MYNDIR
Skoðaðu Proace City betur
Tölurnar sýna hæstu eða lægstu gildi sem eiga við þær vélar sem eru í boði en eiga ekki endilega við eina ákveðna útfærslu. Eyðslutölur eiga við blandaðan akstur.
Tölurnar sýna hæstu eða lægstu gildi sem eiga við þær vélar sem eru í boði en eiga ekki endilega við eina ákveðna útfærslu. Eyðslutölur eiga við blandaðan akstur.
Velja útfærslu
Frá
4.860.000 kr.
Frá
5.760.000 kr.
Frá
6.160.000 kr.
Frá
5.360.000 kr.
Proace City er nettur og hentar þessvegna vel í borginni. Aðgengi að farmi bílsins er auðvelt í gegnum afturdyr eða á dyrum sem staðsettar eru hliðum bílsins. Stutt hjólhaf skilar allt að 3,1 m hleðslulengd og allt að 3,7 m3 hleðslurými. Með löngu hjólhafi hækka þessi gildi upp í allt að 3,4 m hleðslulengd og allt að 4,3 m3 hleðslurými.
Proace City býður upp á þann sveigjanleika sem fyrirtæki í rekstri þurfa og ýmsar útfærslur í innanrýminu henta ólíkum atvinnugreinum. Smart Cargo-kerfið skilar aukinni hleðslulengd og burðargetu með snjöllum hlera í skilrúminu sem hægt er að nota til að flytja lengri farm.Með því að leggja niður miðjusætið í framrými verður til þægilegt vinnusvæði sem hentar vel fyrir fartölvur og spjaldtölvur, auk þess sem hægt er að geyma mikilvæga hluti í geymsluhólfum undir sætum. Hægt er að velja um tvö eða þrjú framsæti.
Proace City býður upp á mismunandi úrval innanrýmis. Hleðslulengdin og ríflegt hleðslurýmið er best í flokki sambærilegra bíla. Ljós- og hljóðviðvaranir gera notendum sendibifreiðarinnar viðvart þegar hámarksþyngd hleðslu er náð eða farið er yfir hana, sem tryggir öryggi ökumannsins og löglega notkun.
Skoðaðu Proace City betur