Skip to Main Content (Press Enter)
loading content

Read timed out

POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=ea59a13e-d471-4e34-9068-c149abd01723

Toyota Relax

Toyota Relax ábyrgð býður upp á þann kost að framlengja ábyrgðina á viðkomandi bifreiðum um 12 mánuði / 15.000 km (20.000 km í tilviki Proace) í senn – hvort sem fyrr kemur – eftir að 5 ára eða 7 ára ábyrgð frá innflutningsaðilanum er útrunnin eða í þann mund að renna út. Það eina sem eigandi bifreiðarinnar þarf að gera er að koma með hana í þjónustuskoðun hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi. Toyota Relax er í boði þar til Toyota bifreið hefur náð 10 ára aldri eða verið ekin 200.000 km eða meira – hvort sem fyrr kemur.

Hraðþjónusta Toyota

Reglulegt viðhald er lykilatriði til að hámarka endingu bílsins og öryggi farþeganna. Hraðþjónustan sinnir meðal annars:  - bilanagreiningum  - smurþjónustu - peruskiptum - smærri viðgerðum. Viðskiptavinir geta í flestum tilfellum beðið á meðan þjónustunni er sinnt eða fengið afnot af bíl hjá Toyota Professional ef það hentar betur. Ef upp koma verkefni sem ná út fyrir ramma hraðþjónustu veitir starfsfólk leiðbeiningar um aðra lausn.

Vegaaðstoð

Ökutæki Toyota Professional eru eins áreiðanleg og mögulegt er. En vandamál geta komið upp, sérstaklega þegar veður eru slæm eða vegir ekki upp á sitt besta. Þess vegna bíður Toyota Professional 12 mánaða vegaaðstoð með öllum nýjum og notuðum keyptum bílum 365 daga ársins. *Ath vegaaðstoðin gildir eingöngu fyrir bíla keypta 1. júlí 2023 eða síðar. Hafðu samband við vegaaðstoð í síma 5 112 112

Afnot af bíl

Ekki hafa áhyggjur af því að vera bíllaus. Toyota Professional sér til þess bjóða uppá fjölbreytt úrval af bílum ef eitthvað kemur uppá eða ef bíllinn þarf að fara á verkstæði.

Toyota tryggingar

Tryggð frá fyrsta starti, þú getur gengið frá kaupunum á ökutækjatryggingunni þegar í stað á einfaldan og þægilegan hátt á toyotatryggingar.is

Flutningsgeta

Rými sem vinnur fyrir þig

Það er mikilvægt að vanda valið þegar kemur að því að velja bíl í fyrirtækjarekstri. Proace Max er í boði í mismunandi útfærslum og lengdum svo þú ættir að geta fundið það sem þú leitast eftir fyrir þinn rekstur.

Rými og flutningsgeta
  1. Nóg pláss
    1. Séð inn í Proace Max hlaðinn kössum
      Ekkert verk er ofviða
      Hvort sem þú rekur spennandi sprotafyrirtæki eða fyrirferðamikinn rekstur þá hentar Proace Max í verkefnin. Proace hefur meiri hæð en venjulegur sendiferðabíll og býður upp á 1500 kg burðargetu og hleðslurýmið tekur allt að fimm euro bretti.
    2. Séð inn í rúmgóðan, tóman Proace Max
      Nóg pláss
      Þarftu pláss? Þú hefur það. Stærsti Proace Max býður upp á mikla flutningsgetu eða allt að 17m³ í farmrými sem er 2172 mm hátt og 4070 mm langt og 3000 kg dráttargetu.
    3. Proace Max með dyrnar opnar inni á atórum lager
  2. Auðveldara að hlaða
    1. A Proace Max with its doors open
      Opið upp á gátt
      Þú hefur aðgang að hverju horni hleðslurýmisins. Hliðarhurðin er í fullri hæð og opnast vel auk þess sem afturhurðin opnast í 270°, fyrir hleðsluop sem er 1562 mm á breidd og allt að 2030 mm á hæð.
    2. Maður raðar kössum auðveldlega í Proace Max
      Auðveldara að hlaða
      Hurðar í fullri hæð og stór, ferningalaga hleðsluop auðvelda hleðslu svo með Proace Max klárar þú verkið hraðar. Sama hversu þungur eða óþægilegur farmurinn er, þá er hleðsluþröskuldurinn aðeins 531 mm sem auðveldar þér að koma farmi í bílinn.
    3. Séð inn í sjö sæta útfærslu af Proace Max Crew Cab
  3. Crew cab
    1. The seven-seat Crew Cab option
      Taktu alla vinnufélagana með
      Proace Max er fjölhæfur vinnufélagi. Með Crew Cab valmöguleikanum hefur þú tök á því að vera með fleiri farþega en samt sem áður með ágætis farangursrými. Með því að sameina rausnarlegt farmrými og fjögur sæti í annarri röð hefur þú pláss fyrir 6 farþega.
  • Rafmagn

