Skip to Main Content (Press Enter)
loading content

Klár í ævintýri? Kynntu þér bZ4X Touring

Toyota bZ4X Touring er 100% rafdrifinn fjölskyldujeppi með rými, drægni og afköst fyrir allt sem dagurinn býður upp á. Með fjölhæfri hönnun á hann jafnt heima í borginni sem og úti í náttúrunni.

  • Harðgerð hönnun

    Toyota bZ4X Touring lagt fyrir framan foss.

    Áberandi hönnun bZ4X Touring samanstendur af harðgerðum framenda og 20" felgum.

  • Hagnýtur

    Ökumaður gengur að Toyota bZ4X Touring fyrir utan hús.

    Frá borgarferðum til fjallaævintýra – þessi rúmgóði og fjölhæfi, rafdrifni sportjeppi fylgir þér alla leið.

  • Að innan

    Rúmgott innanrými bZ4X Touring

    Rúmgóð og nútímaleg innrétting með hágæða efnum og notendavænni tækni – hönnuð fyrir fjölskylduferðir á vegum úti.

  • Torfæra

    bZ4X Touring keyrir um á sveitavegi

    Skemmtunin hættir ekki þó vegurinn endi. Með aldrifi- og torfærugetu er bZ4X Touring klár í öll ævintýri.

  • Aksturseiginleikar á vegi

    bZ4X Touring kerir um í borginni

    Fínstilltir og liprir aksturseiginleikar bZ4X Touring lyfta hverri ferð upp á næsta stig.

  • 100% rafmagn

    Toyota bZ4X Touring í hleðslu við hleðslustöð í borginni.

    Upplifðu rafakstur eins og aldrei áður, með spennandi afköstum, áreynslulausum akstri og allt að 591 km drægni. *Miðað við FWD‑útfærslu.

  • Tækni

    Innsýn í notendavænt akstursrými bZ4X Touring frá sjónarhóli ökumanns.

    Hnökralaus tenging bZ4X Touring eykur þægindin fyrir fjölskylduna, með öflugri margmiðlun og fjarstýringu í gegnum MyToyota appið.

  • Farangursrými

    Rúmgott farangursrými bZ4X Touring fullt af farangri.

    Hvort sem það eru töskur, hjól, ferðatöskur eða innkaupapokar, 669 lítra farangursrými bZ4X Touring ræður við það allt.

POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=undefined

Hönnun sem sker sig úr

Hannaður fyrir ævintýri

Harðgerður og markviss, bZ4X Touring, ný tegund fjölskyldubíls - Með 100% sjálfstraust og fæddur til að kanna heiminn. Með styrk jeppa ásamt stíl og rými borgarbíls er bZ4X Touring öflugur og framsækinn.

