Skip to Main Content (Press Enter)
loading content

Framúrskarandi Toyota C-HR

Tilbúinn á götuna, Toyota C-HR vekur athygli hvar sem er.  

  • Hönnun

    Djarfur og sparneytin með eftirminnilega hönnun

  • Sniðinn að þér

    Innanrýmið einkennist af þægindum, nýjungum sem eru sniðin að þér

  • Annt um umhverfið

    Hybrid bíll þar sem sjálfbærni er undirstaðan

  • Rafvæddur

    Framúrskarandi afköst og snerpa

  • Öryggi

    T-Mate öryggiskerfið tryggir öryggi þitt

  • Borgarbíll

    L 4362 mm B 1832 mm H 1564 mm

  • Rými

    Leggðu niður sætin til að auka farangursrýmið í 1073 m3 (VDA)

Hvaða Toyota C-HR heillar þig?

Kynntu þér útfærslurnar

Sýna eingöngu mismun
Hybrid

Toyota C-HR Active

Toyota C-HR Active 5 dyra
7.990.000 kr.
Upplýsingar um vél
Hybrid

1.8 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Hybrid

1.8 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Valin vél

Drif

2WD

Gírskipting

Sjálfskipting (CVT)

CO₂ blandaður akstur g/km

106 g/km

Blandaður akstur l/100km

4,7 l/100 km

Ytri búnaður

Ytri valbúnaður
  • Innifalið

    Fjarstýrð opnun farangursgeymslu í farþegarými

  • Innifalið

    Lyklalaus opnun og ræsing

Ytra öryggi
  • Innifalið

    Blindsvæðisskynjari

Innra rými

Margmiðlun
  • Innifalið

    Handfrjáls Bluetooth®-búnaður

  • Innifalið

    6 hátalarar

  • Ekki í boði

    9 hátalarar

  • Ekki í boði

    12,3" margmiðlunarskjár

Hybrid
Plug-in Hybrid

Toyota C-HR Style

Toyota C-HR Style 5 dyra
8.990.000 kr.
Vélarval
Hybrid

1.8 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Plug-in Hybrid

2.0 L Plug in Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Hybrid

1.8 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Valin vél
Hybrid

2.0 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Hybrid

2.0 L Hybrid

4WD, Sjálfskipting (CVT)

Drif

2WD

Gírskipting

Sjálfskipting (CVT)

CO₂ blandaður akstur g/km

108 g/km

Blandaður akstur l/100km

4,8 l/100 km

Ytri búnaður

Ytri valbúnaður
  • Innifalið

    Fjarstýrð opnun farangursgeymslu í farþegarými

  • Innifalið

    Lyklalaus opnun og ræsing

Ytra öryggi
  • Innifalið

    Blindsvæðisskynjari

Innra rými

Margmiðlun
  • Innifalið

    Handfrjáls Bluetooth®-búnaður

  • Innifalið

    6 hátalarar

  • Ekki í boði

    9 hátalarar

  • Innifalið

    12,3" margmiðlunarskjár

Hybrid
Plug-in Hybrid

Toyota C-HR GR SPORT

Toyota C-HR GR SPORT 5 dyra
10.590.000 kr.
Vélarval
Hybrid

2.0 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Plug-in Hybrid

2.0 L Plug in Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Hybrid

2.0 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Valin vél
Hybrid

2.0 L Hybrid

4WD, Sjálfskipting (CVT)

Drif

2WD

Gírskipting

Sjálfskipting (CVT)

