Skip to Main Content (Press Enter)
loading content

Please configure price tile

Framúrskarandi staðalbúnaður

Búðu þig undir óhagganlegt öryggi við akstur í öllum ævintýrum, óháð því hvaða Land Cruiser þú velur.

  • Byggður fyrir hvers kyns undirlag

    Land Cruiser á akstri

    Land Cruiser er klár í öll ævintýri.

  • Tilbúinn í óbyggðirnar

    Land Cruiser ekur á sandi

    Búinn torfærubúnaði sem gerir þér kleift að takast á við erfitt undirlag.

  • Auðveldari akstur á öllum vegum

    Land Cruiser á akstri

    Aksturinn er áreynslulaus, hvort sem er á þjóðvegum eða sveitaslóðum.

  • Tenging án takmarkana hvert sem þú ferð

    MyToyota appið skoðað

    MyToyota heldur þér í góðu sambandi alla ferðina.

  • Öryggi í fyrirrúmi í hverri ferð

    Land Cruiser sést í fjarlægð

    Toyota Safety Sense verndar þig hvert sem þú ferð.

  • Farangursrými fyrir öll ævintýri

    Innanrými Land Cruiser

    Sveigjanlegt og notendavænt rými sem uppfyllir hvers kyns kröfur.

  • Þægindi við erfiðustu aðstæður

    Ökumaður við stýri á Land Cruiser

    Kyrrlátt farþegarými sem tryggir þér þægindi hvert sem þú ferð.

Hvaða Land Cruiser heillar þig?

Kynntu þér útfærslurnar

Sýna eingöngu mismun
Mild Hybrid

Land Cruiser VX

Land Cruiser VX 5 dyra jeppi
22.290.000 kr.
Upplýsingar um vél
Mild Hybrid

2.8L Dísil Hybrid

4WD, 8 þrepa sjálfskipting

Mild Hybrid

2.8L Dísil Hybrid

4WD, 8 þrepa sjálfskipting

Valin vél

Drif

4WD

Gírskipting

8 þrepa sjálfskipting

CO₂ blandaður akstur g/km

278 g/km

Blandaður akstur l/100km

10,6 l/100 km

Ytri búnaður

Ytri valbúnaður
  • Innifalið

    Rafknúinn afturhleri

  • Innifalið

    Hiti í hliðarspeglum

  • Innifalið

    Rafdrifnir aðfellanlegir hliðarspeglar

  • Innifalið

    Aðalljós lýsa leiðina heim að dyrum

Ytri eiginleikar
  • Innifalið

    Skriðstýring

  • Innifalið

    Torfæruskjár

  • Ekki í boði

    Aftenging á jafnvægisstöng (SDM)

Ytra öryggi
  • Innifalið

    Blindsvæðisskynjari

  • Innifalið

    Sjálfvirk hæðarstilling aðalljósa

  • Innifalið

    Yfirlitsmynd af umhverfi bílsins á skjánum

  • Innifalið

    Árekstraröryggiskerfi

  • Innifalið

    Hugvitsamlegur sjálfvirkur hraðastillir

  • Innifalið

    Neyðarstöðvunarkerfi (EDSS)

Innra rými

Margmiðlun
  • Innifalið

    10 hátalarar

  • Ekki í boði

    14 hátalarar

  • Ekki í boði

    Fyrsta flokks JBL-hljóðkerfi

  • Innifalið

    12,3" margmiðlunarskjár

  • Innifalið

    Toyota Smart Connect+

Þægindi
  • Innifalið

    Yfirlitsmynd af umhverfi bílsins á skjánum á hljómtækjaskjá

  • Ekki í boði

    10" sjónlínuskjár (HUD)