Hönnun
  1. Að utan
    1. Film showing bZ4X Touring’s rugged design
      Vertu á undan – ekki á eftir.
      Áberandi stíll og kraftmikil hönnun fara saman í bZ4X Touring - bíll sem lætur að sér kveða hvert sem hann fer. Með einkennandi hammerhead‑framenda, rúmgóðu farangursrými og harðgerðu yfirbragði er þessi nýstárlegi sportjeppi fullkominn fyrir ævintýri fjölskyldunnar.
    2. bZ4X Touring keyrir í borginni
      Hannaður til að gera meira
      Ýttu við mörkunum með bZ4X Touring. Harðgerðir fram- og afturstuðarar undirstrika ævintýraeðlið hans og hæfni til að takast á við ólíkar aðstæður. 20” felgur og sterkbyggðir þakbogar fullkomna þennan trausta og sjálfsörugga fjölskyldubíl.
    3. Animation showing airflow over bZ4X Touring’s aerodynamic exterior
      Lágt viðnám, mikil áhrif
      bZ4X Touring er mótaður til að hámarka nýtni. Straumlínulagað útlit hans skilar meiri drægni og tvískiptur þakstuðari bætir loftflæðið og dregur úr viðnámi á meðan sléttur undirvagninn hjálpar bílnum að svífa í gegnum loftið – stílhrein samsetning formgerðar og loftflæðishagkvæmni.
    4. Rúmgott farangursrými bZ4X Touring fullt af farangri.
  2. Hagkvæmni
    1. Animation showing bZ4X Touring’s practical storage, roof rails and towing
      Klár í allt
      Smíðaður fyrir krefjandi aðstæður. bZ4X Touring er öflugur og rúmgóður 100% rafmagnsbíll fyrir þá sem gefa ekkert eftir. Rúmgott farangursrými og hagnýtar geymslulausnir í innanrými bjóða upp á pláss fyrir allt og alla auk þess sem örugg dráttargeta eykur fjölhæfnina enn frekar.
    2. Rúmgott farangursrými bZ4X Touring fullt af farangri
      Rými án takmarkana
      Meiri farangur? Engin vandamál. Með 669 lítra farangursrými er bZ4X Touring fullkominn fyrir virkan lífsstíl og sveigjanlegar fjölskylduferðir. Afturhlerinn lyftist hátt og gefur greiðan aðgang að farangursrýminu auk þess sem aftur­sætin eru niðurfellanleg svo þú getur lagað farangursrýmið að þínum þörfum.
    3. Þægilegt og afslappandi ökumannsrými bZ4X Touring
  3. Að innan
    1. Þægilegt og afslappandi ökumannsrými bZ4X Touring
      Rými fyrir alla fjölskylduna
      Með nútímalegri hönnun og ríkulegu rými lyftir innanrými bZ4X Touring hverri ferð upp á nýtt þæginda‑ og afslöppunarstig. Samspil langrar og straumlínulagaðrar yfirbyggingar og hljóðlátar rafdrifinnar aflrásar skapar rúmgott og afslappandi innanrými.
    2. Rúmgott innanrými bZ4X Touring séð í gegnum ökumannsgluggann.
      Slappaðu af og njóttu ferðarinnar
      Þöglu og fáguðu aksturseiginleikum bZ4X Touring fylgja framúrskarandi þægindi sem gera jafnvel lengstu ferðir ennþá ánægjulegri. Innanrýmið er stílhreint og nútímalegt, með hágæða frágangi.
    3. *Búnaður getur verið breytilegur eftir útfærslum.
      bZ4X Touring from overhead showing large panoramic roof
      Hleyptu birtunni inn
      Panoramaglerþak fyllir innanrýmið af birtu og skapar bjart og afslappandi andrúmsloft. Rafdrifin skygging ver gegn hita og beinu sólarljósi.*
    4. Smáatriði úr innanrými bZ4X Touring þar sem stemningslýsing sést á mælaborði
      Lýsing sem lagar sig að stemningunni
      Stemningslýsing bZ4X Touring er innfelld í hreina og nútímalega hönnun og bætir andrúmsloftið í innanrýminu. Veldu stemningu úr 64 sérsniðnum litum. Lýsingin breytir jafnframt um lit þegar þú skiptir um akstursstillingu, sem eykur tenginguna við akstursupplifunina.

Aldrif

Frábær afköst og algjör stjórn

Öflugasti bíllinn í rafbílalínu Toyota til þessa, bZ4X Touring, hann færir örugga frammistöðu upp á nýtt stig. Með 380 hestöflum skilar tvinnmótorinn kraftmikilli hröðun, stöðugum rafakstri og torfærugetu - við allar aðstæður.