CO₂ blandaður akstur g/km

110 g/km

Blandaður akstur l/100km

4,9 l/100 km

Ytri búnaður

Ytri valbúnaður
  • Innifalið

    Fjarstýrð opnun farangursgeymslu í farþegarými

  • Innifalið

    Lyklalaus opnun og ræsing

Ytra öryggi
  • Innifalið

    Blindsvæðisskynjari

Innra rými

Margmiðlun
  • Innifalið

    Handfrjáls Bluetooth®-búnaður

  • Ekki í boði

    6 hátalarar

  • Innifalið

    9 hátalarar

  • Innifalið

    12,3" margmiðlunarskjár

Hybrid

Toyota C-HR Premium

Toyota C-HR Premium 5 dyra
10.490.000 kr.
Vélarval
Hybrid

2.0 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Hybrid

2.0 L Hybrid

2WD, Sjálfskipting (CVT)

Valin vél
Hybrid

2.0 L Hybrid

4WD, Sjálfskipting (CVT)

Drif

2WD

Gírskipting

Sjálfskipting (CVT)

CO₂ blandaður akstur g/km

109 g/km

Blandaður akstur l/100km

4,8 l/100 km

Ytri búnaður

Ytri valbúnaður
  • Innifalið

    Fjarstýrð opnun farangursgeymslu í farþegarými

  • Innifalið

    Lyklalaus opnun og ræsing

Ytra öryggi
  • Innifalið

    Blindsvæðisskynjari

Innra rými

Margmiðlun
  • Innifalið

    Handfrjáls Bluetooth®-búnaður

  • Ekki í boði

    6 hátalarar

  • Innifalið

    9 hátalarar

  • Innifalið

    12,3" margmiðlunarskjár

Bera saman
StaðalbúnaðurValEkki í boði

POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=6c193d6b-514c-436f-ab43-654d97e601d8

Veldu að skera þig úr

Sniðinn að þér

Nýr Toyota C-HR sameinar hönnunareiginleika tveggja dyra sportbíls og lúxussportjeppa í einstöku yfirbragði sem vekur athygli hvar sem er.

Hönnun
  1. Straumlínulaga
    1. Mótaður af vindinum
      Einstaklega fáguð straumlínulögun nýja Toyota C-HR gefur honum yfirbragð sportbíls. Lögunin stuðlar að bættri akstursupplifun á allan hátt, allt frá lipurð til stöðugleika, ásamt því að gera aksturinn hljóðlátan og skilvirkan.
    2. Hugmyndabíll á götuna

      Frjáls og nýstárlegur. Skýrar línur, stílhrein aðalljós og fáguð afturljósastika taka af allan vafa: hugmyndabíllinn er tilbúinn á götuna.

      Toyota C-HR á hlið og kona gengur í burtu frá bílnum Toyota C-HR keyrir á götu
    3. Fáguð straumlínulögun
      Nýr Toyota C-HR er sannkallað straumlínulagað meistaraverk sem viðheldur samfelldu loftstreymi við akstur. Hann er hannaður til að vinna með loftinu, ekki á móti því, allt frá sléttu undirlaginu til halla á afturrúðunni.
    4. Hvert smáatriði skiptir máli

      Innfelldir hurðarhúnar – sem nú eru notaðir í fyrsta sinn á bíl frá Toyota – og innfelldar þurrkur á aðalljósum eru undirstöðuatriði í stílhreinu og listrænu yfirbragði afkastamikillar straumlínulögunarinnar.

      Nærmynd af skolunarbúnaði fyri rframljós toyota-aygo-x-undercover-image-placeholder-1
    5. Yfirlitsmynd sem sýnir eiginleika bílsins með áherslu á lögun framhurða, framgrill og tvítóna lit á lakki (Bi-Tone)
  2. Ytra byrði
    1. Yfirlitsmynd sem sýnir eiginleika bílsins með áherslu á lögun framhurða, framgrill og tvítóna lit á lakki (Bi-Tone)
      Veldu að skera þig úr
      Hvert smáatriði er fullkomnað í þessari metnaðarfullu hönnun. Áberandi grillið og skær LED-aðalljósin skapa einkennandi sleggjuháfslögun.
    2. Fullkomin nákvæmni

      Kraftmiklar sveigjur, rennileg lögun og svipsterk litaskipting tvílitrar hönnunar skapa tilfinningu fyrir kraftmiklum hreyfanleika.

