1. Bílar
Byrjar í (m. vsk)
7.850.000 kr.
WLTP
Blandaður akstur l/100km
0.5 l/100 km

Útfærslur

Velja útfærslu

3 Valmöguleikar

Engin niðurstaða

  • Prius Plug-in - Premium - Hatchback

    Prius Plug-in Premium

    Hybrid
    Hatchback
    • +
      Bakkmyndavél
    • +
      Blindsvæðisskynjari
    • +
      eCall-neyðarsamskiptakerfi

    Veldu vél


    Frá

    8.150.000 kr.

    Sjálfskiptur | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0.7 l/100 km
  • Prius Plug-in - Active Plus - Hatchback

    Prius Plug-in Active Plus

    Hybrid
    Hatchback
    • +
      Bakkmyndavél
    • +
      Blindsvæðisskynjari
    • +
      eCall-neyðarsamskiptakerfi

    Veldu vél


    Frá

    7.850.000 kr.

    Sjálfskiptur | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0.5 l/100 km
  • Prius Plug-in - Premium Plus - Hatchback

    Prius Plug-in Premium Plus

    Hybrid
    Hatchback
    • +
      Bakkmyndavél
    • +
      Blindsvæðisskynjari
    • +
      eCall-neyðarsamskiptakerfi

    Veldu vél


    Frá

    9.050.000 kr.

    Sjálfskiptur | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0.7 l/100 km

Sama nafn, ný táknmynd

Endurhannaður Prius Plug-in Hybrid fer frammúr öllum væntingum. Flottari og sparneytnari en nokkur sinni fyrr og algjörlega óhræddur við að vera hann sjálfur. Táknmynd framfara.

Möguleikarnir eru endalausir
Bíll sem sker sig úr
Coupé hönnun með mikið notagildi
Goðsagnakennt nafn, nýr stíll
Sólarsella á þaki
Hleðsla

Möguleikarnir eru endalausir

Ekkert gefur betri mynd af listrænu samspili hönnunar og verkfræði í Prius en Skyview-þakglugginn* sem baðar innanrýmið í sólarljósi. * í boði fyrir Lounge-útfærslu.

Bíll sem sker sig úr

Nýr Prius er fremstur í flokki á allan hátt, með útlit sem grípur augað. Öflugar 19 tommu felgur sigrast á beygjunum með einstökum stíl.

Coupé hönnun með mikið notagildi

Oft bíður útlit lægri hlut gagnvart notagildi. En svo er ekki hér. Hurðarhúnar á afturhurðum hins nýja Prius eru faldar í C-stoðum til að 'coupé' línurnar flæði óhindrað.

Goðsagnakennt nafn, nýr stíll

Prius. Þú þekkir nafnið. En útlitið er eitthvað alveg nýtt, ekki síst einkennandi afturljósabúnaðurinn á hinum nýja Prius Plug-in Hybrid.

Sólarsella á þaki

Sólarselluþakið* umbreytir sólskini í raforku og knýr þig áfram þér að kostnaðarlausu. Þakið getur framleitt rafmagn fyrir allt að 8 km drægni á dag – eða 1200 km á ári. *Staðalbúnaður í Lounge+ útfærslu

Hleðsla

Nýttu Prius Plug-in Hybrid til fulls með reglulegri hleðslu, heima eða á ferðinni. Tíð hleðsla nýtir aflrásina best, dregur úr eldsneytisnotkun og tryggir meiri aksturstíma í EV-stillingu.

Kröftugt útlit

Nýstárlegur andi nýja Prius endurspeglast í einkennandi hönnun hans. Nýr Prius Plug-in Hybrid er fallega straumlínulagaður í útliti þar sem lág þaklína og hönnun sem einkennir tveggja dyra bíla er áberandi. Þetta er Prius í glænýrri útfærslu, með rennilegu yfirbragði.

Með góða stjórn
Staður til að slaka á
Fáguð hönnun
Hugvitssamleg lýsing

Með góða stjórn

Miðjustokkurinn er vel hannaður. Hann er flottur ásamt því að vera notagóður með glasahöldurum, geymsluhólfi fyrir farsíma, hleðslutengjum og nettri gírstöng.

Staður til að slaka á

Þökk sé þæginleum sætum og góðu fótarými er nýi Priusinn frábær staður til að slaka á.

Fáguð hönnun

Samsvarandi hönnun mælaborðs og sæta búa til heildræna og fágaða innréttingu.

