Skip to Main Content (Press Enter)
  • Price is updated The price of your configuration is 22.590.000 kr.
22.590.000 kr.
Skip to In-page anchor navigation

Eiginleikar

Skriðstýring

Kemur þér þangað sem þú vilt komast

Aktu torfærurnar af óbifanlegu öryggi. Skriðstýringin gerir þér kleift að takast á við erfitt undirlag með forstilltum hraða til að þú getir einbeitt þér að því að stýra.

Torfæruskjár

Hafðu auga með umhverfinu

Torfæruskjárinn býður upp á mynd af næsta umhverfi bílsins. Skýr upplausn og frábær yfirsýn tryggja að engin hindrun fer fram hjá þér.

Akreinastýring

Haltu þig á milli línanna

Haltu þér innan akreinarinnar með akreinastýringu, nýstárlegri tækni sem greinir stöðu bílsins gagnvart merkingum á vegum og tryggir að þú sért meðvitaður/meðvituð um umhverfi þitt til að tryggja öruggari akstursupplifun.

LED-aðalljós

Lýstu fram á veginn

Njóttu hámarksútsýnis óháð ástandi vegarins þökk sé margskiptum LED-aðalljósum. Ljósin eru með nútímalegri, snjallri hönnun og aðlaga sig að því ljósstigi sem þú þarft til að komast leiðar þinnar á öruggan hátt.

Sjálfvirkt háljósakerfi

Náttúrulega björt ljós

Sjálfvirka háljósakerfið skilar snjallari leið fyrir þig til að sjá í næturakstri þar sem það skiptir úr háljósum yfir í lágljós þegar það greinir bíla sem nálgast úr gagnstæðri átt – sem tryggir öruggari ferð fyrir þig og aðra vegfarendur.

12,3" skjár

Skemmtun á meðan þú keyrir

Skjár sem hannaður er til að gera aksturinn einfaldari. Hvort sem þú ert að skoða leiðarupplýsingar eða leita að næstu bensínstöð þá sýnir þessi breiði 12,3" skjár þér allt sem þú þarft að vita.

JBL-hljóðkerfi

Óviðjafnanlega hreint hljóð

Færðu hljóð allra laga, hlaðvarpa eða útvarpsstöðva upp á annað stig með fyrsta flokks JBL-hljóðkerfi. Þetta nýstárlega kerfi býður upp á hreinna hljóð en heyrst hefur áður og skilar fyrsta flokks hljómgæðum.

Tenging við snjallsíma

Hnökralaus tenging við snjallsíma

Upplifðu hnökralausa tengingu við snjallsíma sem er stútfull af eiginleikum sem tryggja að þú hafir allt til alls. Fylgstu með því hvernig stafræni heimurinn mætir akstrinum með hraðvirkri, þráðlausri tengingu við Apple CarPlay og Android Auto™.

Sjónlínuskjár

Helstu upplýsingar í sjónlínunni

10" sjónlínuskjár birtir mikilvægar upplýsingar á eðlilegu sjónsviði þínu og tryggir að þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Skoðaðu upplýsingar um leiðsögn, hraða og önnur gögn án þess að þurfa að líta af veginum.

12,3" skjár

Fyrir allt það sem þú þarft að vita

Skjár sem hannaður er til að gera aksturinn einfaldari. Hvort sem þú ert að skoða leiðarupplýsingar eða leita að næstu bensínstöð þá sýnir þessi breiði 12,3" skjár þér allt sem þú þarft að vita.

Tveggja svæða loftkæling

Tvö svæði fyrir ólíkar þarfir

Með tveggja svæða sjálfvirkri loftkælingu getur þú treyst á að bíllinn haldi þér og farþegum þínum svölum á hvaða ferðalagi sem er. Ökumaðurinn og farþeginn í framsætinu geta valið sínar eigin stillingar.

POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/car-config/is/is?path=highlights/60ae2897-f9e1-4ff6-bc61-974d2d0edb5f/ddb4846e-e8b3-45f1-b743-f07b448db033&c=00a61746-2eaf-4034-8420-f9739928840c with body {"reduxState":{"carConfigSettings":{"loadedStepUrls":{"highlights":"https://www.toyota.is/new-cars/land-cruiser/highlights","configure":"https://www.toyota.is/new-cars/land-cruiser/build","specs":"https://www.toyota.is/new-cars/land-cruiser/specifications"}}}}