Nýr Prius fær 5 stjörnur í Euro NCAP öryggisprófunum
• Fékk 83% í heildar einkunn
• Þriðja gerðin af Toyota til að fá þessi verðlaun 2009
Prius náði hæstu einkunn eða 5 stjörnur fyrir öryggi úr niðurstöðum síðustu Euro NCAP 2009 tilraunanna. Með heildareinkunn uppá 83%, en Prius er þriðja gerð Toyota á þessu ári sem fær 5 stjörnur. Aðrir bílar voru Avensis og iQ.
Nýr Prius heldur uppi heiðri fyrri kynslóða í öryggisstöðlum, sem einnig fengu hæstu einkunn, 5 stjörnur árið 2004.
Þetta afrek undirstrikar getu verkfræðinga Toyota til þess að hanna grind í bíla sem vernda farþegana fyrir umhverfinu, og skilar frábærri frammistöðu, bæði hvað varðar styrk og öryggi.
Nýr Prius er búin uppfærðum virkum og stöðluðum öryggisbúnaði, ásamt öryggisbúnaði fyrir gangandi vegfarendur. Prius er mjög vel hannaður með höggdeyfandi yfirbyggingu, sjö loftpúðum og virkum höfuðpúðum.
Rafstýrða bremsukerfið (ECB) inniheldur bremsuaðstoð (BA), spólvörn (TRC) og stöðugleikastýringu+ (VSC+). Nýr Prius er einnig fáanlegur með árekstrar-forvarnarkerfi (PCS), sem felur í sér meðal annars aðlöguhæfan skriðstilli (ACC).
Nýr Prius sem nú er verið að kynna um alla Evrópu hefur þegar slegið í gegn.