  • Innifalið

    12,3" upplýsingaskjár

Flutningur
  • Innifalið

    Kælihólf í miðstokki

Öryggi
  • Valbúnaður

    4 höfuðpúðar

Mild Hybrid

Land Cruiser Luxury

Land Cruiser Luxury 5 dyra jeppi
24.990.000 kr.
Upplýsingar um vél
Mild Hybrid

2.8L Dísil Hybrid

4WD, 8 þrepa sjálfskipting

Mild Hybrid

2.8L Dísil Hybrid

4WD, 8 þrepa sjálfskipting

Valin vél

Drif

4WD

Gírskipting

8 þrepa sjálfskipting

CO₂ blandaður akstur g/km

282 g/km

Blandaður akstur l/100km

10,7 l/100 km

Ytri búnaður

Ytri valbúnaður
  • Innifalið

    Rafknúinn afturhleri

  • Innifalið

    Hiti í hliðarspeglum

  • Innifalið

    Rafdrifnir aðfellanlegir hliðarspeglar

  • Innifalið

    Aðalljós lýsa leiðina heim að dyrum

Ytri eiginleikar
  • Innifalið

    Skriðstýring

  • Innifalið

    Torfæruskjár

  • Innifalið

    Aftenging á jafnvægisstöng (SDM)

Ytra öryggi
  • Innifalið

    Blindsvæðisskynjari

  • Innifalið

    Sjálfvirk hæðarstilling aðalljósa

  • Innifalið

    Yfirlitsmynd af umhverfi bílsins á skjánum

  • Innifalið

    Árekstraröryggiskerfi

  • Innifalið

    Hugvitsamlegur sjálfvirkur hraðastillir

  • Innifalið

    Neyðarstöðvunarkerfi (EDSS)

Innra rými

Margmiðlun
  • Ekki í boði

    10 hátalarar

  • Innifalið

    14 hátalarar

  • Innifalið

    Fyrsta flokks JBL-hljóðkerfi

  • Innifalið

    12,3" margmiðlunarskjár

  • Innifalið

    Toyota Smart Connect+

Þægindi
  • Innifalið

    Yfirlitsmynd af umhverfi bílsins á skjánum á hljómtækjaskjá

  • Innifalið

    10" sjónlínuskjár (HUD)

  • Innifalið

    12,3" upplýsingaskjár

Flutningur
  • Innifalið

    Kælihólf í miðstokki

Öryggi
  • Valbúnaður

    4 höfuðpúðar

Bera saman
StaðalbúnaðurValEkki í boði

POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=60ae2897-f9e1-4ff6-bc61-974d2d0edb5f

Hönnun

Innblástur frá forverum

Goðsögnin snýr aftur. Land Cruiser sameinar tímalausan stíl og nýjustu tækni í hrífandi hönnun sannrar goðsagnar. Hér fer bíll sem innblásinn er af fortíðinni og útfærður fyrir framtíðina, ávallt til reiðu og kemur þér hvert á land sem er og aftur heim í örugga höfn.

Hönnun
  1. Ytra byrði
    1. Yfirbragð styrks

      Land Cruiser geislar af anda ævintýranna. Bíllinn er trúr arfleifð sinni en á sama tíma ótrúlega nútímalegur. Hann sameinar tímalausar útlínur og nútímalega fleti í nýju hrífandi útliti.

      Land Cruiser in the desert, with its bold rear light design Land Cruiser in the desert at sundown
  2. Graphic illustrating Land Cruiser’s rugged design
    Innbyggð vörn
    Stórar rúður, mótaðar hliðar og lág vélarhlíf eru merki um vel heppnaða og hagnýta hönnun sem skilar frábæru útsýni. Einkennandi LED-ljós að framan og aftan eru inndregin frá hornum og þannig varin gegn skemmdum.
  3. Nærmynd af saumum á leðursæti í Land Cruiser
  • Innanrými
    1. The neat stitching on Land Cruiser’s leather seats
      Stílhreint ævintýri
      Land Cruiser er harðger að utan og með innanrými þar sem saman fara notagildi og lúxus. Ævintýrið hefst hér, í rúmgóðum, þægilegum og vel útbúnum bíl fyrir óbyggðirnar.
    2. Þægileg stjórn

      Sveigjanlegt innanrýmið er meistaraverk í haganlegri hönnun, með frábæru útsýni til allra átta, þökk sé háum sætum, beinum A-stoðum og lágu mælaborði. Einföld stjórntæki og skýrir skjáir veita þér öryggi til að fara lengra.