      Hlið á Toyota C-HR sem sýnir línur bílsins Hlið á Toyota C-HR sem sýnir línur bílsins áhersla á tvílitað lakkið
    3. Tjáðu þig
      Gefðu sköpunargáfunni lausan tauminn með svipsterkum litum.
      Hannaðu þinn Toyota C-HR
    4. Nærmynd af 20" felgum
      Nýstárleg hönnun krefst djarfra eiginleika.
      Vélunnar 20" felgur ásamt breiðri og öruggri stöðu bílsins fanga athyglina tafarlaust.
    5. Mynd af innanrými Toyota C-HR með áherslu á panorama þakið
  3. Panoramic glerþak
    1. Mynd af innanrými Toyota C-HR með áherslu á panorama þakið
      Létt og rúmgott innanrými
      Panorma glerþakið er með sérstaka klæðningu sem einangrar farþegarýmið og heldur því heitu á veturna og svölu á sumrin. Þar sem ekki er þörf á sólskyggni er bíllinn léttari og rýmið eykst.
    2. Mynd af innanrými Toyota C-HR með áherslu á ökumannsrýmið
  4. Hönnun í innra rými
    1. Sniðinn að þér
      Létt og rúmgott innanrýmið, sem einkennist af þægindum, tækni og upplifun, er sem sniðið að þér. Vængjaþema einkennir ökumannsrýmið og skapar samhljóm með áherslu á ökumann og akstursstefnu.
    2. Rými með stíl

      Fyrsta flokks ökumannsrými heillar hvern sem er með áherslusaumum, mjúkum efnum og róandi stemningslýsingu. Sérhannaðir JBL-hátalarar með sexhyrndu gatamynstri líta jafn vel út og þeir hljóma.

      Fyrsta flokks JBL hátalar Hliðarklæðning á hurð í innanrými
    3. Hannaður af ástríðu

      Sportsæti með einstaklega fallegri áferð stuðla að þægindum, stuðningi og góðri yfirsýn ökumanns.

      Nærmynd af stýri með GR Sport merki

Snjöll tækni

Hnökralaus notendaupplifun

Nýr Toyota C-HR býður upp á notendavæna, snurðulausa og sérsniðna upplifun með fjölbreyttum búnaði sem uppfyllir þarfir þínar.

Tækni
  1. Stemningslýsing
    1. Þitt er valið
      Þú getur sniðið einkennandi þætti bílsins eftir þínu höfði, allt frá uppsetningu skjásins til litbrigða í lýsingu ökumannsrýmisins
    2. Stillanleg stemningslýsing
      Lýsingin rennur saman við fágaðar línur ökumannsrýmisins og hægt er velja á milli 14 mismunandi litaþema og 50 sérsniðinna lita. Einnig er hægt að stilla hana þannig að hún breytist eftir tíma dags, hitastigi í farþegarýminu eða akstursstillingu.
    3. 12.3" Margmiðlunarskjár
  2. Safrænn stjórnklefi
    1. Tækni þar sem ökumaðurinn er í fyrirrúmi
      Fjögur mismunandi þemu og þrjár mælaborðsuppsetningar gera þér kleift að velja lit, þema og uppsetningu á stafræna mælaborðinu eftir þínu höfði
    2. Stafræn hönnun
      Tækni þar sem ökumaðurinn er í fyrirrúmi einkennir rýmið. Stafræna mælaborðið setur ný viðmið í skýrleika og notendavænni hönnun þar sem hægt er að velja á milli fjögurra skjáþema: Casual, Smart, Sporty og Thought.
    3. Vertu við stjórnvölinn

      Með Apple CarPlay og Android Auto geturðu nálgast öll uppáhaldsforritin þín, þ.m.t. Spotify til að spila tónlist á ferðinni. Hleðsluáætlunin í Plug-In Hybrid býður upp á þægilega og hagkvæma hleðslu.

