Please configure price tile
Framúrskarandi staðalbúnaður
Búðu þig undir óhagganlegt öryggi við akstur í öllum ævintýrum, óháð því hvaða Land Cruiser þú velur.
-
Byggður fyrir hvers kyns undirlag
Land Cruiser er klár í öll ævintýri.
-
Tilbúinn í óbyggðirnar
Búinn torfærubúnaði sem gerir þér kleift að takast á við erfitt undirlag.
-
Auðveldari akstur á öllum vegum
Aksturinn er áreynslulaus, hvort sem er á þjóðvegum eða sveitaslóðum.
-
Tenging án takmarkana hvert sem þú ferð
MyToyota heldur þér í góðu sambandi alla ferðina.
-
Öryggi í fyrirrúmi í hverri ferð
Toyota Safety Sense verndar þig hvert sem þú ferð.
-
Farangursrými fyrir öll ævintýri
Sveigjanlegt og notendavænt rými sem uppfyllir hvers kyns kröfur.
-
Þægindi við erfiðustu aðstæður
Kyrrlátt farþegarými sem tryggir þér þægindi hvert sem þú ferð.
Read timed out
POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=60ae2897-f9e1-4ff6-bc61-974d2d0edb5f
Hönnun
Innblástur frá forverum
Goðsögnin snýr aftur. Land Cruiser sameinar tímalausan stíl og nýjustu tækni í hrífandi hönnun sannrar goðsagnar. Hér fer bíll sem innblásinn er af fortíðinni og útfærður fyrir framtíðina, ávallt til reiðu og kemur þér hvert á land sem er og aftur heim í örugga höfn.
Hönnun
-
Ytra byrði
-
Yfirbragð styrks
Land Cruiser geislar af anda ævintýranna. Bíllinn er trúr arfleifð sinni en á sama tíma ótrúlega nútímalegur. Hann sameinar tímalausar útlínur og nútímalega fleti í nýju hrífandi útliti.
-
Innbyggð vörn
Stórar rúður, mótaðar hliðar og lág vélarhlíf eru merki um vel heppnaða og hagnýta hönnun sem skilar frábæru útsýni. Einkennandi LED-ljós að framan og aftan eru inndregin frá hornum og þannig varin gegn skemmdum. -
-
-
Innanrými
-
Stílhreint ævintýri
Land Cruiser er harðger að utan og með innanrými þar sem saman fara notagildi og lúxus. Ævintýrið hefst hér, í rúmgóðum, þægilegum og vel útbúnum bíl fyrir óbyggðirnar. -
Þægileg stjórn
Sveigjanlegt innanrýmið er meistaraverk í haganlegri hönnun, með frábæru útsýni til allra átta, þökk sé háum sætum, beinum A-stoðum og lágu mælaborði. Einföld stjórntæki og skýrir skjáir veita þér öryggi til að fara lengra.
-
Komdu þér þægilega fyrir og njóttu útsýnisins
Íburðarmikið en um leið hagnýtt fyrsta flokks farþegarými býður upp á kyrrláta stemningu og mikið rými. Þakglugginn býður upp á eftirminnilegt útsýni, hvort sem stefnt er að því að aka auðnirnar eða ferðast eftir þjóðvegunum. -
-
-
Notagildi
-
Lifðu lífinu lifandi
Íburðarmikið farþegarýmið er stórt og fallegt, með þægilegum sætum fyrir fimm, sex eða sjö farþega, svæðaskiptri loftkælingu og fjölda rafmagnsinnstunga. Ertu með mikið af töskum og búnaði? Sæti sem hægt er að leggja niður bjóða upp á endalausan sveigjanleika. -
Ótakmarkaður sveigjanleiki
Land Cruiser lagar sig að aðstæðunum því engar tvær ferðir eru eins. Leggðu niður sæti þriðju sætaraðar til að hámarka farangursrýmið. Aðra sætaröð er hægt að leggja niður í hlutum til að hægt sé að koma fyrir allt frá skíðatöskum til fjallahjóla. -
Rými án takmarkana
Pláss er munaður og rúmgott innanrými Land Cruiser er með nóg af því. Þetta fjölhæfa farþegarými er rúmgott og afslappandi með rými fyrir hvers kyns samsetningu farþega, farangurs og búnaðar án þess að ganga á þægindin. -
-
-
Arfleifðin
-
Uppruni goðsagnar
Saga Land Cruiser, fjórhjóladrifinnar goðsagnar sem mótuð er af harðgerustu svæðum veraldar, spannar átta áratugi, tólf kynslóðir og óteljandi óviðjafnanlegar ferðir. Hvert viltu fara? -
Ævintýrið er í eðlinu
Hinn óstöðvandi Land Cruiser 40 lagði grunninn að goðsögninni með afgerandi hlutföllum og einkennandi hvítu þaki. Hér fór sterkbyggður bíll sem setti ný viðmið, búinn tækni til að komast þangað sem aðrir fjórhjóladrifnir bílar komust ekki. -
Stórfenglegar kynslóðir
Land Cruiser hefur aldrei hætt að þróast. Hann hefur orðið sífellt fágaðri með hverri nýrri kynslóð en alltaf einkennst af því sem gerði frumgerðina svona sérstaka, akstursgetunni og áreiðanleikanum til að takast á við hið ómögulega.