      The view from the front seats through to to the rear of Land Cruiser The View from front passenger seat towards the driver’s seat
  • Innanrými Land Cruser með áherslu á Panorama glerþakið
    Komdu þér þægilega fyrir og njóttu útsýnisins
    Íburðarmikið en um leið hagnýtt fyrsta flokks farþegarými býður upp á kyrrláta stemningu og mikið rými. Þakglugginn býður upp á eftirminnilegt útsýni, hvort sem stefnt er að því að aka auðnirnar eða ferðast eftir þjóðvegunum.
  • Séð aftaná Land Cruiser með opinn afturhlera sem sýnir farangur
  • Notagildi
    1. Séð aftaná Land Cruiser með opinn afturhlera sem sýnir farangur
      Lifðu lífinu lifandi
      Íburðarmikið farþegarýmið er stórt og fallegt, með þægilegum sætum fyrir fimm, sex eða sjö farþega, svæðaskiptri loftkælingu og fjölda rafmagnsinnstunga. Ertu með mikið af töskum og búnaði? Sæti sem hægt er að leggja niður bjóða upp á endalausan sveigjanleika.
    2. Animation showing seat configurations: seven seats, five seats and the 60:40 rear seat split with luggage
      Ótakmarkaður sveigjanleiki
      Land Cruiser lagar sig að aðstæðunum því engar tvær ferðir eru eins. Leggðu niður sæti þriðju sætaraðar til að hámarka farangursrýmið. Aðra sætaröð er hægt að leggja niður í hlutum til að hægt sé að koma fyrir allt frá skíðatöskum til fjallahjóla.
    3. Séð frá farangursrými þegar aftursæti eru felld niður til þess að búa til pláss fyrir farangur
      Rými án takmarkana
      Pláss er munaður og rúmgott innanrými Land Cruiser er með nóg af því. Þetta fjölhæfa farþegarými er rúmgott og afslappandi með rými fyrir hvers kyns samsetningu farþega, farangurs og búnaðar án þess að ganga á þægindin.
    4. Eldri gerð af Land Cruiser keyrir við hlið nýja Land Cruiser 250
  • Arfleifðin
    1. New and old Land Cruisers driving after dark
      Uppruni goðsagnar
      Saga Land Cruiser, fjórhjóladrifinnar goðsagnar sem mótuð er af harðgerustu svæðum veraldar, spannar átta áratugi, tólf kynslóðir og óteljandi óviðjafnanlegar ferðir. Hvert viltu fara?
    2. Land Cruiser 40 og Land Cruiser 250 keyra hlið við hlið
      Ævintýrið er í eðlinu
      Hinn óstöðvandi Land Cruiser 40 lagði grunninn að goðsögninni með afgerandi hlutföllum og einkennandi hvítu þaki. Hér fór sterkbyggður bíll sem setti ný viðmið, búinn tækni til að komast þangað sem aðrir fjórhjóladrifnir bílar komust ekki.
    3. Stórfenglegar kynslóðir
      Land Cruiser hefur aldrei hætt að þróast. Hann hefur orðið sífellt fágaðri með hverri nýrri kynslóð en alltaf einkennst af því sem gerði frumgerðina svona sérstaka, akstursgetunni og áreiðanleikanum til að takast á við hið ómögulega.
  • Afköst

    Aktu lengra, reyndu á þolmörkin

    Ertu til í næsta ævintýri? Land Cruiser er með allt sem þú þarft, hvort sem þú ekur þjóðveginn eða kannar óbyggðirnar. Áreynslulaus akstur á vegum og óstöðvandi akstursgeta í torfærum með óviðjafnanlegu fjórhjóladrifi og goðsagnakenndum áreiðanleika sem aldrei bregst.