Hugvitssamleg lýsing

Umhverfislýsingin skapar afslappað andrúmsloft, en hún getur einnig blikkað og varað við mögulegum hættum.

Hemili að heiman

Nýstárlegur að innan sem utan. Rúmgóð og fáguð innrétting með sportlega en jafnframt þæginlega akstursstöðu sem undirstrika framúrstefnulegan karakter Prius.

Kynntu þér nýjan Prius Plug-in Hybrid

Smelltu á bílinn hér að neðan til að skoða 360° mynd af nýjum Prius Plug-in Hybrid.

*Aðeins ein útfærsla af þessari gerð er sýnd og því er þetta ekki lýsandi fyrir alla vörulínuna.  Tæknilýsingar geta verið mismunandi eftir þínu markaðssvæði. 

  • Tvær aflrásir, einn tilgangur: Frelsi

    Plug-in Hybrid-tæknin skilar afli án málamiðlana. Innanbæjar nær nýr Prius meira en 72 km* drægi á rafmagni. Með 2,0 lítra vél eru engin takmörk á því hvaða staði þú getur kannað. Þessi tvískipta aflrás veitir aukið frelsi þar sem þú getur auðveldlega hlaðið bílinn heima eða á hleðslustöðvum.

    * Blandaður akstur, háð akstursaðstæðum og gerð.

     

Heillandi akstur

Af hverju að velja á milli sparneytni og aksturseiginleika? Nýr Prius Plug-in Hybrid sameinar rafmagns- og vélarafl í gefandi akstursupplifun. Sportleg akstursstaða, lipur stýring og mikill stöðugleiki stuðla að öflugum afköstum.
  • Meiri kraftur, betri hröðun Nýr Prius skilar 223 hö. sem veita frábæra hröðun á augabragði. Í utanbæjarakstri getur nýr Prius farið úr kyrrstöðu í 100 km/klst. á aðeins 6,8 sekúndum.
  • Snjall akstur með Hybrid-þjálfun Hybrid-þjálfunareiginleikinn í MyT-forritinu greinir gögn til að auka sparneytni við akstur. Eiginleikinn hámarkar aksturstíma í rafhlöðuknúinni EV-stillingu og sparar þannig eldsneyti.
  • Stillingar fyrir allar aðstæður Nýr Prius býður upp á akstursstillingar sem þú getur valið eftir þörfum hverju sinni. Eco eykur sparneytni en Sport býður upp á liprari og viðbragðsfljótari akstur. Normal er þar mitt á milli. Einnig er hægt að velja EV-stillingu til að aka eingöngu á rafmagni.
  • Öflug tækni, innbyggð og hnökralaus

    Þú ert við stjórnvölinn í nýjum Prius Plug-in Hybrid. Viðbragðsfljótur 12,3 tommu snertiskjár veitir skjótan aðgang að ýmsu efni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu akstursupplýsingum á 7 tommu TFT-fjölnotaskjá fyrir ökumann.

Hleðsla

 

  • Sólarsella á þaki

    Nýr Prius Plug-in Hybrid getur breytt sólarorku í hreyfiafl. Sólarsella á þaki breytir sólarljósi í raforku og veitir allt að 8 km viðbótardrægi á rafmagni á dag.

  • Hlaðið heima við

    Gættu þess að þinn Prius Plug-in Hybrid sé alltaf tilbúinn í akstur á rafmagni með því að hlaða hann heima við. Þú getur fullhlaðið hann á u.þ.b. 4 klukkustundum* með venjulegri innstungu eða heimahleðslustöð. Fylgstu með hleðslustöðu bílsins í MyT-forritinu í símanum.

    *Nákvæmur hleðslutími er breytilegur eftir hleðsluskilyrðum. 

  • Hleðsla á hleðslustöðvum

    EV-stillingin í Prius Plug-in Hybrid er tilvalin til notkunar í þéttbýli. Á ferðinni er hægt að nota hleðslustöðvar fyrir almenning til að aka um án útblásturs.