-
Afköst
Aktu lengra, reyndu á þolmörkin
Ertu til í næsta ævintýri? Land Cruiser er með allt sem þú þarft, hvort sem þú ekur þjóðveginn eða kannar óbyggðirnar. Áreynslulaus akstur á vegum og óstöðvandi akstursgeta í torfærum með óviðjafnanlegu fjórhjóladrifi og goðsagnakenndum áreiðanleika sem aldrei bregst.
Afköst
-
Afl
-
Óþrjótandi styrkur
Kraftmikið tog 2,8 lítra dísilvélar með forþjöppu skilar alltaf sínu. Hún knýr bílinn áfram í gegnum mjög viðbragðsgóða nýja átta þrepa sjálfskiptingu sem skilar tafarlausum afköstum og línulegri hröðun. -
Dragðu það allt
Land Cruiser getur dregið hvað sem er með mjög stöðugu stýri, mýkt í afli og 3500 kg dráttargetu. Einfalt er að tengja og stöðugleikastýring eftirvagns tryggir fullkominn stöðugleika og hugarró, óháð aðstæðum. -
-
-
Fjórhjóladrifinn akstursgeta
-
Þróaður til að skara fram úr
Land Cruiser færir akstursgetu á fjórhjóladrifi upp í nýjar hæðir. Aktu hið ómögulega með snjöllu fjórhjóladrifi, stífum undirvagni og fágaðri torfærufjöðrun. -
Sigrastu á því ómögulega
Aktu þangað sem aðrir þora ekki. Aftengingarbúnaður jafnvægisstangar tryggir mikla lóðrétta hreyfigetu hjóla á meðan stutt skögun og aukin aksturshæð tryggja hæð frá jörðu til að takast á við jafnvel erfiðasta undirlag.
-
Fjöll eru engin fyrirstaða
Land Cruiser leggur óbyggðirnar að fótum sér. DAC-kerfið stjórnar hraðanum niður mikinn bratta. Skriðstýringin heldur forstilltum hraða til að þú getir einbeitt þér að stöðu hjóla og stýri. -
Óstöðvandi hönnun
Land Cruiser er framleiddur með sérstaklega stífu GA-F byggingarlagi sem kemur að góðum notum þegar hinn troðni stígur er langt að baki. Þú kemst hvert sem er á mjög sveigjanlegri fjöðrun, mikilli hæð frá jörðu og einstakri lóðréttri hreyfigetu hjóla.
