Fágaðar, flæðandi línur og falleg hönnun gera Verso að bíl sem skarar fram úr.

Kröftug form S-hönnunarinnar hámarka á snjallan hátt skiptingu svæða á milli farþega og farangursrýmis.

Bíll hannaður til aksturs með áherslu á aukin þægindi farþega.
Verso gerðirnar koma með mismunandi útfærslu á felgum.

Verso Terra kemur á 16" stálfelgum með 6 arma hjólkoppum

Verso Luna, næsta gerð fyrir ofan, kemur á 16" stálfelgum og hjólkoppum með glæsilegri 10 arma hönnun.
Silfraðir þakbogar sem fylgja bogalínum þaksins virðast "fljóta" en er haldið uppi af svörtum styrktarbitum.

Þetta er nýjung frá Toyota og þakbogarnir eru ekki aðeins hagkvæmir heldur auka þeir einnig á stíl og léttleika í heildarhönnun Verso*.

*Ekki í boði fyrir útgáfu með glerþaki.
Sérkenni Verso eru augljós á gæðasmíð bílsins.

Efnisval er eins vandað og kostur er. Renndu fingrum þínum eftir kraftmikilli yfirbyggingunni og mjúku innanrýminu.

Hann virkar traustur en hefur samt fágað yfirbragð - þar sem sérhver hlutur gerir sem mest úr rúmgóðri hönnuninni.
Ljós á botni hliðarspegla lýsa þegar ökumanns- eða farþegadyr eru notaðar og lýsa upp jörðina fyrir neðan.

Þetta hjálpar við að forðast vatns- eða drullupolla sem gætu verið umhverfis bílinn þegar stigið er úr honum.
Glæsilegt útlit Verso nær líka til innanrýmisins. Kraftmiklar og mjúkar línur nýta rýmið til fullnustu fyrir bæði ökumann og farþega.

Hárfín S-laga bylgja teygir sig yfir mælaborðið. Áhrifin, sérstaklega með lýsingu í mælaborði, eru slakandi og rúmgott umhverfi. Fjölskyldan getur teygt úr sér og gert sig heimakomna.
Verso er enginn venjulegur fólksflutningabíll, heldur er hann hannaður til aksturs og sameinar háþróaða tækni og glæsilegt útlit.

Hraða- og snúningshraðamælirinn eru í hálfhring og snúa að ökumanni. Við hlið þeirra er 2,5 tommu skjár sem sýnir fjölda gagnvirkra upplýsinga um aksturinn sem auðvelt er að kalla fram með þægilegum rofa í stýrinu.
Að sitja undir stýri í Verso er ánægjuleg upplifun. Nákvæm og þróuð stjórntæki eru í seilingarfjarlægð og hönnuð á skynsaman og þægilegan hátt.

Stjórnborðinu er snúið að þér svo að lykilstjórntæki séu við fingurgóma - þannig getur þú notið akstursins.
Hljóðkerfismöguleikarnir munu hljóma vel.

Verso Terra er með 4 hátalara geislaspilara/útvarpi og MP3 samhæft hljómtæki.

Verso Luna er með 6 hátalara kerfi og Bluetooth búnaði.

Sol útgáfan er einnig með magasíni fyrir 6 geisladiska.
Tvískipt sjálfvirk loftkæling* eykur þægindi með því að ökumaður og farþegi í framsæti geta hvor um sig valið sitt þægilega hitastig - þannig að þú og fjölskylda þín hafið það þægilegt alla leið.

*Staðalbúnaður á Verso Luna. Verso Terra er með handstýrða loftkælingu.
Með stillanlega Verso leðurstýrið* í höndunum ertu með fulla stjórn á hlutunum. Þú getur ekki einungis stillt hljómtækin að þínum þörfum með því að varla lyfta fingri, heldur getur þú einnig skoðað allskyns hagnýtar upplýsingar á upplýsingarskjánum með því að hreyfa rofa. Það er bara miklu skemmtilegra að aka Verso.