    Stærð drifrafhlöðu
    110 kWh
    Afl
    270 hp*
    Drægni
    allt að 420km*
    10-80% hleðsla DC
    55 mínútur
    Flutningsgeta
    allt að 17m³
    Dráttargeta
    2400 kg
    * Combined
  • Dísil

    Aflrás
    2.2 l dísil
    Afl
    120 hö til 180 hö
    Eldsneytiseyðsla
    frá 7.5 l/100km
    CO₂ útblástur
    frá 198 g/km
    Flutningsgeta
    allt að 17m3
    Dráttargeta
    allt að 3000 kg

Hugsaðu í lausnum

Skrifstofa á hjólum

Þægilegt, loftkælt eða upphitað rými til að vinna í eða slaka á, í Proace Max er pláss fyrir tvo eða þrjá í sæti. Snjöll innrétting er sérsniðin fyrir lífið á veginum, Proace sameinar þægindi og afköst.

Hugsaðu í lausnum
  1. Stafrænn stjórnklefi
    1. Séð inn í Proace Max. stýri, margmiðlunarskjá og mælaborð
      Áreynslulaus tækni
      Ökumannsrýmið er þægilegt og notendavænt. 7" TFT upplýsingaskjárinn birtir gagnlegar upplýsingar um aksturinn. Á stýrinu eru hnappar sem auðvelda þér að hringja og svara símtölum án þess að taka hendurnar af stýrinu.
    2. Nútímalegt og smart innanrými Proace Max
      Tengdu símann við bílinn
      Með þráðlausu Apple CarPlay og Android Auto samhæfni, parast Toyota ProTouch við símann þinn á augnabliki svo þú getur svarð símtölum eða hlustað á þína uppáhalds tónlist. Tvö handhæg USB tengi og 230V rafmagnsinnstunga tryggja að tækin þín séu alltaf með næga hleðslu og tilbúin að klára vinnudaginn með þér.
    3. Um leið og þú bakkar þá birtist myndefni af útsýni aftan við bílinn á margmiðlunrskjánum
      Snjöll tækni
      Snjöll tækni í Proace Max auðveldar þér aksturinn. Stafrænn baksýnisspegill veitir skýra og óhindraða aftursýn. Myndavél sem staðsett er á afturhluta bílsins birtir einnig myndir á margmiðlunarskjánum þegar þú setur í bakkgír.
    4. Ökumaður notfærir sér niðurfellanlegt borð í ökumannsrými
  2. Þægindi
    1. Ökumaður notfærir sér niðurfellanlegt borð í ökumannsrými
      Hentugt og þægilegt
      Hvort sem þú ert að vinna í fartölvunni eða fá þér bita, þá getur þú nýtt þér niðurfellanlegt borð í ökumannsrými sem hægt er að halla í átt að ökumanni. Borðið er stöðugt og með mattri áferð sem kemur í veg fyrri að hlutir renni til. Á bak við borðið eru tveir glasahaldarar og geymslupláss fyrir t.d skriffæri eða hnífapör.
    2. Læst geymsluhólf í mælaborði Proace Max
      Pláss fyrir allt
      Það er nóg af hentugum geymslulausnum í Proace Max, í hurðum er hægt að geyma sólgleraugu, nestið, vinnuskjöl eða jafnvél 1,5 lítra flöskur. Í læstu hólfi í mæliborðinu er svo hægt að geyma mikilvæg gögn eða snjallsíma.
    3. Eigandi Proace Max skoðar MyToyota appið í símanum sínum
  3. MyToyota appið
    1. Betri stjórn með símanum