      Charging Schedule Multimedia screen showing Apple Carplay
    4. Snjöll leiðsögn

      Leiðsögukerfið er uppfært með gögnum í skýinu og tryggir þannig að þú sért alltaf á réttri leið. Kerfið bregst við raddskipunum á borð við „Get route distance“ og gerir þér því kleift að stjórna því handfrjálst. Einnig er hægt að hringja símtöl og senda skilaboð með raddstýringu.

      12.3" Multimedia screen with Navigation Multimedia screen showing Messages
    5. Mynd af innanrými Toyota C-HR með áherslu á stýrið
  3. Tengd tækni
    1. Velkomin aftur
      Nýr Toyota C-HR býður þig velkomin með ljósasýningu fyrir hverja ferð. Hann stillir sætið þitt einnig sjálfkrafa í valda stöðu og virkjar stafrænar kjörstillingar í ökumannsrýminu þegar þú sest inn í bílinn.
    2. Ökumaður gengur í áttina að Toyota C-HR til að sýna virkni Snjalllykils (Smart Digital Key).
  4. MyToyota app
    1. Ökumaður gengur í áttina að Toyota C-HR til að sýna virkni Snjalllykils (Smart Digital Key).
      Stjórnaðu bílnum með símanum
      Tengingin rofnar ekki þegar þú stígur út úr bílnum. MyToyota er öflugt verkfæri þegar þú ert á ferðinni. Það gerir þér kleift að læsa hurðum, loka gluggum og tryggja öryggi bílsins úr fjarlægð.
    2. Stafrænn snjalllykill
      Snjallsíminn er alltaf við höndina og nú getur bíllykillinn verið það líka
    3. Ökumaður fyrir utan bílinn notar símann til þess að leggja Toyota C-HR úr fjarlægð.
      Fjarstýrð bílastæðaaðstoð
      Tilbúin að leggja? Veldu bílastæði og bílastæðaaðstoðin sér um rest. Ef bílastæðið er þröngt geturðu farið út úr bílnum og lagt Toyota C-HR bílnum þínum með MyToyota appinu í símanum.
      Kynntu þér MyToyota appið
    4. Sími í þráðlausri hleðslu í Toyota C-HR
  5. Þægindi í innra rými
    1. Auðveldar þér lífið

      Þráðlausa hleðslan í ökumannsrýminu tryggir að snjallsíminn þinn sé alltaf fullhlaðinn – engar snúrur, ekkert vesen. Rafdrifið farangursrými gerir þér kleift að loka farangursrýminu einfaldlega með því að ýta á einn hnapp.

