Skip to Main Content (Press Enter)

Algengar spurningar

Algengar spurningar um MyTOYOTA appið

  1. Allar

Já, það er hægt. Þú getur hafið hleðslulotu fyrir alla bílana þína. Ef þú vilt hins vegar tímasetja snjallhleðslulotu er það eingöngu mögulegt gegnum MyToyota appið. Ef þú hefur bætt bílunum við MyToyota appið geturðu valið hvaða bíl þú vilt hlaða. Síðan fylgir þú skrefunum í MyToyota appinu til að hefja snjallhleðslulotu.

Opnaðu MyToyota appið og veldu bílinn sem á að hlaða.

 

Veldu síðan gerð hleðslu og fylgdu skrefunum í MyToyota appinu.

RFID kortum er bætt við hleðslutækið svo ef báðir aðilar nota sama hleðslutækið þarf aðeins að bæta því við einu sinni.

Já, það er hægt. Fyrsti notandinn er eigandinn og hefur fullan aðgang að eiginleikum og stillingum. Aðrir notendur eru gestir sem fá aðeins að hlaða. Fylgdu eftirfarandi skrefum til að bæta Toyota heimahleðslutækinu við MyToyota appið:

 

1) Opnaðu appið og veldu „Bílskúrinn minn“

2) Veldu „Hleðslutæki“ og „Bæta við hleðslutækjum“

3) Sláðu inn eða skannaðu raðnúmer Toyota heimahleðslutækis

4) Sláðu inn PIN númer og gælunafn

5) Ýttu á „Aðgangur og samnýting“ til að bæta við eða fjarlægja notendur

Nota má símann sem lykil til að opna og aka bílnum. Tilteknar gerðir bíla eru búnar stafrænum snjalllykli (fáðu nánari upplýsingar hjá viðurkenndum söluaðila) sem gerir þér kleift að skrá eiginleikann gegnum Bluetooth í símanum með MyToyota appinu. 

 

Sími sem er settur upp fyrir stafrænan snjalllykil með Bluetooth tengt og MyToyota appið opið eða í gangi í bakgrunninum er staðfestur og tengdur bílnum á stuttu færi. Með því má opna, ræsa og læsa bílnum með símanum eða einfaldlega með því að snerta hurðarhúninn. 

 

Ath.: Vertu með snjalllykilinn/lykilinn eða lykilkortið til vara til að geta opnað bílinn ef á þarf að halda.

 

Stafrænn snjalllykill krefst virkrar prufuáskriftar/áskriftar að stafrænum snjalllykli Toyota.

Stofnaðu aðgang í MyToyota appinu til að hefja uppsetningu stafræns lykils*. Sjáðu til þess að þú sért með „Grunn þjónustur“ virkar með prufuáskrift/áskrift að stafrænum snjalllykli. 

 

Fylgdu skrefunum í MyToyota appinu til að setja stafræna snjalllykilinn upp í símanum og bílnum þínum. Prófaðu aðgerðirnar til að opna, ræsa og læsa til að staðfesta að uppsetningarferlinu sé lokið.

 

Þú getur farið yfir eiginleika og getu bílsins í MyToyota appinu eða haft samband við viðurkenndan söluaðila til að fá frekari upplýsingar.

Til að hefjast handa við uppsetningu stafræna lykilsins skaltu vera með lykilinn og hafa aðgang að bílnum.

 

1) Staðfestu að prufuáskrift eða gjaldskyld áskrift að stafræna snjalllyklinum sé virk og „Grunn þjónustur“ séu virkar í MyToyota appinu.

2) Ýttu á „Setja upp stafræna lykilinn minn“ á upphafsskjá MyToyota appsins.

3) Kveiktu á Bluetooth og staðfestingu með lífkennum í símanum þínum. Þessu skrefi má sleppa ef Bluetooth og lífkenni hafa áður verið staðfest.

4) Staðfestu símanúmer símans með því að færa inn 6 stafa kóðann sem er sendur með SMS skilaboðum. Þessu skrefi er sleppt ef símanúmer símans hefur áður verið staðfest.

5) Virkjaðu aðeins eina gagnatengingu, Wi-Fi eða farsímagögn, áður en næsta skref er tekið

6) Veittu símanum heimild til þess að hlaða niður stafrænum lykli 

7) Skoðaðu upplýsingarnar í MyToyota appinu um pörunaraðgerðina

8) Hafðu kveikt á bílnum og settu lykilinn yfir ræsihnappinn þar til tvö hljóðmerki heyrast

9) Veittu MyToyota appinu aðgang að Bluetooth og ýttu á „Para“

10) Leyfðu tengingunni að klárast

11) Hafi uppsetning heppnast birtast skilaboðin „Uppsetningu stafræns lykils er lokið“ á skjánum 

 

Skoðaðu leiðbeiningarnar til að fá frekari upplýsingar.

Staðfestu að prufuáskrift eða gjaldskyld áskrift að stafræna snjalllyklinum sé virk. 

 

1) Ýttu á „Stillingar stafræns lykils“ á upphafsskjá MyToyota appsins. Í Toyota appinu geturðu deilt allt að fjórum stafrænum lyklum.

2) Ýttu á „Deila stafrænum lykli“

3) Skráðu fornafn nýs notanda, eftirnafn og símanúmer eða bættu því við úr tengiliðum símans

4) Ýttu á „Deila“ og staðfestu „Deila lykli“ 

 

Þér berst tilkynning um svar við boði um stafrænan lykil. Afturkalla má aðgang að stafræna lyklinum hvenær sem er. 

 

Skoðaðu leiðbeiningarnar til að fá frekari upplýsingar.

Í MyToyota appinu má deila allt að fjórum stafrænum lyklum (fyrir utan aðalaðgang). 

Boð um aðgang að stafrænum lykli berst með SMS skilaboðum með tengli í MyToyota appið. 

 

1) Ýttu á tengilinn í SMS skilaboðunum 

2) MyToyota appið opnast og biður þig um að „Samþykkja“ eða „Hafna“ boðinu um stafrænan lykil*

3) Ýttu á „Samþykkja“ til þess samþykkja boð um stafrænan lykil

4) Kveiktu á Bluetooth og staðfestingu með lífkennum í símanum þínum. Þessu skrefi má sleppa ef Bluetooth og lífkenni hafa áður verið staðfest.

5) Staðfestu símanúmer símans með því að færa inn 6 stafa kóðann sem er sendur með SMS skilaboðum. Þessu skrefi er sleppt ef símanúmer símans hefur áður verið staðfest.

6) Virkjaðu aðeins eina gagnatengingu, Wi-Fi eða farsímagögn, áður en næsta skref er tekið

7) Veittu símanum heimild til þess að hlaða niður stafrænum lykli 

8) Hafi uppsetning heppnast birtast skilaboðin „Uppsetningu stafræns lykils er lokið“ á skjánum 

 

*ATH.: Nýir notendur MyToyota appsins þurfa að ljúka skráningarferlinu og stofna aðgang áður en boð um stafrænan lykil er samþykkt.

Hafðu samband við næsta þjónustuver.

Stafrænn snjalllykill býður upp á tvær aðferðir til að opna/læsa: 

 

i) Fjarstýrð opnun/læsing --> Möguleg þegar síminn er innan 10 m

Ýttu á táknið „opna“ eða „læsa“ á upphafssíðu MyToyota appsins 

 

ii) Opnun/læsing án aðgerðar*--> Möguleg þegar síminn er innan 3 m

Snertu hurðarhúninn til að opna og læsa bílnum 

 

*ATH.: Ekki er hægt að læsa bílnum ef síminn er skilinn eftir inni, hljóðmerki lætur þig vita af því.

Ef þú vilt skilja símann eftir í bílnum og stafræni snjalllykillinn er virkur skaltu gæta þess að vera með lykilinn á þér og aftengja Bluetooth í símanum áður en þú læsir bílnum.

Þegar stafræni lykillinn hefur verið tengdur við símann þinn getur enginn annar notað hann eða átt við hann. Kerfi bílsins sér til þess að lykillinn sé tryggilega bundinn símanum þínum og ekki sé hægt að stela honum eða komast yfir hann á annan hátt. 

 

BLE samskiptatækni sem notuð er fyrir stafræna snjalllykilinn er nútímalegri og ræður þar af leiðandi betur við árásir þjófa en venjulegir lyklar:

  • Dulrituð samskipti fyrir örugga tengingu.
  • Einnota lyklar notaðir til að vernda öll samskipti.

Ef bíllinn er búinn stafrænum snjalllykli verður eiginleikinn í boði sem þjónusta í MyToyota-/Lexus Link+ appinu. 

 

Athugaðu að framboð á eiginleikum getur verið mismunandi milli gerða og útfærslna bíla og framboðs á markaðssvæðum. Þú færð frekari upplýsingar hjá næsta söluaðila Toyota/Lexus.

Stafrænn snjalllykill er með þrjú stig nándarskynjunar:

 

1) Fjarstýrð opnun/læsing er tiltæk þegar stafræni snjalllykillinn greinist innan 10 m

2) Opnun/læsing án aðgerðar* er tiltæk þegar stafræni snjalllykillinn greinist innan 3 m 

3) Gangsetning er tiltæk þegar stafræni snjalllykillinn greinist í bílnum 

 

*ATH.: Snerta þarf hurðarhúninn til að opna og læsa bílnum.

Stafræni snjalllykillinn er studdur í: 

 

  1. iOS tækjum með útgáfu 15.0 eða nýrri.
  2. Android-tækjumu með útgáfu 12 eða nýrri 

 

Stafræni snjalllykillinn er EKKI studdur í: 

 

  1. Tækjum frá vörumerkinu Huawei (Huawei setti á markað eigið HarmonyOS-stýrikerfi í júní 2021).
  2. Tækjum án öflugrar sannvottunar með lífkennum: 
  • Samsung Galaxy (A.10, 20 og 30)
  • LG K. (20, 30 og 40)
  • Moto E. (6 og 7)
  • Nokia (1.3 og 2.3)

Stafrænn snjalllykill notar Bluetooth tengingu með MyToyota appið í gangi í bakgrunni og nógu nálægt bílnum til að aðgangur fáist. Aftur á móti gerir fjarstýring gegnum MyToyota appið þér kleift að læsa/opna bílinn með fjarstýringu um internetið en þörf er á lykli til að aka bílnum.

Nei*, sími sem er settur upp fyrir stafrænan snjalllykil með Bluetooth tengt og MyToyota appið opið eða í gangi í bakgrunninum er staðfestur og tengdur bílnum á stuttu færi. Með því er hægt að opna, ræsa og læsa bílnum með símann í vasanum eða veskinu. 

 

*ATH.: Öryggisins vegna er krafist auðkenningar með lífkennum á 48 klst. fresti. 

 

Þú getur auðkennt þig með lífkennum með því að skrá þig inn í MyToyota appið.

Lokað verður fyrir aðgerðir stafræna snjalllykilsins ef auðkenning með lífkennum er ekki gerð eftir 48 klst. Til að opna fyrir þær þarftu aðeins að auðkenna þig með lífkennum.

Settu MyToyota appið upp í nýja símanum og skráðu þig inn með aðganginum sem þú átt nú þegar. 

Þú sérð að á upphafssíðu MyToyota appsins hefur „Setja upp stafræna lykilinn minn“ komið í stað hnappsins „Stillingar stafræns lykils“.

Ýttu á „Setja upp stafræna lykilinn“ og fylgdu sömu skrefum og þú fylgdir til að setja stafræna snjalllykilinn fyrst upp. 

