Framúrskarandi staðalbúnaður
Kraftmikil hönnun Toyota bZ4X sameinast í framúrskarandi afköstum með fjórhjóladrifnu hugvitsamlegu aldrifi.
-
Hannaður fyrir allar ferðir
Sterkbyggður og stílhreinn bíll sem nýtur sín jafn vel innanbæjar sem utan.
-
Þar sem gæði og hagkvæmni mætast
Rúmgott rými fyrir betri ferðir
-
100% rafmagnaður akstur
Áreiðanleg rafhlöðuafköst sem endast
-
Drægni fyrir allar ferðir
Reikaðu langt og reikaðu frjálst
-
Tenging hvar og hvenær sem er
Vertu í sambandi á ferðinni
-
Hannaður með öryggi í huga
Fyrir öryggari ferðir
-
Fyrir spennandi starfrænt ferðalag
Sæmhæfing milli síma og bíls
-
Frábærir aksturseiginleikar
Krefjandi vegir eru ekkert mál fyrir fjórhjóladrifinn bXZ
Read timed out
POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=7fb7f6d1-dbbc-4886-98ea-d1856e3815db
Hönnun sem sker sig úr
Fágaður stíll með kraftmikið yfirbragð
Toyota bZ4X er sterkbyggður og stílhreinn bíll sem nýtur sín jafnt innanbæjar sem utan. Nýtískulegar og rennilegar útlínur rafbílsins sameinast hér öruggu og afgerandi yfirbragði sportjeppa.
Hönnun sem sker sig úr
-
Að utan
-
SUV yfirbragð
Toyota bZ4X er kraftmikill, glæsilegur og nútímalegur SUV-bíll með afgerandi yfirbragð á götunni. Hönnunin er framsækin og þægilegt er að aka bílnum jafnt í borg og í sveit. -
Lítil loftmótstaða
Toyota bZ4X sameinar rennilega hönnun rafbíla og áberandi yfirbragð SUV-bíla. Straumlínulögunin lágmarkar vindmótstöðu og eykur sparneytni og akstursdrægi. Toyota bZ4X er kraftmikill og frumlegur bíll sem býður væntingunum birginn. -
Hámarksloftstreymi
Framúrskarandi straumlínulögun eykur drægi, sparneytni og afköst. Til að draga úr loftviðnámi er yfirbyggingin með mótuðum opum á framstuðara, sléttri hlíf á undirvagni og tvískiptum vindskeiðum. -
-
-
Að innan
-
Ferðastu í einstökum þægindum
Innanrými Toyota bZ4X er bæði hreinlegt og róandi og farþegarýmið aðlaðandi og ríkulega búið. Þetta er rými sem allir geta notið með einföldum stafrænum eiginleikum og hönnun sem bætir líkamsstöðu. -
Gæðaefni
Hugvitssamleg tækni í ökumannsrýminu og rúmgott innanrýmið sameina stílhreina norræna áferð og satínáferð til að skapa fágað og gott andrúmsloft. Gatað fyrsta flokks áklæði og mjúkir armpúðar auka enn við þægindin. -
Notendavænn
Sérhönnuð viðmót gera þér kleift að nálgast mikilvægar upplýsingar án þess að líta af veginum fram undan. Vel staðsettir skjáir og stýri án yfirbyggingar bæta yfirsýn og stytta viðbragðstíma. -
Stemningslýsing
Stjórnrýmið býður upp á stillanlega stemningslýsingu þar sem þú getur valið úr 64 sérsniðnum litum. Þessi heildræna upplifun aðlagast einnig valinni akstursstillingu og eykur ánægju í hverri ferð. -
Farðu hvert sem er, með allt sem þú þarft
Fimm sæta farþegarýmið er vel búið fyrsta flokks búnaði sem tryggir að allir njóta friðsæls aksturs. Langt hjólhaf skilar miklu fótarými og stór farangursgeymslan tekur 452 lítra.
-
-
-
Panoramic glerþak
-
Hleyptu ljósinu inn
Tilkomumikið glerþakið hleypir birtu og léttleika inn og stækkar rýmið um leið. Rafknúið skyggni hjálpar til við að verjast ljósi og verndar gegn hita frá beinu sólarljósi.