      Sími í þráðlausri hleðslu í Toyota C-HR Ökumaður lokar farangursrýminu í Toyota C-HR með því að ýta á hnapp
Öruggur, Öruggari, Öruggastur
Öryggi
  1. Toyota Safety Sense
    1. Toyota C-HR at an intersection with a secondary car driving towards it.
      Í öruggum höndum
      Öryggi Toyota C-HR er leiðandi í flokki sambærilegra bíla, þökk sé akstursaðstoðarkerfinu T-Mate. Hluti af því er nýjasta kynslóð Toyota Safety Sense, auk möguleika á að uppfæra eiginleika kerfisins þráðlaust.
      Meira um T-Mate
    2. Árekstrarviðvörunarkerfi (PCS)
      Árekstrarviðvörunarkerfið getur greint og aðstoðað þig við að forðast árekstra við aðra bíla, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og mótorhjól. Það varar ökumann við með hljóðmerkjum, sjónrænum viðvörunum og hemlunaraðstoð. Takist ökumanninum ekki að hemla í tæka tíð eru hemlarnir virkjaðir sjálfkrafa til að komast hjá árekstri eða draga úr höggi. Ofan á þetta bætist svo stuðningur árekstrarvarnarkerfis fyrir gatnamót og neyðarstýrisaðstoðar þegar beygt er á gatnamótum og þegar sveigt er fram hjá hættu.
    3. Ratsjáarhraðastillir yfir allt hraðasvið (ACC)
      Þetta kerfi heldur þér í tiltekinni lágmarksfjarlægð frá næsta bíl fyrir framan. Þegar of stutt er í næsta bíl dregur kerfið úr hraðanum og beitir loks hemlunum og hemlaljósin kvikna. Ratsjárhraðastillir yfir allt hraðasviðið getur stöðvað bílinn alveg ef bíllinn fyrir framan stöðvast. Ef stigið er laust á inngjafarfótstigið eða ýtt á rofa ratsjárhraðastillisins kviknar aftur á kerfinu. Ef þú átt bíl sem er búinn umferðarskiltaaðstoð greinir kerfið einnig hraðatakmarkanir á akstursleiðinni og birtir ráðleggingar um hvað gera skuli.
    4. Neyðarstöðvunarkerfi (EDSS)
      Ef kerfið skynjar aðgerðaleysi frá ökumanni í tiltekinn tíma gera hljóðviðvaranir ökumanninum viðvart ef kveikt er á akreinastýringu. Ef ekkert gerist stöðvar neyðarstöðvunarkerfið bílinn hægt og rólega og heldur honum öruggum á sömu akrein. Kveikt er á hættuljósunum til að vara aðra vegfarendur við og dyrnar eru teknar úr lás til að tryggja neyðarþjónustuaðilum greiðan aðgang ef þörf krefur.
    5. Fyrirbyggjandi akstursaðstoð, hraðaminnkunaraðstoð (DA)
      Kerfið styður við hnökralausa hraða- minnkun þegar stigið er af inngjöfinni þegar bíllinn nálgast beygju eða annað ökutæki fram undan.
    6. Þráðlausar (OTA) hugbúnaðaruppfærslur
      Þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur tryggja að Toyota Safety Sense sé uppfært með nýjustu eiginleikum og endurbótum.
    7. Ökumaður situr í bílnum sínum og er að fara að opna hurðina þegar ljós í hliðarspeglum verður rautt til þess að vara hann við að það sé eitthvað fyrir honum.
  2. Akstursaðstoð
    1. Ökumaður situr í bílnum sínum og er að fara að opna hurðina þegar ljós í hliðarspeglum verður rautt til þess að vara hann við að það sé eitthvað fyrir honum.
      Tækni sem passar upp á þig
      Toyota C-HR býr yfir tækni sem tryggir öryggi þitt, vaktar akstursumhverfið öllum stundum og varar þig við yfirvofandi hættum.
      Meira um T-Mate
    2. Aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu (SEA)
      Þetta kerfi notar blindsvæðisskynjarann til að passa að hurð sem farþegi opnar rekist ekki á bíl eða hjólreiðafólk sem nálgast aftan frá. Ef hætta er á árekstri kvikna ljós á ytri speglunum og fjölnota upplýsingaskjánum, lýsingin í innanrýminu verður rauð, auk þess sem hljóðmerki varar farþegana við.
    3. Aftursætisáminning (RSRS)
      Þetta kerfi varar ökumanninn við ef farþegi eða hlutur er skilinn eftir í aftursætinu þegar bíllinn er yfirgefinn. Viðvörunin felur í sér: viðvörun á mælaborði í ökumannsrými, auk þess sem kveikt er á hættuljósum og hljóðmerki heyrist þegar bílnum er læst, en það ræðst af gerð bílsins.
    4. Toyota Teammate Bílastæðaaðstoð
      Þetta kerfi stjórnar hröðun, stýringu, hemlun og gírskiptingu* til að hjálpa þér að leggja í stæði án vandræða. Kerfið er búið minni fyrir mikið notuð bílastæði sem ekki eru aðgreind með línum eða aðliggjandi hlutum. *Mismunandi eftir gerð
    5. Yfirlitsmynd af umhverfi bíls (PVM)
      Það er auðveldara og öruggara að leggja í stæði með kerfi sem sameinar myndir frá fjórum myndavélum til að veita nánast 360° yfirsýn yfir umhverfi bílsins.
    6. Toyota C-HR í hleðslu, kona stendur fyrir aftan bílinn

