Skip to Main Content (Press Enter)
Síðan er að hlaðast

Klár í ævintýrin 

Nýr RAV4 er traustur ferðafélagi, hvert sem leiðin liggur. 

  • Hannaður til að vekja athygli

    RAV4 Hybrid ekur eftir malarvegi í fjalllendi

    Djarfur og kraftmikill. RAV4 er hannaður fyrir ævintýrin

  • Rúmgóður og fjölhæfur að innan

    Stórt farangursrými RAV4 fullt af farangri

    Allt rýmið, plássið og tæknin sem þú þarft

  • Grip alls staðar

    RAV4 á akstri eftir snjólögðum götum

    Þú getur treyst á RAV4, í hvaða aðstæðum sem er.

  • Njóttu akstursins

    Útsýni ökumanns úr RAV4 sýnir kosti þess að sitja hátt í bílnum

    Þægilegur í borginni, aðlögunarhæfur í beygjum, RAV4 sigrar allar aðstæður.

  • Toyota snjallhleðsla

    Nærmynd af Toyota heimahleðslutæki sem er búið Toyota snjallhleðslu möguleikum.

    Toyota snjallhleðsla hjálpar þér að spara peninga með því að tímasetja hleðsluna heima á snjallan hátt - öllu stjórnað í MyToyota appinu.

  • Glænýtt margmiðlunarkerfi

    Mælaborð í RAV4

    Hraðvirkt, tæknilegt, auðvelt... Snjöll tækni kemur náttúrulega með RAV4.

  • Lífgaðu upp á aksturinn

    Barn les bók í rúmgóðum aftursætum RAV4

    Pláss fyrir lífið – rúmgóður og fjölhæfur að innan

  • Háþróaður öryggisbúnaður

    Loftmynd af RAV4 aka í skóglendi

    Hugarró eykst með Toyota Safety Sense

  • Stærðir

    RAV4 ökumaður nálgast bílinn sinn

    Lengd: 4600–4646 mm. Breidd: 1855–1880 mm. Hæð: 1675-1680 mm.

Read timed out

POST https://dxp-webcarconfig.toyota-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=a68a58fb-a10e-41ae-9459-3a7c4060500f

Hönnun

Brautryðjandi snýr aftur

Hinn goðsagnakenndi Toyota RAV4 skapaði sportjeppa flokkinn árið 1994. Nýi RAV4 byggir á þessum brautryðjandaanda og mótar jafnframt sína eigin leið með kraftmikilli, nútímalegri hönnun sem er tilbúin fyrir útivist – og miklu meira.

Hönnun
  1. Að utan
    1. Alt text TBC
      Öflugur sportjeppastíll með nútímalegri og kraftmikilli ásýnd
      Hannaður fyrir þá sem vilja skera sig úr – nýr RAV4 sameinar styrk og yfirburðastöðu sportjeppa með nútímalegri og einkennandi hönnun.
    2. Framendi á RAV4 sýnir nýtt grill og aðalljós
      Lipur í borginni, sterkur úti í náttúrunni
      Kraftmikil hönnun og einkennandi línur Toyota RAV4 koma sterkt fyrir í öllum aðstæðum – hvort sem þú ert að kanna borgina eða halda af stað í næsta ævintýri.
    3. Hönnunar atriði

      Með stórum dekkjum, harðgerðum hjólbörðum og öflugum framljósum er nýr Toyota RAV4 tilbúinn fyrir allt sem lífið leggur á veginn

      Close up image of RAV4 Plug-in Hybrid’s Close up image of RAV4 Plug-in Hybrids 20” alloy wheel
  2. Mynd af fullbúnu mælaborði RAV4
  • Að innan
    1. * Eingöngu í ákveðnum útfærslum
      Mynd af fullbúnu mælaborði RAV4
      Þitt eigið opna rými
      Þægilegt innanrýmið býður upp á gott pláss fyrir fjölskylduna og tækni sem gleður alla – með tveimur þráðlausum hleðslustöðvum*, hnökralausri snjallsímasamþættingu, allt að fimm USB‑tengjum og JBL hljóðkerfi*.
    2. Fyrsta flokks aftursæti

      Farþegar í aftursætum njóta ekki aðeins ríkulegs höfuð‑ og fótarýmis í þægilegum leðursætum, heldur hafa þeir einnig aðgang að USB hleðslutengjum aftan til svo nauðsynleg tæki tæmist ekki.