* Staðalbúnaður í Verso Luna
Tvær gerðir af áklæði eru í boði eftir því hvaða gerð af Verso þú velur.

Áklæðin eru eftirtektarverð í hönnun, úr endingargóðu efni og eiga vel við mjúkar línur innanrýmisins.
Farþegarýmið í Verso býður upp á hlý og rúmgóð þægindi. Hvort sem rýmið er fyllt dagsbirtu frá glerþakinu sem fæst sem aukabúnaður þá er upplifunin slökun alla leið.

Við viljum að þú getir teygt úr þér í þínu eigin rými og litið á það sem setustofu - heimili að heiman á löngum ferðalögum. Með Verso er hver farþegi í fyrsta sæti.
Geymslupláss eru mörg og sniðuglega útfærð í Verso.

Það er þægilegt hólf undir farþegasætinu, hólf í gólfi í annarri sætaröð fyrir stærri hluti og nytsamleg hólf í miðjustokki milli framsæta. Auk þess er spegill til að fylgjast með krökkunum í aftursætunum.

Og þegar þorstinn gerir vart við sig er kælt hólf yfir hanskahólfinu fyrir kalda drykki og drykkjarhaldarar við hvert sæti.
Þegar þú þarfnast auka farangursrýmis býður Verso framúrskarandi sveigjanleika. Easy Flat 7 sæta kerfi Toyota þýðir að þú getur á fljótan hátt hagað sætaröðuninni að þínum óskum.
Með annarri hendi getur þú lagt sætin flöt niður og breytt Verso í 2 sæta eða 5 sæta bíl með einni hreyfingu án þess að fjarlægja neitt. Einnig er í boði flöt útfærsla sem hámarkar rúmmikið geymslurýmið.
Verso býður snjallt farangursstjórnunarkerfi sem hámarktar nýtingu á rými, með hvaða sætaröðun sem er. Breytilegt gólfið í 5 sæta útfærslu hámarkar geymslurýmið auk þess sem hægt er að geyma verðmæti í földum hólfum.

Gólfið er einnig niðurfellanlegt þannig að stærri hlutir geti rúmast þar. Í 7 sæta útfærslu er geymslurýmið 198 lítrar með auka plássi undir þriðju sætaröð. Skottið í Verso er því ekki aðeins stórt heldur er það einnig vel úthugsað.
Sætin hafa verið hönnuð með þægindi og öryggi í huga.

Betur bólstruð og með auknum stuðningi. Löng ferðalög munu þjóta hjá þar sem þú nýtur þín betur í þínu eigin rými.
Að ferðast með Verso er fyrsta flokks upplifun. Teygðu úr þér í vönduðum þægilegum sætunum og hallaðu þér að bólstruðum armhvílunum.

Önnur sætaröðin kemur einnig með niðurfellanlegu borði á sætisbökum (Verso Luna), sem er tilvalið þegar þú vilt fá þér að borða.
Þegar Verso skynjar að þú gætir verið að aka hagkvæmar kviknar á vistakstursmælinum eða gírskiptiljósinu* og gefur þér til kynna hvernig hægt sé að spara eldsneyti og minnka útblástur.

*aðeins beinskiptur.
Miðað við jafn stóran bíl og Verso þá er hann einstaklega meðfærilegur. Þrátt fyrir lengra hjólhaf, hefur hann bættan beygjuradíus og því er auðveldara að leggja í stæði.

Sýn ökumanns er bætt þar sem "blind" svæði hafa minnkað umtalsvert. Þegar bakkað er sýnir spegill með glýjuvörn og innbyggðum bakkskjá* hvað er að gerast fyrir aftan þig.

