Þjónusta & aukahlutir
Algengar spurningar og svör
Hvað er 2 ára viðbótarábyrgð Toyota?
Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða 2 ára viðbótarábyrgð sem tekur gildi þegar hefðbundinni 3 ára verksmiðjuábyrgð framleiðandans lýkur og gildir í 2 ár eða upp að 160 þús km akstri bifreiðarinnar. Ábyrgðin er sett fram í samstarfi við Tryggingarmiðstöðina.
Hvað er innifalið í 2 ára viðbótarábyrgð Toyota?
Ábyrgðin tekur til sömu hluta og 5 ára ábyrgðin sem fylgir með öllum nýjum Toyota og Lexus bifreiðum frá og með 1. janúar, 2010. Á heimasíðu Toyota – sjá skilmálar – er að finna ítarlista yfir þá hluti sem falla undir ofangreinda ábyrgð.
Hvaða hlutir eru undanskildir í ábyrgðinni?
Hefðbundnir slitfletir og annað sem telst til eðlilegs viðhalds bifreiðar er ekki innifalið í ábyrgðinni, s.s. bremsuklossar, olíur og síur. Þá eru demparar, soggrein og pústkerfi, lakk og innrétting og kúpling ekki innifalið í ábyrgðinni.
Hvaða bifreiðar eru gjaldgengar í 2 ára viðbótarábyrgð Toyota?
Allar Toyota og Lexus bifreiðar sem eru 48 mánaða eða yngri frá söludegi. Þá þurfa viðkomandi bifreiðar að hafa mætt reglubundið í þjónustuskoðanir og standast léttskoðun Toyota sem er eiganda bifreiðarinnar að kostnaðarlausu.
Hafi viðkomandi bifreið ekki mætt í reglubundnar þjónustuskoðanir þarf hún að gangast í gegnum og standast næstu áætluðu þjónustuskoðun út frá aldri / kílómetrastöðu bifreiðarinnar.
Hvað kostar 2 ára viðbótarábyrgð Toyota?
Iðgjald fyrir 2 ára viðbótarábyrgðina fer eftir vélarstærð viðkomandi bifreiða og eru gjaldflokkarnir fjórir. Iðgjaldið er til 24 mánaða, en hlutfallareiknast eftir því hvenær viðbótarábyrgðin er keypt. Sá sem kaupir t.d. ábyrgðina á 42. mánaða aldri bifreiðarinnar greiðir eingöngu 75% af iðgjaldinu. Ofangreind ábyrgð fylgir bifreiðinni ef hún er seld.
Verðskrá 2 ára viðbótarábyrgðar Toyota
Vélastærð (kúbik) | 24 mánaða iðgjald | Sjálfsábyrgð |
0 – 1700 cc | 65.000.- kr. | 15.000.- kr. |
1701 – 2100 cc | 73.000.- kr. | 20.000.- kr. |
2101 – 2900 cc | 77.000.- kr. | 25.000.- kr. |
2901+ cc | 113.000.- kr. | 25.000.- kr. |
Hvernig er greiðslufyrirkomulag 2 ára viðbótarábyrgðar Toyota
- Ef viðkomandi er núverandi viðskiptavinur Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) fellur iðgjaldið undir sama greiðslufyrirkomulag og er þegar til staðar.
- Ef viðkomandi er ekki viðskiptavinur TM er hægt að skipta iðgjaldinu niður á 8 mánaða greiðsludreifingu á kreditkort viðkomandi
- Ef viðkomandi vill greiða iðgjaldið í einni greiðslu sendir TM viðkomandi gíróseðil fyrir allri upphæðinni.
Hvar er hægt að kaupa 2 ára viðbótarábyrgð Toyota?
Ábyrgðina er hægt að kaupa hjá öllum viðurkenndum þjónustuaðilum Toyota á Íslandi sem jafnframt geta framkvæmt nauðsynlegar þjónustu- og léttskoðanir ef þörf er á til að viðkomandi bifreið sé gjaldgeng í viðbótarábyrgðina.
Afgreiðsluaðili | Heimilisfang | Bæjarfélag | Sími |
Toyota Kópavogi | Nýbýlavegi 8 | 200 Kópavogi | 570 5070 |
Toyota Akureyri | Baldursnesi 1 | 603 Akureyri | 460 4300 |
Toyota Reykjanesbæ | Njarðarbraut 17 | 260 Reykjanesbæ | 420 6600 |
Toyota Selfossi | Fossnesi 14 | 800 Selfossi | 480 8000 |
Bifreiðaverkstæði K.S. | Hesteyri 2 | 550 Sauðárkróki | 455 4570 |
Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur | Bæjarflöt 13 | 112 Reykjavík | 577 7080 |
Bifreiðaverkstæðið Ásinn | Kalmannsvöllum 3 | 300 Akranesi | 431 5050 |
Bílaleiga Húsavíkur | Garðarsbraut 66 | 640 Húsavík | 464 1888 |
Bílatangi | Suðurgötu 9 | 400 Ísafirði | 456 4580 |
Bílaverkstæði Austurlands | Miðási 2 | 700 Egilsstöðum | 470 5070 |