Euro NCAP prófunarfyrirtækið hefur útnefnt Toyota Verso öruggastan af 10 fjölnotabílum

Euro NCAP prófunarfyrirtækið hefur útnefnt Toyota Verso öruggastan af 10 fjölnotabílum sem prófaðir voru árið 2010. Áður hafði bíllinn fengið hæstu einkunn, fimm stjörnur hjá Euro NCAP. Toyota iQ, Prius og Avensis fengu einnig fimm stjörnur árið 2009.

Þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða því Verso er sannkallaður fjölskyldubíll þar sem vel er hugað að þörfum farþega á öllum aldri jafnt í löngum sem stuttum ferðum. Bílinn má fá með sjö sætum og hentar hann þannig búinn vel fyrir stórar fjölskyldur. Þrennskonar bensín- og dísilvélar eru fáanlegar í Verso og val er um bein- eða sjálfskiptingu. Verso kostar frá 4.060.000 kr.

Senda á
Prentað þann 23. febrúar 2012