Skip to Main Content (Press Enter)
**Bráðabirgðatala í blönduðum akstursprófunum, bíður staðfestingar. Þessar tölur eru áætlaðar út frá opinberum staðfestingargögnum í stýrðu umhverfi (WLTP). Þær eru eingöngu ætlaðar til samanburðar. Berið aðeins saman við ökutæki sem prófuð eru samkvæmt sömu tæknilegu aðferðum. Raunveruleg rafdrægni ökutækisins getur verið frábrugðin þessum tölum þar sem margir þættir hafa áhrif á rafdrægni. Þessir þættir eru meðal annars útgáfa bílsins, aukabúnaður og fylgihlutir, aksturslag, hraði, vegaaðstæður, umferð, ástand ökutækis, gerð og þrýstingur dekkja (sumar/vetrar), hleðsla, fjöldi farþega, utanhússhiti, hitastig rafhlöðu o.fl.

**RAV4 Plug-in Hybrid 
Afköst
Það besta frá báðum heimum
Nýr RAV4 býður upp á afköst og fjölhæfni fyrir hvert ævintýri. Hann er fáanlegur bæði sem Hybrid og Plug-in Hybrid, svo þú getur valið það sem hentar þínum þörfum. Hvort sem um er að ræða léttan borgarakstur eða óvænta helgarferð, nýr RAV4 er tilbúinn í hvert einasta ferðalag.

Kraftmikill akstur

Heldurðu að þú þekkir RAV4? Hugsaðu aftur. Nýr og öflugur RAV4 Plug-in Hybrid skilar heilum 304 hestöflum* fyrir spennandi hröðun og dregur allt að 2.000 kg**. Veldu Hybrid AWD-i fyrir afköst og akstur fyrir allar aðstæður – eða leggðu áherslu á sparneytni með framhjóladrifi.

*Bráðabirgðatölur, bíða staðfestingar.
**Aðeins með fjórhjóladrifi (AWD).

PLUG-IN HYBRID

  • Meiri drægni

    Með hagkvæmri drifrás og 22,68 kWh rafhlöðu býður RAV4 upp á allt að 100 km* af akstri á rafmagni**

  • Hámarkaðu rafaksturinn. Með DC-hraðhleðslutækni getur nýr RAV4 hlaðið sig á aðeins 30 mínútum***.

  • Predictive Efficient Drive og Geofencing tæknin vinna saman að því að hámarka nýtingu rafhlöðunnar. Sláðu inn áfangastað í leiðsögukerfið og kerfið skiptir sjálfkrafa á milli rafmagns og Hybrid afls til að tryggja sem mesta sparneytni.

* Samkvæmt útreikningaaðferð IEC62660-1.
**Bráðabirgðatölur í blönduðum akstursprófunum, bíða staðfestingar. Þessi tala er áætluð út frá opinberum staðfestingargögnum í stýrðu umhverfi (WLTP). Tölurnar eru eingöngu ætlaðar til samanburðar. Berið aðeins saman við ökutæki sem prófuð eru samkvæmt sömu tæknilegu aðferðum. Raunveruleg rafdrægni ökutækisins getur verið frábrugðin þessum tölum þar sem margir þættir hafa áhrif á rafdrægni. Þessir þættir eru meðal annars útgáfa bílsins, aukabúnaður, aksturslag, hraði, vegaaðstæður, umferð, ástand ökutækis, gerð og þrýstingur dekkja (sumar/vetrar), hleðsla, fjöldi farþega, utanhússhiti, hitastig rafhlöðu o.fl.
***Frá 10% hleðslu upp í 80% með DC-hraðhleðslu við kjöraðstæður, t.d. hitastig á bilinu 25–30°C. Háð staðbundnum aðstæðum. Bíður staðfestingar. DC-hraðhleðsla er aðeins í boði fyrir ákveðnar útfærslur. Til að tryggja skilvirka hleðslu og varðveita heilsu rafhlöðunnar, dregur RAV4 tímabundið úr hraðhleðslugetu (í um það bil 24 klst.) eftir tvær 10–80% hraðhleðslur á sama degi.

