Blái herinn

Blái herinn er leiðandi afl í baráttunni fyrir bættri umgengni við umhverfi og náttúru á Íslandi en undanfarin 10 ár hefur hann undir forystu Tómasar Knútsonar hreinsað úr náttúrunni og komið í endurvinnslu meira en 5.000 tonnum af brotajárni og fjarlægt meira en 100 tonn af rusli úr höfnum og af strandsvæðum á Reykjanesi. Blái herinn starfar sem frjáls félagasamtök með umhverfisvernd að leiðarljósi og rennur allur ágóði af starfsemi félagsins beint til þess málefnis. Toyota er helsti styrktaraðili Bláa hersins og tekur virkan þátt í starfi samtakanna.
Senda á