Förgun bifreiða
Þegar kemur að því að farga bíl hér á Íslandi sem er orðinn gamall eða ónýtur þá þarf að byrja á því að koma bílnum á viðurkenndan förgunarstað. Tæplega fimmtíu slíkir förgunarstaðir finnast vítt og breitt um landið, en hérna má nálgast lista yfir ofangreinda aðila og staðsetningar þeirra.
Þegar bílnum hefur verið skilað á viðurkenndan förgunarstað samkvæmt þeim skilmálum sem um slík skil gilda fær eigandi eða umboðsaðili bifreiðarinnar skilavottorð í hendur sem staðfestingu um að bifreiðinni hafi verið skilað.
Því næst fer eigandi/umboðsaðili bifreiðarinnar með ofangreint skilavottorð á næsta skoðunarstað og leggur inn beiðni um afskráningu bifreiðar samkvæmt gildandi fyrirkomulagi og fær að uppfylltum ákveðnum skilyrðum greitt skilagjald fyrir afskráða bifreiðina.
Hér má nálgast afskráningarbeiðni fyrir bifreiðar.
