Nýjungar

i-swing

i-swing er fjórða útfærslan á hugmyndum um einstaklingsfarartæki frá Toyota, og fylgir í kjölfarið á p.o.d., PM og i-unit. Lítil og sveigjanleg yfirbygging i-swing kemst vel fyrir á heimilum fólks. Hann sýnir mannlegt athafnafrelsi og hægt er að sérsníða hann að mörgu leyti.

i-swing býður upp á tvenns konar akstursmáta: Tveggja hjóla akstur fyrir öruggan akstur innan um fólk og þriggja hjóla fyrir lipran akstur á vegum með venjulegri umferð.

Tvíátta samskipti með framúrskarandi búnaði gerir i-swing að farartæki sem fer langt fram úr möguleikum og getu hefðbundinna farartækja.

Eiginleikar

Ytri hönnun

Yfirbyggingin er ekki hönnuð sem hefðbundinn bíll heldur fremur í anda nýrra lifnaðarhátta. Yfirbyggingin er gerð úr höggdeyfandi pólýúretani og er lögun hennar í anda naumhyggju.








Gervigreind

i-swing notar gervigreind í samskiptum við ökumanninn og tekur á sig mynd sýndarpersónu sem birtist í sprettigluggum. Gervigreindin gerir ökutækinu kleift að læra á hegðunarmynstur ökumannsins og velja upplýsingar út frá því.







Sérsnið

Hægt er að taka efnið sem er utan á i-swing af og skipta um það. Bæði framhurðin og þríhyrnda bakspjaldið hafa innfellda ljósdíóðulitaskjámynd sem gefur notandanum kost á að velja um kyrrmynd eða myndskeið til að sýna.