      * Búnaður bíla og þeir eiginleikar sem eru í boði geta verið mismunandi milli gerða og markaðssvæða. Til að fá frekari upplýsingar um þá eiginleika sem eru í boði fyrir hverja gerð skaltu hafa samband við viðurkenndan söluaðila eða skoða upplýsingarnar í eigendahandbókinni fyrir bílinn þinn.

      Auðveldaðu þér lífið með tengdum þjónustum í MyToyota appinu.Þú getur skipulagt ferðir og sent í bílinn, fengið yfirlit yfir þínar ferðir og upplýsingar um hvernig þú getur hagrætt akstrinum, fjarstýrt hitun og loftkælingu bílsins og margt fleira. *

      Proace Max owner viewing MyToyota app on their phone An owner approaching their Proace Max  with their phone in their hand

Öryggi

Öruggur, öruggari, Öruggastur

Proace Max býður upp á öryggistæknilausnir sem aðstoða þig við aksturinn, þar á meðal nýjustu kynslóð Toyota Safety Sense. Öryggistæknilausnir frá Toyota auka öryggi þitt öllum stundum.

Öryggislausnir frá Toyota
  1. Toyota Safety Sense
    1. Proace Max keyrir á vegi í umferð
      Öruggari akstur
      Proace Max býður upp á öryggistæknilausnir sem aðstoða þig við aksturinn, þar á meðal nýjustu kynslóð Toyota Safety Sense. Öryggistæknilausnir frá Toyota auka öryggi þitt öllum stundum.
    2. Sjálfvirk neyðarhemlun
      Sjálfvirk neyðarhemlun getur greint hættu á og aðstoðað þig við að forðast árekstra við önnur ökutæki, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk. Hún varar ökumann við með hljóðmerkjum, sjónrænum viðvörunum og hemlunaraðstoð. Takist ökumanninum ekki að hemla í tæka tíð eru hemlarnir virkjaðir sjálfkrafa til að komast hjá árekstri eða draga úr höggi.
    3. Upplýsingakerfi þegar ekið er af stað / Upplýsingakerfi fyrir blindsvæði
      Upplýsingakerfin þegar ekið er af stað (MOIS) og fyrir blindsvæði (BSIS) vinna saman til að greina hindranir til hliðanna á blindsvæðinu farþegamegin. Kerfið starfar með samvinnu sérstakrar myndavélar sem stjórnar LED-ljósunum á hliðarspeglinum farþegamegin og tveggja skammdrægra ratsjárpunkta á stuðaranum ásamt einum skammdrægum ratsjárpunkti farþegamegin. Þegar ekið er upp að hindrun á blindsvæðinu fær ökumaðurinn sjónræna viðvörun á mælaborðinu og í hliðarspeglunum. Sjónrænar viðvaranir eru sýndar sem þríhyrnt viðvörunarmerki.
    4. Sjálfvirkur hraðastillir / Hugvitsamlegur sjálfvirkur hraðastillir
      Þetta kerfi heldur þér í tiltekinni fyrirframstilltri lágmarksfjarlægð frá næsta bíl fyrir framan. Þegar of stutt er í næsta bíl dregur kerfið úr hraðanum og beitir loks hemlunum og kveikir hemlaljósin. Þetta kerfi er búið umferðarskiltaaðstoð sem greinir einnig hámarkshraða á akstursleiðinni og birtir ráðleggingar um hvað gera skuli.
    5. Akreinastýring