Aldrif
  1. Akstursstillingar
    1. Film showing bZ4X Touring’s all wheel drive capability
      Öruggur akstur með X‑Mode.
      Kraftur er lítils virði án stjórnunar, snjallt X‑Mode fjórhjóladrif bZ4X Touring tryggir öruggt grip og tog í öllum aðstæðum. Hvort sem ekið er um borgargötur eða í torfæru skilar kerfið fullkomnu öryggi í öllum veðrum og vindum.
    2. Animation showing bZ4X Touring’s all-wheel drive capability in snowing conditions
      Betri yfirsýn og öryggi með Multi‑Terrain Monitor
      Með Multi‑Terrain Monitor færð þú yfirsýn yfir atriði sem annars sjást ekki úr ökumannssætinu, sem eykur öryggi, stjórn og sjálfstraust við akstur. Kerfið notar frammyndavél sem birtir hindranalausa sýn af umhverfi bílsins á margmiðlunarskjánum og bætir þannig sýnileika í krefjandi aðstæðum.
    3. Nærmynd af X‑MODE hnappnum í bZ4X Touring
      Kannaðu með X‑MODE
      Stilltu á snjó/drullu (e. Snow/Dirt) eða djúpan snjó/drullu (e. Deep Snow/Mud) á X‑MODE og fáðu ennbetra grip sem heldur þér á ferðinni - jafnvel við erfiðustu aðstæður.
    4. bZ4X Touring keyrir í borginni
  2. Aksturseiginleikar
    1. bZ4X Touring keyrir í borginni
      Eignaðu þér veginn
      Toyota bZ4X Touring er hannaður til að skila góðum og ánægjulegum aksturseiginleikum, hann er bæði kraftmikill og áreynslulaus í akstri. Nákvæm stýring og liprir aksturseiginleikar tryggja að þú sért alltaf með fulla stjórn. Hvort sem um er að ræða borgarferðir eða helgarævintýri sem krefjast torfæru.
    2. The Toyota bZ4X Touring’s chassis and battery
      Hannaður fyrir lipran akstur
      Með hönnun sem byggð er frá grunni í kringum nýstárlega rafdrifna aflrás sína er rafhlaða bZ4X Touring staðsett undir gólfi innanrýmisins. Þessi lausn hámarkar rými um borð og lækkar þyngdarpunkt bílsins, sem skilar betri aksturseiginleikum.

Afköst án takmarkanna

Rafmagn

bZ4X Touring sameinar fjölhæfni sem hentar öllum aðstæðum sem fylgir áreiðanleika Toyota bíla. Með hraðhleðslu og drægni til að komast enn lengra er þessi harðgerði og öflugi rafbíll einstök yfirlýsing um fullkomið rafakstursöryggi.

Rafmagn

Knúinn áfram af raforku

57,7 kWh rafhlaða (FWD) hefur 456 km WLTP blandaða drægni.
77 kWh rafhlaða (FWD) hefur 609 km WLTP blandaða drægni.
77 kWh rafhlaða (AWD) hefur 609 km WLTP blandaða drægni.

Mikilvægt: Þessar tölur eru byggðar á WLTP‑staðli (blönduðum akstri). Drægnitölurnar eru áætlaðar og byggja á opinberum samræmingarmælingum sem framkvæmdar eru við stýrð skilyrði samkvæmt WLTP‑prófunum. Þær eru eingöngu veittar til samanburðar og ætti aðeins að bera þær saman við önnur ökutæki sem prófuð eru samkvæmt sömu tæknilegu aðferðum.

Raunveruleg drægni getur verið frábrugðin þessum tölum þar sem margir þættir hafa áhrif, meðal annars: valin útfærsla, aukabúnaður og aukahlutir, aksturslag, hraði, ástand vegar, umferð, ástand ökutækis, gerð dekkja (sumar-/vetrardekk) og loftþrýstingur, farmur, fjöldi farþega, hitastig utandyra, hitastig rafhlöðu o.fl. Hafðu samband við söluaðila fyrir nánari upplýsingar. Frekari upplýsingar um WLTP má einnig nálgast hér: https://www.toyota.is/um-toyota/environment/wltp

