Skip to Main Content (Press Enter)

7 ÁRA ÁBYRGÐ

FYLGIR ÖLLUM NÝJUM BÍLUM

Frá og með 1. janúar 2019 er sjö ára ábyrgð (3+4) á öllum nýjum Toyota bílum sem fluttir eru inn af Toyota á Íslandi ehf. Toyota hefur verið þeirrar gæfu aðnjótandi, allt frá stofnun fyrirtækisins, að búa að langtímasambandi við viðskiptavini sína og er sjö ára ábyrgðin mikilvægur þáttur í að styrkja frekar þau bönd sem til staðar eru.

Þess ber að geta að ökutækjum skal viðhaldið samkvæmt vörulýsingu og leiðbeiningum framleiðandans og ber eigandi viðkomandi ökutækis kostnaðinn við slíkt viðhald. Sé það ekki gert getur það valdið ógildingu ábyrgðar varðandi hluti sem þarfnast viðhalds.

Ábyrgð fyrstu þrjú árin  

Ökutækinu skal viðhaldið samkvæmt vörulýsingu og leiðbeiningum framleiðandans, sem fram kemur í eigandahandbókinni. Sé það ekki gert getur það valdið ógildingu ábyrgðar varðandi hluti sem þarfnast viðhalds. Mælst er til að viðurkenndur þjónustuaðili Toyota annist reglubundið viðhald ökutækisins. 

Eigandi/umráðamaður ber ábyrgð á því að halda nauðsynlegar skrár til að sanna að slíkt viðhald hafi farið fram. Ef fram koma gallar, sem ábyrgðin nær til, er skylt að fara með ökutækið til viðurkennds þjónustuaðila Toyota svo skjótt sem auðið er. Það skal gert til þess að koma í veg fyrir aukna galla eða skemmdir og ökutækið þarfnist víðtækari viðgerðar en upphaflega hefði verið þörf fyrir.

Alhliða ábyrgð
Ábyrgðin (3+4) nær til hvers konar agnúa sem rekja má til galla í framleiðslu eða við samsetningu við eðlilega notkun í 7 ár eða 200.000 km (eða 100.000 km fyrstu 3 árin), hvort sem fyrr verður, en engin takmörk eru á kílómetrafjölda á fyrsta ári. Ábyrgðin nær til þess að koma ökutækinu til næsta umboðsmanns Toyota ef bilun verður, sem veldur því að bíllinn verður óökufær, svo fremi bilunin stafi af galla sem ábyrgðin nær til.


Ryð á yfirborði, málning og felgur
Ábyrgðin nær til ryðs á yfirborði og galla í málningu, sem koma fram á máluðum hlutum yfirbyggingar og stafa af efnisgalla, eða slælegum vinnubrögðum, í 3 ár hversu mikið sem bíllinn hefur verið ekinn. Undantekning frá þessu er þó pallur pallbíla sem er í ábyrgð í 1 ár. Felgur eru í 2 ára ábyrgð.  

Gegnumryð
Ábyrgðin gildir í 12 ár, hversu mikið sem bíllinn hefur verið ekinn, og nær til gegnumryðs á yfirbyggingu (þ.e. hvers konar gata á yfirbyggingu sem myndast hafa innan frá) sem rekja má til efnisgalla eða slælegra vinnubragða. Undantekning frá þessu er að Dyna 100/150, Hilux og Proace eru í 6 ára gegnumryðsábyrgð.

Pallur pallbíla er í ábyrgð í 3 ár. „Yfirbygging“ er skilgreind sem hvers konar upprunalegur hluti yfirbyggingar frá Toyota úr plötustáli, þ.m.t. vélarhlíf, hurðir og lok á farangursgeymslu. Aðrir hlutar sem tengjast yfirbyggingunni eins og listar, stuðarar og lamir falla ekki undir 12 ára gegnumryðsábyrgð. Ábyrgðin nær til ryðs á yfirborði og galla í málningu, sem koma fram á máluðum hlutum yfirbyggingar og stafa af efnisgalla, eða slælegum vinnubrögðum, í 3 ár hversu mikið sem bíllinn hefur verið ekinn. Undantekning frá þessu er þó pallur pallbíla sem er í ábyrgð í 1 ár.

Eðlilegt slit

- Skrölt, hljóð, slit og rýrnun, svo sem aflitun, upplitun eða aflögun.

Á 4. til og með 7. ári
- Ekki er ábyrgð t.d. á höggdeyfum, soggrein, pústgreinum, útblásturskerfi, kúplingu, innréttingu, yfirborðsryði, málningu o.s.frv. Sjá nánar skilmála á 4. til og með 7. ári sem fylgja ökutækinu og koma fram hér neðar á síðunni.  

