Toyota Auris fær 5 stjörnur í árekstrarprófunum

  • Nýr Auris fær hámarks öryggiseinkunn

  • 100% árangur á hliðar- og stangarárekstrarprófi

  • Meðal þeirra fremstu í öryggi barna og gangandi vegfarenda

  • Fimmta bílgerð Toyota til að fá 5 stjörnur

Euro NCAP hefur staðfest að nýr Auris frá Toyota hefur hlotið hámarkseinkunn eða 5 stjörnur fyrir öryggi fullorðinna við árekstrarprófanir. Auris náði 100% árangri í hliðarárekstrar og stangarárekstrarprófunum og náði 35 heildarstigum fyrir öryggi fullorðinna, hæstu einkunn í sínum flokki.

Auris er einnig meðal þeirra fremstu í flokki litilla fjölskyldubíla með fjórar stjörnur fyrir öryggisvarnir barna í bíl og þrjár stjörnur fyrir hinn tiltölulega nýja flokk, öryggi gangandi vegfarenda.

Auris er fimmta bíltegundin frá Toyota til að fá hámarks fimm stjörnu einkunn í Euro NCAP, sem gera bíla Toyota meðal þeirra öruggustu í Evrópu. Toyota Auris verður kynntur á Evrópumarkaði í byrjun árs 2007.

Andrea Formica, yfirvaraforseti sölu- og markaðsviðs, Toyota Motor Evrópu, sagði:"Við höfum alltaf reynt að tryggja að sérhver ný Toyota sé búin öryggi í hæsta gæðaflokki. Auris er nýjasta viðbót Toyota til að standa við það."

Nýr Auris er byggður á sterkri grind með framúrskarandi fyrirbyggjandi öryggiskerfum. Fáanlegur með allt að níu loftpúðum, að meðtöldum hnéloftpúðum fyrir ökumann - eins og prófa að Euro NCAP. Það ásamt nýjungum eins og fellanlegri stýrissúlu hefur hjálpað bílnum að ná 5 stjörnu einkunninni.

Euro NCAP benti á "enga aflögun að aftanverðu" á stýrissúlunni við árekstur að framan, enga snertingu brjóstkassa við stýrið og tók fram að hnéloftpúðinn verði hné ökumanns og lærlegg við árekstrarprófanir að framan.

Hinn framúrskarandi staðalöryggispakki hjálpaði Auris einnig að ná hæstu úrslitum fyrir barna (37 stig) og vegfarenda varnir (21 stig).

Eins og með allar megingerðir Toyota er Auris með Isofix barnasætisfestingar á hliðum aftursætanna. Festingar eru fáanlegar fyrir barnasæti og loftpúði í farþegaframsæti getur verið gerður óvirkur til að koma fyrir barnastól með bakhliðina fram.

Með þrjár stjörnur (21 stig) af fjórum mögulegum fyrir öryggi gangandi vegfarenda er Auris á toppi síns flokks í þessum tiltölulega nýja matshluta. Toyota er með tvær bílgerðir sem hlotið hafa þrjár stjörnur í öryggi vegfarenda, og fimm bílgerðir með hámarks fimm stjörnur fyrir öryggi fullorðinna.

"Við erum full sjálfstrausts með að Auris muni heilla viðskiptavini útfrá yfirburða öryggisframmistöðu ásamt sérstæðri hönnun og skemmtilegum aksturseiginleikum" segir Andrea Formica.

Senda á
Prentað þann 4. febrúar 2012