Um Toyota

Toyota setur fram kröfur og tilmæli til verktaka, birgja og þjónustuaðila. Ýmsir verktakar og þjónustuaðilar koma að starfsemi Toyota og vinna bæði sjálfstætt og með starfsmönnum Toyota að þeim verkum sem samið hefur verið um. Það er augljóst að samstarf og samhæfð vinnubrögð skapa árangur og gera stjórnendum Toyota mögulegt að setja markmið í umhverfismálum ásamt öðrum markmiðum sem lúta að stjórn fyrirtækisins.

Athuga þarf að sumar kröfur Toyota ganga lengra en lög og reglugerðir segja til um. Kröfugerðin tekur mið af umhverfisstefnu Toyota og þeim áherslum sem þar koma fram. Hún er á engan hátt tæmandi varðandi umhverfismál á Íslandi og fríar ekki verktaka, byrgja eða þjónustuaðila frá því að uppfylla öll lög og reglugerðir sem í gildi eru á hverjum stað og tíma.

Ætlast er til þess að verktakar fari að þeim lögum, reglugerðum og reglum sem varða starfssemi þeirra og okkar um öryggi og heilbrigði á vinnustað, s.s. lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað með síðari tíma breytingum, og reglugerð nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum og 806/1999 reglugerð um spilliefni nr. 806/1999. Reglugerð um meðhöndlun úrgangs nr. 737/2003.
Hið sama gildir gagnvart öllum öðrum íslenskum lögum, reglugerðum og reglum sem gilda á hverjum tíma en eru ekki sérstaklega talin upp hér en snerta viðkomandi verkefni á einhvern hátt.

Jafnframt skulu verktakar fara eftir þeim reglum og tilmælum sem Toyota hefur sett sem hugsanlega fara fram úr þeim almennu kröfum sem löggjafinn og framkvæmdavaldið setja.

Reglur Toyota eru því ekki tæmandi fyrir ábyrgð og skyldur verktaka og þjónustuaðila og færir ekki ábyrgð umhverfismála frá verktaka yfir á Toyota.

Upplýsingar um umhverfismál okkar er að finna í Pdf skjali sem er hér hægra megin á síðunni.