Þjónusta & aukahlutir

Vátryggingarskilmálar og almennar upplýsingar

1. Almennt.
1.1      Vátrygging þessi gildir fyrir notuð ökutæki sem samþykkt hafa verið í tryggingu af Tryggingamiðstöðinni hf, hér eftir nefnt félagið og af viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi. Ábyrgð félagsins nær til viðgerðarkostnaðar sem rekja má til galla í framleiðslu og við samsetningu  ökutækisins vegna íhluta sem taldir eru upp í 14. gr. (grein) í skilmálum þessum.

2. Gildissvið vátryggingarinnar.
2.1     Félagið greiðir kostnað við viðgerð vátryggðs ökutækis sbr. gr. 6.3 af völdum þess að íhlutur bilar eða skemmist vegna galla í framleiðslu eða við upphaflega samsetningu hans. Bilunin verður að eiga sér stað á vátryggingartímanum, sem fram kemur á vátryggingarskírteini. Ef bilun verður erlendis sem fellur undir vátryggingu þessa, þá er eiganda ökutækis heimilt að láta gera við ökutækið á viðurkenndu Toyota verkstæði og fá kostnað sinn greiddan eins og viðgerð hefði farið fram á Íslandi.

Félagið greiðir ekki fyrir íhluti sem voru í ólagi áður en vátrygging þessi tók gildi. Vátryggingarfjárhæð í hverju tjóni er að hámarki sú fjárhæð sem fram kemur á vátryggingarskírteini.

3. Takmarkanir á gildissviði vátryggingarinnar.
3.1     Ekki er greitt fyrir viðgerð á íhlut eða ef skipt er um íhlut sem er undanþeginn, sbr. (samanber) gr. 3.4, eða fyrir íhluti sem ekki eru í íhlutaskránni skv. (samkvæmt) 14. gr.

3.2     Vátryggingin tekur ekki til ökutækja sem að jafnaði eru notuð til hvers konar kappaksturs eða íþróttakeppni, né heldur ökutækja sem breytt hefur verið til aksturs á hjólbörðum stærri en 33 tommur.

3.3     Vátryggingin tekur ekki til kostnaðar við leit, skoðun eða sundurtekt vegna bilana sem ekki bætast úr vátryggingunni.  Kostnaður við leit að bilun sem fellur undir vátryggingu þessa greiðist að hálfu af félaginu og að hálfu af viðgerðaraðila.

3.4     Vátryggingin bætir ekki tjón eða kostnað sem tengist eða hlýst af eftirfarandi:
a. notkun rangrar tegundar eldsneytis,
b. notkun ökutækisins í hvers konar akstursíþróttum, kappakstri eða rallakstri,
c. umferðarslysi, árekstri, áakstri, þjófnaði eða tilraun til þjófnaðar,
d. skiptum á íhlutum sem ekki hafa bilað,
e. viðgerð sem ekki stafar af bótaskyldu tjónsatviki,
f. viðgerð eða skiptum á íhlutum sem önnur ábyrgð eða vátrygging tekur til,
g afleiddu tjóni, galla í hönnun eða galla þar sem framleiðandi hefur innkallað íhluti,
h. ytri olíulekum öðrum en þeim olíulekum sem eru sérstaklega vátryggðir, sbr. 14. gr.
i. skemmd eða hreinsun á vátryggðum íhlutum vegna frosts, vökva sem frýs, tæringar eða fastra íhluta,
j. endurtekinni viðgerð sem nauðsynleg er vegna ófullnægjandi eða ófullkominna vinnubragða eða bilaðra íhluta,
k. reglubundnum stillingum og þjónustuþáttum, þar með talin kerti, þurrkublöð, síuhlutar, perur, reimar, frostlögur, vökvar, smurning, eldsneyti eða olíur, hemlaskór og hemlaklossar,
l. brunnum eða útslitnum kúplingsíhlutum og uppsöfnuðu sóti (þar með taldir brenndir eða sótaðir ventlar og hreinsun sóts),
m. aðlögunum, viðgerðum, breytingum eða umskiptingum sem eru nauðsynlegar vegna þess að stýrikerfi ökutækisins nemur ekki dagsetningarbreytingu,
n. líkamstjóni eða skemmdum á munum eða öðrum íhlutum hins vátryggða ökutækis, eða öðrum skaða sem verður beint eða óbeint vegna bilunar,
o. skemmd á hvers konar munum sem jónandi geislun eða geislavirk mengun frá hvers konar kjarnorkueldsneyti eða kjarnorkuúrgangur af brennslu hvers konar kjarnorkueldsneytis hefur valdið eða stuðlað að.