      Barn les bók í afturrými RAV4 Stelpa situr í aftursæti RAV4 með ipad í hleðslu
  • * Eingöngu í ákveðnum útfærslum
    Horft til himins gegnum glerþakið á RAV4
    Óheft útsýni
    Vítt útsýnisglerþak eykur enn á rýmistilfinningu rúmgóðs innanrýmisins og hleypir meiri birtu inn sem bætir skap og líðan.*
  • Stórt farangursrými í RAV4 fullt af farangri
  • Nýtni
    1. Stórt farangursrými í RAV4 fullt af farangri
      Pláss fyrir öll ævintýri
      Ef þú þarft á því að halda getur Toyota RAV4 flutt það. Rúmgott farangursrýmið ræður við allt frá löngum sumarfríum til heimilisflutninga. Þar er einnig 12 volta tengi til að hlaða tækin á þægilegan hátt.
    2. Ökumaður á RAV4 opnar skottið á bílnum með hreyfiskynjara
      Sveiflaðu til að opna
      Toyota RAV4 er alltaf tilbúinn að auðvelda þér vinnuna. Þegar þú kemur með hendur fullar af varningi opnast rafknúni afturhlerinn þegar fætinum er sveiflað undir afturstuðarann.
    3. Myndbrot sýnir RAV4 GR SPORT að framan, aftan, hjól og merki.
  • GR SPORT
    1. Animation showing RAV4 GR SPORT front, rear, wheel and badge
      Afköst í krafti hönnunar
      Innblásinn af Toyota Gazoo Racing býður GR SPORT ytri hönnun upp á sérhannaðar álfelgur, áberandi grill og einkennandi GR merkingar – fyrir útlit sem endurspeglar sportlega akstureiginleika bílsins.
    2. Horft inn í RAV4 GR SPORT í gegnum ökumannshliðarrúðu, þar sem stýri og mælaborð sjást.
      Innblásinn af aksturskeppnum
      GR SPORT er samofinn kraftmikilli hönnun og ástríðu fyrir afköstum. GR SPORT stýrið, með rauðum saumum og gatasettu leðri, vinnur vel með sport­sætunum og álfótstigunum og setur þig í miðjan stjórnklefann.
  • Aksturseiginleikar

    Sportjeppi í allar aðstæður

    Skilvirkar og áreynslulausar ferðir – afkastamikill drifbúnaður Toyota RAV4 er í boði með framdrifi eða fjórhjóladrifi sem kemur þér hvert sem er. Hvort sem þú velur, nýtur þú einstakrar blöndu af afli, sparneytni og öruggum aksturseiginleikum

