Fjármögnun
Toyota býður upp á fjármögnunarlausnir fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki, sem laga sig að þínum þörfum – hvort sem þú ert að kaupa bíl til einkanota eða byggja upp bílaflota. Fyrir þá sem vilja einfaldleika og fyrirsjáanlegan kostnað er KINTO One langtímaleiga frábær kostur: allt innifalið í einum mánaðargreiðslum, þar á meðal tryggingar, þjónusta og dekk. Þú velur lausnina – Toyota sér um rest.
Fjármögnun einstaklinga
Möguleikar við fjármögnun einstaklinga
Fjármögnun fyrirtækja
Möguleikar við fjármögnun fyrirtækja
Kinto
Kynntu þér þægindin sem fylgja KINTO langtímaleigu
Hugarró
Með Toyota Tryggingum ertu tryggð/ur frá fyrsta starti – einfalt og þægilegt ferli þar sem þú getur gengið frá tryggingum strax við kaupin. Til að bæta enn frekar við öryggið býður Toyota Relax upp á þjónustutengda ábyrgð, þar sem þú getur fengið allt að 12 mánaða viðbótarábyrgð í hvert sinn sem bíllinn er þjónustaður hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota, allt þar til hann nær 10 ára aldri eða 200.000 km akstri.
Toyota Tryggingar
Óhöppin gera ekki boð á undan sér. En með Toyota tryggingu hjá TM í farteskinu gætir þú samt hrósað happi. Afnot af bílaleigubíl á meðan við gerum við bílinn þinn og við skilum honum til þín tandurhreinum að utan að viðgerð lokinni.
Toyota Relax
Toyota Relax er í boði þar til Toyota bifreið hefur náð 10 ára aldri eða verið keyrð 200.000 km eða meira – hvort sem fyrr kemur.
MyToyota appið
Nýja MyToyota appið býður upp á úrval af tengdum þjónustum fyrir þinn Toyota sem er hannaðar til að gera lífið auðveldara.
Alltaf tengdur
MyToyota appið er hannað fyrir framtíðina, það mun þjóna þér sem aðal tengiliður milli ökumanns og ökutækis.
Taktu stjórnina – jafnvel úr fjarlægð
Njóttu aukinna þæginda með fjarstýringareiginleikum MyToyota appsins*. Læstu eða opnaðu bílinn hvar sem þú ert og notaðu fjarstýrða loftstýringu (Remote Climate) til að stilla kjörhitastigið í farþegarýminu áður en lagt er af stað.*Framboð tengdrar þjónustu og tæknibúnaður getur verið mismunandi eftir gerðum, útfærslum og markaðssvæðum.
Leiðsögn
Haltu tengingu á ferðinni með leiðsögukerfi í rauntíma.* Kerfið er stöðugt uppfært með nýjustu upplýsingum og veitir meðal annars upplýsingar um staðsetningar hraðamyndavéla ásamt upplýsingum um staðsetningu hleðslustöðva og áhugaverðra staða (POI). Þetta tryggir öruggan, þægilegan og vel skipulagðan akstur – hvert sem leiðin liggur. *Innifalið í Smart Services fyrstu 4 árin með möguleika á endurnýjun gegn áskrift að þeim tíma liðnum.
Ábyrgð og þjónusta
Meiri öryggi frá fyrsta degi. Allir nýir Toyota bílar koma með 7 ára ábyrgð (3+4) sem veitir aukna hugarró. Að auki fylgir 3 ára þjónusta fyrstu 45.000 km eða 3 ár, hvort sem fyrr kemur.* *Km fjöldi er annar fyrir Proace bíla
7 ára ábyrgð
7 ára ábyrgð fylgir öllum nýjum bílum
3 ára þjónusta
fylgir öllum nýjum bílum