-
Aldrif
Allir vegir færir
Njóttu frábærs aldrifs í flokki sambærilegra bíla í Toyota bZ4X – við öll veðurskilyrði. Nýja X-MODE aldrifsstillingin eykur afköst og öryggi og gerir Toyota bZ4X kleift að takast á við hvers kyns undirlag með drifi á öllum hjólum. Toyota bZ4X býður upp á hnökralausa akstursupplifun, óháð ástandi vegarins.
Aldrif
-
Akstursstillingar
-
100% rafmagn og aldrif
Toyota bZ4X er búinn X-Mode aldrifi sem eykur afköst á hvaða undirlagi sem er. Með tveimur rafmótorum staðsettir á sitthvorum öxulnum, hámarkar kerfið grip og tryggir hnökralausa akstursupplifun á rafmagni. X-Mode skilar öflugum afköstum fyrir kraftmikla og skemmtilega akstursupplifun, óháð veðri. -
Tilbúinn í öll ævintýri
Njóttu öryggis í akstri með einum hnappi og X-Mode. Veldu akstursstillingu sem hentar aðstæðum hverju sinni. Stilling fyrir snjó/leðju eykur grip á meðan gripstjórnin nær betri stjórn við tæknilegan torfæruakstur. -
-
-
Aksturseiginleikar
-
Kraftmikill akstur
Skemmtilegur í akstri og þægilegur á löngum vegalengdum. Toyota bZ4X stendur sig frábærlega í öllum ferðum. Þú ert við stjórnvölinn með notendavænum aksturseiginleikum. -
Lipur hönnun
Rafhlöðurnar sem knýja Toyota bZ4X eru undir gólfinu sem lækkar þyngdarmiðju bílsins og hámarkar aksturseiginleika hans. Rafhlöðurnar eru einnig felldar inn í grind undirvagnsins sem eykur stífni yfirbyggingarinnar.
-
Tækni
Hnökralaus tenging
Snjöll hönnun ökumannsrýmisins tryggir samfellda samstillingu bíls og snjallsíma. MyToyota appið í snjallsímanum er hannað til að auðvelda þér aksturinn, rekstur bílsins og tryggja þér ótakmarkaða tengimöguleika.
Tækni
-
Stafræn stjórnklefi
-
Aðgengilegar upplýsingar
Þægilega staðsett lágt mælaborð sýnir mikilvægar akstursupplýsingar á upplýsingaskjá eins og hraða og hleðslustöðu, rétt fyrir ofan stýrið, fullkomlega í sjónlínu ökumanns. -
Vertu skrefi á undan með snjalltækni
Bíllinn er hannaður með framúrskarandi margmiðlunarkerfi og birtir 14" TFT snertiskjárinn allar mikilvægar upplýsingar á einum stað. Með raddskipanatækni er auðveldara en nokkru sinni fyrr að einbeita sér að veginum fram undan. -
Þráðlaus hleðsla
Í miðstokki er þráðlaus hleðsla fyrir tvo snjallsíma sem tryggja að símarnir séu ávalt full hlaðnir. -
-
-
Tengdar þjónustur
-
Tenging hvar og hvenær sem er
MyToyota appið er hannað til að auðvelda þér aksturinn og tryggja þér ótakmarkaða tengimöguleika. Notaðu snjallsímann til að fjarstýra bílnum, athuga hleðslustöðu rafhlöðunnar, skipuleggja hleðslu og skoða akstursupplýsingar. -
*Framboð á tengdum þjónustum og búnaður ökutækja geta verið mismunandi eftir gerðum, útfærslum og markaðsframboði. Prufuáskrift fyrir fjarstýringu geta verið mismunandi eftir gerð, útfærslu og landi margmiðlunarkerfisins. Vinsamlegast hafið samband við næsta söluaðila til að fá frekari upplýsingar um þína gerð.
Fjarstýrð hita- og loftstýring
Þú getur forstillt hitastig og tímasett ræsingu loftkælingarinnar í MyToyota appinu, óháð því hversu langt er á milli þín og bílsins. -
*Framboð á búnaði og tæknilýsingar bíla geta verið mismunandi milli gerða, útfærslna og framboðs á markaðssvæðum. Gangsetningaraðgerð stafræna snjalllykilsins mun ekki virka ef bíllinn er búinn viðbótarræsivarnarbúnaði og ef ræsivarnarlykillinn er ekki inni í bílnum.