Viðhaldskostnaður
- Eðlilegur viðhaldskostnaður, svo sem vélarstilling, skipting á vökvum og síum, smurning, reimar, AC vökvi, bætiefni, þrif og bónun, endurnýjun kerta, öryggja og ljósapera, og skipti á slitnum þurrkublöðum, hemlaklossum, hemlaborðum og kúplingu og ryð sem rekja má til utanaðkomandi ákomu s.s. vegna steinkasts. 

Ökutæki þar sem stöðu vegmælis hefur verið breytt
- Gallar í ökutækjum þar sem stöðu vegmælis hefur verið breytt þannig að ekki er auðvelt að ganga úr skugga um hve mikið því hefur verið ekið.

Ökutæki sem hefur verið bjargað eða talið ónýtt
- Ökutæki sem fjármálastofnun eða vátryggjandi hefur lýst yfir að hafi verið „bjargað“ eða eitthvað slíkt eða sé „algerlega ónýtt“ eða viðlíka.

Tilfallandi tjón
- Tilfallandi eða afleitt tjón í tengslum við bilun ökutækis, þ.m.t., en takmarkast þó ekki við, óþægindi, ferða- eða flutningskostnaður, símtöl og gisting, tap á persónulegum eigum eða öðrum verðmætum og tekjutap.

Tjón eða bilanir sem stafa beint eða óbeint af einhverjum af eftirtöldum utanaðkomandi atburðum:

  • Eldsvoði, slys eða þjófnaður.
  • Ill meðferð eða vanræksla. 
  • Misnotkun, t.d. kappakstur eða ofhleðsla. 
  • Viðgerðir hjá öðrum en viðurkenndum þjónustuaðilum Toyota.
  • Ísetning annarra varahluta en þeirra sem viðurkenndir eru af Toyota. 
  • Breytingar eða fikt, þ.m.t. ísetning aukahluta sem eru ekki viðurkenndir af Toyota. 
  • Skortur á réttu viðhaldi, þ.m.t notkun annarra vökva en þeirra sem tilgreindir eru í eigandahandbókinni.

Hver veitir ábyrgðina?

TOYOTA ábyrgist að ökutækið hafi verið framleitt samkvæmt ströngustu gæðakröfum Toyota og skoðað nákvæmlega fyrir afhendingu.

Til hvaða landa nær ábyrgðin á bílnum mínum?
Verksmiðjuábyrgð Toyota fyrstu 3 árin, eins og hún er skilgreind í þessu yfirliti, gildir í eftirtöldum ríkjum: Andorra, Austurríki, Belgíu, Bosníu og Hersegovíu, Búlgaríu, Króatíu, Kýpur, Tékklandi, Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Gíbraltar, Grikklandi, Ungverjalandi, Íslandi, Írlandi, Ítalíu, Liectenstein, Litháen, Lúxemborg, Möltu, Noregi, Póllandi, Portúgal, Rúmeníu, Serbíu og Svartfjallaland, Slóvakíu, Slóveníu, Spáni, Svíþjóð, Sviss, Makedóníu, Hollandi og Stóra-Bretlandi.


Ef þú hyggst ferðast með bílinn til annarra landa en þeirra sem tilgreind eru hér að ofan mælum við með því að þú fáir nánari upplýsingar hjá næsta viðurkennda þjónustuaðila Toyota.

Hvenær hefst ábyrgðartíminn?
Ábyrgðartíminn hefst á nýskráningardegi ökutækisins.

Þarf ég að greiða fyrir viðgerðir á bílnum mínum sem fara fram á ábyrgðartímanum?
Nei. Viðurkenndur þjónustuaðili Toyota framkvæmir hvers konar viðgerðir sem ábyrgðin nær til án þess að þú verðir að greiða fyrir vinnu eða varahluti. Toyota ákveður hvort gert verði við hluti eða skipt um þá.

Er ég bíllaus á meðan á ábyrgðarviðgerð stendur?
Nei – Toyota á Íslandi lánar þér bíl á meðan á ábyrgðarviðgerð stendur fyrstu 7 árin frá nýskráningardegi bílsins, sé hann fluttur inn af Toyota á Íslandi og svo fremi sem bilunin stafi af galla sem ábyrgðin nær til. Slík bílalán ná ekki til innkallana á vegum Toyota Motor Europe.

Nær ábyrgðin til hjólbarða?
Sérstök ábyrgð hjólbarðaframleiðandans gildir um hjólbarðana. Leitaðu upplýsinga hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota.

Hvað gerist ef ég sel bílinn minn?
Toyota-ábyrgðin flyst sjálfkrafa yfir á nýja eigendur þeim að kostnaðarlausu.

Hefur ábyrgðin áhrif á lagalegan rétt minn?
Nei. Ábyrgð Toyota rýrir aldrei rétt þinn sem tryggður er með lögum.

