Viðhorf starfsmanna og eigenda Toyota til umhverfismála byggir á sterkri framtíðarsýn stofnanda fyrirtækisins, Páls Samúelssonar, sem var ötull skógræktarmaður. Smátt og smátt hefur skilningur okkar, sem tókum við af Páli, aukist á vægi umhverfismála í rekstri fyrirtækisins. Skrefin voru stutt í fyrstu en stóra skrefið var tekið þegar umhverfisstjórnunarkerfið ISO 14001 var innleitt árið 2008. Umhverfisstefna fyrirtækisins er aðeins orð á blaði ef ekki fylgja athafnir. Umhverfisvottunin er ramminn um framkvæmd stefnunnar og upplýst og meðvitað starfsfólk gerir okkur kleift að ná markmiðum okkar.
Starfsemi Toyota á Íslandi er hluti af umsvifum eins af stærstu bílaframleiðendum í heimi sem sett hefur sér metnaðarfull markmið í umhverfismálum þar sem horft er nokkra áratugi fram í tímann. Árangur aðgerða Toyota á Íslandi má finna í umhverfsisuppgjöri. Gögn og upplýsingar í uppgjörinu gilda fyrir árið 2020.