479 - 591 km
4.4 - 7.2 sek
Drægni Ævintýrin bíða Með allt að 591 km drægni hefur nýr bZ4X Touring bæði afköst og úthald til að fara hvert sem vegurinn leiðir þig - og lengra. Ef þú þarft að hlaða á ferðinni getur hann hlaðið úr 10% í 80% á aðeins 28 mínútum, þökk sé öflugri DC‑hraðhleðslu, jafnvel við -10°C hita.** Meira um drægni *einungis FWD útfærsla **Allt að 150 kW. Tækni til að komast lengra bZ4X Touring er hannaður fyrir langar ferðir og er jafn öruggur í hita sem kulda. 74,7 kWh rafhlaðan er hitastýrð til að hámarka drægni, á meðan innbyggð varmadæla minnkar orkunotkun miðstöðvarinnar á köldum dögum. Meira um drægni Framúrskarandi frammistaða Með stöðugleika sem veitir sjálfstraust, lipra aksturseiginleika og snörp viðbrögð í hröðun skilar bZ4X Touring akstursupplifun þar sem kraftur og nákvæmni fara saman. Hleðsla Áreynslulaust Tengdar þjónustur gera þér auðvelt að fylgjast með hleðslustigi, skipuleggja hleðslustopp og stjórna hleðsluferlinu úr fjarlægð. Öflug DC‑hraðhleðsla bZ4X Touring tryggir síðan að þú sért kominn aftur af stað á örfáum mínútum. Toyota heimahleðsla Hleðslustöðin tengist ökutækinu á hnökralausan hátt í gegnum MyToyota appið, sem gerir heimahleðslu bæði einfalda og áreiðanlega. Hvernig virka rafbílar? Útskýring á rafbílum Rafbílar eru mjúkir í akstri, kraftmiklir og bjóða upp á einstaka akstursupplifun. Þeir eru spennandi valkostur í stað bensín- og dísilbíla. Þar sem hefðbundnir bílar nota brunahreyfil og eldsneytistank, eru rafbílar knúnir rafmótorum og endurhlaðanlegri rafhlöðu. Mótorarnir taka raforku úr rafhlöðunni til að knýja hjólin og færa bílinn áfram. Hleðsla Það er einfalt að hlaða rafbílinn heima með Toyota Heimahleðslustöð. Hraðhleðslustöðvar á ferðinni gera lengri ferðir þægilegar og stresslausar. Akstur Rafbílarnir aka alveg eins og hefðbundnir bílar, þó að aflrásin sé öðruvísi. Rafhlaða knýr einn eða fleiri rafmótora sem snúa hjólunum og koma bílnum áfram. Endurheimt hemlunarorka Ólíkt bensín- og dísilbílum geta rafbílar endurheimt hluta af þeirri orku sem venjulega tapast þegar þú hemlar. Þessi orka er breytt í rafmagn sem fer aftur inn í rafhlöðuna og lengir þannig drægni bílsins.

Tækni

Alltaf tengdur - hvar sem þú ert

bZ4X Touring býður upp á nútímalega margmiðlunarupplifun með stafrænu ökumannsrými sem tryggir fulla stjórn á ferðinni. Með MyToyota appinu hefurðu jafnframt aðgang að forstillingu hitastigs í farþegarými og helstu upplýsingum, svo sem drægni og hleðslustöðu.