Til hvaða hluta nær ábyrgðin ekki?
Við veitum þér víðtæka ábyrgð sem endurspeglar gæði Toyota. Ábyrgð Toyota er ætlað að ná til hvers konar agnúa sem rekja má til galla í framleiðslu eða samsetningu. (sjá "Atriði sem ábyrgðin nær ekki til" hér að ofan).

Ábyrgð á fjórða til og með sjöunda ári

Eigandi ökutækisins á, þar sem því verður við komið, rétt á viðgerðum án endurgjalds á vélrænum, rafrænum og rafeindatengdum göllum sem rekja má til framleiðslu eða samsetningar, að uppfylltum þeim skilyrðum sem lýst er í þessu skjali.

Hnökralaus notkun sem vænta má í samræmi við raunverulega bifreiðartækni í ökutækinu frá Toyota á Íslandi með varahlutum og vinnu á 4. til og með 7. ári ábyrgðartímans eða allt að 200.000 km (eða 100.000 km fyrstu 3 árin), hvort sem kemur á undan. Ábyrgð á 4. til og með 7. ári tekur gildi á þeim degi sem 3 ára verksmiðjuábyrgð framleiðanda fellur úr gildi.

Að öllum viðeigandi skilyrðum uppfylltum nær ábyrgðin yfir viðgerðir á eftirfarandi hlutum:

Vél: vélarblokk; jafnvægisstöng; knastás; undirlyfta, undirlyftutappi, undirlyftuarmur; rokkerarmar (vippuarmar); ventlar og ventlastýringar; sveifarás og sveifaráslegur; sveifarástrissa; strokklok; strokkloksþétti; stimpilstangir; öxultengi; tengiplata/drifplata; kasthjól; startkrans; leiðihjól; olíupanna; olíuþrýstirofi; smurolíudæla; stimplar og stimpilhringir; stimpillegur og stimpilfóðringar; pakkningar og þétti; tímareim; tímareimarstrekkjarar; tímareimarleiðihjól; tímakeðja; tímahjól; forþjappa; eftirkælir forþjöppu; afléttiloki forþjöppu; ventlalok og ventlapakkningar; kælivatnsdæla; ventill
endurhringsrásar útblástursgass; olíukælir; olíusíuhús; bankskynjari; súrefnisskynjari; barkar/kaplar (ekki raflagnir).

Eldsneytiskerfi (bensín): eldsneytisdæla; rafknúin eldsneytisdæla; loftflæðimælir; rafrænt eldsneytisinnspýtingarkerfi; stjórntölva; sogháls; eldsneytisspíssar; eldsneytisþrýstingsstillir; flotholt og sendir; eldsneytisgeymir; eldsneytismælir.

Eldsneytiskerfi (dísil): innsprautunardæla fyrir dísileldsneyti; eldsneytisdæla;
loftflæðimælir; stjórntölva; spjaldstöðuskynjari; eldsneytislokar; hitakerti; flotholt og sendir; eldsneytisgeymir.

Kælikerfi: hæðarskynjari kælivökva; rafliði kæliviftu; kæliviftuskynjari; hitarofi
eða -skynjari fyrir kælivökva á vél; vélarvifta; seigjutengi á kæliviftu; vatnskassi;
vatnskassalok; vatnslás og vatnslásshús.

Beinskiptur gírkassi: höfuðdæla (kúplingsdæla); kúplingsstrokkur; gaffall og gaffalliður kúplingar; kúplingsbarkar; tengihlutir kúplingar; sambyggður gírkassi og drif/gírkassi; tannhjól og öxlar; gírbremsur; nafir; legur og fóðringar; pakkningar og þétti; tengihlutir og skiptibarkar; gírstöng.

Sjálfskiptur gírkassi: sambyggður gírkassi og drif/gírkassi; tannhjól og öxlar; valbúnaður; rafrænn gerandi; hemlabönd; kúplingar; ventilhús; olíudæla; olíukælir; stjórntölva; nafir; legur og fóðringar; pakkningar og þétti; tengihlutir og skiptibarkar; vökvagír; gírstöng.

Millikassi og mismunadrif: miðlægt mismunadrif; mismunadrifshús; kambhjól og pinjón mismunadrifs; öxlar; tannhjól; legur; fóðringar; mismunadrifsnafir; millikassastangir.

Aflrás: Jafnhraða hverfiliðir; hjöruliðir; öxlar (fyrir sjálfstæða fjöðrun); driföxlar; legur; fóðringar; tengsli; pakkningar og þétti.

Fjöðrun: fjöðrun að framan og aftan; snerilfjöður; millibilsstangir; hjólöxlar með sjálfstæða fjöðrun frá driföxli; þverbitar í grind; hálfgrindur; hjólalegur (upp að 160.000 km); nafir; millileggi; lásrær.

