Yaris er risaSMÁR

Veldu þína útfærslu

Fáðu verð og grunnupplýsingar á fljótlegan hátt.
Hér fara saman notagildi og frábært útlit ásamt fyrsta flokks gæðum og akstursánægju. Yaris er frábær valkostur.

Hreinar línurnar gefa innanrýminu fágað og nútímalegt yfirbragð og hönnunin tekur mið af því að eins vel fari um ökumann og farþega og kostur er. Yaris er fáanlegur þriggja eða fimm dyra auk þess sem hann státar af aksturseiginleikum sem við höfum hingað til aðeins átt að venjast í stærri bílum.

Með nýjum vélum og Toyota Optimal Drive, vistvænum lausnum sem skapa fullkomið jafnvægi á milli minnkaðrar eldsneytisnotkunar, minni losunar á koltvísýringi og óviðjafnanlegrar akstursánægju er Yaris tilvalinn fyrir alla þá sem vilja njóta lífsins til fullnustu.