Tækni
  1. Stafrænn stjórnklefi
    1. Mynd sem sýnir mæla- og upplýsingaskjá ökumanns í bZ4X Touring
      Skýr yfirsýn
      Upplýsingaskjárinn í bZ4X Touring veitir skýra og aðgengilega yfirsýn yfir aksturinn. Á honum má sjá upplýsingar um hleðslustöðu drifrafhlöðunar á meðan flipar aftan við stýrið auðvelda stillingu á endurheimt hemlunar fyrir meiri stjórn, skilvirkni og akstursánægju.
    2. Nærmynd af 14 tommu margmiðlunarskjá bZ4X Touring
      Stafræn þægindi
      14" snertiskjár bZ4X Touring veitir aðgang að öllum helstu stillingum og margmiðlun. Skýjalausn í leiðsögn með EV‑leiðsögn skipuleggur hleðslustopp sjálfkrafa fyrir sem stystan ferðatíma á meðan þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur halda kerfinu alltaf uppfærðu.
    3. Ökumannsrými bZ4X Touring séð frá sjónarhorni ökumanns
      Öryggi undir stýri
      Mælaborðið er hannað með einfaldleika og yfirsýn í huga. Það sýnir helstu akstursupplýsingar, svo sem hraða og hleðslustöðu rafhlöðu, á skýran og aðgengilegan hátt. Skjárinn er staðsettur rétt undir sjónsviði ökumanns, þannig að þú sérð allt það mikilvæga í einni svipan – án þess að taka augun af veginum. Stýrið er búið snjöllum hnöppum sem veita greiðan aðgang að algengustu aðgerðum bílsins, svo þú getur einbeitt þér að akstrinum með báðar hendur á stýri.
    4. Þráðlaus hleðsla fyrir tvo snjallsíma í miðjustokki
      Þráðlaus þægindi
      bZ4X Touring er hannaður með þægindi í fyrirrúmi og allt innan seilingar. Miðstokkurinn er stafrænn stjórnpunktur sem sameinar tengingar við snjalltækin þín og helstu akstursstýringar. Þráðlaus hleðsla fyrir tvo snjallsíma sjá til þess að símarnir séu alltaf fullhlaðnir og tilbúnir í notkun. Aftursætið býður upp á 60 W USB‑hleðslu, svo allir farþegar geta haldið tækjunum sínum fullhlaðnum á ferðinni.
    5. Ökumaður bZ4X Touring skoðar hleðslustöðu bílsins í snjallsíma sínum
  2. Tengdar þjónustur
    1. Tengdar þjónustur

      Full stjórn úr snjallsímanum

      MyToyota appið er hannað til að einfalda daglegt líf með snjöllum lausnum. Þú getur fylgst með stöðu bílsins beint úr snjallsímanum, til dæmis skoðað hleðslustöðu rafhlöðunnar, fundið hvar bíllinn er lagður, leitað að nálægum hleðslustöðvum og jafnvel skipulagt eða fylgst með hleðsluferli í rauntíma.

    2. Ökumaður bZ4X Touring læsir bílnum með snjallsímanum sínum
      Taktu stjórnina
      Sama hversu langt er farið hefurðu fulla stjórn úr fjarlægð. Þú getur læst eða aflæst hurðum bZ4X Touring, lokað gluggum og jafnvel stillt hitastigið í farþegarýminu fyrirfram - svo allt sé klárt áður en lagt er af stað.
    3. * Eiginleikar tengdra þjónusta og búnaðar bíls geta verið mismunandi eftir útfærslum, búnaðarstigum og framboði á viðkomandi markaði. ** Ræsiaðgerð snjalla stafræna lykilsins virkar ekki ef bíllinn er búinn viðbótar þjófavörn og lykillinn er ekki inni í bílnum.
      Ökumaður bZ4X Touring notar stafrænan snjalllykil
      Notaðu símann í stað lykils
      Stafrænn sbjalllykill* gerir þér kleift að læsa, aflæsa og ræsa** Toyota bílinn þinn með snjallsímanum. Þú getur einnig deilt stafræna lyklinum með allt að fjórum öðrum notendum, sem gerir samnýtingu bílsins bæði einfalda og þægilega.
    4. Ökumaður bZ4X Touring skoðar stöðu bílsins í snjallsíma sínum
      Hleðsla
      Til að tryggja hnökralausa upplifun geturðu fylgst með hleðslustöðu og akstursdrægni bZ4X Touring úr fjarlægð, beint úr snjallsímanum. MyToyota appið finnur nálægar hleðslustöðvar og gerir þér kleift að skipuleggja hleðslu áður en lagt er af stað.