Stýrisbúnaður: aflstýrisvél; stýrisvél; tannhjólahús; tannstangarstýrisvél; aflstýrisdæla; aflstýrisforðageymir; þéttingar; legur; stýrisarmar; millistöng; stýrissúla; stýrisliðir; milliarmur.

Hemlar: ABS-stjórntölva; ABS-kerfisþættir; hraðaskynjarar; hemlahjálparkútur; diskahemlaklafar; hemlaskálar; tengiliðir; magnlokar; höfuðdæla; hemlavökvageymir; hjóldælur; sogdæla.

Loftkæling/miðstöð: varmaskiptir; miðstöðvarstjórnlokar; kælivifta miðstöðvar;
loftkælingarþjappa; þéttir; eimir; safnari og þurrkari; stjórntæki miðstöðvar;
miðstöðvarloki; hitaskynjari eimis.

Rafkerfi: Hybrid rafgeymi, ræsimótor; rafall; háspennukefli; þurrkumótorar; rúðusprautumótorar; stefnuljósarafliði; miðstöðvarmótor; flauta; handvirkir rofar; spíralkapall loftpúða; rafrænn sviss; rafliðar; hitaelement í rúðum; stjórntölva (aksturstölva); rúðulyftibúnaður og mótorar; stjórnrofi fyrir rúðulyftibúnað; færslumótorar fyrir baksýnisspegla; fjarstýringar í lyklum; hreyfar í rafdrifnum læsingum (læsingamótorar og segulspólur); loftpúðaskynjarar; fjarlæsingarstjórntölva; tímaliði fyrir innilýsingu;
mælar; klukkur; hraðamælir og hraðaskynjari; snúningshraðamælir; leiðslukaplar (fyrir skammhlaup); færslumótorar í sætum; vindlingakveikjarar; skynjarar; hitaelement í sætum; þjófavarnarkerfi (aðeins frá Toyota); færslumótorar í aðalljósum; kertaleiðslur; endurforritun stjórntölva og hugbúnaðar (nema þegar aðeins á að eyða bilanakóða).

Yfirbygging: Þakgluggi/sóllúga (aðeins frá Toyota); færslumótorar fyrir þakglugga/sóllúgu (aðeins frá Toyota); hurðalæsingar; barki í vélarhlífaropnun; hlerastög; þurrkubraket; sætisfærslur; öryggisbeltabúnaður; aukahlutir frá verksmiðju; og Toyota aukahlutir sem eru uppsettir af viðurkenndum þjónustuaðila svo lengi sem þeim hefur verið hlaðið upp í CWS af hálfu Toyota á Íslandi innan þriggja mánaða frá skráningu ökutækis.

Hybrid íhlutir (þegar 5 ára og/eða 100.000 km verksmiðjuábyrgðin er liðin): Stjórntölva drifrafhlöðu, stjórntölva Hybridkerfis og umriðill Hybridkerfis.

Íhlutir efnarafalskerfis: Loftdæla efnarafals, spennubreytir efnarafals, vetnisgeymar, aflstjórnbúnaður vetniskerfis og efnarafall. 

Rafmagnsíhlutir:
Drifmótor og umriðill fyrir drifmótor.

• varahluturinn er ekki á listanum yfir tryggða varahluti í grein 3 hér að ofan.

• hann er til kominn vegna slits, mikils hlaups, hávaða og/eða titrings.

• ökutækinu hefur ekki verið haldið við eða gert við það samkvæmt ráðleggingum framleiðanda; þetta ákvæði tekur gildi við skráningu ökutækisins.

• hann er til kominn vegna galla sem ekki voru tilkynntir tafarlaust til viðurkennds þjónustuaðila Toyota eða viðurkenndur þjónustuaðili Toyota hefur á annan máta ekki fengið til tækifæri til að gera við.

• hann er til kominn vegna viðgerða sem ekki voru framkvæmdar af viðurkenndum þjónustuaðila Toyota.• hann er til kominn vegna galla sem rekja má til annarrar notkunar ökutækisins en framleiðandi ráðleggur (svo sem misnotkunar, spyrnu; utanvegaaksturs, breytinga, ofhleðslu).

• hann er til kominn vegna ytri orsaka og/eða náttúrufyrirbæra (svo sem vatnsleka og ryks, grjótskemmda, flóða, ísingar, illviðris, náttúruhamfara, slysa, elds, sprenginga, stríðs, óeirða, aðgerða yfirvalda, aðgerða af ásettu ráði eða í fjandsamlegum tilgangi, notkunar í leyfisleysi, saltmengunar, glertæringar og rispa, óhreininda).

• hann er til kominn vegna galla sem ekki eru af völdum Toyota.