 

ATH.: Til þess að geta flutt stafræna snjalllykilinn yfir í nýjan síma máttu ekki gera stafræna snjalllykilinn óvirkan í gamla símanum þínum og prufuáskrift eða áskrift að stafrænum snjalllykli verður að vera virk.

i) Afturköllun boðs* um stafrænan lykil af hálfu aðallykils: 

 

 1) Ýttu á „Stillingar stafræns lykils“ á heimaskjá MyToyota appsins. 

 2) Strjúktu til vinstri yfir nafn viðtakanda boðslykils sem á að afturkalla og ýttu á rusltáknið

 3) Staðfestu „Fjarlægja“ 

 

Þú og viðtakandi boðslykils fáið tilkynningu um afturköllun stafræns lykils. 

 

*ATH.: Ef eigandi boðslykils er að aka þegar aðgangurinn er afturkallaður stoppar bíllinn ekki. Afturköllun boðslykils tekur gildi þegar drepið hefur verið á bílnum. 

 

ii) Afturköllun boðslykils með boðslykli: 

 

 1) Ýttu á „Stillingar stafræns lykils“ á heimaskjá MyToyota appsins. 

 2) Ýttu á „Fjarlægja stafrænan lykil“ og staðfestu „Fjarlægja“

 Þú og aðallykill fáið boð um afturköllun stafræns lykils. 

 

Skoðaðu leiðbeiningarnar til að fá frekari upplýsingar.

Til að hefjast handa við afvirkjun stafræna lykilsins skaltu vera með lykilinn og hafa aðgang að bílnum. 

 

1) Ýttu á „Stillingar stafræns lykils“ á heimaskjá MyToyota appsins. 

2) Ýttu á „Gera stafrænan lykil óvirkan“ og staðfestu „Gera óvirkan“

3) Skoðaðu upplýsingarnar í MyToyota appinu um aðgerðina til að gera stafrænan lykil óvirkan

4) Ef stafræni lykillinn verður óvirkur birtast skilaboðin „Stafrænn lykill gerður óvirkur“ 

 

Skoðaðu leiðbeiningarnar til að fá frekari upplýsingar.

Ef óskað er eftir aðalaðgangi með boðslykli verður það til þess að stafræni snjalllykillinn verður óvirkur og allir stafrænir lyklar verða fjarlægðir (aðalaðgangur og boðslyklar)!! 

 

Ef þú gerir þetta óvart eða viljandi þarftu að fylgja uppsetningarferlinu til þess að gera stafræna snjalllykilinn virkan aftur.

Aðgerðir stafræna snjalllykilsins virka ekki þegar rafhlaða símans er tóm.

Hægt er að opna og læsa með stafræna snjalllyklinum þegar bíllinn er búinn ræsivörn af eftirmarkaði. 

 

Ekki er hægt að gangsetja vélina með stafræna snjalllyklinum þegar bíllinn er búinn ræsivörn af eftirmarkaði. 

 

Ef þú vilt nýta þér stafrænan snjalllykil með eftirmarkaðsræsivörn skaltu gæta þess að vera með svörunarlykil ræsivarnarinnar.

Um leið og stafræni snjalllykillinn er uppsettur geturðu eytt honum úr margmiðlunarkerfi bílsins 

 

1) Á aðalyfirliti margmiðlunarkerfisins ferðu í stillingatáknið, flettir niður og ýtir á „Upplýsingar og öryggi“.​

Hér er hægt að sjá í stillingum stafræns lykils hvort stafrænn lykill sé virkur.

2) Ýttu á „Fjarlægja stafræna lykla“. Þetta ræsir ferlið að fjarlægja lykil.

3) Þú þarft að staðfesta að þú ætlir að fjarlægja stafræna lykilinn og setja lykilinn með fjarstýringunni á ræsihnappinn.

4) Ef stafræni lykillinn verður óvirkur birtast skilaboðin „Stafrænn lykill gerður óvirkur“.

 

Skoðaðu leiðbeiningarnar til að fá frekari upplýsingar.

Ef þér finnst stafræni lykillinn ekki greinast nógu vel þegar þú ert utan eða innan bílsins er hægt að sérsníða drægni lykilsins. ​

 

1) Ýttu á „Stillingar stafræns lykils“ á upphafsskjá MyToyota appsins.

2) Ýttu á „Sérsníða drægni“ 

 

Stafræni lykillinn er þegar með stillingar frá verksmiðju sem ættu að henta flestum ökumönnum. Það sem gæti haft áhrif á greininguna er hvernig þú berð símann – er hann í rassvasa? Í veski? Eða ertu bara með hann í hendinni?​ 

 

3) Veldu á milli þriggja næmisstiga eftir þínum óskum og ýttu á „Vista“.​

4) Skilaboð birtast um að næmi hafi verið uppfært. 

 

Skoðaðu leiðbeiningarnar til að fá frekari upplýsingar.

Stafræni snjalllykillinn kann að vera utan sendisviðs, sendistyrkurinn er ekki nægur til að leyfa fjarstýrða opnun/læsingu eða slökkt er á Bluetooth í símanum. 

1. Opnaðu stillingar símans og gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth.

2. Taktu símann úr vasanum eða töskunni og snertu hurðarhúninn til að opna eða læsa bílnum.

Stafræni snjalllykillinn er utan sendisviðs eða sendistyrkurinn er ekki nægur til að leyfa fjarstýrða opnun/læsingu. Settu símann á miðstokkinn eða þráðlausa hleðslutækið.

Hugsanlega er hægt að nota stafræna snjalllykilinn án þjónustusvæðis farsímakerfis. Þú ættir hins vegar að skrá þig inn í appið áður en þú ekur inn á svæði með lélegu símasambandi (til að tryggja að appið keyri í bakgrunninum)

Nei, stafræni snjalllykillinn virkar ekki sem skyldi ef appið er sett upp á lokuðu svæði. Gakktu úr skugga um að MyToyota appið sé ekki sett upp á lokuðu svæði á meðan þú notar stafræna snjalllykilinn.

Ef þú kaupir notaðan Toyota sem styður tengda þjónustu geturðu virkjað hana í MyToyota appinu að því gefnu að þú getir sýnt fram á að þú hafir efnislegan aðgang að bílnum (með því að færa inn ekna kílómetra eða skanna QR kóða). Farðu til söluaðilans til að færa eignarhald á bílnum yfir á þitt nafn til þess að njóta allra eiginleika appsins.

Til að bæta við bíl smellirðu annaðhvort á „Bæta við bíl“ á upphafssíðunni eða, ef þú ert þegar með bíl, smellir á táknið „Bílskúrinn minn“ á hnappinum „Bæta við bíl“ efst til hægri. Til að eyða bíl opnar þú „Bílskúrinn minn“, flettir niður og smellir á „Fjarlægja bíl“. 

Í MyToyota appinu velurðu fyrst bílinn þinn úr „Bílskúrinn minn“, en smellir svo á „Tengdar þjónustur - Yfirlit“. Fylgdu síðan flæðinu til að virkja tengda þjónustu sem er í boði fyrir bílinn þinn.

 

Ef einn eða fleiri tengdir bílar í „Bílskúrinn minn“ hafa ekki enn verið virkjaðir færðu kvaðningu með upphafsskjá um að virkja tengda þjónustu í hvert sinn sem þú skráir þig inn í appið. Ef þú sleppir þessu skrefi geturðu samt virkjað það síðar með því að fylgja skrefunum hér að ofan.

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar. 

 

Athugaðu: í virkjunarferlinu þarftu að samþykkja notkunarskilmálana og staðfesta persónuverndaryfirlýsinguna.

Ef þú vilt slökkva varanlega á tengdri þjónustu í MyToyota appinu skaltu fyrst velja bíl í „Bílskúrinn minn“ og smella svo á miðstöð tengdrar þjónustu. Fylgdu leiðbeiningunum til að slökkva á þjónustunni.

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar.

Þú getur skoðað bæði virkar og óvirkar áskriftir með því að opna „Bílskúrinn minn“ og velja hlutann „Tengdar þjónustur - Yfirlit“.

Þú getur skoðað notkunarskilmálana í gagnaverndargáttinni á aðgangi þínum.

Þú getur skoðað persónuverndaryfirlýsinguna þína í gagnaverndargáttinni á aðgangi þínum.

MyToyota appið gerir þér kleift að hafa stjórn á bílnum hvar sem þú ert. Það er auðvelt í notkun og veitir þér aðgang að einstökum eiginleikum sem gera upplifunina að öðru og meira en bara akstri milli staða. Þú getur skipulagt ferðir, séð hvar þú lagðir bílnum, fengið upplýsingar um hvenær þarf að sinna viðhaldi, skoðað gögn um bílinn og fengið mikilvægar tilkynningar, ásamt því að geta fjarstýrt loftræstikerfi, hurðum og hættuljósum bílsins.

Röðin með táknunum fimm vísar til eftirfarandi hluta, frá vinstri til hægri: Bíll - Kort - Tilkynningar - Aðgangur - Aðstoð 

Þú getur opnað tengdar þjónustur hvenær sem þér hentar. Gögn um bílinn eru send í appið í hvert sinn sem drepið er á vélinni. Þú getur skoðað upplýsingar um síðustu ferð um leið og þú hefur drepið á vélinni. Þú verður að vera með gagnatengingu í gegnum farsíma og því kann þjónustan að detta út t.d. í bílastæðahúsum neðanjarðar.

Tengdar þjónustur samanstanda af MyToyota appinu í fartækinu þínu og margmiðlunarkerfinu í bílnum. Hvort um sig er búið eigin eiginleikum sem auka öryggi og skemmtun við akstur, í og utan bílsins. 

 

MyToyota appið gerir þér kleift að tengjast bílnum þínum hvar sem þú ert. Þú getur skipulagt ökuferðir, fundið hvar þú lagðir bílnum, fengið upplýsingar um hvenær tími er kominn á viðhald, skoðað gögn bílsins og fengið mikilvægar tilkynningar um bílinn, auk þess að fjarstýra hitastýingu, dyrum og hættuljósum bílsins. 

 

Margmiðlun gerir þér kleift að tengja símann (samhæf við iOS og Android) við bílinn þinn*. Þú getur notað uppáhaldsforritin þín, til dæmis Spotify, WhatsApp, Audible, Google Maps og Waze, í bílnum þínum og stjórnað þeim með Siri eða OK Google. Margmiðlunarkerfið veitir þér einnig aðgang að gagnlegum upplýsingum eins og rauntímaviðvörunum um umferð og viðvörunum um hraðamyndavélar, og gerir þér kleift að leita að áhugaverðum stöðum í leiðsögukerfinu. 

 

*Aðeins í boði fyrir valdar gerðir

MyToyota appið gerir þér kleift að halda stöðugri tengingu við bílinn þinn en í viðskiptavinagáttinni / á notandasvæðinu geturðu framkvæmt ítarlegri skýrslugerð, sótt notendahandbækur og virkjað margmiðlunareiginleika (kortauppfærslur, Wi-Fi pakka o.s.frv.) 

 

Sumir eiginleikanna eru bæði í boði í MyToyota appinu og viðskiptavinagáttinni/notandasvæðinu (vefsvæði) og notaðar eru sömu innskráningarupplýsingar, t.d. við bókun þjónustu á netinu eða til að skoða feril þjónustuskoðana.

Nánari upplýsingar um framboð eftir gerðum fást hjá viðurkenndum söluaðila eða á vefsvæði Toyota/Lexus fyrir þitt svæði.

Opnaðu iOS App Store eða Google Play Store og leitaðu að MyToyota appinu. Því næst geturðu hlaðið því niður, þér að kostnaðarlausu.