Algengar spurningar

  1. Allar

WLTP gildi er byggt á WLTP (Worldwide harmonized Light vehicle Test Procedure) reglugerðinni. Þetta er alþjóðlegur staðall sem Toyota fylgir. Það eru margir þættir sem hafa áhrif á drægni sem leiða til þess að nákvæmni WLTP minnkar, þar á meðal hraði, yfirborð vegarins, aksturshegðun og umhverfishiti, WLTP gildi fyrir bZ4X er drægni upp á 504km en breytingar á fyrrnefdum atriðum geta dregið úr drægni. Þú getur notað reiknivélina okkar fyrir áætlaða drægni til að setja inn þínar breytur til að áætla þína drægni.

Ef þú velur eco akstursstillingu mun það auka skilvirkni, sem og að virkja sjálfvirka eco stillingu fyrir miðstöðina. Íhugaðu að slökkva á loftkælingunni/hituninni þegar þess er ekki þörf og mundu að hituð sæti og stýri eru skilvirkari leið til að halda hita en að hækka miðstöðina. Það er líka góð hugmynd að forhita farþegarýmið á meðan bíllinn er enn í hleðslu – þú getur fjarhitað með MyToyota appinu. Gakktu úr skugga um að þrýstingur í dekkjum sé rétt stilltur. Lágur þrýstingur mun minnka notkunarsvið. Vetrardekk eyða líka meira rafmagni á þurrum vegum en sumardekk. Að bera óþarfa þunga mun auka orkunotkun, svo vertu viss um að fjarlægja umfram hluti úr bílnum. Íhugaðu að lokum að breyta aksturshegðun þinni. Að keyra á jöfnum, hóflegum hraða og forðast óþarfa hröðun og hemlun mun hjálpa þér að komast lengra á einni hleðslu. Þegar þú þarft að auka hraðann skaltu gera það með jafnri hröðun til að minnka orkunotkun þína.

Rafbílarnir okkar eru smíðaðir í samræmi við sömu gæða, endingar og áreiðanleikastaðla og aðrar Toyota. Drifafhlaðan í rafbílunum er hönnuð til að endast. Hún er í ábyrgð í allt að  8 ára eða 160.000 km keyrslu (hvort sem fyrr kemur) (í þeim tilfellum sem hleðslurýmd hefur rýrnað undir 70%) svo framarlega sem árlegu viðhaldi hjá viðurkenndum þjónustuaðila er sinnt.  

Forhitun rafhlöðu er notuð til að stytta hleðslutíma við hraðhleðslu (DC) með því að koma rafhlöðunni í kjörhitastig áður en hleðsla hefst. Forhitunina er hægt að tengja við leiðsögukerfið og virkjast sjálfkrafa þegar þú velur hleðslustöð sem áfangastað í leiðsögukerfinu. Einnig er hægt að virkja forhitun rafhlöðunnar handvirkt með hnappi á margmiðlunarskjánum eða tímasetja hann fyrir brottför, svo bíllinn sé tilbúinn þegar lagt er af stað.

Rafbíll hefur ekki hefðbundna vél og gengur eingöngu fyrir rafmagni, þar sem rafhlaðan knýr einn eða fleiri rafmótora. Hybrid bílar hafa bæði hefðbundna vél og rafknúna aflrás. Í Hybrid bíl vinna vél, rafmótor og rafgeymir saman. Rafmótorinn eykur afköst og virkar sem rafall til að breyta umframorku í rafhleðslu, sem dregur úr eldsneytisnotkun.

WLTP drægni Toyota C-HR+ er allt að km 607 km* á einni hleðslu.

 

*Þessi drægni er byggð á prófunum í stýrðu umhverfi (WLTP). Þessar tölur eru gefnar upp í samanburðarskyni: berðu þær saman við aðra bíla sem prófaðir eru við sömu skilyrði (WLTP). Áætluð drægni gerir ráð fyrir að rafhlaðan sé fullhlaðin (100%) og að fullu tæmd (0%).

