Skip to Main Content (Press Enter)
loading content

Aygo X er góður félagi í borginni

Aygo X er góður félagi í borginni. Taktu borgina með stæl – með flottri hönnun, liprum akstri og kraftmiklu Hybrid afli.

  • Stíll sem vekur athygli

    Aygo X GR SPORT lagður fyrir utan heimili

    Aygo X lætur engan ósnortinn – stílhreint og sjálfsöruggt útlit sem vekur athygli.

  • Fágað rými

    Stílhreint og þægilegt ökumannsrými Aygo X

    Þar sem þægindi mætast tækni, stíl og rúmgóðu rými.

  • Notendavæn tækni

    Ökumaður notar snertiskjáinn í Aygo X

    Vertu tengdur með margmiðlunarsnertiskjánum.

  • Upplifðu fjörið með Hybrid

    Aygo X GR SPORT í borginni

    Lipur akstur og eldsneytissparnaður

  • Góðar stundir á ferðinni

    Séð inn um opnanleg þak Aygo X

    Breyttu umferðarteppu í skemmtun með Aygo X

  • Brostu alla daga

    Aygo X keyrir um í borginni

    Lipur og snöggur í umferðinni – Aygo X ræður ríkjum í borginni

  • Öryggi í borginni

    Aygo X GR SPORT keyrir um í borginni

    Öruggari akstur með Toyota Safety Sense.

  • Frábært bíll fyrir borgaraksturinn

    Aygo X lagður í stæði á götu

    Aygo X – smár, lipur og auðvelt að leggja

Read timed out

POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=37d0214b-a347-4e4c-864f-d14df8086d90

Hönnun

Djörf hönnun

Nýr Aygo X er smár en með stóran persónuleika – áhrifarík túlkun á orku borgarlífsins. Með djörfum hlutföllum og óhræddri framkomu endurskilgreinir hann stíl smábíla með fágaðri hönnun og Sportbíla eiginleikum.

Hönnun
  1. Að utan
    1. Aygo X lagður í stæði fyrir utan heimili
      Kynntu þér borgarbílinn
      Aygo X sameinar lipra stærð inannrýmis við upphækkaða yfirbyggingu, stór hjól og hærri akstursstöðu – og setur nýjan tón í borgarstíl. Með áberandi smáatriðum og djörfum hlutföllum færir hann glæsileika út á göturnar.
    2. Stíll sem vekur athygli á götum borgarinnar

      Nýr Aygo X er bíll með sterka nærveru, kraftmiklar línur og Toyota-hönnun sem byggir á „hammerhead“ þema. Djarfar 18" álfelgur og áberandi LED-aðalljós fullkomna útlitið.

      Nærmynd af 18" álfelgum LED-aðalljós og framgrill Aygo X
  2. Animation showing Aygo X’s premium canvas roof open and closed
    Leyfðu borginni að flæða inn
    Lyftu upplifun þinni í borginni upp á hærra plan með flottu opnanlegu Canvas þaki. Aygo X er fágaður og hljóðlátur þegar þakið er lokað, en á augabragði getur þú opnað þakið sem gefur þér algjört frelsi – með vindinn í hárinu.
  3. Stílhreint og þægilegt ökumannsrými Aygo X
  • Að innan
    1. Stílhreint og þægilegt ökumannsrými Aygo X
      Þægindi án fyrirhafnar
      Breiður grunnur Aygo X tryggir rúmgott innanrými. Glæsileg hönnun, með litbrigðum sem passa við ytra útlit bílsins, skapar fágaðan og stílhreinan svip.
    2. *SakuraTouch er framleitt úr meira en 40% plöntuunnu PVC sem kemur úr aukaafurðum viðarvinnslu, og inniheldur einnig korkflísar úr vínframleiðslu og endurunnið PET – án þess að skerða endingargæði. **Aðeins í boði á High Grade og GR SPORT.
      Nærmynd af lúxussætum Aygo X
      Smáatriði sem skipta máli
      SakuraTouch* efnið, sem inniheldur plöntuunninn PVC, endurunninn kork og PET, skapa flottan stíl en á sama tíma draga úr CO₂ losun við framleiðslu um 95% miðað við ekta leður. Sætin eru mjúk og vönduð viðkomu með fíngerðu Aygo X merki og saumi í lit sem passar við útlit bílsins**.
    3. animation showing Aygo X’s boot filling with weekend luggage
      Klár í allt
      Aygo X er hagnýtur og rúmgóður – tilbúinn fyrir skyndilegar verslunarferðir og helgarútilegur. Skottið er hannað til að auðveldu þér að hlaða farangri og rúmar 231 lítra.
    4. Mynd sem sýnir innblásturinn af litapallettu Aygo X
  • Krydd þema
    1. Krydd þema

      Innblásið af kryddum

      Frá sterku sinnepsbragði til róandi fágunar jasmíns – krydd geta bætt skapið. Veldu úr fimm flottum litum sem eru innblásnir af uppáhaldskryddum heimsins. Hver er þinn Aygo X? *Einungis í Mid+, High og GR SPORT útfærslum.