Tengdar þjónustur fela í sér grunn og fjartengda/stýrðar þjónustur. Grunn þjónusta felur í sér fjölbreytt úrval stafrænna eiginleika sem er ætlað að tryggja öryggi, persónuvernd og þægindi við akstur. Fáðu upplýsingar um staðsetningu bílsins, hleðslustöðu rafhlöðu, aksturslag og -feril, viðvörunarljós og margt fleira. Deildu staðsetningu bílsins með vinum og vandamönnum á netinu. Fjarstýrðar þjónustur veita þér aðgang að bílnum úr fjarlægð til að breyta ýmsum stillingum og sérsníða þær að þínum þörfum. Þú hefur aðgang að öllu sem til þarf til að tryggja þér bestu mögulegu akstursupplifunina.

Nýttu þér úrval aðgerða til að vera ávallt skrefi á undan og mæta tímanlega á áfangastað. Fylgstu með aðstæðum á vegum og leitaðu að eldsneytisstöðvum og bílastæðum (við götur og annars staðar). Aktu áhyggjulaust með uppfærðri netleiðsögn.

Notkunarmiðaðar tryggingar taka mið af aksturslagi þínu og skila ökumanninum einkunn á grunni þess. Ökumaðurinn fær síðan umbun fyrir öruggari og mýkri akstur – og sparar í iðgjöldum þegar tryggingarnar eru endurnýjaðar. Þetta er skemmtileg leið til að verða betri ökumaður og spara pening um leið. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um notkunarmiðaðar tryggingar á: https://www.toyota-europe.com/finance-insurance/usage-based-insurance

*ATH! Ekki í boði á Íslandi 

Hybrid altrygging hvetur þig til að nýta hybrid-bílinn þinn sem best og umbunar þér fyrir öruggan akstur í rafakstursstillingu. Síðan færðu afslátt næst þegar þú endurnýjar iðgjöldin. Frekari upplýsingar um hybrid heildartryggingu er að finna á:

 https://www.toyota-europe.com/finance-insurance/full-hybrid-insurance

*ATH! Ekki í boði á Íslandi

Þú ákveður hvaða gögnum þú deilir með Toyota. Þú getur stjórnað þessu hvenær sem er í gagnaverndargáttinni og getur afturkallað samþykki þitt þegar þú vilt.

Með því að velja söluaðila í appinu færðu betri upplifun af eiginleikum eins og bókun þjónustu á netinu og viðvörunarljósum.

Um leið og persónuverndarstillingin er virkjuð gildir hún fyrir alla þjónustu sem felur í sér staðsetningu, hybrid heildartryggingar, notkunarmiðaðar tryggingar, „Finna bílinn minn“ og talnagögn um akstur. Þegar persónuverndarstillingin er virk er slík þjónusta ekki í boði eða gæði hennar minni og ónákvæmnin meiri.

 

Persónuverndarstillinguna má finna í MyToyota appinu í „Bílskúrinn minn“. Smelltu á „Bílskúrinn minn“ efst á upphafsskjánum og síðan á „Persónuverndarstilling“. Þar er hægt að kveikja eða slökkva á persónuverndarstillingunni.

 

Ef bíllinn er búinn Smart Connect kerfinu geturðu aðeins séð stöðu persónuverndarstillingarinnar í appinu. Það verður að kveikja/slökkva á stillingunni í margmiðlunarkerfi bílsins.

 

Staða persónuverndarstillingarinnar (virk eða ekki virk) helst óbreytt þar til þú breytir henni að nýju. Þú getur athugað núverandi stöðu persónuverndarstillingarinnar á aðgangi þínum í MyToyota appinu eða á mínum síðum á vefnum.

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningum okkar

Með MyToyota aðgangi geturðu haft umsjón með margmiðlunarkerfinu þínu og fengið gagnlegar upplýsingar um bílinn í gegnum MyToyota appið og gáttina/notandasvæðið.

MyToyota appið er tengt við verksmiðjunúmer (VIN) og eiganda bílsins svo þú getur aðeins notað tengdu þjónustuna fyrir viðkomandi bíl.

Já, hægt er að bæta tengdri þjónustu við marga aðganga en aðeins er hægt að virkja hana á einum aðgangi í einu.

Tengd þjónusta samanstendur af MyToyota appinu og margmiðlunarkerfinu. Hvort um sig er búið eigin eiginleikum og þá þarf að virkja hvern fyrir sig. 

 

Þú getur auðveldlega séð hvort tengda þjónustan er virk með því að athuga hvort upplýsingar um síðustu ökuferð birtist á heimaskjá appsins. 

 

Ef þú ert ekki viss um hvort tengd þjónusta sé virk skaltu byrja á því að velja réttan bíl í „Bílskúrinn minn“ og smella síðan á Tengdar þjónustur - Yfirlit. Þá sérðu alla þjónustu sem er í boði fyrir bílinn og virkjunarstöðu hennar. Farðu svo eftir leiðbeiningunum til að virkja tengdu þjónustuna sem er í boði fyrir bílinn þinn. 

 

Til þess að virkja Toyota Online þarftu að tengja snjallsímann við bílinn, annaðhvort með Bluetooth- eða Wi-Fi tjóðrun, og smella svo á flipann „Uppsetning“. Næst smellirðu á flipann „Tengt“, síðan á flipann „Toyota Online“ og velur svo fyrirliggjandi reikning. Að því loknu slærðu inn innskráningarupplýsingarnar fyrir MyToyota. 

 

Þegar þú gerir það hefst þriggja ára ókeypis þjónustutíminn þinn. Hægt er að sjá hvenær margmiðlunaráskriftin rennur út í viðskiptavinagáttinni. 

 

Ef þú ert ekki með aðgang fyrir geturðu stofnað aðgang í bílnum með því að velja valkostinn „Nýr aðgangur“. 

 

Í bílum með Toyota Smart Connect er einfalt að skanna QR kóðann sem birtur er á upplýsingaskjánum með MyToyota appinu, en auk þess er hægt að setja aðganginn upp handvirkt í appinu. Virkjaðu því næst snjallþjónustuna í Tengdar þjónustur - Yfirlit í MyToyota appinu. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar.

Notaðar eru sömu aðgangsupplýsingar fyrir MyToyota appið og viðskiptavinagáttina/Mínar síður á vefnum. Hægt er að breyta aðgangsorðinu á báðum stöðum. 

 

Til að breyta aðgangsorðinu skaltu opna innskráningarskjáinn og velja „Gleymt aðgangsorð“

Söluaðilinn þinn þarf að staðfesta hver þú ert til að tryggja að óviðkomandi aðilar komist ekki yfir persónuupplýsingar viðskiptavina Toyota.

 

Þú færð beiðni um að fara til söluaðilans vegna þess að það er algert forgangsatriði hjá Toyota að vernda persónuupplýsingar viðskiptavina.

  • Þú þarft að segja upp áskriftinni að teengdum þjónustum og fjarlægja bílinn af MyToyota aðgangi þínum í appinu
  • Þú þarft að fjarlægja notandasnið af upplýsingaskjá margmiðlunarkerfisins
  • Ekki eyða aðgangnum því þú getur bætt við öðrum Toyota bílum sem þú kannt að eignast síðar. Mundu að láta nýjan eiganda bílsins vita að bíllinn sé með aðgang að tengdum þjónustum.

Tengdar þjónustur stöðvast ef verksmiðjunúmer bílsins er fjarlægt af aðgangi.

Já og nei. Það er hægt að bæta bíl við marga aðganga, en það er aðeins hægt að fá aðgang að tengdum þjónustum eða öðrum persónuupplýsingum gegnum einn aðgang í einu.

Aðgangurinn þinn er notaður í bæði MyToyota appinu og viðskiptavinagáttinni/Mínum síðum. Hægt er að stofna aðgang í báðum kerfunum af innskráningarskjá. Eftir að aðgangur hefur verið stofnaður færðu virkjunartölvupóst sem þú þarft að staðfesta áður en þú færð aðgang að aðgangi þínum og bætir bílnum/bílunum þínum við.

Þú getur notað aðganginn þinn fyrir MyToyota appið og viðskiptavinagáttina í margmiðlunartæki bílsins. Ef þú ert ekki með aðgang mælum við með því að þú sækir MyToyota appið og stofnir aðgang í því. 

 

Þú getur einnig stofnað aðgang í viðskiptavinagáttinni á netinu eða stofnað aðgang í margmiðlunartækinu sjálf. Ef þú notar síðastnefndu aðferðina þarftu að samþykkja notkunarskilmálana innan 14 daga í viðskiptavinagáttinni (valkosturinn á aðeins við um margmiðlunarkerfi fyrir MM21 kynslóðina)

Smelltu á táknið fyrir aðgangshlutann neðst til hægri á yfirlitsstikunni til að gera breytingar á prófílstillingum.

Tengdar þjónustur eru innifaldar í kaupum á öllum Toyota bílum sem eru samhæfir við tengdar þjónustur, í tíu ár.

 

Tengdar þjónustur fyrir bíla með Smart Connect eru innifaldar í fjögur ár.

Tengdar þjónustur MyToyota appsins eru virkar í 10 ár. Toyota greiðir gagnakostnaðinn vegna tengdra þjónusta í þessi 10 ár, en MyToyota appið virkar án tengdra þjónusta.

Á skjámyndinni „Bílskúrinn minn“ er hægt að smella á hnappinn „Valinn söluaðili“ undir „Þjónusta og viðhald“. Hér getur þú sett upp þann söluaðila sem þú vilt helst eiga viðskipti við. 

Hybrid akstursþjálfun kennir þér hvernig þú getur bætt hybrid aksturinn út frá fyrri ökuferðum og hvernig þú nýtir EV stillinguna best til að draga úr eldsneytisnotkun og umhverfisáhrifum.

Já, fyrir valdar gerðir. Á yfirlitinu á upphafssíðunni er hægt að skoða núverandi eldsneytisstöðu, bæði á mæli og sem drægi.

Já, á völdum gerðum geturðu séð stöðuna á hurðum, gluggum, farangursgeymslu og ljósum bílsins. 

 

Til að athuga stöðuna ferðu á upphafssíðuna. Smelltu á hnappinn „Staða bílsins“.

 

Til að fá frekari upplýsingar um þá eiginleika sem eru í boði fyrir hverja gerð skaltu hafa samband við viðurkenndan söluaðila eða skoða upplýsingarnar á vefsvæði Toyota/Lexus fyrir þitt svæði.

Já, á völdum gerðum er hægt að nota appið til að læsa / taka úr lás úr fjarlægð. Á fjarstýringarspjaldinu er að finna hnappana til að læsa / taka úr lás. 

 

Hafðu í huga að ekki verður hægt að:

- Læsa bílnum ef einhverjar dyr eru opnar og/eða ef snjalllykillinn er inni í bílnum 

- Taka bílinn úr lás ef þjófavörnin er virk eða ef bílnum var læst handvirkt með lykli

 

Til að fá frekari upplýsingar um þá eiginleika sem eru í boði fyrir hverja gerð skaltu hafa samband við viðurkenndan söluaðila eða skoða upplýsingarnar á vefsvæði Toyota/Lexus fyrir þitt svæði.

Já, hægt er að staðsetja valdar gerðir á fjölförnu bílastæði með því að kveikja á hættuljósum bílsins úr fjarlægð. 

 

Opnaðu fjarstýringarspjaldið í MyToyota appinu. Með því að smella á „Hættuljós“ er hægt að kveikja á hættuljósum bílsins og þannig er auðvelt að finna hann.

Hættuljósin loga í 60 sekúndur. Eftir 60 sekúndur getur þú aftur kveikt á hættuljósunum. 