4. Ásetningur og stórkostlegt gáleysi.
4.1     Valdi vátryggður tjóni af ásetningi ber félagið enga ábyrgð á tjóninu. Hafi hann valdið tjóninu af stórkostlegu gáleysi er félagið laust úr ábyrgð í heild eða að hluta.

5. Varúðarreglur.
5.1  Ökutækið skal notað rétt og í samræmi við fyrirmæli og leiðbeiningar í notendahandbók frá framleiðanda ökutækisins.

5.2 Hinu vátryggða ökutæki skal haldið við og það fært til reglubundins þjónustueftirlits hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi ( sjá þjónustuaðilar ) samkvæmt fyrirmælum í þjónustuhandbók framleiðanda og skal handbókin eða önnur sambærileg þjónustuhandbók fyllt út varðandi það eftirlit og viðhald sem framkvæmt er hverju sinni.

5.3 Viðbótarbílaábyrgð Toyota tekur ekki til bifreiða sem breyttar eru fyrir stærri dekk en 33 tommur.

5.4 Brot gegn gildandi varúðarreglum getur leitt til þess að ábyrgð félagsins falli niður í heild eða að hluta.

6. Tilkynning um tjón og ráðstafanir vegna tjóns.
6.1     Þegar tjón er orðið skal vátryggður tafarlaust tilkynna það viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi, sbr. gr. 5.2.  

6.2     Er tjón hefur orðið eða bein hætta er á að tjón beri að höndum skal vátryggður reyna að afstýra tjóni eða draga úr því. Einnig ber vátryggðum að gera ráðstafanir til að tryggja endurgreiðslu félagsins ef hann á rétt til bóta frá þriðja manni.

6.3     Vátryggður skal fela viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi að skoða og meta bilun og framkvæma viðgerð vegna bilunar eða galla sem fellur undir vátryggingu þessa.

6.4     Er vátryggður krefur bóta skal hann leggja fram gögn um reglubundið eftirlit og viðhald ökutækisins, sbr. gr. 5.2.

6.5     Vanræksla á skyldum vátryggðs skv. 1. til 4. mgr. (málsgrein) getur valdið skerðingu eða missi bótaréttar samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga.

6.6     Félagið leysist úr ábyrgð ef vátryggður tilkynnir ekki viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi eða  félaginu um kröfu sína innan árs frá því hann vissi um atvik sem krafan er reist á.

7. Svik og rangar upplýsingar.
7.1 Hafi vátryggingartaki eða eigandi eða umráðamaður, sé hann annar en vátryggingataki, við gerð vátryggingarsamnings sviksamlega eða með öðrum hætti vanrækt skyldu sína til að veita viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi eða félaginu upplýsingar um atvik sem haft geta þýðingu fyrir mat á áhættunni og vátryggingaratburður hefur orðið fellur ábyrgð félagsins niður í heild eða að hluta, sbr. 20. gr. vátryggingarsamningalaga. Rangar og ófullnægjandi upplýsingar veita félaginu ennfremur rétt til að segja vátryggingunni upp, sbr. 21. gr. laganna.

7.2    Veiti vátryggður við uppgjör bóta af ásetningi rangar upplýsingar sem hann veit eða má vita að leiða til þess að hann fær tjón bætt sem hann á ekki rétt til fellur bótaréttur hans niður og félagið getur sagt upp öllum vátryggingarsamningum sínum við vátryggðan eins og nánar greinir í 47. gr. vátryggingarsamningalaga.

8. Endurgreiðsla iðgjalds.
8.1     Félagið endurgreiðir ekki hluta iðgjaldsins ef það hefur samþykkt kröfu samkvæmt vátryggingunni eða ef ökutækið er selt.

8.2     Ef ökutækið er afskráð vegna umferðaróhapps eða því er stolið og ekki endurheimt innan þriggja mánaða, svo fremi að félagið hafi ekki samþykkt kröfu samkvæmt vátryggingunni, mun félagið endurgreiða vátrygginguna hlutfallslega.