    2. Aygo X drives sunny city streets with its canvas roof open
      Kanill og Jasmine
      Kanill gefur stílhreinan og nútímalegan blæ með fíngerðum málmgljáa. Jasmín, aftur á móti, býður upp á fágaðri áferð með daufri litabreytingu sem bætir við glæsileika
    3. Aygo X drives sunny city streets with its canvas roof open
      Tarragon, Lavandula and Mustard 
      Fiery and uplifting, Mustard* is perfect for big characters. For more reflective souls there’s the summer breeziness of Lavandula and relaxed, peaceful Tarragon. *Only available on GR SPORT
  • Aksturseiginleikar

    Skemmtun á tankinn

    Sjáðu göturnar eins og þú hefur aldrei séð þær áður. Aygo X sameinar snögga stjórnhæfni, lipurð og viðbragðsflýti við upphækkaða akstursstöðu sem veitir frábært útsýni í allar áttir. Með hámarks þægindum og stjórn færðu að njóta frelsis borgarinnar.

    Akstursupplifun
    1. Skemmtilegur í keyrslu
      1. Aygo X GR SPORT í borginni
        Aygo X með Hybrid
        Taktu forystuna með Hybridtækni. Með liprum aksturseiginleikum og sparneytni sameinar Aygo X bensín og rafmagn í 1,5L Hybridvél. 
      2. Aygo X keyrir í borginni
        Snöggur og viðbragðsfljótur
        Fullur af orku og lætur vel að stjórn. Aygo X gerir þér kleift að svífa í gegnum borgarumferðina. Viðbragðsfljótur og átakalaus í akstri, hann færir akstursgleðina upp á næsta stig.
      3. Aygo X í akstri um borgina, séð ofan frá.
    2. Aksturseiginleikar
      1. Aygo X í akstri um borgargötur, séð ofan frá.
        Lipur í borginni
        Lipur og auðvelt að stýra – Aygo X er gerður fyrir þröngar borgargötur. Sigraðu umferðina með stæl.
      2. AYX0008_ENVY_26
        Auðvelt að leggja í stæði
        Bílastæði og U-beygjur hafa aldrei verið einfaldari. Með bakkmyndavél og snjöllum skynjurum er leikur einn að renna inn í bílastæði.“

    Tækni

    Tengdur og við stjórn

    Tengdur, öruggur og alltaf tilbúinn – Aygo X með leiðsögn, tónlist og stafrænu mælaborði sem setur þig í fulla stjórn.

    Tækni
    1. Stafrænn stjórnklefi
      1. *Valbúnaður á Play, staðalbúnaður á Pulse, Envy og GR SPORT útfærslum.
        Eigandi notar Apple CarPlay á 10,5” margmiðlunarskjá Aygo X
        Gerðu allar ferðir einfaldari
        Haltu þér tengdum á ferðinni með margmiðlunarskjá og stafrænum upplýsingaskjá. Tvær USB-C tengingar og þráðlaus hleðsla* halda símanum fullhlaðnum, á meðan rafrænn handbremsa gerir stop-start akstur í borginni átakalausan.
      2. * í boði fyrir Envy og GR Sport útfærslur
        Aygo X’s 10.5" margmiðlunarskjár
        Akstursgreind
        10,5”* margmiðlunarskjárinn er þinn gluggi að heimi þægilegra tengimöguleika – allt frá þráðlausum Apple CarPlay og Android Auto™ samhæfni til leiðsagnar með rauntímauppfærslum sem hjálpa þér að komast framhjá umferðarteppum.
      3. *Staðalbúnaður og valbúnaður er misjafn milli útfærslna
        Farsími í hleðslu í þráðlausi hleðslu
        Þráðlaus hleðsla fyrir farsíma*
        Samfelld tenging tryggir að síminn þinn og bíllinn séu alltaf í takt, á meðan þráðlaus hleðsla í miðjustokki veitir stöðuga hleðslu á ferðinni.
      4. Einn af hágæða JBL hátölurum í innra rými Aygo X.
    2. Hágæða hljómkerfi
      1. * í boði fyrir Envy og GR Sport útfærslur
        Einn af hágæða JBL hátölurum í innra rými Aygo X.
        JBL® premium hljómkerfi
        Hvort sem þú ert á leið í vinnuna eða út að skemmta þér, tryggir hágæða hljómkerfi JBL® ógleymanlega upplifun. Með öflugum bassahátalara fyrir djúpan tón og fjögurra hátalara kerfi sem skilar tærri og kraftmikilli hljóðupplifun sem fær hárin til að rísa.*
      2. Ökumaður Aygo X notar  MyToyota appið í símanum sínum
    3. Tengdar þjónustur
      1. *Aðgengi að eiginleikum í boði eru mismunandi á milli útfærslna
        Eigandi notar My Toyota appið í símanum sínum
        Stjórnaðu með símanum
        Sama hversu langt þú ert frá bílnum geturðu læst eða aflæst hurðum, lokað gluggum og jafnvel stillt hitastig í farþegarýminu til að tryggja þægindi áður en ferðin hefst. *
      2. **Fyrir Toyota Aygo X er ekki boðið upp á sjálfvirka læsingu/aflæsingu. Þú getur þó læst og aflæst bílnum með appinu í gegnum fjarstýringarvirkni. Ræsivirkni Stafræna snjallykilsins mun ekki virka ef bíllinn er búinn auka ræsivarnartæki og ef lykill ræsivarnar er ekki til staðar inni í bílnum.
        Ökumaður Aygo X notar stafrænan lykil í MyToyota appinu
        Notaðu símann í stað lykils
        Notaðu snjallsímann til að læsa, aflæsa og ræsa* Toyota Aygo X með Stafrænan lykil. Þú getur einnig deilt Stafræna snjalllyklinum með allt að fjórum öðrum notendum, sem gerir bílasamnýtingu þægilega.“**

