RAV4 var byggður til að vera keyrður og hannaður til að skera sig úr. Öflug sjálfhlaðandi hybrid vélin býður upp á frábært drægi til að þú njótir kosta rafbílsins, eins og hljóðláts aksturs og aukinnar sparneytni, fyrirhafnarlaust. Innanrými bílsins er þægilegt og rúmgott. Í RAV4 getur þú liðið um borgina, haldið út í víðáttuna og notið akstursins til fullnustu.
Nýr og endurbættur RAV4, Eftirtektarvert útlit og snjallar tækninýjungar.
Sterkbyggð yfirbyggingin undirstrikar fáguð LED framljósin, áberandi hliðarútlínur og einstök LED afturljósin gefa bílnum einstakt, fágað útlit. Kraftmikið jeppayfirbragð RAV4 sýnir að hér fer öflugur bíll.
Framúrskarandi, fágaður og rúmgóður. Innanrýmið í RAV4 er nútímalegt og búið nytsamlegri tækni. RAV4, ekkert hálfkák.
Í RAV4 finnurðu óviðjafnanlegt jafnvægi rýmis, akstursþæginda, afls og akstursgetu við allar aðstæður. Hið framsækna nýja heildræna byggingarlag Toyota (TNGA*) gerir verkfræðingum Toyota kleift að hafa bílinn léttari með lægri þyngdarmiðju, traustari undirvagni og betra útsýni fyrir ökumann. *Toyota New Global Architecture.
RAV4 er sportjeppi sem er byggður fyrir akstur – og hannaður fyrir þá sem vilja skera sig úr. Ásamt því að búa yfir fjölbreyttum öryggiseignleikum sem auka akstursöryggi og sjálfstraust við akstur.
RAV4 veitir þér sjálfsöryggi við akstur í hvaða aðstæðum sem er, allt frá greiðum akstri á þjóðvegum til umferðarteppu í borgum með ýmis konar takmörkunum og krefjandi vegaskilyrðum.
Hannaðu þinn RAV4
Ökumaður situr hærra og með betra útsýni en áður ásamt því að sætin eru hönnuð til að tryggja hámarks þægindi, Breitt aftursæti veitir veglegt axlarými og rúmgott fótrými gerir farþegum kleift að teygja vel úr sér.
Toyota Safety Sense öryggiskerfið hefur fengið snjallar viðbætur, aukin akstursaðstoð sem aðstoðar þig við aksturinn, en engar áhyggjur þú ert alltaf við stjórnvölinn.
Kynntu þér Toyota Safety SenseKynntu þér málið
Við notum kökur á vefsíðunni okkar til að þjóna þér betur og til að upplifun þín sé sem best. Ef þú vilt kynna þér frekar köku stillingarnar þá getur þú gert það hér - skoða stillingar.