    Afköst
    1. Afl
      1. Land Cruiser keyrir um á malbikuðum vegi úti á landi í ljósaskiptum
        Óþrjótandi styrkur
        Kraftmikið tog 2,8 lítra dísilvélar með forþjöppu skilar alltaf sínu. Hún knýr bílinn áfram í gegnum mjög viðbragðsgóða nýja átta þrepa sjálfskiptingu sem skilar tafarlausum afköstum og línulegri hröðun.
      2. Land Cruiser dregur hjólhýsi á slóða
        Dragðu það allt
        Land Cruiser getur dregið hvað sem er með mjög stöðugu stýri, mýkt í afli og 3500 kg dráttargetu. Einfalt er að tengja og stöðugleikastýring eftirvagns tryggir fullkominn stöðugleika og hugarró, óháð aðstæðum.
      3. Land Cruiser sýnir aksturshæfileika sýna á erfiðum vegi
    2. Fjórhjóladrifinn akstursgeta
      1. Þróaður til að skara fram úr
        Land Cruiser færir akstursgetu á fjórhjóladrifi upp í nýjar hæðir. Aktu hið ómögulega með snjöllu fjórhjóladrifi, stífum undirvagni og fágaðri torfærufjöðrun.
      2. Sigrastu á því ómögulega

        Aktu þangað sem aðrir þora ekki. Aftengingarbúnaður jafnvægisstangar tryggir mikla lóðrétta hreyfigetu hjóla á meðan stutt skögun og aukin aksturshæð tryggja hæð frá jörðu til að takast á við jafnvel erfiðasta undirlag.

        Land Cruiser driving up a steep off-road slope Land Cruiser climbs a rocky incline
    3. Land Cruiser notast við skriðstýringu til þess að fara niður erfiða brekku
      Fjöll eru engin fyrirstaða
      Land Cruiser leggur óbyggðirnar að fótum sér. DAC-kerfið stjórnar hraðanum niður mikinn bratta. Skriðstýringin heldur forstilltum hraða til að þú getir einbeitt þér að stöðu hjóla og stýri.
    4. Óstöðvandi hönnun

      Land Cruiser er framleiddur með sérstaklega stífu GA-F byggingarlagi sem kemur að góðum notum þegar hinn troðni stígur er langt að baki. Þú kemst hvert sem er á mjög sveigjanlegri fjöðrun, mikilli hæð frá jörðu og einstakri lóðréttri hreyfigetu hjóla.