Sjálfbærni

Frumkvöðull í umhverfismálum

Hönnun nýs Toyota C-HR leggur áherslu á sjálfbærni með aukinni notkun endurunninna efna án dýraafurða og minni losun koltvísýrings fyrir tilstilli léttari íhluta og nýrra framleiðsluferla.

Umhverfisvæn hugmyndafræði
  1. Sjálfbærni er undirstaðan
    1. Toyota C-HR í hleðslu, kona stendur fyrir aftan bílinn
      Sjálfbærni er undirstaðan
      Endurunnin efni og hönnun sem hvetur til frekari endurvinnslu eru grundvöllurinn í viðleitni Toyota til að draga úr neyslu og úrgangi. Þættir nýs Toyota C-HR eru framleiddir úr yfir 80% endurunnum efnum.
    2. Endurnýting plastefna
      Mikið af endurunnu plastefni var nýtt við smíði nýja Toyota C-HR. Í honum má finna tvöfalt meira magn af endurunnu plasti en í eldri gerð bílsins, til að mynda í sætisáklæðum, gólfmottum, farangursboxum og fleiru.
    3. Nærmynd af stýri bílsins með áherslu á að engar dýraafurðir voru notaðar í stýrisáklæðið
      Efni án dýraafurða
      Í nýjum Toyota C-HR eru kynnt til leiks ný efni sem innihalda engar dýraafurðir og koma í stað leðuráklæðis á stýri og sætum.
  2. Einfaldað framleiðsluferli
    1. Location image
      Sérstyrkt stál
      Helstu svæði yfirbyggingarinnar er smíðuð úr sérstyrktu stáli sem eykur höggvörn og endingu. Stálið dregur einnig úr þyngd nýs Toyota C-HR sem stuðlar að aukinni sparneytni og sjálfbærni.
    2. Panorama glerþak séð innanfrá
      Létt smíði
      Með nýstárlegri hönnun drógum við úr þyngd bílsins, þ.m.t. með notkun á sérstyrktu stáli. Panorama glerþakið er einnig léttara en áður. Glerþakið einkennist af háþróaðri einangrun sem heldur inni hita á veturna og kemur í veg fyrir ofhitnun á sumrin.
    3. Kort af evrópu sem sýnir hvar í evrópu Toyota C-HR er frammleiddur
      Framleiddur í Evrópu
      Nýr Toyota C-HR er framleiddur í fyrsta flokks verksmiðjum Toyota í Evrópu. Rétt eins og bíllinn var hannaður með umhverfið í huga var aðfangakeðjan hönnuð með það að markmiði að lágmarka flutning.
    4. Nærmynd af ytra byrði bílsins með áherslu á lakkið
      Björt framtíð
      Í klæðningu nýs Toyota C-HR er notast við steypta litatækni þar sem yfirbyggingin er máluð með lakki með vatnsgrunni sem dregur enn frekar úr skaðlegum umhverfisáhrifum. Tæknin skilar fágaðri háglansáferð án þess að þörf sé á lökkun.

Algengar spurningar

Rafvæðing: Spurningum þínum um rafvæðingu svarað

Toyota kynnti Hybrid tæknina fyrst fyrir heiminum árið 1997 með Toyota Prius. Við höfum þróað og bætt Hybrid bílana okkar seinustu 27 ár og bjóðum stolt upp á úrval af flottum, kraftmiklum sem og hagkvæmum Hybrid bílum sem henta þínum lífstíl.