• hann er til kominn vegna skemmda vegna aukahluta eða sérstaks búnaðar sem ekki er frá Toyota.• hann er til kominn vegna vanrækslu af ásettu ráði eða vítaverðs gáleysis (þar með talið en ekki takmarkað við óviðeigandi smurefni og eldsneyti).

• hann er til kominn vegna breytinga á upprunalegri hönnun ökutækisins eða uppsetningar tiltekinna aukahluta sem gera það að verkum að ökutækið uppfyllir ekki lengur lágmarkskröfur sem framleiðandinn setur.

• hann er til kominn vegna varahluta sem settir hafa verið í ökutækið sem ekki eru af sömu gæðum og upprunalegir varahlutir frá framleiðanda.

• hann er til kominn vegna rangrar festingar hjóla, rangra viðgerða eða óviðeigandi skipta á einstökum íhlutum.• hann er afleiðing rangrar uppsetningar; eða er til kominn vegna notkunar hlutar sem greinilega þarfnast viðgerðar, nema hægt sé að sýna fram á að skemmdin tengist viðkomandi hlut ekki.

Ábyrgðin nær ekki yfir kostnað vegna:
• óbeins kostnaðar á borð við hagnaðar- eða tekjutap hjá eiganda ökutækis; flutning; drátt; síma; gistingu; leigu; eignatjón eða glötuð verðmæti.

• útlitstengdra atriða á borð við lakkviðgerðir; ryðviðgerðir; óeðlilegan lit; upplitun; aflögun; sprungur; hluta sem losna; hluta sem detta af; vatnsleka- og rakaskemmdir.

• bíla sem ekki eru fluttir inn af Toyota á Íslandi ehf.

• Viðhaldshlutir (t.d. varahlutir sem þarf að skipta um reglulega, síur, hemlaklossar, borðar; skór og barkar, kúplingsdiskar, kúplingshlíf og kúplingslegur), felgur, hjólbarðar, kílreimar, rafgeymar, vökvar, kerti, bilanagreining. 

• Gúmmíhlutir (t.d. gúmmislöngur (miðstöð), leiðslur og rör úr gúmmíefni, plasti, áli, stáli eða öðru efni fyrir fast eða fljótandi efni, vélar- eða
yfirbyggingarfestingar, skrautlistar, þurrkublöð), drifskaftshosur, höggdeyfar (þ.m.t. loftstrokkar) og fjöðrun, fóðringar á jafnvægisstöng, hlutir fyrir fljótandi jarðolíugas/eldsneytiskerfi frá öðrum en framleiðanda og beinar og afleiddar skemmdir vegna þeirra (einnig vegna breytinga á kerfi frá framleiðanda til að nota fljótandi jarðolíugas eða eldsneytiskerfi frá öðrum en framleiðanda).

• Yfirbygging og lakk (t.d. ljós, kastarar, perur, linsur, borð, stuðarar, gler, króm, loftnet, handföng og áklæði, skraut að utan, þéttikantar, gljáandi málmlakk (málmhlutar án húðunar), viðgerðir vegna tæringar að því gefnu að almenn ábyrgð vegna tæringar sé ekki í gildi.

• Innanrými (t.d. áklæði, sætishlífar, púðar, teppi, loftræstingarristar, öskubakkar, hnappur á gírstöng, mælaborð, stýri).

• Margmiðlunarkerfi.

• Varahlutir sem eru ekki frá Toyota, aukahlutir sem eru ekki frá Toyota og sérstakur búnaður. Til dæmis, en ekki einskorðað við, jeppabreytingar eða húsbílabreytingar.

• Aukahlutir frá Toyota sem ekki eru settir upp í verksmiðju, aukahlutir frá Toyota sem eru uppsettir af viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi svo lengi sem þeim hefur ekki verið hlaðið upp í CWS af hálfu Toyota á Íslandi innan þriggja mánaða frá fyrstu skráningu ökutækis.

• Tilteknir varahlutir og íhlutir, t.d. útblásturskerfi (allir hlutar frá soggreinarpakkningu að útblástursopi, þ.m.t. hvarfakútur); loftklæðning, hjarir, rær og boltar, öryggi; klemmur; höldur og festingar; drifreimar og strekkjarar; jafnvægisstöng að framan og aftan, festingar vélar og yfirbyggingar; brunahitari. Hleðslukaplar fyrir rafbíla/plug-in Hybrid.

• Hlutir utan yfirbyggingar ökutækis (nema þeir sem taldir eru sérstaklega upp í grein 4 hér að ofan).

• Viðgerðir á hljóði (nema þær komi til vegna bilunar í hlut frá framleiðanda sem tryggingin nær yfir).

• Stillingar.

• Hlutir sem falla undir SPA (special policy adjustment), innköllun eða aðra ábyrgð annarra.