      Animation showing the reinforced frame Animation showing Toyota’s rigid GA-F platform
  • Ökumaður undir stýri á Land Cruiser 250
    Stækkaðu sjóndeildarhringinn
    Rafdrifið stýrið er auðvelt í meðförum og skilar mjúkum og fáguðum akstri á hvaða undirlagi sem er. Það er auðvelt í notkun, dregur úr endurkasti þar sem undirlag er gróft og skilar mikilli nákvæmni á vegum.
  • Ökumaður undir stýrir á Land Cruiser, séð úr aftursæti bílsins
    Torfærutækni
    Torfæruskjárinn veitir óhefta yfirsýn yfir umhverfi bílsins á margmiðlunarskjánum, ómetanlegt þegar aðstæður verða erfiðari. Torfæruvalið fínstillir fjöðrunina og aflrásina fyrir þær áskoranir sem framundan eru.
  • Manneskja situr í farþegarými Land Cruiser og nýtur útsýnis
  • Ævintýri í Morokkó
    1. Manneskja situr í farþegarými Land Cruiser og nýtur útsýnis
      Út í óbyggðirnar
      Marokkó teygir sig frá ströndum Miðjarðarhafsins til hinnar miklu Sahara, tignarlegt land með endalausum eyðimörkum og himneskum fjöllum. Ævintýrakonan Eva zu Beck og ljósmyndarinn Alex Stead skoða Marokkó í nýjum Land Cruiser, full tilhlökkunar fyrir að upplifa þennan einstaka stað og fólkið sem þar býr.
    2. Uppgötva fáfarnar slóðir
      Innblásin af torfærugetu Land Cruiser ferðast Eva og Alex langt frá alfaraleið til að kynnast hinu raunverulega Marokkó, töfrandi stað með hrífandi landslagi og hlýlegu og gestrisnu fólki.
    3. A person with a Land Cruiser in a desert environment
      Hrá fegurð Marokkó
      Ljósmyndarinn Alex Stead fangar villta tign Marokkó í glæsilegum myndaþáttum til að skjalfesta þessa einstöku upplifun. Hún hefur allt upp á að bjóða, allt frá einstakri sólarupprás til tindrandi eyðimerkursanda.
  • Snjallari, sterkari, öruggari
    Öryggi
    1. Toyota Safety Sense
      1. Land Cruiser keyrir um á vegi í eyðimörkinni
        Akstursaðstoð
        Alltaf í öruggum höndum T-Mate inniheldur nýjustu kynslóð af Toyota Safety Sense með möguleikanum fyrir þráðlausar uppfærslur í rauntíma.
      2. Árekstrarviðvörunarkerfi (PCS)
        Árekstrarviðvörunarkerfið getur greint og aðstoðað þig við að forðast árekstra við aðra bíla, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og mótorhjól. Það varar ökumann við með hljóðmerkjum, sjónrænum viðvörunum og hemlunaraðstoð. Takist ökumanninum ekki að hemla í tæka tíð eru hemlarnir virkjaðir sjálfkrafa til að komast hjá árekstri eða draga úr höggi. Við þetta bætist svo stuðningur árekstrarvarnarkerfis fyrir gatnamót og neyðarstýrisaðstoðar þegar beygt er á gatnamótum og sveigt fram hjá hættu.
      3. Sjálfvirkur hraðastillir yfir allt hraðasviðið
        Með hugvitssamlegum sjálfvirkum hraðastilli Toyota Safety Sense yfir allt hraðasviðið getur bíllinn haldið stöðugum hraða án þess að nota þurfi eldsneytisgjöfina, auk þess að halda forstilltri lágmarksfjarlægð frá næsta bíl fyrir framan. Þegar of stutt er í næsta bíl dregur kerfið úr hraðanum til að viðhalda fjarlægðinni að honum, beitir hemlunum og stöðvar bílinn ef þörf krefur. Ef fjarlægðin eykst fer bíllinn aftur af stað og eykur hraðann og/eða hægir á sér eftir þörfum þangað til umferðin býður upp á að forstilltur aksturshraði sé aftur notaður.
      4. Neyðarstöðvunarkerfi (EDSS)
        Ef kerfið skynjar aðgerðaleysi frá ökumanni í tiltekinn tíma gera hljóðviðvaranir ökumanninum viðvart ef kveikt er á akreinastýringu. Ef ekkert gerist stöðvar neyðarstöðvunarkerfið bílinn hægt og rólega og heldur honum öruggum á sömu akrein. Kveikt er á hættuljósunum til að vara aðra vegfarendur við og dyrnar eru teknar úr lás til að tryggja neyðarþjónustuaðilum greiðan aðgang ef þörf krefur.
      5. Fyrirbyggjandi akstursaðstoð (PDA) stýrisaðstoð (SA)
        Þetta kerfi aðstoðar ökumanninn við að halda bílnum á akreininni. Kerfið greinir beygjuna fram undan og aðlagar stýrisaðstoðina eftir þörfum. Það getur einnig stutt við akstur í beinni línu.
      6. Séð inn í ökumannsrými þar sem ökumaður er með báðar hendur á stýri
    2. Akstursaðstoð
      1. Séð inn í ökumannsrými þar sem ökumaður er með báðar hendur á stýri
        Öruggur akstur
        Land Cruiser er búinn fjölbreyttu úrvali háþróaðra aðstoðarkerfa, þar á meðal akreinaskiptihjálp og aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu, allt til að tryggja öryggi þitt í borginni, á þjóðveginum og úti í náttúrunni.
      2. A graphic showing Safe Exit Assist in action
        Aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu (SEA)
        Þetta kerfi notar blindsvæðisskynjarann til að passa að hurð sem farþegi opnar rekist ekki á bíl eða hjólreiðafólk sem nálgast aftan frá. Ef hætta er á árekstri kvikna ljós á ytri speglunum og fjölnota upplýsingaskjánum, lýsingin í innanrýminu verður rauð, auk þess sem hljóðmerki varar farþegana við.
      3. A graphic showing how Driver Monitor Camera works
        Ökumannsskynjaramyndavél (DMC)
        Þetta kerfi notar myndavél fyrir ofan stýrið til að fylgjast með árvekni og ástandi ökumanns. Viðvörun er gefin ef kerfið greinir óeðlilega stöðu, svo sem þreytu. Upplýsingarnar eru notaðar til að skerpa á afköstum neyðarstöðvunarkerfisins (EDSS) með snemmbúinni greiningu á skertri athygli.
      4. Aftursætisáminning (RSRS)
        Þetta kerfi varar ökumanninn við ef farþegi eða hlutur er skilinn eftir í aftursætinu þegar bíllinn er yfirgefinn. Viðvörunin felur í sér: viðvörun á mælaborði í ökumannsrými, auk þess sem kveikt er á hættuljósum og hljóðmerki heyrist þegar bílnum er læst, en það ræðst af gerð bílsins.
      5. Panoramic View Monitor (PVM)
        Það er öruggara og auðveldara að leggja bílnum með hjálp Panoramic view Monitor kerfinu sem sameinar myndir frá fjórum myndavélum til þess að útbúa 360° yfirsýn af umhverfi bílsins.

