Nýjungar
MTRC
Toyota MTRC er sportbíll sem höfða á til ökumanna framtíðarinnar með einstökum eiginleikum sem byggja á aðalstyrkleikum Toyota: árangri í bílaíþróttum, fjórhjóladrifssögunni og leitinni að hátæknilausnum. Hönnunin og hugmyndin að baki MTRC er einstaklega sportleg. Svo verður hann bráðlega í aðalhlutverki í tölvuleiknum Gran Turismo 4. Efnarafallinn býður upp á framúrskarandi aksturseiginleika og engan mengandi útblástur, rafstýringin gefur möguleika á rafmótor við hvert hjól sem veitir óviðjafnanlega hjólastýringu. Stillanleg fjöðrunarhæð og hjólbarðar sem laga sig að færð auka á skemmtunina.
Spurningar til hönnuðar MTRC:
Af hverju er notaður einn rafmótor fyrir hvert hjól?
Rafmótor við hvert hjól veitir fjórhjóladrifsstjórn sem á engan sinn líka. Hverjum mótor er stjórnað rafrænt, sem gerir dreifingu á togkrafti á milli hjóla mun hraðvirkari en með venjulegu kerfi sem notar mismunadrif.
Hvernig er stillingunum breytt til að bæta afköstin?
Bíllinn getur breytt fjöðrunarhæðinni til að auka stöðugleika við mikinn hraða eða bæta aksturseiginleika á vegleysum. Auk þess eru notaðir hjólbarðar með innbyggðum skynjurum. Þeir geta greint skilyrði á veginum og lagað veggripið tafarlaust að aðstæðum ef þörf krefur.
Hvaða kosti hefur þessi bíll þegar kemur að tölvutækni?
MTRC notar svokallað „Mixed Reality“-kerfi. Það gerir ökumanni kleift að sjá upplýsingar í hjálminum, rétt eins og í framrúðuglæju (Head Up Display). Um er að ræða upplýsingar um aðstæður á veginum, m.a. veghita, hvort það sé hálka eða snjór á veginum og ástand hjólbarða. Kerfið gegnir því nánast sama hlutverki og aðstoðarbílstjóri.