• Öll endurgreiðsla skal fara fram samkvæmt skilyrðum í staðlaðri ábyrgð Toyota á Íslandi og greiðsluflæði fyrir varahluti og vinnu.

• Varahlutir sem skipt er út verða eign greiðanda. Notkun Reman-/Optifit-varahluta skal vera áskilin hjá umboði þegar því verður tæknilega við komið. 

• Hámarksupphæð uppsafnaðra bótakrafna skal nema raunverulegu kaupverði ökutækisins með virðisaukaskatti (tilgreint á reikningi viðurkennds þjónustuaðila Toyota á Íslandi þar sem kaup ökutækisins eru staðfest) og hámarksupphæð bótakröfu skal miðast við endursöluverð ökutækisins á þeim tíma sem viðgerðin fer fram.

• Bótakröfur þarf að senda TME innan 28 daga frá kvörtun viðskiptavinar til viðurkennds
þjónustuaðila Toyota á Íslandi, að þeim tíma liðnum verða þær ekki samþykktar.

Hefðbundin ábyrgð á við að því gefnu að ákvæði hennar stangist ekki á við ákvæði hér að ofan. Annað veifið kunna nánari útlistun og breytingar að vera gefnar út.

Ábyrgð á fjórða til og með sjöunda ári

HlutirÁbyrgðartími        
Enska heitið
Kasthjól (svinghjól)7 árflywheel
Smurolíudæla7 ároil pump
Sveifarás og sveifaráslegur7 árcrankshaft & bearings
Tímagír, tannhjól, keðjuhjól og tímakeðja7 ártiming gears & chains
Reimskífur7 árpulleys
Knastás7 árcamshafts
Undirlyfta, undirlyftutappi, undirlyftuarmur, rokkerarmar (vippuarmar)7 árcam followers
Undirlyftustýring (undirlyftuhús, undirlyftuslíf)           
7 ártappet gear
Ventlar og ventlastýringar7 árvalves & guides
Stimplar og stimpilhringir7 árpistons & rings
Strokklok, (hedd)7 árcylinder heads
Strokkloksþétti, (heddpakkning)7 árcylinder head gasket
Stimpilstangir7 árconrods
Innri fóðringar7 árinternal bushings
Pakkningar og þétti (FIPG)7 árseals & gaskets
Neistaveikjudrif7 árdistributor drive
Tímareim7 ártiming belts
Tímareimastrekkjarar7 ártiming belt tensioners
Ventlalok (lokalok)7 árrocker cover
Rafkaplar (leiðslubúnt)7 árcables
Olíusíuhús7 ároil filter housing
Olíubiða (olíupanna)7 ársump
Rafleiðslur7 árwiring

Hlutur
 Ábyrgðartími 
 Enska heitið
Soggrein/ eldgrein 
 3 ár
 inlet/outlet

Hlutir
    Ábyrgðartími
    Enska Heitið
Afgaskerfi (Pústkerfi)                3 ár    exhaust
Þéttingar á afgaskerfi                3 ár    gaskets
Boltar í afgaskefi                3 ár    studs
Hvarfakútur                3 ár    cat. Conv.

HlutirÁbyrgðartími    Enska heitið
Afléttiloki (afgasþrýstiloki)            7 ár    waste gate
Eftirkælir (intercooler)            7 ár    intercooler

Hlutir
Ábyrgðartími   
   Enska heitið
Kælivatnsdæla (vatnsdæla)             7 ár   water pump
Vatnskassi             7 ár   radiator
Vatnslás og vatnsláshús             7 ár   thermostat & housing
Segjutengi á kæliviftu             7 ár   viscous fan clutch
Loftræstisamstæða, hita- og kælieliment, blásari
og stýrieiningar
             7 ár   heater matrix
Miðstöðvarstjórnlokar fyrir vatn             7 ár   heater valve
Stjórnborð fyrir loftræstingu (miðstöðvarstýring)             7 ár   heater controls
Vélarolíukælir             7 ár   oil cooler (engine)
Vatnskassalok             7 ár   radiator cap
Kælivifta (blævængur)             7 ár   cooling fan