 

Til að fá frekari upplýsingar um þá eiginleika sem eru í boði fyrir hverja gerð skaltu hafa samband við viðurkenndan söluaðila eða skoða upplýsingarnar á vefsvæði Toyota/Lexus fyrir þitt svæði.

Margmiðlun (kölluð Toyota nettengd þjónusta í margmiðlunartæki bílsins) inniheldur ýmsa nettengda leiðsagnarþjónustu, sem veitir mikilvægar upplýsingar í rauntíma, til dæmis umferðarupplýsingar og viðvaranir um hraðamyndavélar. 

 

Þessi eiginleiki krefst internettengingar til að virka. Ef þú ert ekki með tengt tæki þarftu að tengja fartæki þitt við Wi-Fi búnað/net í bílnum, með því að deila Wi-Fi tengingunni eða með Bluetooth tjóðrun. 

 

Öllum nýjum Toyota bílum fylgja ókeypis kortauppfærslur (Map Care-áskrift) í þrjú ár* fyrir leiðsögukerfið sem og önnur þjónusta, svo sem:

  • Upplýsingar um umferð í rauntíma
  • Coyote (þar sem það er í boði) eða Cyclops-hraðamyndavélaviðvörun
  • Google Street View (þar sem það er í boði)
  • Áhugaverðir staðir
  • Eldsneytisstöðvar
  • Bílastæði
  • Veður 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningum okkar

*Ef bíllinn þinn er búinn MM21 er tímabilið 4 ár

Innbyggð leiðsögukerfi fá gögn frá GPS merki. Margmiðlun þarf netsamband til að fá nauðsynleg gögn fyrir umferðarupplýsingar í rauntíma, Coyote (þar sem það er í boði), Google Streetview (þar sem það er í boði), veður, eldsneyti, bílastæði og leit að áhugaverðum stöðum á netinu.

Boðið er upp á nettengda leiðsögn í flestum Toyota bílum í dag, svo sem:

  • Upplýsingar um umferð í rauntíma
  • Hraðamyndavélaviðvörun
  • Google Street View (þar sem það er í boði)
  • Áhugaverðir staðir
  • Eldsneytisverð 
  • Bílastæði
  • Veður

(Framboð áðurnefndrar þjónustu fer eftir gerð og útfærslu bílsins. Hafðu samband við söluaðilann þinn til að fá staðfestingu á hvaða þjónusta er í boði fyrir bílinn þinn.)

Notkun nettengdrar leiðsagnarþjónustu Margmiðlunar er endurgjaldslaus fyrstu 3 árin*(getur verið breytilegt eftir löndum). Eftir það geturðu keypt áskrift. Map Care pakkinn okkar inniheldur allar kortauppfærslurnar okkar og tengda netþjónustu og þjónustupakkinn okkar inniheldur netþjónustueiginleikana okkar. Þú getur keypt áskrift í netversluninni okkar. Kíktu í netverslunina okkar til að sjá nýjasta verðið. 

 

*Gildir í 4 ár ef bíllinn er búin MM21

Tilkynning birtist á skjánum í margmiðlunarkerfi bílsins 30 dögum áður en þriggja ára tímabilinu lýkur. 

 

Þú getur endurnýjað Map Care pakkann í vefversluninni í annaðhvort eitt eða þrjú ár. Þegar þú endurnýjar þjónustupakkann getur þú valið á milli eins, tveggja eða þriggja ára*. Kíktu í vefverslun til að skoða nýjustu verðin. 

 

*Boðið er upp á endurgjaldslausa uppfærslu korta í 7 ár fyrir MM21 og Toyota Smart Connect

Þú getur opnað vefverslunina í margmiðlunarkerfi bílsins eða í viðskiptavinagáttinni/Mínum síðum.

Þegar þú opnar vefverslunina í viðskiptavinagáttinni geturðu keypt tiltæka þjónustu Margmiðlunar. Þú getur einnig skoðað stöðu núverandi áskrifta þinna í vefverslunina á flipanum „Keypt“. Þar er hægt að skoða hvaða áskriftir eru virkar og hversu mikið er eftir af áskriftartímabilum.

Ef þú opnar vefverslunina (e-Store) í margmiðlunarkerfi bílsins geturðu sótt þjónustu á borð við Coyote. Þú finnur vefverslunina með því að opna valmyndarhlutann (Menu), því næst appsvæðið (apps) og velja svo í bíl (In Car).

Þú getur keypt þjónustu í vefversluninni í viðskiptavinagáttinni/Mínum síðum. Smelltu á flipann „Keypt“ til að skoða þjónustuna sem þú notar nú þegar og hversu langur tími er eftir af áskriftartímabilinu. 

 

Viðskiptavinir geta notað Map Care endurgjaldslaust í 3 ár (2 uppfærslur korta á ári) og nettengda þjónustu (veður, bílastæði, umferð, eldsneytisverð). Þegar endurgjaldslausa tímabilinu lýkur getur þú keypt/endurnýjað áskriftirnar eftir þörfum.

Þú getur notað leiðsögnina strax ef aðgangur fyrri eiganda er enn virkur í margmiðlunarkerfinu og haldið áfram að nota leiðsögnina á endurgjaldslausa áskriftartímabilinu. Við mælum SAMT SEM ÁÐUR ávallt með því að viðskiptavinir skrái sig út af eigin aðgangi til að hafa fulla stjórn á áskriftum sínum. Slíkt má gera á eftirfarandi hátt:

 

  1. Opnaðu MyToyota appið í fartækinu - skráðu þig fyrst inn og skráðu þig síðan inn í bílinn

  2. Opnaðu valmyndina „Nettenging“ í margmiðlunarkerfi bílsins - þú verður að samþykkja notkunarskilmálana innan 14 daga í viðskiptavinagáttinni/notandasvæðinu (þessi valkostur er aðeins í boði fyrir eldri margmiðlunarkerfi en MM21 gerðina)

  3. Opnaðu viðskiptavinagáttina - eftir að þú hefur stofnað aðgang í vefgáttinni getur þú notað innskráningarupplýsingarnar til að skrá þig inn í margmiðlunarkerfið

Opnaðu MyToyota appið, veldu bílinn þinn í „Bílskúrinn minn“ og smelltu svo á „Tengdar þjónustur - Yfirlit“. Fylgdu síðan leiðbeiningunum til að virkja snjallþjónustu sem er í boði fyrir bílinn þinn. Um leið og tenging er komin á hefst 4 ára endurgjaldslaus áskrift að nettengdri leiðsögn. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar.

Opnaðu valmynd margmiðlunarkerfisins og síðan netverslunina (þú verður að hafa nettengingu og skrá þig inn). Veldu Coyote appið og síðan „Setja upp“. Sprettigluggi opnast þegar uppsetningu Coyote er lokið. Opnaðu appið og veldu „OK“ til að ræsa það sjálfkrafa. Coyote mun nú birtast ásamt öðrum öppum. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningum okkar

 

Hafðu eftirfarandi í huga:

  • Coyote er ekki í boði fyrir bíla sem eru með Smart Connect
  • Þú getur ekki notað Coyote fyrr en þú hefur ekið bílnum 200 km
  • Notendur í Frakklandi, Belgíu og Lúxemborg fá að nota Coyote endurgjaldslaust á meðan áskriftartímabil Map Care varir (í 3 ár eftir að hafa ekið 200 km) 
  • Viðskiptavinir í öðrum löndum geta keypt áskrift að Coyote í vefversluninni í gegnum viðskiptavinagáttina

Já, flestar gerðir bíla frá okkur sem komið hafa á markað eftir 2019 eru með samþættingu við snjallsíma (Apple CarPlay og Android Auto). Ef þú ert með nettengingu í símanum þínum þarftu einfaldlega að stinga tækinu í samband við USB tengi bílsins. Öppin eru síðan aðgengileg í valmynd Android Auto/Apple CarPlay í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu. 

 

*Ef Android-tækið þitt keyrir eldri útgáfu en Android 10 þarftu fyrst að setja upp Android Auto-appið.

 

*Þráðlaust tenging Android Auto er studd frá og með Android 11

Eiginleikinn „Áfangastaðirnir mínir“ gerir þér kleift að undirbúa ferðina með því að leita að leiðsögn í fartækinu þínu og senda hana síðan í bílinn. Hafðu í huga að þetta krefst þess að bíllinn sé með leiðsögukerfi og að hann hafi verið skráður á MyToyota aðgang með aðgangi þínum. 

 

Áfangastaðirnir mínir er sjálfgefin þjónusta í boði fyrir bíla með leiðsögn en notandi verður fyrst að virkja snjallþjónustuna til að nýta eiginleikann. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningum okkar.

Þú getur notað „Áfangastaðirnir mínir“ í MyToyota appinu til að skipuleggja leiðina þína. Hafðu í huga að þú verður fyrst að tengja bílinn við MyToyota aðganginn þinn áður en þú getur notað þennan eiginleika. 

 

Þegar tengingu er komið á skaltu opna heimaskjáinn í MyToyota appinu og velja þjónustuspjaldið „Áfangastaðirnir mínir“. Smelltu á „Áfangastaður“ og sláðu inn heimilisfang áfangastaðarins. Ýttu síðan á „Senda í bíl“. 

 

Þegar í bílinn er komið skaltu að ganga úr skugga um að þú sért með Wi-Fi tengingu (auðveldast er að Bluetooth tjóðrun snjallsímans). Þegar búið er að nettengja bílinn er hægt að sækja ferðina. 

Fyrirfram skipulagða ferðin er síðan tiltæk í eftirlæti/eftirlætis áfangastöðunum í margmiðlunarkerfinu. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar.

Þriggja ára* áskriftartímabilið hefst um leið og þú notar innskráningarupplýsingar MyToyota til að skrá þig inn í upplýsinga- og afþreyingarkerfið. 

 

*Áskriftartímabilið gildir í fjögur ár ef bílinn er búin MM21

Tilkynning birtist vikulega á skjá margmiðlunarkerfisins þegar 30 dagar eru eftir af endurgjaldslausa áskriftartímabilinu til 3 ára*. Sama tilkynning birtist daglega 15 dögum áður en endurgjaldslausa áskriftartímabilinu til 3 ára* lýkur. Skilaboð birtast í hvert sinn sem þú opnar appið um að endurgjaldslausa áskriftartímabilinu til 3 ára* sé lokið. 

 

*Áskriftartímabilið gildir í fjögur ár ef bílinn er búin MM21

Fjarstýrð hita- og loftstýring er í boði í völdum gerðum og hægt er að virkja hana í gegnum MyToyota appið til að kæla/hita innanrými bílsins. 

Hægt er að ræsa fjarstýrða hita- og loftstýringu á fjarstýringarspjaldinu í 10 mínútur. Þegar kveikt er á fjarstýrðu hita- og loftstýringunni kemur fram í MyToyota appinu hversu langur tími er eftir þar til aðgerðinni lýkur. Hægt er að endurræsa fjarstýrðu hita- og loftstýringuna tvisvar sinnum (2x10 mín.). 

 

Hafa ber í huga að vélin fer í gang í tilteknum gerðum bíla um leið og kveikt er á grunnútgáfu fjarstýrðu hita- og loftstýringarinnar. Þar af leiðandi kviknar á öllum aukastillingum sem notaðar voru í síðustu ferð (áður en drepið var á vélinni) (t.d. hitastillingu, sætishitara, útvarpi o.s.frv.). 

 

Fjarstýrð hita- og loftstýring kann að bjóða upp á fleiri eiginleika í tilteknum bílum, þ. á m. eftirfarandi:

  • Fjarstýrða loftræstingu sæta, hita í sætum, hita í stýri og afísingu
  • Tímasetning fjarstýrðrar hita- og loftstýringar: Hægt er að ákveða á einfaldan hátt hvenær skal kæla eða hita innanrými bílsins. 

