Yaris Sol er með sérstaka hönnun á 15" hjólkoppunum.
Einstaklega þröngi 4,7* metra beygjuradíus Toyota Yaris auðveldar til muna að leggja í stæði - jafnvel allra minnstu stæðin innanbæjar.

*5,6 metrar á Yaris TS
Þokuljós eru staðalbúnaður á Yaris TS og auka sýn og öryggi á ferðalögum í hvaða veðri sem er.
"Smart Entry & Start" kerfi Toyota er staðalbúnaður á Yaris TS. Með sérstakan fjarstýringarlykil á þér tekur þú í hurðarhandfangið og bíllinn aflæsist. Til að læsa snertir þú hnapp á handfanginu þegar þú gengur í burtu. Fullkomið ef þú ert með fullar hendur.

"Smart Start" fer vel með "Smart Entry" kerfinu við að auðvelda hlutina, þú einfaldlega ræsir bílinn með því að ýta á hnapp. Alger óþarfi að vesenast með lykla.
Með öll sæti niðri næst 738 lítra geymslurými fyrir hvað sem þig vantar. Jafnvel með sætin uppi er samt 272 lítra geymslupláss í boði, nægt rými fyrir barnakerru. Með því að renna aftursætunum í fremstu stöðu eykst plássið í 363 lítra - handhægt auka rými til að hjálpa þér við að ná sem mestu út úr deginum.
Í Toyota Yaris er miðstokkurinn miðpunktur mikilvægra mæla og stjórntækja, meðal annars er í honum stafrænn mælir og þrívíddarskjár* sem sýnir nauðsynlegar upplýsingar.

* Yaris TS er með analog hraða- og snúningshraðamæli með rauðgulri lýsingu.
Viltu að Yaris upplifun þín fái fágaðra yfirbragð? Sol útgáfan kemur með leðurstýri og krómáferð á girskiptihnúð - fyrir fólk sem elskar að aka.
Mælaborð Yaris stenst kröfur um hagkvæmni, í því er búið að koma haganlega fyrir 18,2* lítrum af geymslurými.

*17,1 lítri ef hnéloftpúði er til staðar.
Sol útgáfan er með vandaða hljómtækjasamstæðu. Þú getur hlustað á útvarpið, spilað geisladiska - þar með talið diska með WMA eða MP3 skrám.

Einnig er hljóðinngangur til að tengja margmiðlunarspilara aukalega.
Handfrjáls Bluetooth búnaður með raddstýringu er staðalbúnaður í Yaris TS. Símtöl flytjast hnökralaust á milli símans og kerfisins þegar þú sest inn í eða ferð út úr bílnum.
Þrátt fyrir mikla akstursánægju gefur Toyota Yaris frá sér enn minni útblástur: aðeins 125g/km í blönduðum akstri miðað við 1,33 lítra beinskipta bensínvélina og 119 g/km miðað við MultiMode sjálfskiptinguna.

Toyota Yaris endurskrifar reglur akstursfræðanna. Stíf grind ásamt þróuðu MacPherson gormafjöðrunkerfi að framan auka við kraftmikla akstursupplifunina.
Fjölmargar eldsneytissparandi tækninýjungar gera Yaris að enn betri kosti. Til að mynda eyðir Yaris með 1,4 lítra dísilvélinni einungis 4,1 lítra á hundraðið í blönduðum akstri.
MultiMode skipting með sjálfvirkri kúplingsstjórnun hefur þrjár stillingar: beinskipting þar sem hægt er að skipta upp og niður í röð með því að nota gírstöngina eða sportlega flipa bakvið stýrið; hefðbundin sjálfskipting; og hraðvirkari sport sjálfskipting. Það besta er að þú getur skipt á milli bein- og sjálfskiptingar eins og þú vilt.

* MultiMode er ekki fáanleg fyrir Yaris Terra.
Toyota Optimal Drive: Betri nýting eldsneytis. Minni útblástur. Engar málamiðlanir í akstursánægju.

Upplifðu Toyota Optimal Drive. Í leit að fullkomnun umhverfisvæns aksturs erum við sífellt að minnka útblástur koltvísýrings án málamiðlana þegar kemur að akstursánægju.
Eftir að hafa fengið verðlaun fyrir vél ársins 2007 og 2008 fórum við enn lengra til að betrumbæta hagkvæmni hinnar afar léttu og þéttu 1,0 lítra, þriggja strokka vélar.