Hlutir
Ábyrgðartími
    Enska heitið
Hybrid rafgeymi7 ár    Hybrid Battery
Ræsimótor                                         7 ár    starter motor
Rafall7 ár    alternator
Spennustilli7 ár    regulator
Háspennukefli7 ár    coil
Neistakveikja7 ár    distributor
Þurrkumótor7 ár    wiper motors
Rúðusprautumótorar7 ár    washer pump motors
Stefnuljósastýribúnaður7 ár    indicator unit
Miðstöðvarmótor7 ár    heater fan motor
Flauta7 ár    horn
Rofar7 ár    switches
Tölvustýrðneistakveikja7 ár    electronic ignition
Álagsmótstaða (spennujafnari)7 ár    ballast resistor
Rafliðar (relay)7 ár    relays
Hitaeliment í framrúðum og afturrúðum7 ár    heated screen elements
Stjórntölvur7 ár    on board computer
Rúðulyftibúnaður og mótorar7 ár    window motors/regulators
Stjórnrofar fyrir rúðulyftibúnað7 ár    power window switch
Færslumótorar fyrir þakglugga / sóllúgu7 ár    sunroof motors
Færslumótorar fyrir baksýnisspegla7 ár    mirror motors
Lykilkóðasendar
(útvarpsbylgjusendar fyrir fjarlæsingar)
7 ár    sender units
Hreyfar í rafdrifnum læsingum
(læsingamótorar og segulspólur)
7 ár    central locking solenoids
Árekstrarnemi7 ár    impact switch
Fjarlæsingarstjórntölva7 ár    central lock control unit
Tímaliði fyrir innilýsingum7 ár    internal light delay unit
Mælar7 ár    gauges
Klukkur7 ár    clocks
Hraðamælir og hraðamælasendir
(hraðamæladrif)
7 ár    speedometer & transducer
Snúningshraðamælir7 ár    rev. counter
Leiðslukaplar7 ár    wiring looms
Innbyggðar stjórnrásir7 ár    S.I.P.C. boards
ABS hemlastjórntölva7 ár    ABS control unit
Færslumótorar í sætum7 ár    electric seat motors
Vindlingakveikjari7 ár    cigarette lighters
Nemar (skynjarar)7 ár    sensors
Sætishitaeliment7 ár    heated seat elements
Þjófavarnarkerfi (verksmiðju ísett eingöngu)7 ár    alarms (O/E only)
Færslumótorar í aðalljósum7 ár    headlamp lift motors
Háspennuþræðir7 ár    H.T. leads
Hitaðir vatnsúðarar
(framrúðu og aðaljósa þvottur)
7 ár    heated washer jets
Hlerastög (afturhlera)7 ár    tailgate struts
Drifrafhlaða (EV Main Battery) 8 ár/160.000 km,
í þeim tilfellum þar sem hleðslurýmd hefur rýrnað undir 70%  
8 ár    EV Main Battery

Hlutir
Ábyrgðartími    
Enska heitið
Hemlarör (bremsurör)                      7 ár    brake pipes
Hemlavökvaforðabúr7 árfluid reservoir
ABS hemlahlutir7 árA.B.S. components
ABS hjólhraðaskynjarar7 árA.B.S. speed sensor
Þrýstikútar7 áraccumulators
Hemlahjálparkútar7 árboosters
Hemladælur7 árcalipers
Hemladælustimplar7 árwheel cylinders
ABS deilir7 árservo
Höfuðdæla7 ármaster cylinder
Bremsudiskar (víbringur 3 ár)
7 árbrake discs
Bremsuskálar7 árbrake drums
Magnlokar, hlutfallslokar7 árlimiter valves
Handbremsubarkar
3 ár
handbrakecable
Tengihlutir og liðir
7 árlinkages

HlutirÁbyrgðartími    Enska heitið
Legur (allt að 160.000 km)            7 ár    bearings
Nöf            7 ár    hubs
Stilliplötur            7 ár    shims
Legurær, lásrær            7 ár    lock nuts

Hlutir
Ábyrgðartími    
Enska heitið
Mismunadrif í millikassa                               7 ár  third differential
Tannhjól7 árgears
Öxlar7 árshafts
Legur og fóðringar7 árbearings & bushes
Skiptibúnaður (stangir öxlar og gaflar)7 árlevers

Hlutir
Ábyrgðartími    
Enska heitið
Kælidæla (fyrir loftræstingu)7 árcompressor
Þéttir (í kælikerfi loftræstingu)   
7 árcondensor
Safnari og þurrkari7 árreceiver & dryer unit
Eimir7 árevaporator
Miðstöðvarstjórnlokar (loft)7 árheater flaps & motors

Hlutir
Ábyrgðartími    
Enska heitið
Tannstangarstýrisvél7 árrack & pinion
Sektorsarmstýrisvél7 ársteering box
Stýrisdæla7 ársteering pump
Þéttingar7 árseals
Legur7 árbearings
Stýrisarmar7 árexternal linkage
Stýrisliðir7 árjoints
Stýrissúla (stýristúpa)7 árcolumn
Forðabúrstýrisvökva7 árreservoir
Milliarmur (upphengja)    
7 áridler arm

Hlutir
Ábyrgðartími    
Enska heitið
Vélarblokk7 árengine cylinder block
Gírkassahús7 árgearbox
Sjálfskiptingarhús    
7 ártransmission
Drifhús7 árfinal drive

