1. Bílar
  2. Væntanlegir bílar
  3. Land Cruiser
  4. Forpontun

Forpöntun á Toyota Land Cruiser 250

FRÁTEKTARFERLIÐ Í ÞREMUR SKREFUM

Taktu frá þinn Toyota Land Cruiser 250

01

Stofnaðu aðgang eða forpantaðu sem gestur

Stofnaðu aðgang eða skráðu þig inn á Mínar síður á toyota.is ef þú ert nú þegar með aðgang. Þú getur einnig skráð þig inn sem gestur og forpantað þinn Land Cruiser 250.
02

Veldu útfærslu

Veldu útfærslu sem hentar þér. Veldu á milli þriggja útfærslna sem eru í boði í forpöntunarferlinu og finndu litinn sem heillar þig.
03

Staðfestingarpóstur

Við sendum þér staðfestingarpóst með upplýsingum um næstu skref varðandi frátektargjald og undirskrift samnings, eftir að þú hefur gengið frá frátektinni á vefsíðunni okkar.

ÞRJÁR ÚTFÆRSLUR AF LAND CRUISER 250 ERU Í BOÐI Í FORPÖNTUN

Fimm útfærslur verða í boði í almennri sölu: First Edition, Luxury, VX, GX Plus og GX

  • Land Cruiser VX

    Hámarks viðmiðunarverð 20.000.000 kr.*

    • 18" álfelgur
    • Toyota Safety Sense 3
    • Aðlögunarhæfur hraðastillir
    • Hiti í stýri
    • Leðurklætt stýri
    • Hiti í framrúðu
    • Regnskynjari
    • Sjálfvirk aðlögunarhæf háuljós
    • Sjálfvirk hæðarstilling á aðalljósum
    • Hiti og loftkæling í framsætum
    • Rafknúið ökumannssæti
    • Sjálfvirk tveggja svæða loftkæling
    • Lykillaust aðgengi með auðkenningu
    • Stafrænir lyklar
    • 12,3" margmiðlunarskjár
    • 12,3" skjár í mælaborði
    • 10 hátalara hljóðkerfi
    • Þráðlaus hleðsla fyrir farsíma
    • Sóllúga (Valbúnaður)


  • Land Cruiser Luxury

    Hámarks viðmiðunarverð 23.500.000 kr.*

    • 20" álfelgur
    • Toyota Safety Sense 3
    • Aðlögunarhæfur hraðastillir
    • Hiti í stýri
    • Leðurklætt stýri
    • Hiti í framrúðu
    • Regnskynjari
    • Sjálfvirk aðlögunarhæf háuljós
    • Sjálfvirk hæðarstilling á aðalljósum
    • Hiti og loftkæling í framsætum
    • Hiti og loftkæling í aftursætum
    • Rafknúið ökumannssæti
    • Rafknúið farþegasæti að framan
    • Sjálfvirk tveggja svæða loftkæling
    • Mjóbaksstuðningur í ökumannssæti
    • Lykillaust aðgengi með auðkenningu
    • Stafrænir lyklar
    • 12,3" margmiðlunarskjár
    • 12,3" skjár í mælaborði
    • Sjónlínuskjár
    • 14 hátalara hljóðkerfi
    • Þráðlaus hleðsla fyrir farsíma
    • Panorama glerþak (Valbúnaður)


  • Land Cruiser First Edition

    Hámarks viðmiðunarverð 25.000.000 kr.*

    • 18" álfelgur
    • Bi-tone litir
    • Brúnt leðuráklæði
    • Panorama glerþak
    • Hringlaga LED aðalljós
    • Toyota Safety Sense 3
    • Aðlögunarhæfur hraðastillir
    • Hiti í stýri
    • Leðurklætt stýri
    • Hiti í framrúðu
    • Regnskynjari
    • Sjálfvirk aðlögunarhæf háuljós
    • Sjálfvirk hæðarstilling á aðalljósum
    • Hiti og loftkæling í framsætum
    • Hiti og loftkæling í aftursætum
    • Rafknúið ökumannssæti
    • Rafknúið farþegasæti að framan
    • Sjálfvirk tveggja svæða loftkæling
    • Mjóbaksstuðningur í ökumannssæti
    • Lykillaust aðgengi með auðkenningu
    • Stafrænir lyklar
    • 12,3" margmiðlunarskjár
    • 12,3" skjár í mælaborði
    • Sjónlínuskjár
    • 14 hátalara hljóðkerfi
    • Þráðlaus hleðsla fyrir farsíma