Hybrid frelsi

Knúinn áfram af háþróaðri 2,5 lítra vél með Hybrid tækni, skilar nýr RAV4 Hybrid áreynslulausum afköstum – í borginni og á þjóðveginum.

Sterkbyggður með stíl
Þar sem hönnun og afköst mætast
Nýr RAV4 sameinar kraftmikla hönnun og alhliða notagildi – hvort sem þú ert í borginni eða á leið út í náttúruna. Hann er harðgerður, með útlit sem vekur athygli og er tilbúinn í hvað sem er.

Sterk yfirlýsing

Sportjeppi með kröftugri hönnun, áberandi framljós gefa bílnum sterkt og sjálfsöruggt yfirbragð.

GR SPORT

Með sportlegu útliti og aukinni loftaflfræðilegri frammistöðu lyftir GR SPORT hagnýtri fegurð RAV4 á nýtt stig.

Gerðu hann að þínum

 

Útfærslur sem sýndar eru endurspegla ekki endilega allt úrval. Tæknilýsingar geta verið mismunandi eftir markaði.
Snjallar tengingar
Stafræn upplifun endurhugsuð
Allt verður einfaldara með nýjum RAV4. Nýi skjárinn í mælaborðinu sýnir fjölbreyttar upplýsingar – þar á meðal 3D akstursaðstoð og leiðsögn – og með hnöppum á stýri er stjórnunin hnökralaus. Hvort sem þú ert að kanna borgina eða athuga veðrið með snertingu á skjánum, þá gefur RAV4 þér frelsið til að fara hvert sem er.

Starfrænn stjórnklefi

Glæsileg hönnun og þægileg tækni. Með sjálfvirkum hugbúnaðaruppfærslum og þráðlausri hleðslu fyrir tvö símtæki er nýi RAV4 tilbúinn fyrir löng ævintýri.

* Hönnun margmiðlunarskjás getur tekið breytingum.
** Aðeins í völdum útfærslum.
Öryggi
Öryggisbúnaður sem þú getur treyst
Nýr RAV4 setur ný viðmið í öryggi. Með nýjustu Toyota Safety Sense tækninni markar hann upphaf nýrrar kynslóðar 360° öryggis. Háþróuð myndavéla- og ratsjárkerfi fylgjast stöðugt með umhverfi bílsins og aðlaga sig að breytilegum aðstæðum í rauntíma. Meðal nýjunga er aðvörunarkerfi fyrir ökutæki sem nálgast að aftan e.Rear Vision Approach Indicator, sem varar við ökutækjum sem nálgast hratt aftan við bílinn – fyrir aukið öryggi og betri yfirsýn.

Alltaf viðbúinn

Með snjallri þrívíddargreiningu sem þekkir meðal annars vegrið, rafhlaupahjól, reiðhjól, bíla og vörubíla vinnur Toyota Safety Sense stöðugt að því að halda þér og öðrum öruggum – hvert sem leiðin liggur.

Kynntu þér málið
Af hverju Toyota?
RAV4 er fáanlegur bæði sem Hybrid og Plug-in Hybrid. Báðar útfærslur sameina rafmagn og bensínvél í einu hnökralausu aflrásarkerfi. Sama hvert ferðinni er heitið – með Toyota verður aksturinn skemmtilegri, einfaldari og skilvirkari.

Fylltu á tankinn

Að fylla á Hybrid eða Plug-in Hybrid bíl er bæði fljótlegt og einfalt – hvar sem þú ert. Þú einfaldlega bætir bensíni á hann eins og venjulega á næstu bensínstöð.