Hlutir
Ábyrgðartími     
Enska heitið
Öxlar (fyrir sjálfstæðafjöðrun)7 árhalfshafts
Drifsköft7 árpropshafts
Hjöruliðir7 áruniversal joints
Legur7 árbearings
Fóðringar (ballansstangargúmmí
& baulugúmmí 3 ár)
7 árbushes
Öxlar7 árdriveshafts
Jafnhraðaöxulliðir7 árc/v joints
Hlífðarhosur3 árrubber boots
Tengiliðir (kúluliðir)7 árcouplings
Pakkningar og þétti (FIPG)7 árseals & gaskets
Fjöðrun - gormar
7 ársprings
Fjöðrun - blöð
3 ár
leafsprings
Höggdeyfar (demparar)3 árshock absorbers
Snerilfjöður7 ártorsion bars
Jafnvægisstangir3 áranti-roll bars
Klafar7 árwishbones
Spindilkúlur7 árball joints
Millibilsstangir7 ártrack rods
Togstangir7 ártie bars
Hjólöxull m/sjálfstæðafjöðrun án driföxuls7 árstub axles
Þverbitar í grind7 árcross members
Hálfgrindur (mótorbitar og
hjólabitar í sjálfberandi yfirbyggingum)
7 ársubframes
Vökva fjöðrun7 árhydraulic suspension
Millistöng7 ártie rod
Spyrnur og stangir7 ársuspension shaft/rod

Hlutir
Ábyrgðartími    
Enska heitið
Blöndungur7 árcarburettor
Eldsneytisdæla7 árfuel pump
Flotholt og sendir7 ártank sender unit
Eldsneytismælir7 árfuel gauge

Hlutir
Ábyrgð   
Enska heitið
Eldsneytisinnsprautunarkerfi (nemar og liðar)    
7 árfuel injection system
Spíssar7 árinjectors
Loftflæðimælir7 árairflow meter
Vélarstjórntölva7 árelectronic control unit

Hlutir
Ábyrgð 
Enska heitið
Fæðidæla7 árlift pump
Innsprautunardæla    
7 árinjector pump
Spíssar7 árinjectors
Eldsneytistankar7 ártanks
Hitakerti7 árcold start glow plugs
Vakumdælur7 árvacuum pumps

Hlutir
Ábyrgð  
Enska heitið
Kúplingsdiskur3 árclutch plate
Kúplingspressa3 árclutch cover
Kúplingslega3 árthrust bearing
Gaffall og gafalliður7 árfork & pivot
Höfuðdæla (kúplingsdæla) 
7 ármaster cylinder
Kúplingsdæla (þræll)7 árslave cylinder
Barkar7 árcables
Armar7 árlinkages

Hlutir
Ábyrgð   
Enska heitið
Tannhjól7 árgears
Valliðir7 árselectors
Rafstýrður gangráður7 árelectronic governor
Bremsubönd7 árbrakebands
Gírbremsur7 ársyncromesh
Hjólnafir7 árhubs
Öxlar7 árshafts
Legur og fóðringar7 árbearings & bushes
Átaksbreytir7 ártorque convertor
Tengi kúplingar í sjálfskiptingum7 árclutch (automatic)
Pakkningar og þétti (FIPG)7 árseals & gaskets
Hús (sjálfskiptihús og gírkassahús)    
7 ártransmission housing
Ventilhús (ventlabox)7 árvalve block
Olíudæla7 ároil pump
Tengiliðir7 árexternal linkages
Stjórntölva7 árcontrol units
Olíukælir7 ároil cooler
Skiptistöng7 árgear lever
Barkar7 árcables

Hlutir
Ábyrgð    
Enska heitið
Yfirbygging    
3 árBody
Málning3 árPaint
Innrétting3 árInterior

Hlutir
Ábyrgð  
Enska heitið
Þurrkubraket (tengiarmar milli
þurrkuarma og þurrkumótors)     
7 árwiper spindles
Þakgluggi / sóllúga
(verksmiðju ísett eingöngu)
7 ársunroof (O/E only)
Sætisfærslur7 ármanual seat frames
Hurðalæsingar7 árdoor locks
Barki í vélarhlífaropnun7 árbonnet release cables
Vélrænn búnaður í útvarpi/
margmiðlunartæki
7 ár
mecanical components in
radio
Hugbúnaður í útvarpi
3 ár
software in radio
Á ábyrgðartíma allra Toyota bíla, sem fluttir eru inn af Toyota á Íslandi ehf., er bilanagreining innifalin í ábyrgðinni, komi í ljós að viðkomandi bilun fellur undir ábyrgðarskilmála bílsins. Ef viðkomandi bilun fellur ekki undir ábyrgðarskilmálana þarf viðskiptavinur að greiða fyrir bilanagreininguna.