    Algengar spurningar

    Rafvæðing: Spurningum þínum um rafvæðingu svarað

    Toyota kynnti Hybrid tæknina fyrst fyrir heiminum árið 1997 með Toyota Prius. Við höfum þróað og bætt Hybrid bílana okkar seinustu 27 ár og bjóðum stolt upp á úrval af flottum, kraftmiklum sem og hagkvæmum Hybrid bílum sem henta þínum lífstíl.

    Vélin og rafmótor í Hybrid bílum vinna saman í háþróaðri og samþættri aflrás. Rafótorinn er ýmist notaður til að auka afköst eða aka án aðkomu vélarinnar en hann virkar sömuleiðis sem rafall sem tekur þátt í varðveislu á orku með hleðsluhemlun eða að breyta umframorku í rafhleðslu og dregur þannig úr eldsneytisnotkun. Hybrid bílar Toyota hlaða drifrafhlöðurnar sínar sjálfir t.d. með hleðsluhemlun og þeir eru því ekki hlaðnir með því að stinga þeim í samband. Það er auðvelt að fylla á Hybrid bíl. Þú fyllir á Toyota Hybrid bílinn þinn með bensíni á bensínstöð, rétt eins og á hefðbundinn bensín bíl.

    Toyota Hybrid bílar blanda saman tveimur orkugjöfum: bensíni og rafmagni.

    Toyota Hybrid eru í raun rafvæddir bensínbílar þar sem hugmyndafræðin gengur út á að nýta bensínorkuna sem best og jafnvel að nýta sömu orkuna oftar en einusinni.  Við hemlun og aðra afhröðun er rafmótorinn nýttur sem rafali og hleðsluálag frá honum notað til að hægja ferðina. Skriðorka bílsins er þannig varðveitt sem rafmagn og hún endurnýtt til aksturs í stað þess að tapast sem hiti í bremsukerfinu. Því mætti segja að sami bensíndropinn geti verið nýttur oftar en einu sinni. Þess vegna er talað um að Toyota Hybrid bílar séu sjálfhlaðandi þar sem það þarf ekki að stinga þeim í samband til að hlaða drifrafhlöðuna í bílnum.

    Allir Toyota Hybrid bílar hafa sjálfhlaðandi Hybrid rafhlöðu og bensínvél. Þeir eru tvinnbílar (e. Hybrid) vegna þess að þeir nota bæði eldsneyti og rafmagn til þess að framleiða orku fyrir bílinn. Ólíkt 100% rafmagnsbíl þá þarf ekki að setja þá í samband til að hlaða.

    Toyota hefur verið að þróa sjálfhlaðandi Hybrid tækni í yfir 27 ár.  Sala á Hybrid bílum er næstum helmingur allra sölu okkar í Evrópu og mun tæknin veita sterka undirstöðu fyrir nýja rafmagnsbíla Toyota á næsta áratug.

    Byltingarkennda rafhlaðan í Hybrid bílunum okkar er hönnuð til að endast líftíma bílsins og fyrstu kynslóðar Prius er lifandi sönnun þess, en það má finna fyrstu kynslóðar Priusa á götunni sem hafa komist milljón kílómetra á sömu rafhlöðunni og sömu vél.

    Til eru þrjár gerðir af Hybrid bílum, mild Hybrid, full Hybrid (Toyota Hybrid) og Plug-in Hybrid. Allir Hybrid bílar hafa bensín- og rafmagnsvél. Ólíkt öðrum Hybrid bílum þá geta Toyota Hybrid bílar keyrt á báðum orkugjöfum í einu eða í sitthvoru lagið óháð hvor öðrum.

    Bílar með Mild Hybrid kerfi geta einungis notað rafmagnið til þess að styðja við vélina við að taka af stað eða í léttum akstri - rafmagnsvélin er ein og óstudd og ekki nægur orkugjafi fyrir bíllinn. Í Full Hybrid kerfi, eða Toyota Hybrid getur þú keyrt á rafmagninu í yfir 50% tímans í borgarakstri. Þegar bíllinn er kominn á meiri ferð fer rafmagnið og hin hefðbundna vél að vinna saman. Plug-in Hybrid virkar á sama hátt og Toyota Hybrid með möguleika á að keyra lengur á rafmagni með því að hlaða drifrafhlöðuna.