstu 10 árin af eignarhaldi eða í eina milljón ekinna kílómetra*.
 *Með fyrirvara um reglulegt viðhald og þjónustu hjá viðurkenndum þjónustuaðilum Toyota.
Rafvæðing - algengar spurningar

WLTP drægnitalan er áætlun byggð á WLTP-reglugerðunum (Worldwide Harmonised Light Vehicle Test Procedure). Þetta er alþjóðlegur staðall sem Toyota fylgir af nákvæmni. Raunveruleg drægni getur verið frábrugðin WLTP-tölunni þegar lykilþættir, þar á meðal hraði, vegayfirborð, aksturshegðun og umhverfishiti, eru ólíkir þeim sem tilgreindir eru í WLTP-prófunarferlinu. Vinsamlegast notaðu drægnireiknivélina okkar til að áætla raunverulega drægni við tilteknar aðstæður, svo sem hitastig, stærð hjóla, akstursstillingu og stillingu loftkælingar.

Með því að velja Eco-akstursstillingu eykst nýtni og drægnin hámarkast, og það sama á við um þegar þú virkir Auto Eco Mode fyrir hitakerfið. Íhugaðu að slökkva á loftkælingu/hitun þegar hún er ekki nauðsynleg og mundu að upphituð sæti og stýri er betri leið til að spara orku ef þér er kalt frekar en að hækka hitann í miðstöðinni. Gott er einnig að forhita innanrýmið á meðan bíllinn er enn í hleðslu – þú getur gert það í gegnum MyToyota appið eða margmiðlunarskjá bílsins. Gakktu úr skugga um að dekkjaþrýstingur sé rétt stilltur, því lágur þrýstingur minnkar drægnina. Vetrardekk eyða einnig meiri raforku á þurrum vegum en sumardekk. Að bera óþarfa þyngd eykur orkunotkun, svo fjarlægðu óþarfa hluti úr bílnum. Að lokum skaltu íhuga að breyta aksturshegðun. Að aka á stöðugum, hóflegum hraða og forðast óþarfa hröðun og hemlun hjálpar þér að komast lengra á einni hleðslu. Þegar þú þarft að breyta hraða, gerðu það mjúklega til að minnka orkunotkun.

Rafbílar okkar eru smíðaðir samkvæmt sömu ströngu gæðakröfum, endingar- og áreiðanleikastaðli og aðrir Toyota bílar, og rafhlöðurnar eru hannaðar til að endast líftíma bílsins. Rafhlaða (Toyota C-HR+) er með ábyrgð gegn rýrnun niður fyrir 70% af upphaflegri getu í allt að átta ár eða 160.000 km – hvort sem á undan kemur.

Rafbíll (Battery Electric Vehicle) er án brunahreyfils og gengur eingöngu fyrir rafmagni, þar sem rafhlaðan knýr einn eða fleiri rafmótora. Hybrid-bílar sameina hefðbundinn brunahreyfil og rafknúna aflrás – yfirleitt sjálfhlaðandi rafhlöðu og rafmótor. Í Hybrid-bíl vinna brunahreyfill, rafmótor og rafhlaða saman. Rafmótorinn eykur afköst og virkar einnig sem rafall sem breytir umframorku í rafhleðslu, sem dregur úr eldsneytisnotkun.

Raunveruleg drægni bílsins þíns fer eftir mörgum þáttum, eins og hitastigi utandyra, akstursstíl og notkun loftkælingar.

Að hlaða rafbílinn þinn er einfalt og þægilegt. Þú getur hlaðið þegar þér hentar: heima, á almennings- og vinnustaðabílastæðum eða á ferðinni með hraðhleðslustöðvum sem eru víða í boði. Til að hlaða heima geturðu notað meðfylgjandi snúru og venjulegt innstungu eða sett upp heimahleðslustöð, sem hleður bílinn úr 10% í 80% á um 5 klukkustundum* (11 kW). Ef þú hleður yfir nótt getur þú vaknað við fullhlaðna rafhlöðu. Með hraðhleðslu geturðu hlaðið úr 10% í 80% á um 30 mínútum. *Hleðsla úr 10% í 80% næst á um 30 mínútum með 150 kW DC, jafnvel við -10°C, ef forhitun rafhlöðunnar er virkjuð 40 mínútum fyrir hleðslu.

Með því að forhita rafhlöðuna styttist tími við hraðhleðslu (DC). Forhitun rafhlöðunnar er hægt að tengja við leiðsögn í margmiðlunarkerfinu – hún virkist þegar þú velur hleðslustöð sem áfangastað. Þú getur einnig virkjað forhitun handvirkt með hnappi á margmiðlunarskjánum eða tímasett hana fyrir brottför.
Útfærslur og vörur eru eingöngu til viðmiðunar. Tæknilýsingar, hönnun, eiginleikar og útlit geta verið breytilegar milli markaða.