Síminn þinn er lykilatriði
Stafræni snjallykillinn gerir þér kleift að nota snjallsímann til að læsa, aflæsa og ræsa bílinn þinn. Þú getur einnig deilt snjalllykli þínum með allt að fjórum öðrum notendum, sem auðveldar samnýtingu bílsins.* -
-
-
Snjall stjórnklefi
-
Þægindi allt árið um kring
Öflug varmadæla hitar innanrými bZ4X yfir köldustu vetrarmánuðina. Kerfið lágmarkar orkuna sem þarf til að hita farþegarýmið og hámarkar þannig drægni bílsins.
-
Algengar spurningar
- Allar
- Rafmagnsbílar - afköst
- Rafmagnsbílar
- Hleðsla
WLTP drægni Toyota bZ4X er 504km* á einni hleðslu.
*Þessai gildi eru áætluð gildi sem eru byggð á prófunum í stýrðu umhverfi (WLTP). Þessar tölur eru gefnar upp í samanburðarskyni: berðu þær saman við aðra bíla sem prófaðir eru við sömu skilyrði (WLTP). Áætluð drægni gerir ráð fyrir að rafhlaðan sé fullhlaðin (100%) og að fullu tæmd (0%).
Raunveruleg drægi ökutækis þíns mun vera breytilegt frá þessum reiknuðu gildum, þar sem margir þættir hafa áhrif á drægni. Sem dæmi má nefna: útfærsla, búnaður og fylgihlutir, aksturslag, hraði, ástand vegar, umferð, ástand ökutækis, dekkjagerð (sumar/vetur) og þrýstingur í dekkjum, farmur ökutækis, farþegafjöldi, ytra hitastig, hitastig rafgeyma o.s.frv.
Uppgefin WLTP gildi eru leiðbeinandi en endurspegla ekki endilega raunverulega drægni. Hafðu samband við söluráðgjafa Toyota fyrir frekari upplýsingar.
WLTP drægni Toyota bZ4X er 504km* á einni hleðslu.
*Þessai gildi eru áætluð gildi sem eru byggð á prófunum í stýrðu umhverfi (WLTP). Þessar tölur eru gefnar upp í samanburðarskyni: berðu þær saman við aðra bíla sem prófaðir eru við sömu skilyrði (WLTP). Áætluð drægni gerir ráð fyrir að rafhlaðan sé fullhlaðin (100%) og að fullu tæmd (0%).
Raunveruleg drægi ökutækis þíns mun vera breytilegt frá þessum reiknuðu gildum, þar sem margir þættir hafa áhrif á drægni. Sem dæmi má nefna: útfærsla, búnaður og fylgihlutir, aksturslag, hraði, ástand vegar, umferð, ástand ökutækis, dekkjagerð (sumar/vetur) og þrýstingur í dekkjum, farmur ökutækis, farþegafjöldi, ytra hitastig, hitastig rafgeyma o.s.frv.
Uppgefin WLTP gildi eru leiðbeinandi en endurspegla ekki endilega raunverulega drægni. Hafðu samband við söluráðgjafa Toyota fyrir frekari upplýsingar.
*1. Drægnitölur eru áætlaðar út frá opinberum samræmdum mælingum í stjórnuðu umhverfi (WLTP). Þessar tölur eru eingöngu veittar til samanburðar. Berðu þær aðeins saman við bíla sem prófaðir eru samkvæmt sömu tæknilegu aðferðum. Raunveruleg drægni rafbílsins þíns getur verið frábrugðin þessum útreiknuðu gildum þar sem margir þættir hafa áhrif á drægnina.
Slíkir þættir eru m.a.: valin útfærsla, aukabúnaður og fylgihlutir, aksturslag, hraði, vegaaðstæður, umferð, ástand bíls, gerð og loftþrýstingur dekkja (sumar/vetur), hleðslubúnaður, álag, fjöldi farþega, utanhússhiti, hitastig rafhlöðu o.fl. Fyrir frekari upplýsingar um WLTP: https://www.toyota.is/um-toyota/environment/wltp eða hafðu samband við viðurkenndan söluaðila Toyota.
2. Hleðsla úr 10% upp í 80% hleðslustöðu getur tekið um 28 mínútur við utanhússhitastig upp að 25°C með um 150 kW DC hraðhleðslu við ákveðnar aðstæður. Tíminn fer einnig eftir ástandi rafhlöðunnar, svo sem aldri, hitastigi og heildarheilbrigði.