      Akreinastýringin er hönnuð til að gera akstur á þjóðvegum öruggari. Kerfið heldur bílnum á miðri akreininni og ef bíllinn byrjar að stefna út af akreininni beygir stýrisaðstoðin honum mjúklega aftur inn á miðjuna.
    6. An image showing Proace Max in windy conditions
  2. Hugvitsamleg akstursaðstoð
    1. Mynd sem sýnir Proace Max í vindi
      Snjallari, auðveldari og öruggari
      Proace Max eykur öryggi þitt með fjölbreyttu úrvali framúrskarandi aksturs- og bílastæðaaðstoðarkerfa.
    2. Aðstoð í hliðarvindi
      Aðstoð í hliðarvindi virkar á hraða yfir 65km/klst. og hemlar mjúklega til að leiðrétta akstursstefnu bílsins auk þess að hjálpa til við að halda bílnum stöðugum í sterkum hliðarvindi til að koma í veg fyrir að hann reiki yfir á næstu akrein.
    3. Snjallhraðastilling (ISA)
      Snjallhraðastilling getur aðstoðað þig við að forðast hraðasektir með því að stilla hámarkshraða sjálfkrafa með upplýsingum frá umferðarskiltaaðstoðinni, en hún greinir viðvörunarskilti fyrir hraðatakmarkanir með framvísandi myndavél bílsins.
    4. Stöðugleikastýring eftirvagns
      Stöðugleikastýring eftirvagns getur greint þegar eftirvagninn byrjar að sveiflast til og frá við drátt og leiðréttir allar hættulegar sveifluhreyfingar eftirvagnsins með því að annaðhvort minnka snúningsvægið og/eða hemla á hverju hjóli fyrir sig til að ná aftur stjórn á eftirvagninum og bílnum sem dregur hann.
    5. Hemlun eftir árekstur
      Hemlakerfi eftir árekstur grípur inn í ef slys verður og hemlar sjálfkrafa til að koma í veg fyrir annan árekstur.
    6. Athyglisaðstoð
      Athyglisaðstoðin fylgist með akstursmynstri til að greina gáleysislegan eða þreytulegan akstur og koma í veg fyrir möguleg slys. Ef kerfið greinir akstursmynstur þar sem ökumaður missir athyglina gefur það frá sér hljóðviðvörun og birtir skilaboð á skjánum sem vekja athygli ökumannsins.

Breytingar

Hægt er að breyta Proace og bæta við hjálparbúnaði svo þeir henti hreyfihömluðum
Hafðu samband við Toyota Professional fyrir frekari upplýsingar

Rafvæðing - algengar spurningar

  1. Allar

Rafbíll hefur ekki hefðbundna vél og gengur eingöngu fyrir rafmagni, þar sem rafhlaðan knýr einn eða fleiri rafmótora. Hybrid bílar hafa bæði hefðbundna vél og rafknúna aflrás. Í Hybrid bíl vinna vél, rafmótor og rafgeymir saman. Rafmótorinn eykur afköst og virkar sem rafall til að breyta umframorku í rafhleðslu, sem dregur úr eldsneytisnotkun.

Það er einfalt og þægilegt að hlaða rafbílinn þegar þér hentar með því að nota hleðslusnúruna sem fylgir bílnum. Við mælum með því að setja upp hleðslustöð heima við til að auka öryggi og hraða heðslu. Þú getur notast við hraðhleðslustöðvar þegar þú ert á ferðinn, sem geta komið þér úr 10% hleðslu í 80% á um 30 mínútum.* **Staðsetningar almennningshleðslustöðva eru sýnilegar á margmiðlunarskjánum í bílnum.