* Fáanlegt sem aukabúnaður.
Með bættu aflstýri, tilkomumikilli hröðun og afskaplega næmri stjórn, er hver mínúta við akstur Verso unun ein. Upplifunin er mjúk og hljómar þannig líka, hljóð, titringur og stífleiki eru í algeru lágmarki.
Nýtt fjöðrunarkerfi hefur verið endurhannað fyrir hámarks stöðugleika og veitir framúrskarandi akstursþægindi auk bættrar stjórnunar og lipurðar. Aksturinn verður traustur, öruggur og skemmtilegri.
Flestar loftaflshannanir reyna að draga úr loftmótstöðu; á Verso látum við vindinn vinna fyrir okkur. Niðurstaðan er leiðandi loftmótstaða upp á aðeins Cd 0,295.

Mjúkt flæði og slétt yfirbygging með vindskeiði að aftan tryggir stöðugleika í akstri með lágmarks eldsneytiseyðslu. Undir bílnum er framsækin útfærsla lóðréttra ugga sem auka stjórn og akstursþægindi.
2,2 lítra D-CAT 150 dísilvélin er með mjúka, snjalla 6-þrepa sjálfskiptingu sem veitir ánægjulegan akstur með aukinni hagkvæmni - auk aukinnar stjórnar og afls þegar þú þarfnast þess mest.

Stýrið á Verso með þessarri vél eða 1,8 lítra bensínvélinni með Multidrive S sjálfskiptingunni er með skiptiflipum. Fliparnir gefa nákvæma stjórn við fingurgóma og gera Verso enn skemmtilegri í akstri.
Toyota Optimal Drive er staðalbúnaður á öllum Verso vélunum. Þetta er framsækin tækni sem skilar kraftmiklu jafnvægi minni eldsneytiseyðslu og minni losun koltvísýrings án þess að það komi niður á akstursánægjunni.

Þessar þróuðu vélar eru meðal þeirra umhverfisvænustu í sínum flokki. Á sama tíma er aflið og togið aukið fyrir framúrskarandi afköst.
Þessi bensínvél framkallar 132 DIN hö við mikla hröðun, en minnkar eldsneytiseyðslu niður í aðeins 6,7 lítra á hundraðið. Valvematic vélin blandar saman aukinni akstursánægju við aukið afl/tog, viðbragðstíma vélar og minnkun útblásturs (158g/km) með því að stjórna samtímis tíma og lyftu ventlanna.

Ásamt Dual VVT-i og Toyota Optimal Drive framkallar vélin hreinni og hagkvæmari útblástur. Vélin kemur með 6 gíra beinskiptingu.
Þessi stærri bensínvél skilar 147 DIN hestöflum með auknu afli/togi og viðbragðstíma vélar og eldsneytiseyðsla minnkar niður í 6,9 lítra á hundraðið. Valvematic tæknin ásamt Toyota Optimal Drive tækninni vinna að því að skapa hreinni, hagkvæmari brennslu, útblástur koltvísýrings er einnig minnkaður í aðeins 162 g/km.

Vélin er í boði með 6 gíra beinskiptingu og kvikri Multidrive S sjálfskiptingu. Sjálfskiptingin tryggir sjálfkrafa hámarks tog og framúrskarandi eldsneytissparnað á hvaða hraða sem þú ert.
Þessi dísilvél er með 6 þrepa beinskiptingu og býður blöndu afls, togs og nákvæmrar stjórnunar. Hún nýtir nýjustu dísiltækni ásamt Toyota Optimal Drive og skilar 126 DIN hestöflum auk 310 Nm togi við 1800 til 2400 sn./mín.

Eldsneytiseyðslan er aðeins 5,6 lítrar á hundraðið og koltvísýringsútblástur er einn sá lægsti í þessum flokki eða aðeins 140 g/km með hvarfakútnum (CCO).
2,2 lítra D-CAT 150 dísilvélin færir þér óviðjafnanlega blöndu afls og togs við 150 DIN hestöfl en samt ótrúlega lítinn útblástur og framúrskarandi eldsneytissparnað eða aðeins 6,8 lítar á hundraðið. Vélin nýtir sér D-CAT brautryðjandatækni Toyota til að minnka sótagnir og köfnunarefnisoxíð útblástur niður í aðeins 178 g/km.