 

Hafðu í huga að grunnútgáfa fjarstýrðu hita- og loftstýringarinnar er ekki í boði í Austurríki fyrir bíla með bensín- og hybrid vélum vegna lagalegra takmarkana. Fjarstýrð hita- og loftstýring er hins vegar í boði fyrir rafbíla í Austurríki. 

 

Rafhlöðuhleðsla rafbíla verður að vera a.m.k. 20% eða 30% til að hægt sé að nota loftkælinguna. 

 

Fjarstýrða hita- og loftstýringin virkar ekki í rafbílum þegar hitastigið utandyra fer undir -10°C. 

 

Nánari upplýsingar um framboð eftir gerðum fást hjá viðurkenndum söluaðila eða á vefsvæði Toyota/Lexus fyrir þitt svæði.

Þessi eiginleiki er í boði í völdum gerðum. Ef þú ert með MyToyota appið uppsett í símanum og hefur virkjað vöktunartilkynningar færðu tilkynningu (5-10 mín.* eftir að ferðinni lýkur) um: 

  • opna glugga
  • ólæstar hurðir
  • opnar hurðir
  • opið skott
  • kveikt á hættuljósum
  • opna vélarhlíf
  • opna sóllúgu
  • kveikt á aðalljósum
  • viðvörunarljós
  • áminningu um aftursæti

 

Ekki er hægt að senda vöktunartilkynningar úr öllum gerðum bíla. Hafðu samband við næsta söluaðila til að fá upplýsingar um eiginleika bílsins. 

 

Vöktunartilkynningar birtast einnig á flipanum „Tilkynningar“ neðst á skjámynd appsins.

Opnaðu þjónustuyfirlitið og veldu „Hybrid akstursþjálfun“ (fyrir hybrid bíla), „EV-þjálfun“ (fyrir rafbíla) eða „Akstursgreining“ (fyrir órafmagnaða bíla). Veldu flipann „Allar ferðir“ til að sjá fyrri ferðir og smelltu svo á ferð til að skoða viðkomandi talnagögn um akstur. Þú getur líka fundið upplýsingar um síðustu ferð á yfirlitinu á upphafsskjánum.

MyToyota appið er stutt í: 

  • iOS tækjum með útgáfu 15.0 eða nýrri
  • Android tækjum með útgáfu 7.0 eða nýrri, en ekki frá vörumerkinu Huawei (Huawei setti á markað eigið stýrikerfi, HarmonyOS, í júní 2021)

Þú getur fundið útgáfu forritsins neðst í hlutanum „Aðgangur“.

Þú þarft að slá inn innskráningarupplýsingarnar þínar í margmiðlunarkerfi bílsins. Því næst þarftu að tengja margmiðlunarkerfið við verksmiðjunúmer (VIN) bílsins. Þá þarftu Bluetooth tjóðrun til að tengja bílinn við netið. Eiginleikinn „Áfangastaðirnir mínir“ virkar núna. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar.

Rafhlaðan afhleðst smátt og smátt, jafnvel þegar bíllinn er ekki í notkun, sökum eðlilegrar afhleðslu og rafmagnsnotkunar tiltekins rafbúnaðar.

 

Rafhlaðan kann að afhlaðast þegar bíllinn er ekki notuður í lengri tíma og hugsanlega verður ekki hægt að gangsetja vélina. (Rafhlaðan hleðst sjálfkrafa við akstur.)

Hvað hybrid bíla varðar er ráðlegt að gangsetja bílinn einu sinni í viku í a.m.k. 20 mínútur. Gakktu úr skugga um að bíllinn sé í stöðugírnum „P“ en ekki í hlutlausum gír, „N“, að öðrum kosti er hybrid rafhlaðan ekki hlaðin. 

 

Fyrir hefðbundna bíla er ráðlagt að láta vélina ganga í 20-30 mínútur a.m.k. einu sinni í viku.

Ef bíllinn er ekki búin lyklalausri opnun geturðu læst bílnum eða tekið hann úr lás handvirkt (frekari upplýsingar er að finna í notendahandbókinni). 

 

Notaðu hina aðferðina sem lýst er í notendahandbókinni við að taka bílinn úr lás eða læsa honum ef bíllinn er búinn lyklalausri opnun.

Ef þú ert með startkapla geturðu fengið start frá öðrum bíl með því að fylgja leiðbeiningunum í notendahandbókinni.

Opnaðu valmyndina í margmiðlunarkerfinu og veldu síðan „Settings“. Því næst velur þú „Bluetooth Connection“ og fylgir skrefunum við að setja upp nettenginguna. Að því loknu kveikirðu á Bluetooth tjóðrun í símanum. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar.

Hægt er að virkja Apple CarPlay eða Android Auto með því að tengja fartækið þitt við USB tengi bílsins. Smelltu á valmyndarhnappinn á margmiðlunarskjá bílsins og síðan á CarPlay eða Android Auto. 

 

Ef Android-tækið þitt er með eldri útgáfu en Android 10 þarftu fyrst að setja upp Android Auto-appið. 

 

Þráðlaust Android Auto er stutt frá og með Android 11. 

 

Frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum okkar.

Nýjustu margmiðlunarkerfin bjóða upp á þráðlausar uppfærslur korta, en hægt er að virkja slíkar uppfærslur í netversluninni fyrir nýjustu samhæfu gerðirnar. 

 

Einnig er hægt að uppfæra kerfið handvirkt með því að sækja uppfærslur frá My Toyota vefversluninni, vista þær á USB lykli og tengja við bílinn. 

Þetta eru bílar sem eru búnir Toyota Smart Connect, nýjasta og háþróaðasta margmiðlunar- og tengikerfinu okkar. Búnaðurinn styður viðbótartengimöguleika til að auka þægindi og stjórn (t.d. læsa og taka hurðir úr lás, kveikja á hættuljósum, fjarstýra hita- og loftstýringu ...).

 

Eins og stendur er Toyota Smart Connect aðeins í boði í nýjum Yaris og Yaris Cross.

Snjallþjónusta samanstendur af MyToyota appinu og margmiðlunarkerfinu. Hvor hugbúnaður um sig er búinn eigin eiginleikum sem auka öryggi ökumanns og tryggja að áfangastað er náð á góðum tíma.

 

MyToyota appið gerir þér kleift að tengjast bílnum þínum hvar sem þú ert. Þú getur notið eins eða fleiri af eftirfarandi eiginleikum, allt eftir þeim Smart Connect bíl sem þú átt: leit að bílastæði við götu og á stærri bílastæðum, leit að bensínstöð, leiðsögn með rauntímaupplýsingum um aðstæður á veginum eða raddskipanir til bílsins.

 

Eins og stendur er Toyota Smart Connect aðeins í boði í nýjum Yaris og Yaris Cross.

Snjallþjónusta MyToyota appsins er virk í 4 ár. Toyota greiðir gagnakostnað snjallþjónustunnar í fjögur ár. MyToyota appið mun virka áfram þó snjallþjónusta sé ekki lengur virk.

Þú getur notað MyToyota appið til að skanna QR kóðann sem birtist í margmiðlunarkerfinu í bílnum eða gert það handvirkt í appinu.

Það er ekki hægt ef bíllinn er með upplýsingaskjá sem er ekki samhæfur við Toyota Smart Connect

Toyota Smart Connect er búið 9" snertiskjá sem er ekki aðeins einfaldari í notkun heldur tryggir hann auðveldari akstur með nettengdri leiðsögn með umferðarupplýsingum í rauntíma og viðvörunum um hraðamyndavélar. Þráðlaus samþætting síma gerir þér svo kleift að tengja símann þinn og hlusta á eftirlætis spilunarlistana þína.

 

Toyota Smart Connect styður einnig viðbótartengimöguleika sem auka þægindi og stjórn (t.d. læsa hurðum og taka úr lás, kveikja á hættuljósum, fjarstýra hita- og loftstýringu ...). 

 

Eins og stendur er Toyota Smart Connect aðeins í boði í nýjum Yaris og Yaris Cross.

Nei, þú getur notað núverandi innskráningarupplýsingar og aðgangsorð sem þú notaðir til að skrá þig inn á eldri útgáfu appsins.

Já, hægt er að skoða akstursferil sama aðgangs eftir að tengdar þjónustur eru virkjaðar.

Já, hægt er að skoða þjónustuferil sama aðgangs eftir að tengdar þjónustur eru virkjaðar. 

Frekari upplýsingar fást hjá viðurkenndum söluaðila eða á vefsvæði næsta söluaðila Toyota/Lexus.

Þú þarft að skrá aðgang, bæta bílnum við appið, velja þjónustu til að virkja og samþykkja notkunarskilmálana til að nota tengdar þjónustur.

Við erum að vinna að því að innleiða nýja MyToyota appið og erum smám saman að bæta við öllum gerðum bíla sem við seljum. Þú færð tilkynningu um leið og nýja MyToyota appið er í boði fyrir bílinn þinn.

Við erum að vinna að því að innleiða nýja MyToyota appið og erum smám saman að bæta við öllum gerðum bíla sem við seljum. Þú færð tilkynningu um leið og nýja MyToyota appið er í boði fyrir bílinn þinn. Opnaðu hjálpina í appinu og hafðu samband við næsta söluaðila eða okkur ef þú fékkst tilkynningu en getur ekki bætt bílnum á aðganginn þinn í nýja appinu.

Já, þú getur notað MyToyota appið til að rekja bíla sem þú pantar. *Ekki í boði á Íslandi eins og er

Þegar bíl hefur verið bætt við aðganginn er ekki lengur hægt að nota eldri útgáfuna af MyToyota appinu fyrir sama bíl. Ef þú átt hins vegar fleiri en einn Toyota bíl verður áfram hægt að nota eldri útgáfu appsins fyrir gerðir sem hafa ekki enn verið færðar í nýju útgáfuna.

Við erum að vinna að því að innleiða nýja MyToyota appið og erum smám saman að bæta við öllum gerðum bíla sem við seljum. Ef þú fékkst flutningstilkynningu fyrir einn eða alla bílana þína getur þú bætt þeim við nýja appið. Að öðrum kosti skaltu halda áfram að nota núverandi app í bílnum sem ekki var færður yfir í nýja appið.

Það kemur að því að hætt verður að nota núverandi útgáfu MyToyota appsins. Ráðlagt er að setja upp nýja MyToyota appið til að geta notað tengda þjónustu óhindrað í framtíðinni. 

 

Það er mjög einfalt og fljótlegt að skipta yfir í nýja MyToyota appið. Þar er að finna alla hina frábæru þjónustu sem þú hefur notið hingað til og hugsanlega aukna þjónustu í framtíðinni.

Texta notkunarskilmálanna hefur verið breytt örlítið í nýja MyToyota appinu og þess vegna þarftu að samþykkja skilmálana á nýjan leik. Áskriftartímabil fara eftir ábyrgðartímabilinu og breytast því ekki við flutninginn.

Við erum að vinna að því að innleiða nýja MyToyota appið og erum smám saman að reyna að ná til allra viðskiptavina í öllum löndum og í öllum gerðum. Ef þú hefur ekki enn fengið tilkynningu en langar að nota nýja MyToyota appið strax getur þú sótt það í app verslanir og byrjað að nota það.

Eins og stendur styður MyToyota appið ekki bíla af gerðinni PROACE EV. Við erum að vinna að því að innleiða nýja MyToyota appið og erum smám saman að bæta við öllum gerðum bíla sem við seljum. Þú færð tilkynningu um leið og nýja MyToyota appið er í boði fyrir bílinn þinn.