    Aksturseiginleikar
    1. Fjórhjóladrif
      1. Alt text TBC
        Snjallt fjórhjóladrif fyrir fulla stjórn
        Nýr RAV4 bætir aksturseiginleika við allar aðstæður, með háþróuðu fjórhjóladrifi og sértækum akstursstillingum fyrir torfæru- og vetrarakstur.
      2. RAV4 ekur eftir torfærum slóða
        Aukið grip, aukin geta
        RAV4 er fáanlegur með AWD‑i snjöllu fjórhjóladrifi sem lagar sig sjálfkrafa að breytilegum aðstæðum og veitir betra grip og aukna afkastagetu – hvort sem þú ert að takast á við krefjandi aðstæður eða draga þungan farm.
      3. Alt text TBC
        Fyrir alla vegi, allar árstíðir
        Sérstakar akstursstillingar veita þér öryggi, sama hvernig undirlagið er. Með einum hnappi virkjast Trail Mode og Snow Mode, sem hámarka getu fjórhjóladrifsins, stýringar og hemlakerfis til að tryggja öruggan akstur við erfiðar aðstæður.
      4. RAV4 driving in the city in snow and rain.
        Traust við allar veðuraðstæður
        Með sitt sterka sportjeppa DNA tekst RAV4 léttilega á við snjó, rigningu og vetraraðstæður. Hann veitir öryggi allt árið um kring, með frábæru gripi og fullri stjórn, og lætur jafnvel erfiðustu akstursskilyrði ekki á sig fá.
      5. RAV4 GR Sport á akstri í borginni
    2. Aksturseiginleikar
      1. RAV4 GR Sport á akstri í borginni
        Stjórnunareiginleikar
        Hvað ef sportjeppinn þinn gæti sett bros á andlit þitt í hvert skipti sem þú sest undir stýri? Lipur og viðbragðsfljótur, með tafarlausu afli og hröðun, RAV4 er einmitt sá bíll – á þjóðveginum, á malarvegum og í borginni.
      2. Kostur þess fyrir ökumanninn að hafa góða sýn vegna hárrar sætisstöðu
        Há sætisstaða og frábært útsýni
        Hækkuð sætisstaða ökumannnsins í RAV4 og vel hönnuð 360° sýn veita þér skýra og örugga yfirsýn yfir veginn fram undan – að bakka, taka framúr og renna sér inn í umferðarröðina verður allt einfaldara og öruggara.
      3. Alt text TBC
        Akstursstillingar
        Með sértækum akstursstillingum geturðu lagað RAV4 að hverri ferð. Veldu kraftmikla SPORT, sparneytna ECO eða jafnvægisstillinguna NORMAL. Með CUSTOM geturðu búið til þína fullkomnu akstursupplifun og stillt RAV4 nákvæmlega eftir þínum akstursstíl.
      4. RAV4 dregur bát meðfram stöðuvatni
    3. Dráttargeta
      1. * Með AWD.
        RAV4 dregur bát meðfram stöðuvatni
        Aukin dráttargeta
        Með allt að 2.000 kg* dráttargetu og aðstoð við akstur með dráttarvagni (Trailer Driving Assist), geturðu dregið allt frá bátum að hjólhýsum á öruggan hátt. Dráttarkrókurinn er einnig samhæfur hreyfiskynjara (kicksensor) rafknúna afturhlerans.
    • PLUG-IN HYBRID

      Aflrás
      Plug-in Hybrid
      Afl
      116 DIN hö
      Eyðsla
      væntanlegt
      CO₂ útblástur
      væntanlegt
      Hröðun 0–100 km/klst
      9.7 sek
      Hleðsla / áfylling
      Plug-in / Bensín
      EV drægni
      100 km**
    • HYBRID

      Aflrás
      Hybrid
      Afl
      130 DIN hö
      Eyðsla
      5.2-5.7 l/100 km*
      CO₂ útblástur
      117-130 g/km*
      Hröðun 0–100 km/klst
      9.2 sek
      Hleðsla / áfylling
      Sjálfhlaðandi / Bensín
      EV drægni
      - á ekki við

    Tækni

    Snjöll, hnökralaus tenging

    Toyota Connect kynnir margmiðlunarupplifun næstu kynslóðar með hraðvirkri vinnslu, skýrum og einföldum valmyndum og háþróaðri raddstýringu. Einföld og fáguð hönnunin býður upp á sérstillanlegan heimaskjá svo allt sem þú vilt, sé alltaf innan seilingar.

