Nýjungar

Concept car iQ

Framúrstefnulegum tækninýjungum er mætt með álíka róttækri hönnun í nýja Concept car iQ bílnum frá Toyota. Frá hönnun miðjustokksins í innanrýminu sem sækir innblástur í syndandi djöflaskötu til perluhvíts og fjólublás ytra byrðis er Concept car iQ bíllinn bylting á götunum.

Concept car iQ stendur fyrir þau tvö leiðarljós sem Toyota "Vibrant Clarity" hönnunar heimspekin gengur út á: alger fókus á notagildi og fullkomin skuldbinding á stíl. Hagkvæm notkun Toyota Concept car iQ á birtu og rými vekur upp tilfinningu fyrir því að innanrýmið sé jafn breitt himninum, meðan hugmyndanýjungar Toyota hafa náð að minnka CO2 útblástur. Með því að endurhugsa ábyrgan innanbæjarakstur stendur Concept car iQ fyrir skref í átt að sjálfbærri framtíð.
Róttækt ytra byrði er minna en 3 metrar að lengd, sem er næstum 0,5m styttra en AYGO og 0,75m styttra en Yaris. Snjöll staðsetning hjólanna á á jöðrum bílsins þýða að Concept car iQ heldur öruggri og tryggri stöðu á veginum. Það eykur einnig sætispláss innandyra. Þannig að hann er tilvalinn í lauma sér í hin minnstu bil og stæði auk þess að bjóða uppá nægt innanrými.
Fjölbreytt sætaskipan þýðir að grunn 2ja manna uppsetningin getur hratt og örugglega breyst í annaðhvort 4-fullorðinna eða 3-fullorðinna-með-farangri rými. Landslags sóllúgan hleypir mikilli birtu inn og eykur tilfinningu fyrir auknu rými.
Minnkuð tækni gefur færi á vel byggðu stjórnborði og miðstöð, allt sveipað hönnun sem minnir á djöflaskötu. 3-í-1 þrívíddar mælir er staðsettur fyrir ofan stýrissúluna, hljóð og leiðarkorta stýringar eru staðsettar í sjálfu stýrinu með GPS leiðarkortinu varpað á framrúðuna.