Þessi nýi eiginleiki er viðbót við leiðsögukerfið okkar í gegnum ský í gjaldgengum Toyota bílum. Eiginleikinn býður upp á gagnlegar upplýsingar um áhugaverða staði í rauntíma. Eiginleikinn birtir upplýsingar í rauntíma um veitingastaði, eldsneytisstöðvar, matvöruverslanir o.fl. þannig að ökumenn fá allar nýjustu upplýsingarnar við aksturinn.

Þú færð gagnlegar upplýsingar um áhugaverða staði í rauntíma og getur því tekið upplýstar ákvarðanir við aksturinn. Hvort sem þú ert að leita að stað til að borða á, fylla á eldsneyti eða bara skoða, birtir leiðsögukerfið nýjustu upplýsingar og tilboð í rauntíma. Þetta bætir akstursupplifunina og þú uppgötvar nýja staði og færð upplýsingar um nýjustu tilboð og breytingar í næsta nágrenni.

Eiginleikinn „Offers and Smart Stops“ er í boði fyrir eftirfarandi gerðir bíla sem eru með Smart Connect margmiðlunarkerfi:

 

  • AYGO X
  • Yaris
  • Yaris Cross

Skoðaðu framleiðsludagsetningu bílsins til að sjá hvort að bíllinn sé með Toyota Smart Connect margmiðlunarkerfi. Í töflunni hér á eftir getur þú séð gjaldgengar gerðir bíla eftir framleiðsludagsetningu.

 

VALKOSTUR 1

 

Gerð Framleiðsludagsetning Toyota Smart Connect margmiðlunarkerfis
AYGO X Frá mars 2022 til nóvember 2023
Yaris Frá apríl 2022 til desember 2023
Yaris Cross Frá júlí 2021 til mars 2024

 

VALKOSTUR 2

 

Til upplýsingar þá er hér upphafssíða Toyota Smart Connect margmiðlunarkerfisins til hliðsjónar. 

 

Þú þarft að setja upp nýjustu útgáfu leiðsagnarinnar [6.1.2] til þess að njóta allra kosta nýja eiginleikans. Hugbúnaður leiðsögukerfis er uppfærður sjálfkrafa um leið og bíllinn er settur í gang. 

 

Þegar þú gangsetur bílinn verður þú síðan að samþykkja skilmálana og persónuverndartilkynninguna til að geta notað leiðsögukerfið og snjallþjónustuna. 

 

Að lokum þarftu að veita samþykki fyrir „Offers and Smart Stops“ í stillingum leiðsagnarinnar. 

 

Núna er allt til reiðu, þú kveikir bara á leiðsögninni þegar þú ekur Toyota bílnum til að nota eiginleikann.

Opnaðu „Navigation“ á margmiðlunarskjánum og opnaðu síðan stillingarnar efst til hægri á skjánum. Veldu flipann „Navigation“ í stillingunum og flettu niður að „Map data“. Hér er hægt að skoða útgáfunúmer leiðsögukerfis efst á skjánum. Útgáfunúmerið þarf að vera [6.1.2] eða hærra ([7.1.1,…]).

Opnaðu „Þjónusta“ í stillingarvalmynd leiðsögukerfisins og þar er valkostur til að slökkva eða kveikja á eiginleikanum „Offers and Smart Stops“. Þú getur valið að slökkva á snjallstoppum svo þú sjáir ekki lengur snjallstopp eða slökkt á tilboðum, en í því tilviki sérðu ekki lengur vörumerkjapinna, leit né ráðleggingar. Þannig færð þú að ráða hvaða efni birtist og getur sérstillt leiðsögukerfið að vild. Þú getur breytt þessum stillingum hvenær sem er.

Eiginleikinn „Offers“ felur í sér vörumerkjapinna þar sem vörumerki birtast á kortinu til að auðvelda þér að skoða nágrennið við aksturinn; bætta leit þar sem viðeigandi leitarniðurstöður birtast; og snjallstopp, sem eru ráðleggingar um áhugaverða staði í nágrenninu fyrir þig/Toyota bílinn sem byggðar eru á gögnuym frá skynjurum bílsins.

Vörumerkjapinnar eru vörumerki sem birtast á kortinu og gefa til kynna staðsetningu áhugaverðra staða, sem auðveldar þér að finna eftirlætisstaði og aka þangað. Þegar þú hefur lagt bílnum á öruggum stað skaltu smella á lógó á skjánum til að opna skjámynd með frekari upplýsingum. Þar er hægt að skoða sértilboð á áhugaverða staðnum og kynna sér hvernig á að nýta tilboðið, allt eftir því hvers konar áhugaverðan stað um er að ræða (þetta getur verið QR kóði eða afsláttarkóði sem birtist á myndinni eða í textanum).

Eiginleikinn veitir ökumönnum greiðan aðgang að viðeigandi niðurstöðum og bætir leit að öllu leyti. Viðeigandi leitarniðurstöður birtast efst í lista leitarniðurstaðna með skrautborða á spjaldinu og vörumerki. Smelltu á efstu leitarniðurstöðuna og skjámynd með frekari upplýsingum mun opnast. Þar er hægt að skoða sértilboð á áhugaverða staðnum og kynna sér hvernig á að nýta tilboðið, allt eftir því hvers konar áhugaverðan stað er um að ræða (þetta getur verið QR kóði eða afsláttarkóði sem birtist á myndinni eða í textanum).

Eiginleikinn „Smart Stops“ sér um að greina ólíka þætti, m.a. upplýsingar frá skynjurum bílsins til að mæla með áhugaverðum stöðum í næsta nágrenni og greina þarfir þínar / Toyota bílsins þíns. Smelltu á spjaldið „Smart Stop“ á skjánum til að opna skjámynd með frekari upplýsingum. Þar er hægt að skoða sértilboð á áhugaverða staðnum og kynna sér hvernig á að nýta tilboðið, allt eftir því hvers konar áhugaverðan stað um er að ræða (þetta getur verið QR kóði eða afsláttarkóði sem birtist á myndinni eða í textanum).

Þegar þú hefur lagt bílnum á öruggum stað skaltu smella á áhugaverða staðinn til að skoða skjámynd með frekari upplýsingum. Þar er hægt að skoða sértilboð á áhugaverða staðnum og kynna sér hvernig á að nýta tilboðið, allt eftir því hvers konar áhugaverðan stað um er að ræða (þetta getur verið QR kóði eða afsláttarkóði sem birtist á myndinni eða í textanum). Skjámynd með frekari upplýsingum sýnir einnig gildistíma tilboðanna. Gildistíminn kann að vera breytilegur á milli áhugaverðra staða.

Snjallstopp vegna lágrar eldsneytisstöðu kemur með uppástungur að eldsneytisstöðvum um leið og eldsneytisstaðan verður lág. Leiðsögukerfið notar rauntímagögn um eldsneytisstöðu bílsins, ekna vegalengd og staðsetningu tiltækra eldsneytisstöðva og kemur með nytsamlegar ábendingar um hvar skal fylla á. Um leið og kerfið greinir að mörkum lágrar eldsneytistöðu er náð (u.þ.b. 140 eða 70 km eftir af akstursdrægni) birtir það tillögur að nálægum eldsneytisstöðvum. Smelltu á spjaldið „Smart Stop“ til að opna skjámynd með frekari upplýsingum, þar er hægt að skoða sértilboð á áhugaverða staðnum, eftir að þú hefur lagt bílnum á öruggum stað.

Snjallstoppseiginleikinn stingur upp á áhugaverðum stöðum þegar þú hefur ekið í meira en tvær klukkustundir. Leiðsögukerfið tekur mið af þáttum eins og aksturstíma, núverandi staðsetningu og kjörstillingum til að mæla með viðeigandi og áhugaverðum stöðum til að skoða og taka sér hlé. Ráðleggingar birtast af og til meðan á ferðinni stendur til að bæta akstursupplifunina. Þegar þú smellir á spjaldið „Smart Stop“ opnast skjámynd með frekari upplýsingum, en þar er hægt að skoða sértilboð á áhugaverða staðnum, eftir að þú hefur lagt bílnum á öruggum stað.

Áhugaverðir staðir í rauntíma eru í boði í Evrópu en framboð verður takmarkað í fyrstu eftir landsvæðum. Við erum stöðugt að auka þjónustuna og bjóða hana á fleiri landsvæðum. Engin aukagjöld eru innheimt fyrir þessa þjónustu.

Já, þú getur slökkt á eiginleikanum í stillingum leiðsögukerfisins ef þú vilt ekki fá tilboð eða snjallstopp. Þú getur verið þess fullviss að kerfið er hannað til að vernda persónuupplýsingar þínar á öruggan hátt. Eiginleikinn fær einungis aðgang að nauðsynlegum upplýsingum og meðferð upplýsinga er samkvæmt persónuverndarstefnu okkar til að tryggja örugga og gagnsæja upplifun notenda. Frekari upplýsingar um verklag okkar varðandi persónuvernd er að finna í persónuverndarstefnu Toyota.

Veski

Með veski í appinu geturðu vistað marga greiðslumáta til að kaupa vörur og þjónustu Toyota og greiða fyrir áskriftir.

Greiðslumátarnir þínir eru vistaðir með öruggum hætti í gagnaveri sem uppfyllir PCI kröfur hjá einum samstarfsaðila okkar. Þessir greiðslumátar verða aðeins notaðir til að greiða fyrir vörur og áskriftir sem þú hefur valið.

Aðeins er tekið við kreditkortum frá Visa og Mastercard sem stendur. Öðrum greiðslumátum gæti verið bætt við með tíð og tíma.

Já, þú getur bætt við mörgum greiðslumátum, en aðeins aðalgreiðslumátinn verður notaður fyrir næstu greiðslur.

Að sjálfsögðu. Þú getur fjarlægt greiðslumáta hvenær sem er, með einni undantekningu. Ef þú ert með virka gjaldskylda áskrift þarftu að hafa minnst einn greiðslumáta skráðan. Ef þú vilt fjarlægja alla greiðslumáta þarftu fyrst að segja upp áskriftinni.

Þegar kreditkorti hefur verið bætt við er ekki hægt að breyta öðrum upplýsingum sem tengjast því. Ef þú þarft að gera einhverjar breytingar, eins og að uppfæra gildistímann, þarftu að bæta við nýju korti með réttum upplýsingum og fjarlægja síðan kortið með röngu upplýsingunum.

Greiðslumátar eru vistaðir í kerfum greiðsluþjónustuveitanda sem uppfyllir PCI kröfur.

Já, þú getur skipt um aðalgreiðslumáta / sjálfgefinn greiðslumáta hvenær sem er.

Þetta er örugg einkvæm staðfesting, sem krafist er þegar nýju korti er bætt við.

Nokkrar ástæður kunna að liggja að baki ef ekki tekst að bæta við nýjum greiðslumáta. Ástæðan kann að vera að kortið sé lokað eða það uppfylli ekki 3DS öryggiskröfur. Hafðu samband við næsta þjónustuver Toyota ef ekki tekst að bæta við nýjum greiðslumáta eftir nokkrar tilraunir.

Mikilvægt er að þú hafir samband við bankann þinn eða kortaútgefandann við slíkar aðstæður. Til að koma í veg fyrir vandamál við greiðslu í Toyota appinu skaltu bæta við nýju korti eða velja annan aðalgreiðslumáta svo fljótt sem auðið er.

Til að koma í veg fyrir vanskil ráðleggjum við þér að bæta nýju aðalgreiðslukorti við veskið þitt eða velja nýtt greiðslukort sem aðalgreiðslukort. Við mælum með að þú eyðir útrunna kortinu.