    Technology
    1. Stafrænn stjórnklefi
      1. Short film showing the RAV4 passenger using the multimedia screen to customise
        Hannað fyrir leiðandi og einfaldar stýringar
        Stafræni heimurinn þinn fylgir þér í nýja RAV4. Hafðu fulla stjórn með notendavænni margmiðlun og skýrum, auðlesanlegum upplýsingaskjá í mælaborði RAV4.
      2. Nútímalegt ökumannsrými RAV4 með 12,3 tommu margmiðlunarskjá og 12,3 tommu stafrænum mælaskjá
        Góð upplifun
        12,9" margmiðlunarskjárinn og 12,3" stafræni mælaborðsskjárinn vinna saman í fullkomnu samspili og birta lykilupplýsingar á skýran og auðlesanlegan hátt. Notendavænar stýringar og nákvæm raddstýring tryggja að þú hafir alltaf stjórnina.
        Miera um tengdar þjónustur
      3. Alt text TBC
        Dragðu, veldu, tengstu
        ToyotaConnect býður upp á alveg nýtt og einfalt notendaviðmót með sérsníðanlegum heimaskjá, snjöllum græjum (e. widgets) og nýjum tengdum þjónustum – þar á meðal skýjamiðaðri leiðsögn – sem tryggir hnökralausa og uppfærða akstursleiðsögn í rauntíma.
        Meira um tengdar þjónustur
      4. Alt text TBC
        Snjallar upplýsingar, einföld stjórnun
        12,3" stafræni mælaborðsskjárinn (e. Combimeter) birtir lykilupplýsingar eins og akreinaaðstoð, leiðsögn og miðlun á skýran hátt. Hnappar á stýrinu gera þér kleift að stilla sýn og virkni fljótt og örugglega, þannig að truflun er haldið í lágmarki.
        Meira um tengdar þjónustur
      5. Sjónlínuskjár í RAV4
        Hafðu augun á veginum
        Nýr RAV4 er með háþróaðan Sjónlínuskjá (e. Head‑Up display) sem varpar akstursupplýsingum og leiðsögn beint á framrúðina í beinni augsýn, þannig að þú getur haldið augunum á umferðinni á meðan þú ekur.
      6. Mobile phone showing remote climate control function on screen
    2. Tengdar þjónustur
      1. Tegdar þjónustur

        Þú hefur fulla stjórn beint úr símanum.

        MyToyota appið er hannað til að einfalda daglegt líf með fjölbreyttum tengilausnum. Í snjallsímanum geturðu fylgst með stöðu bílsins, skoðað hleðslu drifrafhlöðu‑ eða eldsneytismagn, fundið hvar bíllinn er lagður, séð nærliggjandi hleðslustöðvar og jafnvel skipulagt eða fylgst með hleðslulotum.

      2. Eigandi notar tengdar þjónustur í MyToyota appinu
        Hafðu stjórn á hlutunum – úr fjarlægð
        Njóttu aukinna þæginda með fjarstýringareiginleikum MyToyota appsins. Læstu eða aflæstu bílnum hvar sem þú ert og notaðu fjarstýrða hitastýringu til að stilla kjörhitastigið í innanrýminu áður en lagt er af stað - svo bíllinn er tilbúinn þegar þú ert það.
        Meira um tengdar þjónustur
      3. Nærmynd af Toyota Heimahleðslu sem styður Toyota Smart Charging lausnina
        Toyota Snjallhleðsla
        Toyota Snjallhleðsla stillir heimahleðsluna sjálfkrafa eftir þínum daglegu venjum, orkuverði og stöðu rafhlöðunnar, þannig að bíllinn hleðst þegar raforka er ódýrari og framboð endurnýjanlegrar orku er yfirleitt meira. Stilltu í MyToyota appinu, tengdu bílinn í samband og vaknaðu með fullhlaðinn bíl – tilbúinn í daginn.
      4. *Android og Google Wallet eru vörumerki Google LLC. Aðeins í boði á völdum mörkuðum og útfærslum. Krefst samhæfs tækis og stýrikerfisútgáfu. Smelltu á „Nánari upplýsingar“ neðst á síðunni til að fá tengla á Apple Support og Android Help um hvernig á að stjórna Smart Digital Key+ í veskis appinu (e. wallet).
        Ökumaður RAV4 nálgast bílinn og notar farsíma sem stafrænan snjalllykil
        Notaðu símann í stað lykils
        Stafrænn snjalllykill (e.Smart Digital Key+) gerir þér kleift að læsa, aflæsa og ræsa bílinn beint úr Apple‑ eða Android™ snjallsímanum*, án þess að taka símann upp úr vasanum**, og gerir þér jafnframt kleift að deila aðgangi á öruggan hátt með allt að sex öðrum notendum. Lausnin er samþætt við Apple Wallet, Samsung Wallet og Google Wallet™* – snjöll, hnökralaus og alltaf með þér.
        Frekari upplýsingar