*Hægt er að hlaða frá 10% í 80% á 30 mínútum* með 150kW DC hleðslu við kjöraðstæður.
**Til að varðveita líftímaendingu drifrafhlöðunar, getur DC hraðhleðsluafl Toyota Proace Max verið lækkað og sömuleiðis lækkað í u.þ.b. 24 klukkustundir eftir 3,8 hleðslulotum er náð sama daginn (þ.e. jafngildir 3,8 sinnum 10% til 80%).

WLTP drægni Toyota Proace er 350 km* á einni hleðslu.

*Þessai gildi eru áætluð gildi sem eru byggð á prófunum í stýrðu umhverfi (WLTP). Þessar tölur eru gefnar upp í samanburðarskyni: berðu þær saman við aðra bíla sem prófaðir eru við sömu skilyrði (WLTP). Áætluð drægni gerir ráð fyrir að rafhlaðan sé fullhlaðin (100%) og að fullu tæmd (0%).

Raunveruleg drægni ökutækis þíns mun vera breytilegt frá þessum reiknuðu gildum, þar sem margir þættir hafa áhrif á drægni. Sem dæmi má nefna: útfærsla, búnaður og fylgihlutir, aksturslag, hraði, ástand vegar, umferð, ástand ökutækis, dekkjagerð (sumar/vetur) og þrýstingur í dekkjum, farmur ökutækis, farþegafjöldi, ytra hitastig, hitastig rafgeyma o.s.frv.

Uppgefin WLTP gildi eru leiðbeinandi en endurspegla ekki endilega raunverulega drægni. Hafðu samband við söluráðgjafa Toyota fyrir frekari upplýsingar.

A charge from a 10% state of charge to 80% can be achieved in 55 minutes* with 150kW DC charging in optimal conditions, such as a temperature of around 25°C. To protect battery health and longevity, DC fast charging performance is reduced once the state of charge reaches 80%**. Please consult our charging time calculator to estimate your charging time. Simply input your specific conditions, such as the type of charger you’re using and the ambient temperature.

 

 

*A charge from a 10% state of charge to 80% can be achieved in around 55 minutes with 150kW DC charging in optimal conditions, such as a temperature of around 25°.

 

**In order to preserve battery health over the life of the vehicle, DC Fast Charging power of the Toyota Proace Max may be reduced temporarily (for roughly 24 hours) after 3.8 sessions per day (equivalent of 3.8 times 10% to 80% state of charge).

With  a current of 32 amps, the minimum time to fully charge is 11.6 hours*. Please consult our charging time calculator to estimate how long charging will take in specific conditions, such as the type of charger and ambient temperature.

 

*In optimal conditions, such as a temperature of around 25°C.

Ef þú velur eco akstursstillingu mun það auka skilvirkni, sem og að virkja sjálfvirka eco stillingu fyrir miðstöðina. Íhugaðu að slökkva á loftkælingunni/hituninni þegar þess er ekki þörf og mundu að hituð sæti og stýri eru skilvirkari leið til að halda hita en að hækka miðstöðina. Það er líka góð hugmynd að forhita farþegarýmið á meðan bíllinn er enn í hleðslu – þú getur fjarhitað með MyToyota appinu. Gakktu úr skugga um að þrýstingur í dekkjum sé rétt stilltur. Lágur þrýstingur mun minnka notkunarsvið. Vetrardekk eyða líka meira rafmagni á þurrum vegum en sumardekk. Að bera óþarfa þunga mun auka orkunotkun, svo vertu viss um að fjarlægja umfram hluti úr bílnum. Íhugaðu að lokum að breyta aksturshegðun þinni. Að keyra á jöfnum, hóflegum hraða og forðast óþarfa hröðun og hemlun mun hjálpa þér að komast lengra á einni hleðslu. Þegar þú þarft að auka hraðann skaltu gera það með jafnri hröðun til að minnka orkunotkun þína.