Aðalkortið er sjálfgefið alltaf notað. Til dæmis eru allar áskriftagreiðslur skuldfærðar af aðalkortinu. Hægt er að vista hin kortin í veskinu þínu en þau verða ekki notuð nema þú gerir eitt þeirra að aðalkortinu þínu.

Skjámynd greiðslumáta er eingöngu sýnileg ef aðgangur/bíllinn þinn uppfyllir skilyrði fyrir greiðslur í appi. Gjaldgengi ræðst af útgáfu appsins, gerð bílsins og staðsetningu þinni.

Áskriftar ferlið

Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fjölbreytta áskriftarþjónustu fyrir bæði bíla og appið. Tilteknar þjónustur fylgja með staðlaða áskriftarpakkanum. Tiltekin tengd þjónusta, eins og leiðsögukerfi í gegnum ský, fjarstýrð hita- og loftstýring og fjarstýrð læsing/opnun hurða, mun þó krefjast þess að þú skráir þig fyrir gjaldskyldri áskrift þegar prufuáskriftinni lýkur. Toyota býður upp á fjölbreyttar áskriftarleiðir og pakka til að uppfylla þarfir þínar.

Ef prufuáskrift þinni að tengdri þjónustu er að ljúka geturðu haldið áfram að njóta hennar með einni af áskriftarleiðunum okkar. Boðið er upp á mánaðarlegar, árlegar eða fjögurra ára áskriftir og því getur þú valið þá áskriftarleið sem hentar þér best!

Já, greiða verður fyrir sumar áskriftir.

 

Tilteknir eiginleikar og þjónusta sem Toyota býður upp á krefjast þess að þú bætir gildum greiðslumáta við veskið og kaupir áskriftarleið sem hentar þér best. Þar að auki eru tilteknar áskriftir endurgjaldslausar í tiltekin tíma eftir að þú hefur keypt bíllinn en greiða verður fyrir áskriftirnar þegar endurgjaldslausa prufutímabilinu lýkur.

Þú getur greitt með einhverjum af greiðslumátunum sem þú bættir við veskið þitt. Sem stendur er aðeins tekið við kreditkortum frá Visa og Mastercard.

Athugaðu tímalengd endurgjaldslausu prufuáskriftarinnar. Greiðsluvalkostir fela í sér mánaðarlegar eða árlegar greiðslur eða greiðslur á fjögurra ára fresti.

Verðið fer eftir þjónustunni eða eiginleikanum sem þú sækist eftir og hvort þú velur að greiða mánaðarlega, árlega eða á fjögurra ára fresti. Kynntu þér alla valkosti þegar þú skoðar hverja áskrift fyrir sig.

 

Verð getur einnig verið breytilegt á milli landa.

Þegar þú kaupir gjaldskylda áskrift færðu endurgjaldslausa prufuáskrift í einn mánuð, að því gefnu að þú færir inn gildan greiðslumáta. Aðeins er hægt að nota þetta tilboð einu sinni fyrir hvern áskriftarpakka. Ef þú nýtir þér prufuáskriftina og segir henni síðan upp verður þú að borga frá fyrsta degi næst þegar þú kaupir áskrift.

Áskriftin helst virk þar til prufuáskriftinni lýkur og verður sjálfkrafa afturkölluð á lokadaginn. Þú þarft ekki að greiða neitt.

Eins mánaðar prufuáskrift er aðeins hægt að nýta einu sinni. Þú getur ekki fengið aðra prufuáskrift ef þú hefur þegar nýtt þér eina. Hafðu samband við næsta þjónustuver ef þú hefur aldrei keypt áskrift áður en sérð ekki valkostinn fyrir prufuáskrift.

Þú átt rétt til afturköllunar innan 14 daga og hann tekur gildi á þeim degi sem þú virkjar áskriftina. Ef þú átt rétt á prufuáskrift þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur þar sem þú hefur heilan mánuð til að segja áskriftinni upp þér að kostnaðarlausu.

 

Þegar prufutímabilinu lýkur og fyrsta greiðslan er innt af hendi fellur rétturinn til afturköllunar innan 14 daga úr gildi og endurgreiðsla er ekki í boði.

 

Ef þú átt ekki rétt á prufuáskrift og hefur innt fyrstu greiðsluna af hendi hefurðu 14 daga til að afturkalla áskriftina og fá fulla endurgreiðslu. Þessi 14 daga afturköllunarréttur gildir aðeins í eitt skipti.

Ef þú átt rétt á prufuáskrift mun fyrsta greiðsla verða innheimt nákvæmlega einum mánuði frá virkjunardeginum.

 

Ef um mánaðarlega greiðslu er að ræða verður skuldfært sama dag hvers mánaðar. Ef virkjunardagurinn er t.d. 10. janúar er fyrsta greiðslan skuldfærð 10. febrúar, sú næsta 10. mars og svo framvegis.

 

Ef um árlega greiðslu er að ræða er skuldfært sama dag hvers árs. Ef virkjunardagurinn er t.d. 10. janúar 2024 er fyrsta greiðslan skuldfærð 10. febrúar 2024 og sú næsta 10. febrúar 2025.

 

Ef um greiðslu á fjögurra ára fresti er að ræða er skuldfært á sömu dagsetningu á fjögurra ára fresti. Ef virkjunardagurinn er t.d. 10. janúar 2024 er fyrsta greiðslan skuldfærð 10. febrúar 2024 og sú næsta 10. febrúar 2028.

 

Ef þú ákveður að fá þér áskrift getum við sent þér tilkynningar um greiðslur ef þú velur að greiða árlega eða á fjögurra ára fresti.

Þú verður að skrá heimilisfang greiðanda til að við getum sent þér reikning eftir að gengið er frá greiðslu eða endurgreiðslu. Tilgreina verður heimilisfang greiðanda þegar nýju korti er bætt við. Heimilisfangið er notað í öryggisskyni (við 3DS sannvottun).

Já, þú getur sagt áskriftinni þinni upp hvenær sem er.

Reglur um endurgreiðslur miðast við hvert tilfelli fyrir sig. Frekari upplýsingar um endurgreiðslur er að finna í hlutanum um endurgreiðslur.

Nei, sjálfvirk endurnýjun er ávallt sjálfgefin.

Því miður gildir áskriftin þín aðeins fyrir þann bíl sem þú sóttir um áskrift fyrir.

Þú getur virkjað áskrift fyrir einn bíl í einu. Þegar búið er að gera þjónustu virka í miðstöð tengdrar þjónustu gildir hún fyrir þann bíl sem valinn er í „Bílskúrinn minn“.

Nei, aðeins er boðið upp á einn aðalnotanda, og þar af leiðandi áskrifanda að þjónustu fyrir hvern bíl. Ekki er hægt að deila áskriftum með öðrum.

Fyrri eigandinn verður að fjarlægja bílinn af aðgangi sínum til að nýi eigandinn geti keypt áskriftir fyrir bílinn. Ef það er af einhverjum ástæðum ekki hægt getur nýi eigandinn haft samband við söluaðilann sem getur aðstoðað við að afturkalla áskriftir fyrri notanda.

Hafðu samband við næsta þjónustuver.

Fylgdu skrefunum hér á eftir til að kaupa áskrift að tengdum þjónustum í MyToyota appinu: 

 

  1. Opnaðu Tengdar þjónustur - Yfirlit og veldu þá þjónustu sem þú hefur áhuga á
  2. Veldu áskriftarleið, mánaðarlegar, árlegar eða greiðslur á fjögurra ára fresti
  3. Gakktu frá greiðslu og sláðu inn heimilisfang greiðanda og greiðsluupplýsingar. Þú þarft hafa heimilisfang greiðanda og gildan greiðslumáta í veskinu þínu
  4. Farðu yfir kaupin í yfirlitinu og virkjaðu þjónustuna þegar þú ert tilbúin(n)
  5. Ef þú átt rétt á prufuáskrift verður ekki skuldfært á þig strax. Þú getur aftur á móti séð hvenær þú þarft að inna fyrstu greiðslu af hendi. Ef þú hefur þegar notað prufuáskrift þarftu að greiða núna og reikningur verður sendur á netfangið þitt.

Ekki án þess að segja upp núverandi áskrift fyrst. Þegar þú hefur sagt núverandi áskrift upp geturðu valið aðra áskriftarleið.

Þú getur uppfært greiðslumátann þinn með því að bæta nýju kreditkorti við veskið þitt og velja það sem aðalkort. Eftir það eru áskriftirnar þínar skuldfærðar á nýja kortið.

Já, hægt er að nota greiðslumátann þinn til að greiða fyrir margar áskriftir margra bíla.

Ýmsir þættir ráða því hvort bíll er gjaldgengur, svo sem gerð bílsins, margmiðlunarbúnaður, aðgangur, land og dagsetning kaupa.

Þú færð sendan áminningarpóst nokkrum dögum áður en áskriftin þín rennur út þar sem beðið er um að þú uppfærir greiðsluupplýsingarnar þínar fyrir endurnýjun. Ef þú vilt segja upp áskriftinni þarftu að segja henni upp fyrir lokadag hennar.

Hægt er að segja áskrift upp í miðstöð tengdrar þjónustu í MyToyota appinu og velja þar þjónustuna sem segja á upp. Þú getur haft samband við okkur hvenær sem er ef þú lendir í vandræðum með appið og við aðstoðum þig.

Hægt er að skoða áskriftirnar í miðstöð tengdrar þjónustu í MyToyota appinu.

Greiðslur og reikningar

Nei, þú þarft aðeins að heimila áskriftargreiðslur einu sinni þegar gengið er frá kaupum. Eftir það eru greiðslur unnar sjálfkrafa.

Reikningarnir eru sendir til þín í tölvupósti. Ef þú týnir reikningi skaltu hafa samband við næsta þjónustuver við þig og óska eftir nýju afriti.

Ef þú týnir reikningunum þínum skaltu hafa samband við næsta þjónustuver við þig til að fá ný afrit. Þú getur einnig fundið alla reikningana þína í tölvupóstinum þínum.

Ef greiðsla misferst látum við þig vita og gerum aðra tilraun næsta dag. Ef greiðslan misferst aftur munum við gera eina lokatilraun daginn eftir. Hætt verður sjálfkrafa við áskriftina ef ekki tekst að skuldfæra og þú færð tilkynningu um að áskriftin hafi verið afturkölluð.

MyToyota appið lætur þig vita þegar kortið þitt rennur út. Þú þarft að bæta við nýju korti áður en aðalkortið rennur út, að öðrum kosti er ekki hægt að skuldfæra greiðslur.

Greiðsla kreditkortareikningsins þíns fellur undir samning milli þín og útgefanda kortsins. Áskriftin er áfram virk svo fremi sem greiðslan er heimiluð.

Farðu aftur yfir verð og upphæð áskriftarinnar þinnar. Ef þú tekur eftir misræmi skaltu hafa samband við næsta þjónustuver Toyota.

Greiðslur eru ávallt skuldfærðar á gjalddaga. Ef þú tekur eftir því að engin skuldfærsla var gerð skaltu fyrst ganga úr skugga um að engin vandamál séu til staðar varðandi kortið þitt. Athugaðu einnig hvort þú hafir fengið tölvupóst eða tilkynningar frá okkur um að greiðsla hafi misfarist. Ef engin vandamál eru þín megin og þú hefur ekki fengið tilkynningu frá okkur gæti þetta verið vegna tafar í kerfunum okkar og þá munum við reyna aftur fljótlega. Hins vegar ættir þú að leita ráða hjá næsta þjónustuveri ef greiðslan gengur ekki í gegn.

Hafðu samband við næsta þjónustuver.