Ásamt Toyota Optimal Drive býður vélin einhver hreinustu afköst nútíma dísilvéla. Kemur með snjallri 6 þrepa sjálfskiptingu.
Með bættu virku og fyrirbyggjandi öryggi auk öryggi gangandi vegfarenda er Verso hannaður til að ná hámarkseinkunn í Euro NCAP árekstrarprófunum - og tryggja þannig hámarksöryggi farþega og gangandi vegfarenda.

Nýr styrktur undirvagn hefur verið byggður til að ná forystuleiðandi öryggi í árekstarvörn að framan, aftan, til hliðar og á ská.
Við árekstur tryggir Verso að þú og fjölskylda þín eruð varin með sjö aðskildum loftpúðum.

Meðal þeirra eru loftpúðar ökumanns og farþega með nálægðar- og höggskynjurum til að tryggja að þeir blási rétt upp og varni áverkum. Loftpúðagardínur og hnéloftpúði eru einnig staðalbúnaður.
Verso er búinn sérhönnuðu WIL-kerfi (Whiplash Injury Lessening) í framsætum auk virkra höfuðpúða.

Við aftanákeyrslur á litlum hraða styðja WIL-kerfið og virku höfuðpúðarnir samtímis við bakið og höfuðið og minnka hættuna á sveifluáverkum.
Verso er búinn fjölda virkra öryggisatriða til að tryggja að þú sért við stjórnvölinn. Spólvörn (TRC) grípur inn í ef bíllinn missir grip á veginum og dreifir afli á hvert hjól.

Á meðan stillir Stöðugleikastýringin+ (VSC+) sjálfkrafa afl stýris og vélar eins og þarf til að hjálpa við stjórnun Verso ef hann byrjar að renna til. Bæði spólvörn og stöðugleikastýring+ er staðalbúnaður á Verso.
Afar björt, hágeisla halogen aðalljós veita betur dreifða birtu.

Að aftan eru orkusparandi LED ljós staðalbúnaður - sem skera niður koltvísýringsútblástur.

Hemlunarljósin veita einnig hraðari svörun og við um það bil hundrað kílómetra hraða á klukkustund þýðir það auka sex metra hemlunarvegalengd í bílinn fyrir aftan.
Öryggisbelti í Verso hafa verið hönnuð með forstrekkjurum og álagstakmörkurum sem hjálpa við að minnka áverka á brjóstholi.

Einnig eru sérstakar ISOFIX festingar til staðar til að festa barnabílstóla á öruggan og þægilegan hátt.

Þróað hemlunarkerfi Verso er með ABS kerfi sem hjálpar þér við að halda stjórn með því að stýra hemlunarþrýstingi milli allra fjögurra hjóla þannig að hann hæfi gripi hvers hjóls fyrir sig. Rafstýrð hemlunardreifing (EBD) bætir þetta upp með því að hámarka nýtingu hemlunardreifingar milli hvers hjóls.

Bæði kerfin vinna að þvi að forða hjólunum frá því að læsast og gera þér kleyft að stýra frá hindrunum.

Hemlunarhjálpin (BA) styður einnig sjálfvirkt við hemlunina með því að mæla hversu fast er stigið á bremsuna og kerfið stillir hemlunarkraftinn eftir því.

Hvort sem er fyrir fjölskylduna eða bara þig, þá er Verso rýmið þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín. Sjö sæta fjölskyldubíll með Easy Flat 7 sæta kerfi frá Toyota tvinnar saman glæsilegt nýtt útlit, fágaðan akstur og aukin þægindi fyrir alla fjölskylduna. Að auki er Toyota Optimal Drive tæknin staðalbúnaður með hverri vélarútfærslu.