Vélin og rafmótor í Hybrid bílum vinna saman í háþróaðri og samþættri aflrás. Rafótorinn er ýmist notaður til að auka afköst eða aka án aðkomu vélarinnar en hann virkar sömuleiðis sem rafall sem tekur þátt í varðveislu á orku með hleðsluhemlun eða að breyta umframorku í rafhleðslu og dregur þannig úr eldsneytisnotkun. Hybrid bílar Toyota hlaða drifrafhlöðurnar sínar sjálfir t.d. með hleðsluhemlun og þeir eru því ekki hlaðnir með því að stinga þeim í samband. Það er auðvelt að fylla á Hybrid bíl. Þú fyllir á Toyota Hybrid bílinn þinn með bensíni á bensínstöð, rétt eins og á hefðbundinn bensín bíl.

Líkt og Hybrid bílar skipta Plug-in Hybrid bílar á milli tveggja aflgjafa, bensínvélar og rafmótors. Drifrafhlaðan í Plug-in Hybrid bíl er þó stærri og hana er hægt að hlaða með því að stinga bíl í samband.  Það gefur möguleika á hreinum rafknúnum akstri í lengri tíma án aðkomu vélarinnar og skilar mun minni útblæstri og eldsneytisnotkun sé drifrafhlaðan hlaðinn reglulega. Þegar hleðsla drifrafhlöðunnar klárast fer bíllinn að virka eins og hefðbundinn Toyota Hybrid bíll með bensínvél sem getur verið hentugt í langferðum. Það er auðvelt að fylla á Plug-in Hybrid bílinn. Fylltu á með bensíni á bensínstöð eins og venjulega til að nota bensínvélina í lengri ferðum og til að hlaða drifrafhlöðuna vandræðalaust getur þú sett upp heimahleðslustöð eða notast við almennar hleðslustöðvar sem  víða er að finna þegar þú ert á ferðinni. Plug-In Hybrid bíla Toyota er ekki hægt að hraðhlaða í hraðhleðslustöð(DC) en víða eru venjulegar hleðslustöðvar (AC) í boði samhliða þeim.

Nýr Toyota C-HR Plug-in Hybrid getur ekið á rafmagni eingöngu í allt að 65 km* - án útblásturs. Ef hleðsla rafhlöðunnar verður lítil meðan á lengri akstri stendur skiptir bíllinn snurðulaust aftur yfir í að vera eins og Hybrid bíll sem sameinar bensín og endurheimtar rafhlöðuhleðslu til að koma þér á áfangastað.

*Óstaðfest áætluð drægni samkvæmt WLTP stöðlum  

Plug-in Hybrid bílar geta sparað þér peninga á margan hátt. Regluleg hleðsla dregur verulega úr eldsneytisnotkuninni. Lítil losun koltvísýrings hefur oft í för með sér afslætti af sköttum og vegsköttum fyrir fyrirtækisbíla. Og vegna minna slits á íhlutum eins og hemlaklossum og diskum getur viðhald á Plug-in Hybrid bílum verið ódýrara.

Rafhlöður Plug-in Hybrid bíla frá Toyota eru hannaðar til að endast jafnlengi og bíllinn. Til að auka hugarró fylgir hverri rafhlöðu fimm ára / 100.000 km* ábyrgð sem hægt er að framlengja í allt að 10 ár með árlegri Hybrid prófun. Að loknum endingartíma rafhlöðunnar tryggir endurheimtaráætlun Toyota að rafhlöðunni sé fargað á öruggan og ábyrgan hátt.
   

 *Hvort sem fyrr kemur

Algengar spurningar

Rafvæðing: Spurningum þínum um rafvæðingu svarað

Toyota kynnti Hybrid tæknina fyrst fyrir heiminum árið 1997 með Toyota Prius. Við höfum þróað og bætt Hybrid bílana okkar seinustu 27 ár og bjóðum stolt upp á úrval af flottum, kraftmiklum sem og hagkvæmum Hybrid bílum sem henta þínum lífstíl.