Stjórnaðu bílnum úr símanum

Með MyT-forritinu ertu alltaf í tengingu við þinn Prius. Þú getur til dæmis notað það til að forkæla farþegarýmið á hlýjum degi eða til að athuga hvort bíllinn sé læstur þegar þú ert annars staðar. MyT-forritið hjálpar þér einnig að fylgjast með hleðslustöðu rafhlöðunnar og fá sem mest út úr aukinni rafmagnsgetu Prius.
Skoða nánar

Toyota T-mate. Tryggir öruggari ferðir

Öryggi Prius Plug-in Hybrid er leiðandi í flokki sambærilegra bíla, þökk sé akstursaðstoðarkerfinu T-Mate. T-Mate er samsett kerfi sem eykur öryggi við akstur, hvort sem ekið er innan- eða utanbæjar eða þegar bílnum er lagt. T-Mate tryggir öryggi þitt öllum stundum. Hér að neðan eru nokkur helstu atriði. Kynntu þér allt sem T-Mate býður upp á fyrir Prius Plug-in Hybrid á hönnunarsvæðinu.
  • Árekstrarviðvörunarkerfi (PCS)

    Árekstrarviðvörunarkerfið getur greint og aðstoðað þig við að forðast árekstra við önnur ökutæki, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og mótorhjól. Það varar ökumann við með hljóðmerkjum, sjónrænum viðvörunum og hemlunaraðstoð. Takist ökumanninum ekki að hemla í tæka tíð eru hemlarnir virkjaðir sjálfkrafa til að komast hjá árekstri eða draga úr höggi. Ofan á þetta bætist svo stuðningur árekstrarvarnarkerfis fyrir gatnamót og neyðarstýrisaðstoðar þegar beygt er á gatnamótum og þegar sveigt er fram hjá hættu.

  • Fyrirbyggjandi akstursaðstoð (PDA) – stýrisaðstoð (SA)

    Þetta kerfi aðstoðar ökumanninn við að halda bílnum á akreininni. Kerfið greinir beygjuna fram undan og aðlagar stýrisaðstoðina eftir þörfum. Það getur einnig stutt við akstur í beinni línu.

  • Aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu (SEA)

    Þetta kerfi notar blindsvæðisskynjarann til að passa að hurð sem farþegi opnar rekist ekki á bíl eða hjólreiðafólk sem nálgast aftan frá. Ef hætta er á árekstri kvikna ljós á ytri speglunum og fjölnota upplýsingaskjánum, auk þess sem hljóðmerki varar farþegana við.

  • Ökumannsskynjaramyndavél (DMC)

    Þetta kerfi notar myndavél fyrir ofan stýrið til að fylgjast með árvekni og ástandi ökumanns. Viðvörun er gefin ef kerfið greinir óeðlilega stöðu, svo sem þreytu. Upplýsingarnar eru notaðar til að skerpa á afköstum neyðarstöðvunarkerfisins með snemmbúinni greiningu á skertri athygli.

  • Neyðarstöðvunarkerfi (EDSS)

    Ef kerfið skynjar aðgerðaleysi frá ökumanni í tiltekinn tíma gera hljóðviðvaranir ökumanninum viðvart. Ef ekkert gerist stöðvar neyðarstöðvunarkerfið bílinn hægt og rólega og heldur honum öruggum á sömu akrein. Kveikt er á hættuljósunum til að vara aðra vegfarendur við og dyrnar eru teknar úr lás til að tryggja neyðarþjónustuaðilum greiðan aðgang ef þörf krefur.

  • Toyota Safety Sense með þráðlausum uppfærslum

    Þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur tryggja að Toyota Safety Sense (TSS) sé uppfært með nýjustu eiginleikum og endurbótum

  • Háþróað fjarstýrt bílastæðakerfi

    Þetta kerfi gerir ökumanni kleift að leggja bílnum með snjallsímanum þegar hann stendur fyrir utan bílinn. Það er einfalt og auðvelt í notkun og styður allar gerðir bílastæða. Til að auka öryggið stöðvast bíllinn samstundis ef notandinn tekur fingur af snjallsímanum.​

Toyota Prius Plug-in myndasafn

Skoðaðu hinn stórkostlega Prius Plug-in Hybrid frá öllum sjónarhornum.

 

Algengar spurningar

Hybrid- og Plug-in Hybrid-bílar nota báðir sömu áreiðanlegu Toyota Hybrid Synergy Drive-tæknina, en þó er ákveðinn munur á þeim. Toyota Plug-in Hybrid eru með mun öflugri rafhlöðu og meira drægi á rafmagni – meira en 72km* í tilviki Prius Plug-in Hybrid.

 

Einnig er hægt að hlaða Plug-in Hybrid-bíla með ytri aflgjafa, til dæmis með heimilisinnstungu, á sérstakri heimahleðslustöð eða á hleðslustöð fyrir almenning. Toyota Plug-in Hybrid-bílar keyra í Hybrid-stillingu jafnvel þegar þeir eru ekki hlaðnir en sparneytnast er að hlaða eins oft og hægt er.

