Stílhrein, hagkvæm og einstaklega ánægjuleg akstursupplifun. Þú finnur Corollu fyrir þinn lífstíl. Þú getur valið á milli tveggja Hybrid véla. 1,8 lítra Hybrid býður upp á þann mjúka og hljóðláta akstur sem búast má við frá Toyota. Kraftmeiri 2,0 lítra Hybrid aflrásin býður upp á aukið afl og áreynslulausa hröðun sem skila sér í kraftmiklum og liprum akstri. Ökuferðin verður alltaf ánægjuleg í Corolla, óháð því hvora vélina þú velur.
Corolla snýr aftur með hugvitsamlegri Hybrid-aflrás með sjálfhleðslu og glænýrri nálgun á hönnun og tækni sem skilar sér í enn skemmtilegri akstri. Setstu undir stýri og upplifðu.
Ný Corolla er framleidd á grunni nýs heildræns byggingarlags Toyota, TNGA. Niðurstaðan er lægri þyngdarmiðja og stífari grind sem skilar sér í kraftmeiri aksturseiginleikum og meiri tilfinningu fyrir stjórn. Endurbætt fjöðrun tryggir mýkri, hljóðlátari og þægilegri akstur.
Það fyrsta sem þú tekur eftir á nýju Corollunni er afgerandi og kraftmikið ytra byrðið sem hægt er að gera enn eftirtektarverðara með tvítóna lakki. Falleg, lágsett vélarhlíf skilar sér í rennilegum hliðarsvip sem er undirstrikaður með 18" álfelgum. Fram- og afturhlutarnir kalla fram kraftalega og breiða stöðu með breiðu og sportlegu grilli og stílhreinum LED-ljósum.
Ef þér finnst nýja Corollan falleg að utan áttu ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum þegar þú sest inn í hana. Hönnuðir okkar hafa valið blöndu af hágæðaefnum sem fara einstaklega vel saman og bjóða auk þess upp á fjölbreytta áferð. Svartur litur gefur innanrýminu sportlegt yfirbragð en einnig er hægt að velja ljósgráan lit til að undirstrika hönnunina.
Mest selda bíl í heimi
Heimurinn velur Hybrid og ný Corolla hefur Toyota Hybrid kerfið upp á næsta stig. Viðbragð vélarinnar hefur verið bætt sem og afköst Hybrid rafhlöðunnar aukin. Þú getur valið á milli tveggja Hybrid véla. 1,8 lítra Hybrid býður upp á mjúkan og hljóðlátan akstur sem búast má við frá Toyota. Kraftmeiri 2,0 lítra Hybrid aflrásin býður upp á aukið afl og áreynslulausa hröðun sem skila sér í kraftmiklum og liprum akstri.
Farþegarýmið er hannað með þín þægindi í huga. Bólstruð sportsætin eru klædd, leðri, Alcantara® og vatteruðu áklæði, veita góðan stuðning og tryggja þægindi í lengri ferðum. Staða stýrisins er höfð eins náttúruleg og hægt er til að koma í veg fyrir þreytu. Stjórnrofar á stýri fyrir akstur, upplýsinga- og afþreyingarkerfi og hljómtæki gera þér kleift að hafa hendur á stýri, sem er með hita fyrir kaldari daga.
Toyota Safety Sense er staðalbúnaður í öllum útfærslum Corolla, öll okkar verk eru hugsuð út frá öryggi þínu. Þetta einstaka öryggiskerfi inniheldur uppfærðar útfærslur af öryggiskerfum sem auðvelda þér aksturinn, veita þér hugarró og auka öryggi þitt og annarra í umferðinni.
Kynntu þér Toyota Safety SenseKynntu þér málið
Við notum kökur á vefsíðunni okkar til að þjóna þér betur og til að upplifun þín sé sem best. Ef þú vilt kynna þér frekar köku stillingarnar þá getur þú gert það hér - skoða stillingar.