9. Vátryggingarfjárhæð og eigin áhætta.
9.1     Vátryggingarfjárhæð er tiltekin í vátryggingarskírteini. Vátryggingarfjárhæð er samtala þeirra bóta sem félagið skuldbindur sig til að greiða samkvæmt vátryggingarskírteininu, hvort sem tjónskrafa er ein eða fleiri.

9.2     Eigin áhætta í hverju tjóni er tiltekin í vátryggingarskírteini.

10. Upphaf vátryggingar og gildistími.
10.1   Vátrygging þessi tekur gildi þegar félagið samþykkir beiðni þar að lútandi og iðgjald hefur verið greitt. Jafnframt skal liggja fyrir ástandsskýrsla frá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi.

10.2   Vátryggingin gildir til þess dags er hún rennur út samkvæmt því sem greinir í vátryggingarskírteini. Þó fellur vátryggingin sjálfkrafa niður þegar ökutækinu hefur verið ekið 160.000 km (kílómetrar), jafnvel þótt það gerist áður en vátryggingin á að renna út skv. fyrri málslið.

10.3    Vátryggingin verður ekki endurnýjuð eftir að hún hefur fallið niður skv. 2. mgr.

10.4   Til að ganga megi úr skugga um gildi vátryggingarinnar skv. 2. mgr. skal vátryggingartaki eða eftir atvikum vátryggður sjá til þess að hraðamælir og kílómetramælir ökutækisins séu alltaf í lagi og tengdir.

11. Ákvörðun greiðslu bóta og vextir.
11.1 Vátryggður skal að lokinni viðgerð vera jafnsettur fjárhagslega og hann var fyrir að teknu tilliti til aldurs, notkunar og ástands ökutækis.

11.2   Krefjast má greiðslu bóta 14 dögum eftir að félagið átti þess kost að afla þeirra upplýsinga sem þörf var á til að meta vátryggingaratburðinn og ákveða fjárhæð bóta. Vátryggður á rétt á vöxtum af kröfu sinni skv. 50. gr. vátryggingarsamningalaga.

12. Meðferð ágreiningsmála og varnarþing.
12.1 Ágreiningi varðandi vátryggingarsamning og bótaskyldu félagsins að öðru leyti má skjóta til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum. Upplýsingar um  nefndina og starfshætti hennar má fá hjá félaginu.

12.2   Þrátt fyrir úrræði samkvæmt 1. mgr. er aðilum heimilt að leggja ágreining fyrir dómstóla. Slík mál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

12.3   Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.

13. Lög um vátryggingarsamninga.
13.1 Að öðru leyti en kveðið er á um í skilmálum þessum, vátryggingarskírteini eða öðrum gögnum, sem vátryggingarsamningurinn byggir á, gilda um hann lög nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga.

14. Íhlutaskrá.
14.1    Félagið bætir samkvæmt skilmálum þessum brot eða bilun á þeim íhlutum sem taldir eru upp í 2. til 17. mgr. hér á eftir:

14.2    Vél og túrbína
Startkrans, svinghjól smurolíudæla, sveifarás og sveifaráslegur, tímagír, tannhjól, keðjuhjól og tímakeðja, reimskífur, knastás, undirlyfta, undirlyftutappi, undirlyftuarmur, rokkerarmar (vippuarmar), undirlyftustýring (undirlyftuhús, undirlyftuslíf), ventlar og ventlastýringar, stimplar og stimpilhringir, hedd, (heddpakkning, stimpilstangir, innri fóðringar pakkningar og þéttir (FIPG), kveikjudrif, tímareim, tímareimastrekkjarar, ventlalok (lokalok), barkar, olíusíuhúsolíupanna, rafleiðslur, túrbína, afsláttarventill (afgasþrýstiloki), eftirkælir (intercooler)

14.3. Vélhlutahús
Vélarblokk, gírkassahús, sjálfskiptingarhús, drifhús.

14.4 Kúpling
Kúplingsgaffall og liðir, kúplingsdæla efri og neðri, barkar og armar.

14.5 Gírkassi
Tannhjól, valliðir, rafstýrður gangráður, bremsubönd, gírbremsur, tengimúffa öxlar, legur og fóðringar, túrbína, , kúplingar í sjálfskiptingum, pakkningar og þéttar, (FIPG), sjálfskiptihús og gírkassahús, ventlaboddy, olíudæla, tengiliðir, stjórntölva, olíukælir, skiptistöng, barkar.