    Ímyndaðu þér möguleikana

    Með nýjum RAV4 hefst sérstök saga. Saga ungrar stelpu sem sér RAV4 ekki bara sem fjölskyldubílinn sinn, heldur sem stórt, snjallt og hátæknivætt vélmenni – alltaf tilbúið í ævintýri. Fylgstu með þeim í ótrúlegri ferð, allt frá kraftmiklum akstri um borgargötur til fjörugra augnablika í stórbrotinni náttúru. Uppgötvaðu söguna þeirra, snjöllu tæknina í nýja RAV4 og ímyndaðu þér möguleikana á alveg nýjan hátt.
    Horfa

    Algengar spurningar

    1. Allar

    Hybrid‑ og Plug‑in Hybrid‑bílar byggja á svipaðri tækni – en þar er einn lykilmunur. Báðir skipta snurðulaust á milli tveggja orkugjafa: sparneytinnar bensínvélar og rafknúins aflrásar sem samanstendur af rafhlöðu og einum eða fleiri rafmótorum. Plug‑in Hybrid bílar eru hins vegar með stærri rafhlöðu, sem skilar meiri rafdrifnum afköstum og lengri akstursvegalengd eingöngu á rafmagni í EV‑stillingu.

    Toyota RAV4 Plug-in Hybrid getur ekið á rafmagni eingöngu í allt að 100 km* - án útblásturs. Ef hleðsla rafhlöðunnar verður lítil meðan á lengri akstri stendur skiptir bíllinn snurðulaust aftur yfir í að vera eins og Hybrid bíll sem sameinar bensín og endurheimtar rafhlöðuhleðslu til að koma þér á áfangastað.

    *Óstaðfest áætluð drægni samkvæmt WLTP stöðlum  

    Hægt er að setja bílinn í samband í venjulega heimilisinnstungu en við mælum með uppsetningu hleðslustöðvar fyrir öruggari og skilvirkari hleðslu. 

    Plug‑in Hybrid bílar geta hjálpað þér að spara peninga á margvíslegan hátt.
    Regluleg hleðsla dregur verulega úr eldsneytisnotkun og eigendur Plug‑in Hybrid bíla njóta í sumum löndum skattaívilnana og undanþága frá gjöldum í miðborgum og á svæðum með lága losun.

    Rafhlöður Plug-in Hybrid bíla frá Toyota eru hannaðar til að endast líftíma bílsins. Til að auka hugarró fylgir hverri rafhlöðu fimm ára / 100.000 km* ábyrgð sem hægt er að framlengja í allt að 10 ár með árlegri Hybrid prófun. Að loknum endingartíma rafhlöðunnar tryggir endurheimtaráætlun Toyota að rafhlöðunni sé fargað á öruggan og ábyrgan hátt.
       

     *Hvort sem fyrr kemur

    Í Toyota Hybrid bílum vinna bensínvélin og rafmótorinn saman. Rafmótorinn getur annað hvort hjálpað vélinni eða ekið bílnum einn og sér við ákveðnar aðstæður.

    Þegar bílnum er ekið eða hemlað, safnar hann orku og breytir henni í rafhlöðuorku með svokallaðri hleðsluhemlun. Þannig nýtist orkan betur og eldsneytisnotkun minnkar.

    Toyota Hybrid bílar hlaða sig sjálfir og þarf því ekki að stinga þeim í samband.

    Það er einfalt að nota Toyota Hybrid bíl í daglegu lífi. Þú fyllir hann á bensínstöð, alveg eins og hefðbundinn bensínbíl.

    Toyota Hybrid bílar nota bæði bensín og rafmagn.

    Þeir eru í grunninn bensínbílar með rafstuðningi sem hjálpar til við að nýta orkuna betur. Þegar bílnum er ekið eða hemlað safnar hann orku og geymir hana í rafhlöðu. Sú orka er síðan notuð aftur til aksturs.

    Þannig fer minni orka til spillis og eldsneytisnotkun minnkar. Toyota Hybrid bílar eru sjálfhlaðandi og þarf því ekki að stinga þeim í samband.

    Allir Toyota Hybrid bílar hafa sjálfhlaðandi Hybrid rafhlöðu og bensínvél. Þeir eru tvinnbílar (e. Hybrid) vegna þess að þeir nota bæði eldsneyti og rafmagn til þess að framleiða orku fyrir bílinn. Ólíkt 100% rafmagnsbíl þá þarf ekki að setja þá í samband til að hlaða.