Þökk sé Toyota Optimal Drive að vélin er sprækari án þess að það komi eins mikið niður á umhverfinu. Hún skilar 51 kW (69 hö) og 93 Nm af togi á 3600 sn/mín og er ein kraftmesta vélin í sínum stærðarflokki, með eldsneytiseyðslu upp á 5,0 lítra á hundraðið miðað við 5 gíra beinskiptingu (4,9 lítrar á hundraðið* miðað við MultiMode skiptingu) - á meðan útblástur CO2 er aðeins 118 g/km* miðað við beinskiptingu (115 g/km* með MM skiptingu).

*Tölur miðast við blandaðan akstur.
Glæný 1,33 lítra Dual VVT-i vélin stendur fyrir það nýjasta í tækni Toyota í þróun léttra en kraftmikilla véla - Toyota Optimal Drive. Fjögurra strokka vélin nær fram alls 74 kW (100 hö) og 132 Nm í togi, CO2 útblástur er aðeins 119 g/km með MultiMode skiptingu.

Fyrir hámarks frammistöðu velur þú 1,8 lítra Dual VVT-i. En mundu að þú þarft ekki að fórna hagkvæmni fyrir akstursánægju: þó að vélin skili 98 kW (133 DIN hö) við 6000 sn./mín og 173 Nm togi við 4400 sn./mín, er eldsneytiseyðslan 7,0 lítrar á hundraðið* og CO2 útblástur 164 g/km*

* Tölur miðast við blandaðan akstur.
Með innleiðingu framsækinnar Toyota Optimal Drive tækni hefur Toyota framleitt hagkvæmustu Yaris dísilvélina til þessa: 1,4 lítra D-4D vélina. Meðal betrumbóta má nefna "common rail" háþrýsti innspýtingu sem gefur betri bruna, rafstýrða hringrás útblásturs sem stuðlar að minni mengun og forþjappa með breytilegu loftflæði sem gefur meira tog.

Niðurstaðan er vél sem lofar 66 kW (90 hö) á 3800 sn/mín og 205 Nm togi á breiðum skala snúningshraða - 1600-3000 sn/mín. CO2 útblástur er nú kominn niður í 109 g/km* með 6 gíra beinskiptingunni (110 g/km* með 6 þrepa MultiMode skiptingunni), á meðan eldsneytiseyðslan er einungis 4,1 lítri á hundraðið(1).

* Tölur miðast við blandaðan akstur
(1) Blandaður akstur með beinskiptingu og hvarfakút
Toyota Yaris hefur hlotið hámark fimm stjörnu einkunn í árekstrarprófunum Euro NCAP. Með samtals 35 stig gerir það hann að einum öruggasta bíl í sínum flokki og vitnisburður um gæði hönnunar, verkfræði og gæða Toyota Yaris.

Euro NCAP er sjálfstæð öryggismatsstofnun studd af fimm evrópskum stjórnvöldum, Evrópuráðinu og bíla- og neytendasamtökum allra landa í Evrópu.
ABS hemlunarkerfi hindrar að hjólin læsist og renni til þegar hemlað er á hálum vegi. Rafstýrð hemlunardreifing (EBD) stýrir dreifingu hemlunarafls á milli allra fjögurra hjólanna. Hemlunarhjálpin (BA) eykur bremsuþungan við neyðarhemlun ef þess þarf.

Stöðugleikastýring (VSC) sem heldur ökutækinu frá því að renna, vinnur með spólvörninni (TRC): ef framhjólin spóla við mikla inngjöf minnkar spólvörnin vélarafl til að ná aftur gripi. Stöðugleikastýring (VSC) er staðalbúnaður á Yaris TS.
Toyota Yaris býður upp á allt að sjö SRS loftpúða. Allar gerðir eru með SRS fram og hliðarloftpúða fyrir ökumann og farþega í framsæti. Sol útgáfa er einnig með hnéloftpúða og loftpúðagardínur sem staðalbúnað.
Öll fimm sætin eru með þriggja punkta ELR öryggisbelti. Öryggisbeltin í framsætum eru búin forstrekkjurum sem toga beltin aftur um leið og árekstur verður og álagstakmörkurum sem slaka á spennunni á beltunum þegar ákveðnu hámarki er náð. Tveggja þrepa ljós og hljóðáminningarkerfi fyrir öryggisbeltin er staðalbúnaður.
Toyota Yaris er með trausta og sterka yfirbyggingu. Einnig er hann með MICS-kerfi Toyota (Minimal Intrusion Cabin System) en íhlutir þess eru hannaðir með það fyrir augum að þeir dragi í sig og dreifi höggþunga við árekstur til að farþegarýmið aflagist eins lítð og kostur er.