Gæði, ending og áreiðanleiki
Undirbygging og yfirbygging Hilux hefur verið endurhönnuð, á grundvelli rómaðrar hörku og áreiðanleika fyrri gerða, til að gera hann enn harðari í horn að taka, en um leið er undirvagninn breiðari, sterkari og öruggari en áður. Allir íhlutir Hilux hafa verið smíðaðir með það að markmiði að standast erfiðustu próf sem til eru. Nýja undirbyggingin stuðlar einnig að bættri stýringu og þægindum í akstri og virkar samhliða nýja fjöðrunarkerfinu og nýrri hönnun gírhlutfalls.