    Toyota hefur verið að þróa sjálfhlaðandi Hybrid tækni í yfir 30 ár.  Sala á Hybrid bílum er næstum helmingur allra sölu okkar í Evrópu og mun tæknin veita sterka undirstöðu fyrir nýja rafmagnsbíla Toyota á næsta áratug.

    Byltingarkennda rafhlaðan í Hybrid bílunum okkar er hönnuð til að endast líftíma bílsins og fyrstu kynslóðar Prius er lifandi sönnun þess, en það má finna fyrstu kynslóðar Priusa á götunni sem hafa komist milljón kílómetra á sömu rafhlöðunni og sömu vél.

    Til eru þrjár gerðir af Hybrid bílum: Mild Hybrid, Full Hybrid (Toyota Hybrid) og Plug‑in Hybrid. Allir nota bæði bensín og rafmagn.

    Mild Hybrid notar rafmagn aðeins til að styðja bensínvélina og getur ekki ekið á rafmagni einn og sér.

    Toyota Hybrid (Full Hybrid) getur ekið eingöngu á rafmagni í stórum hluta borgaraksturs og notar síðan bensín og rafmagn saman við meiri hraða.

    Snjallhleðsla (Smart Charging) býður upp á snjallari og skilvirkari leið til að hlaða rafbíl eða Plug‑in Hybrid. Hún gerir þér kleift að stýra því hvenær og hvernig bíllinn er hlaðinn. Með þessu miðar snjallhleðsla að því að hjálpa þér að spara peninga, nota minni orku og draga úr álagi á raforkukerfið.

    Til að setja upp snjallhleðslu (Smart Charging) þarftu Toyota‑ eða Lexus‑rafbíl (EV) eða Plug‑in Hybrid bíl (PHEV), Toyota eða Lexus heimahleðslu vegghleðslustöð og aðgang að raforkumæli heimilisins. MyToyota appið er einnig nauðsynlegt til að setja upp og stýra þessari virkni. 

    Hleðslutímasetningar snjallhleðslu eru reiknaðar sjálfkrafa út frá þínum stillingum.
    Þú getur valið brottfarartíma og æskilegt hleðslustig rafhlöðunnar og kerfið hámarkar skilvirkni hleðslunnar þannig að bíllinn sé tilbúinn þegar þú þarft á honum að halda.

    Snjallhleðsla miðar að því að hámarka tímastillingu orkunotkunar bílsins, þannig að hleðsla fari fram þegar rafmagn er ódýrara og umhverfisvænna. Þú getur einnig dregið úr heildarorkunotkun heimilisins með því að stilla hversu hátt hlutfall hleðslu þú vilt á rafhlöðuna (undir fulla hleðslu) á þeim tímum sem þú þarft ekki 100% hleðslu.

    Snjallhleðsla miðar að því að lækka hleðslukostnað heima með því að stilla hleðsluna sjálfkrafa út frá raforkutaxta þínum og þínum óskum. Kerfið býr til persónulegar hleðsluáætlanir sem færa hleðslutímann yfir á hagkvæmustu tímana.

    Hægt er að virkja snjallhleðslu (Smart Charging) eftir að þú hefur bætt bílnum þínum og heimahleðslu vegghleðslustöðinni við MyToyota appið. Þegar snjallhleðsla er virk þarftu einfaldlega að skrá upplýsingar um raforkutaxta heimilisins, hvenær þú þarft að nota bílinn og hversu mikla hleðslu þú vilt (allt að 100% - full hleðsla). Snjallhleðsla nýtir þessar upplýsingar til að búa til persónulegar hleðsluáætlanir sem miða að því að lágmarka hleðslukostnað, án þess að skerða þínar þarfir fyrir daglegan akstur.

    Raunverulegur sparnaður með snjallhleðslu getur verið mismunandi og ræðst af raforkutaxta og hleðsluvenjum.

    Þú getur uppfært orkutaxtann þinn hvenær sem er. Smelltu á stöðu rafhlöðu (battery status) og farðu í „Smart Charging“. Veldu síðan „Smart Charging Settings“ og uppfærðu upplýsingar um „Energy tariff“ (orkutaxta).