iPod® tengi - Væntanlegt í hanskahólf nálægt þér...

Betri leið til að tengjast og spila


Toyota iPod tengið tengir iPod-inn þinn við hljóðkerfi Toyota bílsins þíns. Þannig getur þú stjórnað þinni tónlist með fingurgómunum meðan þú keyrir og nýtur tærs digital hljóms úr hátölurum bílsins. Ef þú ert með uppáhalds tónlistarmennina í iPod-inum þínum - þá geturðu notið þeirra í bílnum líka.

Tengstu


Tengdu iPod-inn þinn í hanskahólfstengið og stjórnaðu svo þínum helstu iPod aðgerðum í gegnum hljóðgræjurnar í bílnum eða með stjórntækjum í stýrinu.

Meðan iPod-inn er tengdur við hanskahólfstengið er hann úr sýn forvitinna augna auk þess sem hann helst hlaðinn í lengri ferðum*.

Heldur þér við stjórnina


Á skjá hljóðkerfis bílsins sérð þú upplýsingar um valinn lagalista, valið lag og spilunartíma lags**, meðan tengið jafnar víðóma og hljóðstyrk iPodsins fyrir sem jafnasta tónlistarupplifun.

Nú þarftu aldrei að skipta um geisladiska í bílnum framar. Með því að þrýsta á nokkra takka er auðvelt að ná sem mestu út úr iPodinum þínum.

Tækniatriði


- iPod tengið fellur fullkomlega að hanskahólfinu
- digital hljóð í gegnum hátalara bílsins
- iPod stjórnun við fingurgóma í gegnum græjur bílsins eða
  stjórntæki á stýri (þar sem það á við)
- Skjár á bílgræjunum sýnir valinn lagalista, valið lag
  og spilunartíma lags*
- hanskahólfstengi heldur iPod-inum úr allra augsýn
- tengið hleður iPod-inn ef rafhlaðan er við að klárast*
- tengið jafnar út víðóma og hljóðstyrk iPodsins

*Ekki í boði fyrir eldri gerðir af iPod®.
**Notagildi veltur á hljóðkerfi bílsins.

Senda á
Prentað þann 4. febrúar 2012