Toyota áfram í fararbroddi í umhverfismálum

Toyota á Íslandi hefur skýr umhverfissjónarmið og er eina íslenska bílaumboðið sem hefur fengið faggilda vottun samkvæmt hinum alþjóðlega ISO 14001 umhverfisstaðli. Umhyggjan fyrir umhverfinu birtist á þrennan hátt hjá Toyota: Í þróun umhverfisvænni bíla, í aukinni umhverfisvitund í rekstri fyrirtækisins og í liðveislu við framsækin verkefni fólks og félagasamtaka á sviði umhverfismála.

Við þróum umhverfisvænni bíla
Undir kjörorðinu “One Aim: Zero Emission” hefur Toyota sett sér það markmið á heimsvísu að bílar fyrirtækisins blási ekki frá sér neinum mengandi efnum. Þróun nýrra marktækra valkosta, annarra en bensínvéla, eru áfangar í þessari langferð. Toyota er frumkvöðull í svokallaðri Hybrid tækni þar sem bensín- og rafmótor vinna saman, nýjar disilvélar hafa verið þróaðar ásamt öðrum tækniframförum.

Við störfum á umhverfisvænan hátt
Toyota á Íslandi hefur fengið faggilda vottun samkvæmt hinum alþjóðlega ISO 14001 umhverfisstaðli, fyrst íslenskra bílaumboða. Vottun þýðir að óháður aðili hefur staðfest að Toyota uppfyllir öll skilyrði samnefnds staðals. ISO 14001 gerir skýrar kröfur til fyrirtækja um að þróa og innleiða gagnlega stefnu og markmið í umhverfismálum með hliðsjón af umhverfisþáttum, lagalegum kröfum og fleiru. Vottunin er mikil viðurkenning fyrir Toyota því hún felur í sér að fyrirtækið hefur lokið stefnumótun á sviði umhverfismála og ítarlegri skoðun á umhverfisáhrifum starfsemi fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur einnig sett sér markmið um hvernig enn megi draga úr mikilvægum umhverfisáhrifum starfseminnar.

Við styðjum framsækin verkefni á sviði umhverfismála
Toyota hefur lagt ýmsum athyglisverðum verkefnum lið á sviði umhverfismála um árabil. Til dæmis hefur Toyota stutt dyggilega við bakið á skógrækt í landinu allt frá árinu 1990. Nú er svo komið að víða um land er að finna myndarlega skóga sem ræktaðir hafa verið með stuðningi fyrirtækisins þar sem fólk getur notið útivistar í góðu skjóli. Þá hefur samstarf við umhverfissamtökin Bláa herinn skilað þeim árangri að hundruð tonna af rusli og ýmsum úrgangi hafa verið hreinsuð úr náttúrunni og komið í endurvinnslu. Þá styrkir Toyota vöktunarferðir Náttúrufræðistofnunar til Surtseyjar en þar er unnið mikilvægt rannsóknarstarf í þágu náttúruvísinda.

Senda á
Prentað þann 4. febrúar 2012