Þjónusta
Það skiptir okkur miklu máli að veita eigendum Toyota bíla góða þjónustu. Til að ná þessu markmiði okkar þá höfum við frá upphafi leitast við að vera í fararbroddi hérlendis í varahluta- og verkstæðisþjónustu.
Þjónustuverkstæði Toyota eru tíu um land allt auk þjónustu-miðstöðvar í Kópavogi. Þjónustumiðstöðin að Nýbýlavegi 8 í Kópavogi samanstendur af almennu verkstæði, jeppaverkstæði, réttingaverkstæði og málningarverkstæði ásamt varahlutaverslun og þjónustuveri.
Hjá þjónustuverinu geta Toyota eigendur nálgast á einum stað margvíslegar upplýsingar s.s. um viðmiðunarverð Toyota bíla, bíla á söluskrá, tæknimál og er þar einnig séð um tímabókanir á verkstæðin og veittar upplýsingar um stöðu verka á verkstæðinu.
Þjónustuverið er opið alla virka daga frá kl. 8 - 18, síminn þar er 570-5000 og netfangið info@toyota.is.
Utan hefðbundins opnunartíma sinnir þjónustuverið einnig neyðarþjónustu fyrir verkstæði og varahlutaverslun.