Já, ef þú færð endurgreitt færðu reikning sem sýnir viðkomandi upplýsingar.

Já, þú færð sendan reikning eftir hverja færslu á netfangið sem er tengt við MyToyota aðganginn.

Það ræðst af þeirri áskriftarleið sem þú valdir. Frekari upplýsingar er að finna í algengum spurningum um áskriftina.

Endurgreiðsla

Hafðu eftirfarandi í huga varðandi reglur okkar um áskriftarleiðir og endurgreiðslu:

 

  • Engin endurgreiðsla er í boði þegar áskrift með mánaðarlegri greiðslu er sagt upp. Áskriftin þín verður aftur á móti ekki endurnýjuð sjálfkrafa í lok tímabilsins.
  • Ef um er að ræða áskriftarleið með árlegri greiðslu eða á fjögurra ára fresti áttu rétt á hlutfallslegri endurgreiðslu sem reiknuð er eftir mánuðum.
  • Þú færð að fullu endurgreitt ef þú afturkallar áskriftina innan 14 daga frá skráningu (og þú ert ekki með prufuáskrift).
  • Þú átt aðeins rétt á endurgreiðslu vegna uppsagnar innan 14 daga einu sinni. Sæktu notkunarleiðbeiningar okkar til að fá frekari upplýsingar um skilmála.

Þú átt rétt á hlutfallslegri endurgreiðslu.

 

· Dæmi um árlega greiðslu:

 

Prufuáskriftin hófst 10. janúar, fyrsta greiðslan var á gjalddaga 10. febrúar og uppsögnin átti sér stað 30. maí. Þar af leiðandi notaðir þú þjónustuna í meira en 3 mánuði, sem við lítum á sem 4 mánuði. Þannig færðu endurgreitt fyrir þá 8 mánuði sem eftir standa.

 

· Dæmi um greiðslu á fjögurra ár fresti:

 

Prufuáskriftin hófst 10. janúar 2024, fyrsta greiðslan var á gjalddaga 10. febrúar 2024 og uppsögnin átti sér stað 30. maí 2025. Þar af leiðandi notaðir þú þjónustuna í meira en 15 mánuði, sem við lítum á sem 16 mánuði. Þannig færðu endurgreitt fyrir þá 32 mánuði sem eftir standa.

Nei. Samkvæmt evrópskum reglugerðum (lögum gegn peningaþvætti) færðu eingöngu endurgreitt inn á sama kort og þú notaðir fyrir upprunalegu greiðsluna. Við munum alltaf millifæra endurgreiðslubeiðni á upprunalega kortið. Í tilvikum þegar kortið kann að vera lokað, útrunnið eða hefur breyst, ætti útgefandi kortsins að geta endurgreitt þér fjárhæðina inn á nýtt kort eða beint inn á bankareikninginn þinn. Toyota kemur ekki á því ferli. Í sérstökum tilvikum hefur útgáfubankinn samband við okkur ef ekki tekst að ganga frá endurgreiðslu og Toyota mun hafa samband við þig til að fá frekari upplýsingar til að hægt sé að ganga frá endurgreiðslunni.

Það getur liðið allt að vika þar til endurgreiðslan birtist á kreditkortayfirlitinu þínu eða bankareikningnum þínum. Hafðu samband við næsta þjónustuver ef þú færð ekki endurgreitt innan þess tíma.

Farðu aftur yfir notkunarskilmálana. Hafðu samband við næsta þjónustuver ef þú telur að um mistök sé að ræða.

Þú færð sendan reikning með frekari upplýsingum um endurgreiðslurnar þínar

Já, þú færð endurgreitt að fullu.

 

Fjórtán daga afturköllunartímabilið hefst daginn sem áskriftin þín er virkjuð, ekki frá fyrstu greiðslu.

 

Þetta á aðeins við þegar þú átt ekki rétt á eins mánaðar prufuáskrift og þarft að greiða frá fyrsta degi. Hafðu í huga að þú getur aðeins einu sinni fengið endurgreiðslu innan 14 daga.

Ef þú átt rétt á endurgreiðslu reiknum við upphæðina sjálfkrafa út miðað við notkun þína og sendum reikning með upplýsingum um heildarupphæð endurgreiðslunnar og hvenær þú færð greiðsluna í hendur.

Þegar þú segir upp áskrift fer endurgreiðsluferlið í gang. Það fer eftir úrvinnslutíma útgefanda kortsins eða bankans hversu margir dagar líða þar til endurgreiðslan birtist á kreditkortayfirlitinu eða bankareikningnum þínum. Hafðu samband við næsta þjónustuver ef endurgreiðslan hefur ekki borist eftir viku eða svo.

Nei. Samkvæmt reglum okkar um endurgreiðslu í notkunarskilmálunum færðu alla upphæðina endurgreidda (að meðtöldum gjöldum/sköttum).

Öryggi og persónuvernd

Þegar þú bætir nýjum greiðslumáta við MyToyota appið eru upplýsingarnar sendar beint til samstarfsaðila okkar sem uppfyllir PCI DSS staðalinn (Payment Card Industry Data Security Standard). Þeir bera ábyrgð á því að geyma gögnin þín á öruggan hátt. Eftir að þau hafa verið vistuð geturðu aðeins skoðað tilteknar upplýsingar um greiðslumátann þinn, svo sem síðustu fjóra tölustafina. Kerfi Toyota og starfsfólk/umboðsaðilar fyrirtækisins hafa ekki aðgang að heildstæðum upplýsingum um greiðslumátann og geta ekki lesið þær.

Já, allar persónuupplýsingar eru geymdar og meðhöndlaðar í samræmi við gildandi persónuverndarlög.

Gagnagrunnar okkar eru dulkóðaðir og öruggir og öll kerfin okkar eru með aðgangsstýringum til að tryggja öryggi gagnanna þinna. Þar að auki er gagnaflutningur kerfanna okkar dulkóðaður til að tryggja aukið öryggi.

 

Við vinnum úr greiðslutengdum gögnum samkvæmt PCI DSS-staðlinum, sem felur í sér verkferla sem ætlað er að vernda upplýsingar um korthafa.

 

Hvað persónuupplýsingar varðar fylgjum við öryggisreglum almennrar persónuverndarreglugerðar ESB (GDPR) til að verja persónuupplýsingarnar þínar og tryggja persónuvernd þína.

Já, Toyota fylgir ströngum PCI reglum við meðhöndlun fjárhagsupplýsinga.

Samstarfsaðili okkar, Pay-D GmbH, sem uppfyllir PCI reglur geymir greiðsluupplýsingarnar á öruggan hátt. Fyrirtækið notar undirvinnsluaðila gagna til að vinna úr færslum. Engir aðrir samstarfsaðilar eða aðilar hafa aðgang að fjárhagsgögnunum þínum. Frekari upplýsingar er að finna í persónuverndaryfirlýsingu okkar.

Tilkynningar

Ef um áskrift sem er greidd árlega eða á fjögurra ára fresti er að ræða færðu tilkynningu í tölvupósti áður en sjálfvirk endurnýjun á sér stað.

Sumar tilkynningar er hægt að sérsníða á meðan aðrar eru áskildar (eins og fyrir greiðslur sem misfarast). Hægt er að slökkva á vöktunartilkynningum í stillingum símans hvenær sem er.

Já, þú færð sendar tilkynningar í appið og með tölvupósti ef greiðslur misfarast.

Nei. Sem stendur er engin leið til að gera tilkynningar óvirkar. Þessum eiginleika kann þó að verða bætt við síðar meir.

Allar samskiptaleiðir eru notaðar, allt eftir eðli og mikilvægi tilkynningarinnar.

Samhæfi og tæki

Kröfur um búnað eru hinar sömu og gilda fyrir appið.

Sem stendur getur þú ekki flutt áskrift frá einum bíl til annars. Þú þarft fyrst að fjarlægja virka áskrift af bíl, sem afturkallar einnig tengdar áskriftir. Eftir að þú hefur fjarlægt áskriftina geturðu bætt við nýjum bíl og virkjað nýja áskrift á honum.

Skráðu þig einfaldlega inn á Toyota aðganginn í nýja símanum. Að því loknu geturðu séð og stjórnað áskriftunum þínum eins og venjulega.

Ef þú ákveður að segja upp gjaldskyldu áskriftinni færðu gefna upp dagsetningu fyrir afvirkjun þjónustunnar, með hliðsjón af áskriftarpakkanum þínum. Þú gætir átt rétt á endurgreiðslu, en það fer eftir áskriftarpakkanum og tímasetningu uppsagnarinnar. Frekari upplýsingar er að finna í notkunarskilmálum okkar

Allar áskriftir, þar á meðal gjaldskyldar áskriftir, verða afturkallaðar þegar bíllinn er fjarlægður úr appinu.

Úrræðaleit

Já. Skoðaðu upplýsingarnar sem þú fékkst frá söluaðilanum þínum. Upplýsingar um næsta þjónustuver ættu að vera þar.

Þarna geta margar ástæður legið að baki. Við mælum með að þú gangir fyrst úr skugga um að kortið sé gilt og að næg innistæða sé fyrir hendi. Hafðu samband við næsta þjónustuver ef vandamálið er viðvarandi.

Ýmsar ástæður kunna að liggja að baki ef þú lendir í vandræðum með þjónustuna. Þetta kann t.d. að vera vegna tafa við virkjun áskriftar eða vegna þess að þjónustan sem þú ert að reyna að nota er tímabundið ekki í boði eða viðhald stendur yfir á henni.

Ýmsar ástæður kunna að liggja að baki ef fjartengda þjónustan þín virkar ekki. Hér er listi yfir nokkrar algengar ástæður:

 

  • Bíllinn styður hugsanlega ekki fjartengda þjónustu að hluta eða öllu leyti. Leitaðu ráða hjá söluaðila.
  • Þú ert hugsanlega ekki áskrifandi að fjartengdu þjónustum.
  • Ef þú hefur ekki notað bílinn þinn í meira en 9 daga gæti hann hafa farið í hvíldarstillingu til að vernda rafhlöðuendinguna. Gangsettu bílinn.
  • Gakktu úr skugga um að öll skilyrði séu uppfyllt: Allar hurðir eru lokaðar, vélarhlíf er lokuð, snjalllykill er ekki inni í bílnum
  • Ertu með tengiltvinnbíl eða rafbíl og fjarstýrða hita- og loftstýringin virkar ekki? Rafhlöðuhleðsla rafbílsins er hugsanlega komin niður fyrir 30% eða 20% (háð gerð) og því verður að hlaða rafhlöðuna.
  • Áttu tengiltvinnbíl og fjarstýrða hita- og loftstýringin virkar ekki? Fjarstýrða hita- og loftstýringin virkar ekki ef hitastigið úti fer undir -10°C.

Þar sem þú heldur áfram að nota sömu þjónustuna er endingartími hennar sá sami og í gamla appinu. Ef þjónustan var t.d. virk í eitt ár í gamla appinu, og þú átt fimm ár eftir af þjónustunni, standa þessi fimm ár þér áfram til boða í nýja appinu.

Tengdar þjónustur og tengt leiðsögukerfi eru tiltæk í sex ár eftir upprunalegri virkjun.

Þú verður að gera eftirfarandi til að virkja þjónustu: 

 

  1. aka bílnum nokkrar ökuferðir, þar sem hver ferð varir í a.m.k. 20 mínútur
  2. slökkva á persónuverndarstillingunni á skjá margmiðlunarkerfisins í bílnum
  3. aka bílnum á svæði þar sem farsímatenging er góð. 

 

Hafðu í huga að virkjun þjónustu kann í sumum tilvikum að taka allt að 24 klukkustundir.