Vélin og rafmótor í Hybrid bílum vinna saman í háþróaðri og samþættri aflrás. Rafótorinn er ýmist notaður til að auka afköst eða aka án aðkomu vélarinnar en hann virkar sömuleiðis sem rafall sem tekur þátt í varðveislu á orku með hleðsluhemlun eða að breyta umframorku í rafhleðslu og dregur þannig úr eldsneytisnotkun. Hybrid bílar Toyota hlaða drifrafhlöðurnar sínar sjálfir t.d. með hleðsluhemlun og þeir eru því ekki hlaðnir með því að stinga þeim í samband. Það er auðvelt að fylla á Hybrid bíl. Þú fyllir á Toyota Hybrid bílinn þinn með bensíni á bensínstöð, rétt eins og á hefðbundinn bensín bíl.

Toyota Hybrid bílar blanda saman tveimur orkugjöfum: bensíni og rafmagni.

Toyota Hybrid eru í raun rafvæddir bensínbílar þar sem hugmyndafræðin gengur út á að nýta bensínorkuna sem best og jafnvel að nýta sömu orkuna oftar en einusinni.  Við hemlun og aðra afhröðun er rafmótorinn nýttur sem rafali og hleðsluálag frá honum notað til að hægja ferðina. Skriðorka bílsins er þannig varðveitt sem rafmagn og hún endurnýtt til aksturs í stað þess að tapast sem hiti í bremsukerfinu. Því mætti segja að sami bensíndropinn geti verið nýttur oftar en einu sinni. Þess vegna er talað um að Toyota Hybrid bílar séu sjálfhlaðandi þar sem það þarf ekki að stinga þeim í samband til að hlaða drifrafhlöðuna í bílnum.

Allir Toyota Hybrid bílar hafa sjálfhlaðandi Hybrid rafhlöðu og bensínvél. Þeir eru tvinnbílar (e. Hybrid) vegna þess að þeir nota bæði eldsneyti og rafmagn til þess að framleiða orku fyrir bílinn. Ólíkt 100% rafmagnsbíl þá þarf ekki að setja þá í samband til að hlaða.

Toyota hefur verið að þróa sjálfhlaðandi Hybrid tækni í yfir 27 ár.  Sala á Hybrid bílum er næstum helmingur allra sölu okkar í Evrópu og mun tæknin veita sterka undirstöðu fyrir nýja rafmagnsbíla Toyota á næsta áratug.

Byltingarkennda rafhlaðan í Hybrid bílunum okkar er hönnuð til að endast líftíma bílsins og fyrstu kynslóðar Prius er lifandi sönnun þess, en það má finna fyrstu kynslóðar Priusa á götunni sem hafa komist milljón kílómetra á sömu rafhlöðunni og sömu vél.

Til eru þrjár gerðir af Hybrid bílum, mild Hybrid, full Hybrid (Toyota Hybrid) og Plug-in Hybrid. Allir Hybrid bílar hafa bensín- og rafmagnsvél. Ólíkt öðrum Hybrid bílum þá geta Toyota Hybrid bílar keyrt á báðum orkugjöfum í einu eða í sitthvoru lagið óháð hvor öðrum.

Bílar með Mild Hybrid kerfi geta einungis notað rafmagnið til þess að styðja við vélina við að taka af stað eða í léttum akstri - rafmagnsvélin er ein og óstudd og ekki nægur orkugjafi fyrir bíllinn. Í Full Hybrid kerfi, eða Toyota Hybrid getur þú keyrt á rafmagninu í yfir 50% tímans í borgarakstri upp að 50 km/klst. Þegar bíllinn er kominn á meiri ferð fer rafmagnið og hin hefðbundna vél að vinna saman. Plug-in Hybrid virka á sama hátt og Toyota Hybrid með möguleika á að keyra lengur á rafmagni.