Hvernig virka Toyota Hybrid bílar?
Hybrid bílar Toyota sameina marga kosti hefðbundinna bíla og rafbíla. Brunahreyfill og rafmótor vinna saman í einni háþróaðri og mjög samþættri aflrás. Mótorinn eykur afköst auk þess að virka eins og rafall sem breytir umframorku í rafhleðslu og dregur þannig úr eldsneytisnotkun. Útkoman er snurðulaus, skilvirk og umfram allt skemmtileg akstursupplifun. Til frekari skýringa sýna hreyfimyndirnar hér að neðan hvernig Hybrid bílarnir okkar virka.
Eldsneyti
Þú notar bensíndæluna til að fylla á tankinn eins og vanalega.
Rafdrifinn akstur
Rafhlaðan knýr rafmótorana, snýr hjólunum og keyrir bílinn áfram.
Hefðbundinn akstur
Brunahreyfillinn eykur afl og drægni á löngum leiðum, auk þess að hlaða rafhlöðuna.
Endurheimt hemlaorku
Þegar þú hemlar og bíllinn hægir á sér er orka sem annars væri sóað notuð til að hlaða rafhlöðuna.