MYNDIR
Skoðaðu Proace City Verso frá öllum sjónarhornum
Frá
5430000.0
Tölurnar sýna hæstu eða lægstu gildi sem eiga við þær vélar sem eru í boði en eiga ekki endilega við eina ákveðna útfærslu. Mælingar eru í samræmi við lagakröfur nýju Evrópureglugerðarinnar um WLTP-prófun EB 2017/1151 og viðeigandi breytingar.
Velja útfærslu
Proace City Verso er fínstilltur fyrir stræti borgarinnar með lítilli mengun í útblæstri og mestu sparneytni í flokki sambærilegra bíla. Þú munt kunna að meta lágan rekstrarkostnaðinn. Með hugvitssamlegri einingaskiptri hönnun geturðu breytt innanrýminu eftir þínum þörfum, hvort sem er fyrir vinnuna eða tileinkanota. Hægt er að leggja sætin niður til að hámarka farangursrýmið á meðan sætin í annarri sætaröðinni, öll með ISOFIX-festingum, vernda og hlúa að farþegunum.
Framúrskarandi tækni, þar á meðal sjónlínuskjár, bakkskynjari og Pro-Touch með leiðsögn í þrívídd, auðveldar þér ferðalagið og dregur úr streitu við akstur.
Proace City Verso býður upp á sveigjanlegt rými fyrir farþega þar sem hægt er að velja þrjú stök sæti í annarri sætaröð eða bekk sem hægt er að leggja niður 2/3 og 1/3, auk þess sem öll sæti eru með ISOFIX-festingum. Báðar gerðirnar, með stuttu og löngu hjólhafi, hafa pláss fyrir sjö manns, með tveimur þægilegum stökum sætum í þriðju sætaröð sem hægt er að renna fram og aftur þannig að þú getir valið rétt fótarými og farangursrými eftir þínum þörfum. Öll farþegasætin nema sæti í þriðju sætaröð má leggja niður, einnig framsæti fyrir farþega, sem býður upp á afar mikla flutningsgetu.
Hallaðu þér aftur, slakaðu á og njóttu ferðarinnar. Hvort sem þú situr undir stýri eða slakar á í farþegasætinu vekur Toyota Proace City Verso örugglega hrifningu. Þægilegir armpúðar að framan bæði fyrir farþega og ökumann, feikinóg geymslupláss og opnanlegt gler í afturhlera sem auðveldar aðgang að farangursgeymslunni gera bíllinn jafnhagnýtan og hann er þægilegur.
Skoðaðu Proace City Verso frá öllum sjónarhornum