Toyota Yaris fær fimm stjörnur í árekstrarprófunum Euro NCAP
Fyrsti bíll í sínum flokki með hnéloftpúða fyrir ökumann
Sérlega höggþolið farþegarými (MICS) dreifir höggþunga
Nýi Toyota Yaris hefur fengið 5 stjörnu öryggiseinkunn og 35 stig fyrir vernd fullorðinna í nýjustu lotu árekstrarprófana Euro NCAP.
35 stig fyrir vernd fullorðinna er jafnframt hæsta einkunn sem nokkur bíll frá Toyota hefur fengið. Að auki fékk nýi Yaris 2 stjörnur fyrir verndun fótgangandi vegfarenda og 3 stjörnur fyrir verndun barna.
Það er mikil verkfræðileg áskorun að byggja öryggisbúnað sem er leiðandi í sínum flokki inn í smábíla eins og nýja Toyota Yaris vegna þess hve yfirbyggingin er lítil og skögunin er stutt að framan. Þessi 5 stjörnu einkunn er viðurkenning á því háa öryggisstigi sem Toyota hefur skuldbundið sig til að veita viðskiptavinum sínum.
Í boði eru loftpúðar að framan ökumanns- og farþegamegin, hliðarloftpúðar og loftpúðatjöld auk hnéloftpúða fyrir ökumann (sá fyrsti í þessum flokki). Einnig er áminning um öryggisbelti (með breytilegum styrk á hljóðmerki) fyrir ökumann og farþega í framsæti.
Yfirbygging Yaris hefur verið hönnuð með MICS-tækni Toyota (Minimal Intrusion Cabin System) sem dreifir orkunni frá höggi framan á bílinn og frá hlið um yfirbygginguna til að veita henni frá farþegarýminu og draga úr aflögun þess.
Enn fremur er nýi Yaris fyrsti bíllinn sem hannaður er hjá Toyota samkvæmt strangari stöðlum um árekstrarprófanir innan fyrirtækisins. Þessar prófanir líkja eftir árekstri á 55 km/klst. hraða (þar sem bæði ökutæki eru á 55 km/klst. hraða) við tveggja tonna ökutæki með 50% skörun að framan, ákomu á hlið og 50% skörun að aftan.
5 stjörnu einkunnin sem nýi Toyota Yaris fékk fyrir vernd fullorðinna fylgir samskonar 5 stjörnu einkunn til handa Toyota Avensis, Corolla Verso og Prius.Skyldir tenglar
- Niðurstöður árekstrarprófanna Lestu meira um niðurstöður árekstrarprófanna Yaris á vefsíðu Euro NCAP
- Viðurkenningar Toyota Toyota hefur fengið margar alþjóðlegar viðurkenningar sem undirstrika skuldbindingu fyrirtækisins við gæði.
