ISO 14001 umhverfisvottun
Toyota á Íslandi hefur fengið faggilda vottun samkvæmt hinum alþjóðlega ISO 14001 umhverfisstaðli, fyrst íslenskra bílaumboða. ISO 14001 umhverfisstaðallinn er stöðugt ferli sem allir starfsmenn Toyota á Íslandi tileinka sér til að tryggja bestu nýtingu auðlinda á öllum sviðum fyrirtækisins, með það að leiðarljósi að lágmarka umhverfisáhrif af starfsemi fyrirtækisins.Toyota hefur lengi verið í fararbroddi í þróun á tækninýjungum sem lágmarka áhrif bifreiða á umhverfi sitt, frá framleiðslu til förgunar undir formerkjum umhverfisstefnu Toyota; Eitt markmið: enginn útblástur*. Vottunin er því mikil viðurkenning á heildstæðri umhverfisstefnu Toyota og starfsemi fyrirtækisins hér á landi.
Hluti umhverfisstefnu Toyota á Íslandi er stuðningur við ýmis samfélagsleg verkefni á sviði umhverfismála en sem dæmi má nefna hefur Toyota stutt dyggilega við íslenska skógrækt allt frá árinu 1990 og í samstarfi við umhverfissamtökin Bláa Herinn hafa hundruð tonna af rusli og úrgangi verið hreinsuð úr náttúrunni víða um land. Það er markmið Toyota að vera leiðandi á sviði umhverfismála meðal fyrirtækja í bílgreinaiðnaði og ISO 14001 umhverfisvottun er okkar leið til að halda okkur við efnið í baráttunni fyrir bættri umgengni við náttúru og umhverfi.
