Nýjungar
Nýi Toyota Verso: Öruggasti bíllinn í sínum flokki samkvæmt Euro NCAP
Toyota Verso byggir á árangri Toyota Avensis í öryggismálum og hlaut, eins og Avensis, hæstu einkunn frá Euro NCAP: fimm stjörnur. Fjárfestingar Toyota í rannsóknum og þróun hafa leitt til þess að Verso fékk 35 stig í árekstrarprófunum sem er meteinkunn. Það gerir bílinn þann öruggasta í sínum flokki.
Hvað er Euro NCAP?
Euro NCAP (European New Car Assessment Programme) er óháð rannsóknarstofnun um öryggi nýrra bíla í Evrópu. Mikilvægt er fyrir bifreiðakaupendur að fá áreiðanlegar og hlutlausar upplýsingar um öryggi mismunandi bifreiðategunda, en það er einmitt hlutverk Euro NCAP. Euro NCAP nýtur stuðnings fimm Evrópuríkja, framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, félaga bifreiðaeigenda og neytendasamtaka um gervalla Evrópu.
http://www.euroncap.com
http://www.euroncap.com
Nýjar og öflugar árekstrarprófanir
Í nýju árekstrarprófununum notast Euro NCAP við ótrúlega næmar brúður sem skrá áhrif árekstra á nákvæmari hátt en áður. Brúðurnar kosta hver um 14 milljónir króna og eru fylltar hátæknibúnaði. Þær eru sérstaklega hannaðar til að meta þá vernd sem ökumaður og farþegar fá við framanákeyrslu og hliðarárekstur.
Gæðum fylgir öryggi
Toyota hefur alltaf sett öryggið í fyrsta sæti og hugmyndafræði fyrirtækisins um „yfirburðagæði með verkfræðivinnu“ hefur tryggt að Verso nær nýjum hæðum í öryggiskröfum. Frá fyrstu hönnun og þróunarvinnu fá bæði árekstraröryggi og akstursöryggi algjöran forgang.
Fremst í akstursöryggi
Akstursöryggi er fullkomin tækni sem aðstoðar ökumann við að halda stjórn á bílnum við allar aðstæður. Verso er hannaður með akstursöryggi í huga og honum fylgir eftirfarandi staðalbúnaður:
- Aukið hemlunarafl fæst með samsetningu hemlunaraðstoðar (BA), ABS-kerfis og hemlajöfnunar (EBD).
- Stöðugleikastýring (VSC) og spólvörn (TRC)* auka stöðugleika við lítið veggrip, eins og í rigningu, snjó eða möl með því auka hemlunarafl.
- MacPherson gormafjöðrun og snerilfjöðrun að aftan veita afbragðs veggrip og stöðugleika.
- Aukið sjónsvið fæst með endurhönnuðum burðarbitum að framan, baksýnisspegli með rafstýrðri glýjuvörn og þurrkum með regnskynjurum.
- Beygjumyndavél – Myndavél sem staðsett er í framgrilli ásamt litaskjá inni í bílnum eykur sjónsvið ökumanns til hægri eða vinstri.
- Bílastæðaskynjarar – Myndavél að aftan sýnir það sem er fyrir aftan bílinn í lit ásamt línum til leiðbeiningar.
Fremst í árekstraröryggi
Árekstraröryggi felur í sér öll þau atriði sem veita ökumanni og farþegum vernd ef slys verður.
Árekstraröryggi fæst með framsæknum nýjungum:
Árekstraröryggi fæst með framsæknum nýjungum:
- Sterkt yfirbygging Toyota Verso er samsett MICS-kerfi Toyota. MISC-kerfið felst í traustri yfirbyggingu sem dregur úr aflögun farþegarýmisins með því að draga úr og dreifa höggþunga.
- Níu loftpúðar fyrir alla farþega fylgja sem staðalbúnaður. Þar á meðal eru loftpúðar fyrir hné ökumanns og tveggja þrepa loftpúðar á báðum framsætum. Loftpúðar í hliðum veita viðbótaröryggi og loftpúðatjöld vernda farþega í fram- og aftursætum.
- Öll sæti í Verso eru búin ELR-öryggisbeltum. Öryggisbelti í framsætum eru með forstrekkjurum og álagsvörn. Öryggisbelti í annarri sætaröð eru búin ALR-kerfi (Automatic Locking Retractor) sem gerir kleift að koma börnum fyrir á öruggan hátt án þess að nota beltisspennu.
- Samfellanleg hemlafótstig og kúpling veita fótum ökumanns aukna vernd við harðan árekstur að framan.
- Áminningarkerfi fyrir öryggisbelti sem gerir ökumanni og farþegum viðvart bæði sjónrænt og með hljóðmerki er staðalbúnaður.
Öryggi barna
ISOFIX-festingar í ytri sætum í annarri sætaröð tryggja að barnabílstólum sé komið tryggilega fyrir.
Fimm stjörnu öryggi
Áhersla Toyota á smáatriði, fjárfestingar í nýjustu tækni og vilji til að skara framúr hafa alltaf sett Toyota á efsta stall þegar öryggi er annars vegar. Hæsta einkunn hjá Euro NCAP er staðfesting á að Toyota stefnir í rétta átt og viðurkennir að nýi Toyota Verso er öruggasti bíllinn í sínum flokki í Evrópu.
* Umboðsaðilar veita nánari upplýsingar um tæknilega eiginleika og útbúnað.