 

Þegar Toyota Hybrid-bílar eru í Hybrid-stillingu skipta þeir snurðulaust á milli tveggja aflgjafa – sparneytinnar bensínvélar og snjallrar sjálfhlaðandi Hybrid-rafhlöðu. Þetta býður upp á mikinn sveigjanleika, sérstaklega í lengri ferðum.

 

* Blandaður akstur, háð akstursaðstæðum og gerð.

Nýr Prius er viðbragðsfljótur og kraftmikill og veitir öfluga og ánægjulega akstursupplifun. Hann kemst úr 0 í 100 km/klst. á aðeins 6,8 sekúndum, þökk sé góðri spyrnu og 223 ha. (DIN) heildarafköstum.

 

Nýr Prius með tvískiptri aflrás er sparneytnari en hefðbundnir bílar. Hann notar minna af eldsneyti og losar minni koltvísýring. Prius Plug-in Hybrid býður einnig upp á alla kosti þess að aka á rafmagni, allt frá öflugu og tafarlausu togi til næstum hljóðlauss aksturs í þéttbýli.

Nýr Prius býður upp á nokkrar akstursstillingar, þar á meðal EV-stillingu sem gerir þér kleift að ferðast hvert sem er á rafmagni án útblásturs. Prius Plug-in Hybrid er með meira en 72 km* drægi á rafmagni eingöngu. Ekki nóg með það heldur nær hann 135 km hraða á klst. með rafakstri í EV-stillingu, með fulla inngjöf**. Í ferðum sem eru lengri en drægi rafmagns leyfir er Prius Plug-in Hybrid eins og Hybrid-bíll og notar bæði bensínafl og endurheimta rafhlöðuhleðslu.

 

* Blandaður akstur, háð akstursaðstæðum og gerð.

**Háð nægilegri hleðslustöðu

Heimilisinnstunga

 

Einfalt er að hlaða Prius Plug-in Hybrid á heimilinu og hægt er að tímastilla hleðslu til að nýta lægra verð á næturnar og utan álagstíma, sem dregur úr rekstrarkostnaði.

 

Heimahleðslustöð

 

Nýr Prius Plug-in Hybrid er upp á sitt besta þegar hann er hlaðinn reglulega. Þægilegast og öruggast er að hafa aðgang að heimahleðslustöð. Fylgstu með og stýrðu hleðslu úr fjarlægð með MyT-forritinu.

 

Hleðslustöðvar fyrir almenning

 

Hleðslustöðvar fyrir almenning eru fljótleg og einföld leið til að tryggja að Prius sé hlaðinn reglulega. Með MyT-forritinu getur þú athugað tímann sem eftir er í fulla hleðslu, mjög gagnlegt þegar þú notar hleðslustöðvar fyrir almenning.

Það tekur um fjórar klukkustundir (230 V 16 A) að hlaða Prius Plug-in Hybrid frá 0-100%. Nákvæm tímalengd fer eftir hleðsluskilyrðum.

Dagleg hleðsla hjálpar þér að hámarka akstursgetu bílsins á rafmagni og fá sem mest út úr notkun hans.

 

Mýkt í akstri

 

Með því að huga að aksturslaginu eykur þú sparneytni rafbílsins í akstri á rafmagni og skilar hámarksafköstum í hverri ferð.

 

Endurnýting hemlaafls

 

Endurheimt hreyfiorku við hemlun hleður rafhlöðuna aftur og hægir sjálfkrafa á bílnum þegar þú lyftir fæti af eldsneytisgjöfinni. Nýr Prius gerir þér kleift að stilla hversu mikil hemlaorka er endurheimt.

 

Forhitun farþegarýmis

 

Með fjarstýrðri forstillingu hitastigs nærðu fullkomnu hitastigi í innanrýminu óháð veðri. Kældu eða hitaðu bílinn áður en þú ferð af stað án þess að það komi niður á rafhlöðunni.

Regluleg hleðsla hefur marga kosti í för með sér hvað varðar akstur á rafmagni, þar á meðal minni útblástur og lægri rekstrarkostnað. Svo lengi sem eldsneyti er á bílnum getur Prius ekið í Hybrid-stillingu þegar rafhlaðan er tóm.

Toyota hannar allar rafhlöður til að endast út líftíma bílsins. Hverri rafhlöðu fylgir 5 ára /100.000 km* ábyrgð sem hægt er að framlengja í allt að 10 ár með árlegri Hybrid-prófun.

 

*Hvort sem er fyrr