Nýjungar
CSS
CS&S er með Hybrid Synergy Drive aflrás af nýjustu gerð staðsetta í miðjunni og E-four (rafrænt fjórhjóladrif) og er hannaður til að skara fram úr hvað varðar umhverfisvernd og akstursupplifun.
1. Framúrskarandi akstursupplifun: Næsta kynslóð „hybrid“-kerfa sameinar 1,5 lítra bensínvél og 50 kW rafmótor fyrir kraftmikla hröðun. E-Four fjórhjólakerfið og miðlæg staðsetning „hybrid“-aflrásarinnar bæta enn frekar aksturseiginleikana og veggripið.
2. Hrífandi hönnun: Einfaldar línurnar í sætahönnuninni flæða áfram í hjólaskálarnar þar sem kraftur og afköst fjórhjóladrifsbúnaðarins njóta sín. Andstæðar línur og skörp horn undirstrika stutt, breið og lágstæð hlutföllin.
3. Einfalt og sportlegt innanrými: Skeifuformið sem er svo ráðandi í ytra útliti er einmitt notað til að aðgreina rými ökumanns og farþega og eykur um leið sportlegt yfirbragðið.
4. 2+2 sæti með rennanlegri hlíf: Aftursætin verða aðgengileg með því að renna hlífinni aftur. Hægt er að ýta bökum framsætanna alla leið fram til að loka bílnum.
5. Space Touch stjórnunarviðmót: Ökumaðurinn „snertir“ heilmyndarviðmótið og stýringin er eðlileg og fyrirhafnarlaus.

CS&S er umhverfisvænn um leið og hann býður upp á sportlega aksturseiginleika.
Fyrirferðarlítill og lágstæður
CS&S er hannaður fyrir sanna akstursánægju. Langt hjólhafið með stuttri skögun gefur bílnum djarft og kraftmikið útlit.
Toyota Hybrid Synergy Drive tækni
CS&S er knúinn með Toyota Hybrid Synergy Drive tækni, með fjórhjóladrifi.
„Toyota Space Touch“
Byltingarkennda „Toyota Space Touch“ notendaviðmótinu fyrir innbyggða margmiðlunarkerfið er stjórnað með vörpuðum heilmyndum.