    Tækni

    Fáguð stafræn útfærsla

    Land Cruiser býður upp á áður óþekkta Toyota upplifun. Einfalt viðmót og nákvæm raddstýring tryggja hraðar og áreynslulausar skipanir. Viðbragðsfljótur 12,3" snertiskjárinn færir þér heiminn í fangið, hvort sem ætlunin er að streyma margmiðlunarefni eða skrá nýjan áfangastað.

    Tækni
    1. Stafrænn stjórnklefi
      1. Nærmynd af stýrinu í Land Cruiser
        Einföld tækni
        Aktu á snjallari hátt í Land Cruiser með sjónlínuskjá og stafrænum 12,3" upplýsingaskjá, háþróuðum fjölnota skjá. Hann gerir þér kleift að skapa þitt fullkomna ökumannsrými með sérstillanlegu útliti og áferð.
      2. Hnökralausir tengimöguleikar

        Land Cruiser er á annarri bylgjulengd, með tengimöguleikum sem auðga hvert augnablik. Taktu öll uppáhaldsforritin og margmiðlunarefnið með þér í ferðina með þráðlausri samhæfni við Apple CarPlay og Android Auto.

         Land Cruiser's multimedia screen showing the reversing camera Land Cruiser's multimedia screen displaying navigation
    2. Áreynslulaus stjórn

      Vertu í sambandi hvar sem þú ert. Hringdu, sendu og taktu á móti skilaboðum, hlustaðu á talskilaboð– þetta er einstaklega auðvelt með samhæfi Land Cruiser við snjallsíma og hnökralausri stjórn með tali og snertingu.

       Land Cruiser's multimedia screen showing the reversing camera Land Cruiser's multimedia screen displaying navigation
  • Ökumaður gengur í áttina að Land Cruiser með bakpoka á bakinu
  • Tengdar þjónustur
    1. An owner walks towards Land Cruiser with luggage
      Stafrænn snjalllykill
      Með stafrænum snjalllykli geturðu breytt snjallsímanum í bíllykilinn þinn. Notaðu símann til að taka Land Cruiser úr lás og gangsetja án þess að taka símann úr töskunni eða vasanum. Þessu til viðbótar getur þú deilt stafræna snjalllyklinum með allt að fjórum öðrum.
    2. Valdeflir þig

      Stafrænn baksýnisspegill tryggir óhindraða yfirsýn aftur fyrir bílinn, óháð því hvort farþegar eða hlutir séu fyrir inni í bílnum. Þráðlausar uppfærslur í rauntíma tryggja síðan að kerfi Land Cruiser eru stöðugt uppfærð með nýjasta hugbúnaðinum.

      Land Cruiser’s Digital Rear View mirror Land Cruiser’s multimedia screen showing the reversing camera
  • Eigandi skoðar MyToyota appið í símanum sínum
    Við stjórnvölinn, hvar sem þú ert
    MyToyota appið er fullt af gagnlegum eiginleikum. Læstu Land Cruiser með fjarstýringu og notaðu fjarstýrða hita- og loftstýringu til að kæla eða hita farþegarýmið áður en þú leggur af stað.
  • Hljómur sem hreyfir við þér

    Fyrsta flokks JBL®-hljóðkerfið í Land Cruiser setur ný viðmið í skýrum og tærum hljómi fyrir undirspil aksturs út í ævintýrin. Þráðlausa hleðslustöðin tryggir að tækin þín verði aldrei án hleðslu.

    A JBL® speaker in the A-pillar Land Cruiser’s JBL® audio system