Raunveruleg drægi ökutækis þíns mun vera breytilegt frá þessum reiknuðu gildum, þar sem margir þættir hafa áhrif á drægni. Sem dæmi má nefna: útfærsla, búnaður og fylgihlutir, aksturslag, hraði, ástand vegar, umferð, ástand ökutækis, dekkjagerð (sumar/vetur) og þrýstingur í dekkjum, farmur ökutækis, farþegafjöldi, ytra hitastig, hitastig rafgeyma o.s.frv.

Uppgefin WLTP gildi eru leiðbeinandi en endurspegla ekki endilega raunverulega drægni. Hafðu samband við söluráðgjafa Toyota fyrir frekari upplýsingar.

Það er einfalt og þægilegt að hlaða rafbílinn þinn, hvenær sem þér hentar með því að nota hleðslusnúruna sem fylgir bílnum. Við mælum með því að setja upp hæeðslustöð heima við til að auka öryggi og hraða heðslu. Þú getur notast við hraðhleðslustöðvar þegar þú ert á ferðinn, staðsetningar almennningshleðslustöðva eru sýnilegar á margmiðlunarskjánum í bílnum.

Rafbíll hefur ekki hefðbundna vél og gengur eingöngu fyrir rafmagni, þar sem rafhlaðan knýr einn eða fleiri rafmótora. Hybrid bílar hafa bæði hefðbundna vél og rafknúna aflrás. Í Hybrid bíl vinna vél, rafmótor og rafgeymir saman. Rafmótorinn eykur afköst og virkar sem rafall til að breyta umframorku í rafhleðslu, sem dregur úr eldsneytisnotkun.

WLTP drægni Toyota bZ4X er 504km* á einni hleðslu.

 

*Þessai gildi eru áætluð gildi sem eru byggð á prófunum í stýrðu umhverfi (WLTP). Þessar tölur eru gefnar upp í samanburðarskyni: berðu þær saman við aðra bíla sem prófaðir eru við sömu skilyrði (WLTP). Áætluð drægni gerir ráð fyrir að rafhlaðan sé fullhlaðin (100%) og að fullu tæmd (0%).

Raunveruleg drægi ökutækis þíns mun vera breytilegt frá þessum reiknuðu gildum, þar sem margir þættir hafa áhrif á drægni. Sem dæmi má nefna: útfærsla, búnaður og fylgihlutir, aksturslag, hraði, ástand vegar, umferð, ástand ökutækis, dekkjagerð (sumar/vetur) og þrýstingur í dekkjum, farmur ökutækis, farþegafjöldi, ytra hitastig, hitastig rafgeyma o.s.frv.

Uppgefin WLTP gildi eru leiðbeinandi en endurspegla ekki endilega raunverulega drægni. Hafðu samband við söluráðgjafa Toyota fyrir frekari upplýsingar.

Að hlaða rafmagnsbílinn þinn er einfalt og þægilegt. Þú getur hlaðið þegar þér hentar best – heima eða með almenningshleðslustöðvum. Til þess að notast við heimahleðslu Toyota þarftur að setja upp Toyota heimahleðslustöð en hún getur hlaðið bílinn úr 10% í 80% á innan við 5 klukkustundum* (11 kW). Tengdu bílinn í samband yfir nótt og vaknaðu við fullhlaðna rafhlöðu, tilbúna fyrir daginn.
Með hraðhleðslu er hægt að hlaða bílinn úr 10% í 80% á um 30 mínútum*.


* Hleðsla úr 10% upp í 80% er möguleg á um 28 mínútum með 150 kW DC‑hraðhleðslu, miðað við 25°C útihita. Með forhitun rafhlöðu virkri 40 mínútum fyrir hleðslu er sama niðurstaða möguleg jafnvel við ‑10°C útihita.