Hugarró

Tæknin í Hybrid- og Plug-in Hybrid frá Toyota er hönnuð til að endast út líftíma bílsins auk þess fylgir 3 ára þjónusta og 7 ára ábyrgð öllum nýjum bílum– svo þú getur slakað á og notið ferðarinnar.

Til í allt

Hybrid- og Plug-in Hybrid bílar skara fram úr við allar aðstæður. Þeir nýta hljóðláta rafmagnsaflið í borgarakstri, og bensínvélin gerir þá jafnframt fullkomna fyrir lengri ferðir.
Rafvæðing - algengar spurningar

Hybrid- og Plug-in Hybrid bílar byggja á svipaðri tækni. Bílarnir skipta á milli tveggja orkugjafa á hnökralausan hátt: sparneytnar bensínvélar og rafmótors sem samanstendur af rafhlöðu og einum eða fleiri rafmótorum. Hins vegar eru Plug-in Hybrid bílar með stærri rafhlöðu sem gefur möguleika á rafakstri í lengri tíma og þar að leiðandi lengri akstursdrægni í rafmagnsham (EV mode).

Allir Toyota Hybrid bílar hafa sjálfhlaðandi Hybrid rafhlöðu og bensínvél. Þeir eru tvinnbílar (e. Hybrid) vegna þess að þeir nota bæði eldsneyti og rafmagn til þess að framleiða orku fyrir bílinn. Sem þýðir að ólíkt 100% rafmagnsbíl þá þarf ekki að setja þá í samband. Við hemlun og aðra afhröðun er rafmótorinn nýttur sem rafali og hleðsluálag frá honum notað til að hægja ferðina. Skriðorka bílsins er þannig varðveitt sem rafmagn og endurnýtt til aksturs í stað þess að tapast sem hiti í bremsukerfinu. Í raun er ekki talað um rafdrægni í Toyota Hybrid bílum. Öll raforka sem verður til í akstrinum er notuð jafnóðum til að minnka notkun á bensíni og fer það eftir aðstæðum og aksturslagi hverju sinni hversu miklu rafmagni bíllinn hefur úr að spila til rafaksturs. Sjálfvirk hleðslustýring Hybrid-kerfisins sér til þess að rafhlaðan tæmist aldrei og fer bíllinn að reiða sig á bensínvélina áður en það gerist.

Það er einfalt og þægilegt að hlaða Plug-in Hybrid bílinn þinn, hvenær sem þér hentar með því að nota hleðslusnúruna sem fylgir bílnum. Við mælum með því að setja upp hleðslustöð heima við til að auka öryggi og hraða heðslu. Þú getur notast við hraðhleðslustöðvar þegar þú ert á ferðinn, staðsetningar almenningshleðslustöðva eru sýnilegar á margmiðlunarskjánum í bílnum.

Ólíkt rafmagnsbílum, þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af drægni Toyota Hybrid. Með frábærri bensín nýtingu þá eru Hybrid bílar með svipaða drægni og bensín/dísel bílar. Líkt og í hefðbundnum bíl þá þarftu bara að fylla á tankinn þegar hann er að verða tómur. Þar sem allir Toyota Hybrid bílar eru sjálfhlaðandi þá þarftu ekki að stinga þeim í samband til að hlaða rafhlöðuna. Það er vegna þess að þegar rafhlaðan í Toyota Hybrid er lág notar hún auka orku frá vélinni til þess að hlaða sig aftur.

Rafhlöður Plug-in Hybrid bíla frá Toyota eru hannaðar til að endast líftíma bílsins. Til að auka hugarró fylgir hverri rafhlöðu fimm ára / 100.000 km* ábyrgð sem hægt er að framlengja í allt að 10 ár með árlegri Hybrid prófun. Að loknum endingartíma rafhlöðunnar tryggir endurheimtaráætlun Toyota að rafhlöðunni sé fargað á öruggan og ábyrgan hátt. *Hvort sem fyrr kemur
Viltu vita meira?
Nýr Toyota Rav4 gerir hið ómögulega mögulegt.