14.6. Drif
Kambur og pinjón, öxlar, mismunadrifshjól, legur, fóðringar, nöf.

14.7. Millikassi
Mismunadrif í millikassa, tannhjól, öxlar, legur og fóðringar, skiptibúnaður (stangir, öxlar og gafflar),
14.8. Hjóllegur
Legur, nöf, stilliplötur, legurær, lásrær.

14.9. Driflína og fjöðrunarkerfii
Öxlar,(fyrir sjálfstæða fjöðrun)  drifsköft, hjöruliðir, legur, fóðringar, öxlar, öxulliðir, öxulrhosur, tengiliðir, pakkningar og þéttar (FIPG), fjaðrir, (gormar og blöð), snerilfjöðrun, jafnvægisstangir, klafar, spindilkúlur, millibilsstangir, togstangir, hjólöxull með sjálfstæða fjöðrun án driföxuls, þverbitar í grind, mótorbitar og hjólabitar, vökva fjöðrun, millistöng, spyrnur og stangir.

14.10 Bremsukerfi.
Bremsurör, forðabúr fyrir bremsuvökva, , ABS íhlutir, ABS hjólhraðaskynjarar, þrýstikútar, hemlahjálparkútar, bremsudælur, bremsudælustimplar, ABS deilir, höfuðdæla, bremsudiskar, bremsuskálar, magnlokar, hlutfallslokar, tengihlutir, liðir og barkar,

14.11 Kælikerfi.
Kælivatnsdæla, vatnskassi, vatnslás og vatnsláshús, kæliviftukúpling, loftræstisamstæða, hita- og kælieliment, blásari og stýrieiningar, miðstöðvarstjórnlokar fyrir vatn, stjórnborð fyrir loftræstingu (miðstöðvarstýring), vélarolíukælir, vatnskassalok, kælivifta

14.12  AC kerfi
AC dæla (fyrir loftræstingu), þéttir (í kælikerfi loftræstingu), safnari og þurrkari, eimir, miðstöðvarstjórnlokar (loft).

14.13 Stýrisbúnaður.
Tannstangarstýrisvél, sektorsarmsstýrisvél, stýrisdæla, þéttingar, legur, stýrisarmar, stýrisliðir, stýristúpa, forðabúr fyrir stýrisvökva, stýrisupphengja.

14.14 Eldsneytiskerfi bensín
Eldsneytisdæla,  tankmótstaða,  eldsneytismælir, eldsneytisinnsprautunarkerfi, (nemar og liðar), spíssar, loftflæðimælir, vélarstjórntölva.

14.15 Eldsneytiskerfi dísil
Fæðidæla, innsprautunardæla, spíssar, eldsneytistankar, glóðarkerti, vakumdælur.

14.16 Rafkerfi/rafeindarásir.
Startari, rafall (alternator), spennustillir, háspennukefli, kveikja, þurrkumótor, rúðusprautumótorar, stefnuljósastýribúnaður, miðstöðvarmótor, flauta, rofar, tölvustýrð kveikja, spennujafnari, rafliðar (relay), hitaeliment í framrúðum og afturrúðum, stjórntölvur, rúðuupphalarabúnaður og mótorar, stjórnrofar fyrir rúðuupphalara, færslumótorar fyrir sóllúgu, færslumótorar fyrir baksýnisspegla, lykilkóðasendar (útvarpsbylgjusendar fyrir fjarlæsingar), læsingamótorar og segulspólur, höggskynjari, fjarlæsingarstjórntölva, tímaliði fyrir inniljós, mælar, klukkur, hraðamælir og hraðamælasendir (hraðamæladrif), snúningshraðamælir, rafleiðslur, innbyggðar stjórnrásir, ABS stjórntölva, færslumótorar í sætum, sígarettukveikjari, nemar(skynjarar), sætishitaeliment, þjófavarnarkerfi (verksmiðju ísett eingöngu), færslumótorar í aðalljósum, háspennuþræðir, rúðu- og ljósasprautur (framrúðu og aðalljósa þvottur).

14.17 Ýmislegt.            
Þurrkubrakket (tengiarmar milli þurrkuarma og þurrkumótors),  sóllúga, (verksmiðju ísett eingöngu), sætisfærslur, hurðalæsingar (skrár), húddbarki, húdd- og hlerapumpur.