-
Stækkaðu sjóndeildarhringinn
Rafdrifið stýrið er auðvelt í meðförum og skilar mjúkum og fáguðum akstri á hvaða undirlagi sem er. Það er auðvelt í notkun, dregur úr endurkasti þar sem undirlag er gróft og skilar mikilli nákvæmni á vegum. -
Torfærutækni
Torfæruskjárinn veitir óhefta yfirsýn yfir umhverfi bílsins á margmiðlunarskjánum, ómetanlegt þegar aðstæður verða erfiðari. Torfæruvalið fínstillir fjöðrunina og aflrásina fyrir þær áskoranir sem framundan eru. -
-
-
Ævintýri í Morokkó
-
Út í óbyggðirnar
Marokkó teygir sig frá ströndum Miðjarðarhafsins til hinnar miklu Sahara, tignarlegt land með endalausum eyðimörkum og himneskum fjöllum. Ævintýrakonan Eva zu Beck og ljósmyndarinn Alex Stead skoða Marokkó í nýjum Land Cruiser, full tilhlökkunar fyrir að upplifa þennan einstaka stað og fólkið sem þar býr. -
Uppgötva fáfarnar slóðir
Innblásin af torfærugetu Land Cruiser ferðast Eva og Alex langt frá alfaraleið til að kynnast hinu raunverulega Marokkó, töfrandi stað með hrífandi landslagi og hlýlegu og gestrisnu fólki. -
Hrá fegurð Marokkó
Ljósmyndarinn Alex Stead fangar villta tign Marokkó í glæsilegum myndaþáttum til að skjalfesta þessa einstöku upplifun. Hún hefur allt upp á að bjóða, allt frá einstakri sólarupprás til tindrandi eyðimerkursanda.
-
Snjallari, sterkari, öruggari
Öryggi
-
Toyota Safety Sense
-
Akstursaðstoð
Alltaf í öruggum höndum T-Mate inniheldur nýjustu kynslóð af Toyota Safety Sense með möguleikanum fyrir þráðlausar uppfærslur í rauntíma. -
Árekstrarviðvörunarkerfi (PCS)
Árekstrarviðvörunarkerfið getur greint og aðstoðað þig við að forðast árekstra við aðra bíla, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og mótorhjól. Það varar ökumann við með hljóðmerkjum, sjónrænum viðvörunum og hemlunaraðstoð. Takist ökumanninum ekki að hemla í tæka tíð eru hemlarnir virkjaðir sjálfkrafa til að komast hjá árekstri eða draga úr höggi. Við þetta bætist svo stuðningur árekstrarvarnarkerfis fyrir gatnamót og neyðarstýrisaðstoðar þegar beygt er á gatnamótum og sveigt fram hjá hættu. -
Sjálfvirkur hraðastillir yfir allt hraðasviðið
Með hugvitssamlegum sjálfvirkum hraðastilli Toyota Safety Sense yfir allt hraðasviðið getur bíllinn haldið stöðugum hraða án þess að nota þurfi eldsneytisgjöfina, auk þess að halda forstilltri lágmarksfjarlægð frá næsta bíl fyrir framan. Þegar of stutt er í næsta bíl dregur kerfið úr hraðanum til að viðhalda fjarlægðinni að honum, beitir hemlunum og stöðvar bílinn ef þörf krefur. Ef fjarlægðin eykst fer bíllinn aftur af stað og eykur hraðann og/eða hægir á sér eftir þörfum þangað til umferðin býður upp á að forstilltur aksturshraði sé aftur notaður. -
Neyðarstöðvunarkerfi (EDSS)
Ef kerfið skynjar aðgerðaleysi frá ökumanni í tiltekinn tíma gera hljóðviðvaranir ökumanninum viðvart ef kveikt er á akreinastýringu. Ef ekkert gerist stöðvar neyðarstöðvunarkerfið bílinn hægt og rólega og heldur honum öruggum á sömu akrein. Kveikt er á hættuljósunum til að vara aðra vegfarendur við og dyrnar eru teknar úr lás til að tryggja neyðarþjónustuaðilum greiðan aðgang ef þörf krefur. -
Fyrirbyggjandi akstursaðstoð (PDA) stýrisaðstoð (SA)
Þetta kerfi aðstoðar ökumanninn við að halda bílnum á akreininni. Kerfið greinir beygjuna fram undan og aðlagar stýrisaðstoðina eftir þörfum. Það getur einnig stutt við akstur í beinni línu. -
-
-
Akstursaðstoð
-
Öruggur akstur
