Vistakstur

Toyota hefur skuldbundið sig til að minnka umhverfisleg áhrif útblásturs eins og CO2, sem myndast þegar bíllinn þinn brennir eldsneyti. Með því að aka á ábyrgan hátt og vera meðvitaður um vistakstur, getur þú ekki einungis sparað þér pening með því að nota minna eldsneyti, heldur getur þú einnig lagt þitt af mörkum við að minnka skaðlegan útblástur út í andrúmsloftið, sem getur stuðlað að hlýnun jarðar.

Fjarlægðu óþarfa farangur og farm af þaki

Áður en lagt er af stað er gott að  hugsa um hvað þú ert með í bílnum. Auka byrði þýðir aukin orkunotkun, reyndu því að jafna farangurinn inni í bílnum. Ef þú ert með farangursgrind á þakinu, er gott að átta sig á að loftmótstaða eykst með farm á þakinu og getur aukið eldsneytisnotkun um allt að 40%.

Veldu akstursleiðina og forðastu krókaleiðir

Að velja stystu akstursleiðina fyrirfram getur komið i veg fyrir óþarfa krókaleiðir og þunga borgarumferð þar sem eldsneytiseyðsla er helmingi meiri en á hraðbrautunum.

Forðastu að nota bílinn fyrir stuttar vegalengdir

Með því að sleppa því að fara í stuttar ferðir þegar eldsneytiseyðsla er meiri þegar vélin er köld stuðlar þú að því að ná eldsneytiskostnaði niður.

Fylgstu með loftþrýstingi í dekkjum

Með því að fylgjast mánaðarlega með loftþrýstingi í dekkjunum og halda ráðlögðum þrýstingi getur þú sparað eldsneyti um allt að 3% auk þess sem það lengir líftíma dekkjanna.

Haltu bílnum þínum við samkvæmt eigendahandbókinni

Reglulega þjónustaður bíll samkvæmt stöðlum framleiðanda stuðlar að öruggum og vistvænum akstri.

Skiptu fyrr um gír

Hærri gír þýðir alltaf lægri snúningur á vél sem gefur af sér lægri eldsneytiseyðslu. Nútíma vélar eru mikið sveigjanlegri en áður og leyfa skiptingar upp í hærri gír fyrr og án hættu á að skemma vélina. Hagkvæmasti skiptipunkturinn er á milli 2000 og 2500 snúninga á mínútu.

Notaðu rafmagnsbúnað aðeins þegar þörf er á

Allur rafmagnsbúnaður eins og hiti í afturrúðu, þokuljós o.s.frv. tekur til sín orku. Sem dæmi getur notkun á loftræstingu aukið eldsneytiseyðslu um allt að 25%. Þessvegna ætti rafmagnsbúnaður aðeins að notast þegar þess þarf.

Fylgstu með umferðinni og sýndu fyrirhyggju

Með því að sýna fyrirhyggju í umferðinni geturðu forðast óþarfa tafir og með því skipta í hærri gír fyrr (fimmti gírinn er umhverfisvænstur) getur þú náð og haldið lægri snúningi á vélinni og þarafleiðandi minnkað eldsneytiseyðslu.

Hafðu gluggana lokaða

Með því að hafa gluggana lokaða og nota loftræstikerfi bílsins er hægt að minnka eldsneytiseyðslu um allt að 5%.

Slökktu á vélinni ef þú þarft að bíða lengur en í 30-60 sekúndur

Ef þú þarft að bíða lengur en 30 sekúndur í bílnum án þess að hreyfast, slökktu þá á vélinni ef hægt er; kyrrstæðir bílar í lausagangi eyða eldsneyti.

Senda á