LX og GX verða í boði þegar bíllinn fer í almenna sölu en hér má kynna sér þá betur:

  • Land Cruiser GX

    Hámarks viðmiðunarverð 16.500.000 kr.*

     
    • 18" álfelgur
    • Toyota Safety Sense 3
    • Aðlögunarhæfur hraðastillir
    • Hiti í framrúðu
    • Regnskynjari
    • Sjálfvirk hæðarstilling á aðalljósum
    • Lykilllaust aðgengi með auðkenningu
    • Bakkmyndavél
    • Tauáklæði
    • Jafnvægisstangir framan og aftan
    • VSC stöðuleikastýring
    • DAC brekkuaðstoð
    • CRAWL skriðgír
    • 220V tengill í farangursrými
    • 9" margmiðlunarskjár
    • 7" skjár í mælaborði
    • 6 hátalara hljóðkerfi

     




  • Land Cruiser GX Plus

    Hámarks viðmiðunarverð 19.000.000 kr.*

    Umfram LX

    • Leðurklætt stýri
    • Hiti í stýri
    • Rafdrifinn afturhleri
    • Opnanleg afturrúða
    • Vindskeið að aftan
    • Blindsvæðaskynjari
    • Sjálfvirk glampavörn í baksýninsspegli
    • Sjálfvirk tveggja svæða loftkæling
    • Miðstöð fyrir aftursæti
    • Verksmiðjuframleitt leðuráklæði
    • Leiðsögukerfi
    • HDMI tengi
    • Fjarlægðarskynjarar
    • 12,3" margmiðlunarskjár
    • 10 hátalara hljóðkerfi
* Hámarks viðmiðunarverð viðkomandi útfærslu m.v. óbreyttar markaðsforsendur. 
Endanlegar útfærslur geta verið frábrugðnar því sem fram kemur á myndunum.

Algengar spurningar varðandi frátekt

Toyota Land Cruiser fer í almenna sölu á seinni hluta árs 2024. Með því að forpanta bíl getur þú verið meðal þeirra fyrstu til þess að komast undir stýri á glænýjum Land Cruiser 250. Vinsamlegast athugið að takmarkað framboð er á forpöntunarbílum.

Já, til þess að tryggja frátekt þarf viðskiptavinur að greiða 250.000. kr. Frátektargjald er óafturkræft nema í þeim tilvikum þar sem Toyota á Íslandi nær ekki að útvega viðskiptavini þá útfærslu bifreiðarinnar sem tilgreind var í forpöntunarferlinu eða aðra útfærslu sem samkomulag varð um milli viðskiptavinar og Toyota á Íslandi – innan 12 mánaða frá dagsetningu upprunalegu forpöntunarinnar. 

Óski viðskiptavinur þess, mun Toyota á Íslandi endurgreiða frátektargjaldið ef verðlistaverð bifreiðarinnar reynist hærra en uppgefið hámarks viðmiðunarverð hennar við forpöntun.  Nánari upplýsingar fást hjá söluráðgjöfum Toyota.

Þegar þú hefur lokið forpöntunarferlinu á www.toyota.is mun sá söluaðili sem þú tilgreindir í ferlinu hafa samband við þig og í framhaldinu undirrita við þig samning – fyrir hönd Toyota á Íslandi – um forpöntun á Land Cruiser 250.  Söluaðilinn gefur þér upp reikningsupplýsingar fyrir millifærslu á frátektargjaldinu (250.000.- kr.) og þegar þú hefur greitt frátektargjaldið inn á viðkomandi reikning færð þú senda kvittun frá Toyota á Íslandi.  Toyota á Íslandi endurgreiðir þér frátektargjaldið og 30.000.- kr. að auki þegar þú síðan gengur frá kaupunum á LC250 bifreiðinni sem þú valdir þér.

Endanleg verð liggja ekki fyrir, en hámarks viðmiðunarverð fyrir hverja útfærslu – sem byggja á óbreyttum markaðsforsendum – eru sem hér segir:

  • VX 20.000.000 kr.
  • Luxury 23.500.000 kr.
  • First Edition 25.000.000 kr.  
Forpöntun á Land Cruiser 250 er ekki ígildi samnings við Toyota á Íslandi eða viðurkennda söluaðila Toyota á Íslandi um kaup á Land Cruiser 250, heldur samningur um forgang að kaupum á þeim Land Cruiser 250 bifreiðum sem Toyota á Íslandi fær úthlutað frá framleiðandanum. Samningurinn er ekki yfirfæranlegur á annan aðila.