Land Cruiser er búinn fjölbreyttu úrvali háþróaðra aðstoðarkerfa, þar á meðal akreinaskiptihjálp og aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu, allt til að tryggja öryggi þitt í borginni, á þjóðveginum og úti í náttúrunni. -
Aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu (SEA)
Þetta kerfi notar blindsvæðisskynjarann til að passa að hurð sem farþegi opnar rekist ekki á bíl eða hjólreiðafólk sem nálgast aftan frá. Ef hætta er á árekstri kvikna ljós á ytri speglunum og fjölnota upplýsingaskjánum, lýsingin í innanrýminu verður rauð, auk þess sem hljóðmerki varar farþegana við. -
Ökumannsskynjaramyndavél (DMC)
Þetta kerfi notar myndavél fyrir ofan stýrið til að fylgjast með árvekni og ástandi ökumanns. Viðvörun er gefin ef kerfið greinir óeðlilega stöðu, svo sem þreytu. Upplýsingarnar eru notaðar til að skerpa á afköstum neyðarstöðvunarkerfisins (EDSS) með snemmbúinni greiningu á skertri athygli. -
Aftursætisáminning (RSRS)
Þetta kerfi varar ökumanninn við ef farþegi eða hlutur er skilinn eftir í aftursætinu þegar bíllinn er yfirgefinn. Viðvörunin felur í sér: viðvörun á mælaborði í ökumannsrými, auk þess sem kveikt er á hættuljósum og hljóðmerki heyrist þegar bílnum er læst, en það ræðst af gerð bílsins. -
Panoramic View Monitor (PVM)
Það er öruggara og auðveldara að leggja bílnum með hjálp Panoramic view Monitor kerfinu sem sameinar myndir frá fjórum myndavélum til þess að útbúa 360° yfirsýn af umhverfi bílsins.
-
Tækni
Fáguð stafræn útfærsla
Land Cruiser býður upp á áður óþekkta Toyota upplifun. Einfalt viðmót og nákvæm raddstýring tryggja hraðar og áreynslulausar skipanir. Viðbragðsfljótur 12,3" snertiskjárinn færir þér heiminn í fangið, hvort sem ætlunin er að streyma margmiðlunarefni eða skrá nýjan áfangastað.
Tækni
-
Stafrænn stjórnklefi
-
Einföld tækni
Aktu á snjallari hátt í Land Cruiser með sjónlínuskjá og stafrænum 12,3" upplýsingaskjá, háþróuðum fjölnota skjá. Hann gerir þér kleift að skapa þitt fullkomna ökumannsrými með sérstillanlegu útliti og áferð. -
Hnökralausir tengimöguleikar
Land Cruiser er á annarri bylgjulengd, með tengimöguleikum sem auðga hvert augnablik. Taktu öll uppáhaldsforritin og margmiðlunarefnið með þér í ferðina með þráðlausri samhæfni við Apple CarPlay og Android Auto.
-
Áreynslulaus stjórn
Vertu í sambandi hvar sem þú ert. Hringdu, sendu og taktu á móti skilaboðum, hlustaðu á talskilaboð– þetta er einstaklega auðvelt með samhæfi Land Cruiser við snjallsíma og hnökralausri stjórn með tali og snertingu.
-
-
-
Tengdar þjónustur
-
Stafrænn snjalllykill
Með stafrænum snjalllykli geturðu breytt snjallsímanum í bíllykilinn þinn. Notaðu símann til að taka Land Cruiser úr lás og gangsetja án þess að taka símann úr töskunni eða vasanum. Þessu til viðbótar getur þú deilt stafræna snjalllyklinum með allt að fjórum öðrum. -
Valdeflir þig
Stafrænn baksýnisspegill tryggir óhindraða yfirsýn aftur fyrir bílinn, óháð því hvort farþegar eða hlutir séu fyrir inni í bílnum. Þráðlausar uppfærslur í rauntíma tryggja síðan að kerfi Land Cruiser eru stöðugt uppfærð með nýjasta hugbúnaðinum.
-
Við stjórnvölinn, hvar sem þú ert
MyToyota appið er fullt af gagnlegum eiginleikum. Læstu Land Cruiser með fjarstýringu og notaðu fjarstýrða hita- og loftstýringu til að kæla eða hita farþegarýmið áður en þú leggur af stað. -
Hljómur sem hreyfir við þér
Fyrsta flokks JBL®-hljóðkerfið í Land Cruiser setur ný viðmið í skýrum og tærum hljómi fyrir undirspil aksturs út í ævintýrin. Þráðlausa hleðslustöðin tryggir að tækin þín verði aldrei án hleðslu.
-