Inngangur

Hugmyndabílar snúast um að láta drauma rætast og að virkja tilfinningar og innblástur. Þeir veita Toyota kjörið tækifæri til að sýna hvernig hönnuðir og verkfræðingar fyrirtækisins láta ímyndunaraflið og sköpunargleðina leiða sig að nýjungum í hönnun og tækniframförum. Hugmyndabílar gera Toyota kleift að sýna hvað framtíðin ber í skauti sér.

Hönnunarmiðstöðvar Toyota í Kaliforníu, Japan og Suður-Frakklandi leggja reglulega fram hönnunartillögur fyrir nýja hugmyndabíla. Leirlíkön eru send til höfuðstöðvanna í Tókýó og fær sigurvegarinn að þróa bifreiðina fyrir framleiðslu.

  • Concept car iQ Lítill, umhverfislega hagkvæmur og skapar rými með stíl. Toyota Concept car iQ er endurhugsað innanbæjarfarartæki, bylting á götunum. Meira...
  • FT-HS FT-HS, Future Toyota Hybrid Sports, er hannaður til að sýna fram á að með því að nota þróaða Hybrid Synergy Drive® tækni Toyota, geti sportbílar framtíðarinnar boðið uppá aflmikla akstursreynslu auk framúrskarandi frammistöðu á umhverfissviðinu. Meira...
  • i-swing i-swing er fjórða útfærslan á hugmyndum um einstaklingsfarartæki frá Toyota. Lítil og sveigjanleg yfirbygging i-swing kemst vel fyrir á heimilum fólks. Meira...
  • Fine-T Fine-T er afrakstur þeirrar viðleitni Toyota að lágmarka umhverfisáhrif en um leið að hámarka væntingar farþega, ásamt því að veita fyrsta flokks öryggi Meira...
  • Urban Cruiser Urban Cruiser er djörf hugmynd sem sýnir mögulega útfærslu Toyota af smájeppanum. Hugmyndabíllinn byggir að miklu leyti á fyrri SUV-bílum Toyota en hefur þó sitt eigið kraftmikla og frumlega yfirbragð Meira...
  • FINE-S FINE-S, sem státar af einstakri efnarafals- og „hybrid“-tækni Toyota og byltingarkenndri hönnun, stendur fyrir nýja sýn Toyota í umhverfismálum. Meira...
  • PM PM (Personal Mobility) er einstaklingsfarartæki sem stígur skrefinu lengra í að persónugera bílinn. Rýmið fyrir ökumanninn minnir á belg og hefur tvo stýripinna fyrir rafstýrða hemlun, hröðun og stýrisbúnað. Meira...
  • CSS CSS er með Hybrid Synergy Drive aflrás af nýjustu gerð staðsetta í miðjunni og E-four (rafrænt fjórhjóladrif) og er hannaður til að skara fram úr hvað varðar umhverfisvernd og akstursupplifun Meira...
  • FINE-N FINE-N sýnir hvernig nýjasta tækni í efnarafölum opnar dyr að nýjum möguleikum í hönnun. Vetnisgeymirinn er einungis 150 mm á hæð og er undir gólfi bílsins, ásamt litíum-rafgeyminum. Meira...
  • MTRC Toyota MTRC er sportbíll sem höfða á til ökumanna framtíðarinnar með einstökum eiginleikum sem byggja á aðalstyrkleikum Toyota: árangri í bílaíþróttum, fjórhjóladrifssögunni og leitinni að hátæknilausnum. Meira...
Senda á
Prentað þann 4. febrúar 2012