Tölurnar sýna hæstu eða lægstu gildi sem eiga við þær vélar sem eru í boði en eiga ekki endilega við eina ákveðna útfærslu. Eyðslutölur eiga við blandaðan akstur.
Tölurnar sýna hæstu eða lægstu gildi sem eiga við þær vélar sem eru í boði en eiga ekki endilega við eina ákveðna útfærslu. Eyðslutölur eiga við blandaðan akstur.
Velja útfærslu
Frá
5.750.000 kr.
Frá
5.550.000 kr.
Frá
6.550.000 kr.
Frá
5.950.000 kr.
Frá
6.950.000 kr.
Hvert sem lífið leiðir þig tekurðu því með ró. Djarft og fágað útlit í bland við rúmgott innanrými og mikilfenglegt útsýni yfir veginn. Yaris Cross er sniðinn fyrir þægilegan akstur, innanbæjar sem utan. Með kraftmikilli blöndu Hybrid- og aldrifskerfis AWD-i kemstu allra þinna ferða og nýtur öryggistilfinningarinnar sem fylgir fullvissunni um að þér eru allir vegir færir. Fulla ferð áfram.
Allt frá því að mjakast áfram í umferðinni innanbæjar til frelsisins á vegum úti mætir fjórða kynslóð af sjálfhlaðandi aflrásinni til leiks og gerir hverja bílferð afslappaða. Ný 116 DIN hö. 1,5 lítra Hybrid-aflrás skilar óviðjafnanlegum afköstum og skilvirkni í flokki sambærilegra bíla. Snurðulaus skipting frá bensíni í raforku á hárrétta augnablikinu skilar mjúkri hröðun og einstakri sparneytni og þú kemst jafnvel enn lengra en áður í útblásturslausri stillingu. Um leið og þú gangsetur bílinn stendur ekkert í vegi fyrir þér.
Hvað sem dagurinn ber í skauti sér ferðu fulla ferð áfram. Yaris Cross er í boði með snjöllu aldrifi AWD-i sem veitir stöðugleika og spyrnu til að halda þér frá vandræðum á óstöðugu undirlagi og í kröppum beygjum. Með sjálfvirkri skiptingu frá framhjóladrifi yfir í aldrif tryggir þetta létta kerfi einstaka sparneytni og lítinn útblástur hvort sem er í stuttu innanbæjarsnatti eða akstri á þjóðvegum.