Nýjungar

PM

PM (Personal Mobility) er einstaklingsfarartæki sem stígur skrefinu lengra í að persónugera bílinn. Rýmið fyrir ökumanninn minnir á belg og hefur tvo stýripinna fyrir rafstýrða hemlun, hröðun og stýrisbúnað. Burstalaus rafmótor að aftan knýr bílinn áfram. Sjónrænt samskiptakerfi heldur bílnum í sambandi við aðra PM-bíla svo þeir geti deilt upplýsingum og „spjallað saman“ um reynslu sína. PM eru félagslynd tæki sem geta ferðast í hópum þar sem eitt tekur forystuna og hin fylgja á eftir með öruggu millibili á sjálfstýringu. Aðeins fremsti bíllinn þarf að hafa ákvörðunarstaðinn forritaðan í leiðsögukerfið. PM tjáir einnig mismunandi „tilfinningar“ og notar til þess ljósdíóður á yfirbyggingunni, ljósunum og afturhjólunum sem sýna mismunandi liti. Stilling farþegarýmisins og lengd hjólhafsins laga sig að akstursskilyrðum, bíllinn stendur hátt til að auðvelda inngöngu, lækkar sig aðeins fyrir innanbæjarakstur og teygir alveg úr sér fyrir akstur á miklum hraða. Aukin lipurð fæst með afturhjólum sem hægt er að snúa í gagnstæðar áttir, þannig að hægt er að snúa bílnum á staðnum. Framhjólin hafa sjálfstæða stýringu og nýja öxulhönnun með hola miðju.

PM er „klæðilegur“ einstaklingsbíll sem setur markið á einingu ökumanns og ökutækis.

„Lifandi“ stellingar

Breytilegar „lifandi“ stellingar: Farþegarýmið og hjóla- og fjöðrunarbúnaður eru aðskilin og því getur PM breytt stellingu sinni eftir hraða og til að auðveldara sé að fara inn í og út úr bílnum. Aðalljósin líkjast helst fálmurum og því minnir bíllinn á framandi lífveru.

Snertiskjár með þrívídd

Snertiskjár með þrívídd: Skynjar staðsetningu fingra ökumanns og birtir upplýsingar um ökutækið, staðsetningu annarra PM-bíla og önnur gögn.

Rétt líkamsstaða í fyrirrúmi

Í PM er mikið lagt upp úr því að aðstaða ökumanns sé með besta móti. Ökumannsrýmið og lögun sætisins eru hönnuð til að falla eins og flís við rass, svo ökumaðurinn geti einbeitt sér að akstrinum og eiginleikum bílsins.