Nýjungar
Fine-T
Fine-T er afrakstur þeirrar viðleitni Toyota að lágmarka umhverfisáhrif en um leið að hámarka væntingar farþega, ásamt því að veita fyrsta flokks öryggi.
Í hugmyndinni fara saman fegurð og háþróuð tækni sem lætur sér annt um fólk. Jafnvel það að stíga inn í og út úr bílnum er gert fyrirhafnarlaust. Þegar vængjahurðin opnast snýst ökumannssætið út á við til að auðvelda inngöngu í bílinn og rennur svo sjálfkrafa til baka í akstursstöðu.
Háþróað efnarafalskerfi Fine-T tryggir frábæra frammistöðu hvað varðar umhverfið og sýnir hversu nálægt við komumst því að hafa engin neikvæð áhrif á umhverfið. Innanrýmið er líkt og í Avensis en ytri mál eru nánast þau sömu og á Yaris.
Eiginleikar
Nýr Toyota efnarafall
Fine-T er búinn fyrirferðarminni en öflugri nýjum Toyota efnarafal. Einingunum er fyrir komið undir gólfi bílsins sem gefur meira rými fyrir farþega, ótrúlega lágan þyngdarpunkt og lítið tregðuvægi sem stuðlar að betri akstursupplifun.
Óviðjafnanleg lipurð
Sjálfstætt fjórhjólastýrikerfi gefur einstaklega lítinn beygjuradíus sem gerir u-beygjur í þröngum götum mögulegar sem og 360 gráðu lóðréttan snúning, sem ómögulegt er að ná á venjulegum bíl.
360 gráðu myndavélaeftirlit
Fine-T er búinn eftirlitsmyndavélum og stórum skjá til að efla öryggisbúnað bílsins. Saman vakta þessar myndavélar allt nánasta umhverfi bílsins og greina hindranir. Skjárinn veitir útsýni yfir svæði í kringum bílinn sem ökumaður getur yfirleitt ekki séð.