Nýjungar
Urban Cruiser
Urban Cruiser er djörf hugmynd sem sýnir mögulega útfærslu Toyota af smájeppanum. Hugmyndabíllinn byggir að miklu leyti á fyrri SUV-bílum Toyota en hefur þó sitt eigið kraftmikla og frumlega yfirbragð.
Urban Cruiser er hannaður í ED², hönnunarmiðstöð Toyota í Suður-Frakklandi, og er það nýjasta frá Toyota sem hannað er samkvæmt „Vibrant Clarity“ stefnunni. Innblásturinn að fersku útliti innanrýmisins er sóttur í nútíma húsgagnahönnun.
Sem dæmi um sérstaka eiginleika í innanrými er leiðsagnarskjárinn, sem er felldur inn í miðstokkinn undir gagnsærri, sveigðri klæðningu. Þessi nýja kynslóð SUV-bíla er ætluð fyrir viðskiptavini sem fara sínar eigin leiðir.

Eiginleikar
Aðalhönnunareinkennið
Það sem minnir einna mest á fyrri SUV-bíla Toyota er hálfsamsíða formið sem er notað víða, eins og í framstuðaranum, grillinu og neðri hurðarklæðningunum. Þetta form skapar tilfinningu fyrir krafti og öryggi í senn.
Hjólskálarnar undirstrika að um SUV-bíl er að ræða
Stórar hjólskálarnar beinast að rúmmiðju bílsins og gefa lipurt og létt útlit en fela um leið tiltölulega langt hjólhafið, sem er hannað til að gefa sem mest innanrými.
Ný nálgun að innanrýminu
Hönnuðurinn Yi Yeong Jae færir sig frá hefðbundnum innréttingum í bíla og sækir þess í stað innblástur til nútímalegra tískuhúsgagna. Þunn og glæsileg sætin spara bæði pláss og eru einstaklega þægileg.